Morgunblaðið - 28.07.1938, Page 5

Morgunblaðið - 28.07.1938, Page 5
Fimtudagur 28. júlí 1938. ----------JPtorgtmMaMd ---------------------------- Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Ritstjórar: Jón Kjartansson og Valtýr Stefánsson (ábyrgöarmatSur). Auglýsing-ar: Árni Óla. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 3,00 á mánuði. í lausasölu: 15 aura eintakiö — 25 aura með Lesbók. GOÐUR ÞEGN Við, sem eldri erum, mun- um öll eftir Jónasi pólití. Hann var seinlegur maður og faslítill, friðsemin sjálf og góð- menskan. En „kemst þó hægt fari“ segir máltækið. Hann bætti það upp með samvisku- semi og elju, sem á þótti skorta skörungsskap og glæsimensku. Við dauða sinn lætur hann eft- ir sig 40—50 þúsund krónur og ánafnar eigur sínar göfugu málefni og þörfu. Slíkir menn eru góðir þegnar. Listin að lifa er vandlærð. Hjer hefir óbreyttur alþýðu- maður ávaxtað sitt pund svo, að hollur lærdómur getur að verið okkur, sem meiri þykj- «mst. Það er vel á haldið, að safna svona álitlegri fjárhæð af lítiifjörlegum tekjum. En "því er á þetta bent, að óvíst er, hvort ’ nokkuð bagar þjóðlíf >«kkar tslendinga meira, en tóm- lætið og virðingarleysið fyrir þeim þegnskap, sem lýsir sjer í sjálfsafneitun og sparneytni. Við íslendingar verðum ekki um það sakaðir, að vi§ sjeum ekki að eðlisfari framgjamir 'Og athafnasamir. En okkur gengur ver að gæta fjár en afla þess. Það er alveg heilbxngt að gimast hverja þá nýjung, sem til menningar horfir, En við megum ekki vera svo bráðlátir, að við látum okkur yfirsjást, hver geta okkar er til að full- nægja kröfunum. Við getum ■ekki, hversu fúsir sem við vild- um, komist fram hjá þeiriú staðreynd, að menningu okkar xrerður ekki uppi haldið án „afls þeirra hluta, sem gera skal“. Þessvegna skulum við hætta að •óvirða þá, sem „safna í handraðann“. Því hver slíkur íhandraði er orkuver. Afskifti ríkisvaldsins af efna- ihagsstarfseminni verða að vera á þá lund, að þau hvetji hvern eintakling til ráðdeildar og sparsemi. En slík hvatning verður að koma fram í því, að ríkið sjálft gangi á undan í þessum efnum. En hjer hefir verið farin öfug leið. Ríkið hef- ir látið greipar sópa um hand- raða einstaklinganna. En um ■valdhafana verður það sagt, að ■ekkert hefir „við þá tollað“. Þótt álögurnar hafi þyngst með ári hverju, hafa útgjöldin þyngst meira en að sama skapi. Þess vegna er sá handraðinn, sem mest hefir verið sópað í, galtómur eftir altsaman. En eftir því sem ríkisvaldið sýnir minni nærgætní við sparnaðarviðleitni almennings, eftir því hrakar þeirri viðleitni. Það er ekki til neins að þrefa um það, að vitundin um það, að meiri og meiiú hluti teknanna verði tekinn af manm, hvetur eklti til sjálfsbjargar. Og því verður heldur ekki neitað, að ríki, sem byggir afkomu sína mjög á sölu á óhófsvörum, get- ur ekki samtímis krafist sparn- aðar af þegnum sínum, svo að nokkur myndugleiki fylgi þeirri kröfu. Ríkið verður að haga starf- semi sinni svo, að það sje um- fram alt eftirsóknarvert að vera góður þegn. Breytni valdhaf- anna hefir altaf áhrif á breytni þegnanna. Ríkisstjórn, sem ekki virðir lög, tekur frá borgurun- um virðingu fyrir lögunum. Rík- isstjórn, sem er ljettúðug í meðferð fjár, gerir borgarana líka ljettúðuga. Óstjórn skap- ar illa þegna. Hjer hefir lengi ilt gengið. Við erum komnir á vegamót. Nú verður ekki lengra haldið á sömu braut. Við þurfum að læra á ný að meta fornar dygðir. Aldrei á okkar tíð höfum við fengið alvarlegri áminningu um sjálfsafneitun og sparneytni en einmitt nú. Þessvegna á að minnast með lotningu hvers þess manns, sem á undan geng- ur í þeim efnum. Heiður sje hverjum góðum þegn! Umræðuefnið í dag: Flugmiðstöð íslands. K. F. U. K. Sumarbústaðurinn í Straumi er opinn til afnota fyrir fje- lagskonur, eldri sem yngri, fleiri í hóp eða færri, um lengri eða skemri tíma, á hvaða tíma sem er, eftir því sem óskað er. Staðurinn er ákjósanlegur, grasi grónar lautir innan um marg- reytilega hraundranga, bjóða til hvíldar og næðis um leið og upp er lokið hinum furðulegasta æfin- týraheimi innan um hulduborgirn ar í hrauninu. Fjelagssystur, sem þegar hafa dvalið þarna í sumar, láta vel af veru sinni þar, og telja sumarbú- staðnum alt til gildis, einnig það, hve nærri hann er og að hægt er að kornast þangað án tilfinnan- legs kostnaðar. Þær fjelagssystur, sem vilja tryggja sjer dvalaifitað í Straumi, hvort heldur til veru um eiha helgi, einn dag eða leng- ur, láti Svanlaugu Sigurbjörns- dóttur, Laugaveg 1. vita, sem allra fyrst. Hún mun fúslega gefa góð ráð og leiðbeiningar viðvíkjandi dvöl í sumarbústaðnum. Fjelagssystur, sem allra flestar, ættu að nota þetta tækifæri til fyrirhafnarlítillar, ódýrrar og góðrar sumardvalar og samveru- stunda. Guðrún Lárusdóttir. Málverkasýningu hefir Eggert Guðmundsson á Skólavörðustíg 43. Opin kl. 1—9. MORGUNBLAÐIÐ 5 Flugmiðstöð Islands í Reykjavík Pegar ræddar eru framtíð- arhorfur reglubundinna fluR'ferða á íslandi, vaka á- valt fyrir mjer áætlunar- ferðir með landflugvjelum, sem hafa marga kosti fram yfir sjóflugvjelarnar, svo sem minni þyngd, meira burðarmagn, minni bensín- eyðslu og meiri hraða. Þar að auki þurfa þær ekki að krækja fyrir ströndina. Til þess að koma slíkum áætlunarflugum í fram- kvæmd, þarf að koma á flug- miðstöð, o.e: mun það engum vafa bundið, að hún verður að vera í Reykjavík eða sem næst henni. * A flugferðum mínum umhverf- is Reykjavík og bílferðum hefi jeg atliugað þetta og leitað a?Í sljettu, þar sem hægt væri að koma flugmiðstöð þessari fyrir. Mjer hefir, eins og mörgum öðr- um, t. d. hollensku flugmönnun- um um árið, orðið starsýnt á Vatnsmýrina, af því að þar væri liægt að hafa a. m. k. 5 flugbraut- ir, að jafnaði 1000 mtr. langar. Svæði þetta er sljett og þyrfti ekki annað en þurka það og girða. Vinna þessi myndi skv. ná- kvæmlega gerðum áætlunum verk- fræðinga kosta uin 500.000 krónur. Hvað sem verða kann úr þess- ari fyrirætlun, þá mun svo mikið víst, að staðurinn, þar sem aðal- flugvöllur á að vera, þarf að vera sem næst bænum, sljettur, þelst grasi vaxinn og um 1000 ímtr. á hvern veg. Það mun ekki vera nauðsynlegt að leggja steyptar lendingarbrautir, heldur mætti grasið haldast, og minkar, eftir reynslu okkar í Þýskalandi, hey- taka varla um meira en 20% við það, að flugvjelar fara þar um og lenda. ★ Um eitt atriði þarf að mínu á- liti ekki að deila: gildi og þýð- ing flughafnarinnar stendur og fellur með því að vera sem allra næst höfuðborginni, eða jafnvel í henni sjálfri. Mwn hjer nægja að benda á tvö dæmi: Svíar verða nú $ð kosta 60 milj. kr. til þess að geta fengið flugvöll sem næst Stokkhólmi, og er hann þó 14 km. frá miðbænum! Bæjarstjórp Ber- línar hefir varið hundruðum milj- óna til þess að hafa flughöfa- ina áfram, þar sem hún hefir ver- ið, á Tempelhofer Feld, þó að hún hafi þurft að láta rífa heila bæj- arhluta og breyta öllum sam- gönguleiðum, sem liggja að flug vellinum. En árangurinn kemur nú þegar í ljós: Notkun þessarar miðstöðvar evrópeisku flugsam- gangnanna hefir farið fram úr björtustu vonum, sem menn gerðu sjer í þessu efni, og flughöfnin sjálf er að verða að nýjum »iið- depli bæjarins, sem algerlega ný og stórfeld bæjarhverfi byggjast upp við. Á meðan bygðin í nánd við Reykjavík er ekki orðin meiri en nú, mun varla tiLsú borg í heim- inum, sem hefir betri möguleika til að byggja flugmiðstöð sína Eftir 111111111111111111111111111111111111111111111111111111 | BrunoBaumann 1 | f oringj a þýskas vif-! I flugleiðangursins [ | til Islands 1938. f E = ........... sem næst miðstöð allra annara samgangna og opinberra fram- kvæmda. Því má heldur ekki gleyma, að legan nálægt stærstu borg landsins hefir allmikla þýðingu fyrir útbreiðslu áhugans um flug- mál, fyrir hringflug, íþróttaflug og flugkenslu. ★ Aðalverkefni flugvallarins í Reykjavík mun vera fólgið í því að vera miðstöð allra flugsam- gangna á íslandi. Hjer mun yfir- stjórn flugsamgangna eiga aðset- ur sitt. Hjer munu hinar daglegu fyrirskipanir vera gefnar um all an flugrekstur. Hjeðan og hingað munu liggja geislar flugkerfis- ins, sem nær yfir land alt. Aðalflugleiðin mun liggja til Akureyrar, með daglegum flug- ferðum, jafnt vetur og sumar Auk þess mætti fljúga frá Reykja vík til minst 180 lendingarvalla, sem nú þegar eru ákveðnir og liggja allir nálægt mannabygð- um. Til þessara flugferða þurfa að vera fyrir hendi þrjár flug- vjelar, ein fyrir dagleg áætlunar flug og tvær fyrir sjerstök við- fangsefni, svo sem sjúkraflutning, póstflug, flug til smærri flug- valla í afskektum sveitum o. þ. h. Flugvjelar, sem koma til greina, munu fyrst um’ sinn vera litlar landflugvjelar, fyrir 3—4 far- þega, auk flugmannsins. Dettur mj.er hjer í hug flugvjelagerð sú, sem jeg nota sjálfur hehma í Þýskalandi sem ferðaflugvjel. Tegund *ú er nefnd Me 108, smíð uð af jáayrische Flugzeugxverke r Augsburg. Vjcliin hefir fjögur sasti, einn 200 ha. hreyfil og flýg- ur 270 krn. á klukkustund, en eyð- ir ekki meira en 25—28 lítrum af bensíni á flugstund. Rekstur henn ar er þrí édýrari en rekstur stórr- ar bifreiðar, þó að kaupverðið sje hærra. En það ætti ekki að korna að sök þegar um farþegaflug er að ræða, og myndi eitt sæti til Akureyrar ekki kosta nema 75 kr. aðra leiðina. Sfcærri landflugvjelar myndu, a. m. lf. fyrst um sinn, ekki geta bor- ið sig, vegna þess að hjer koma svo oft til greina viðkomur á snjáum lendingarvöllum, sem þó, eins og áður hefir verið bent á, eru nægilega margir. En vjel af tegund þeirri, sem jeg lýsti áður, getur lent og liafið sig aftur til flugs á grasfleti, sem er ekki stærri en venjulegur knattspyrnu- völlur. Jeg vil hjer enn einu sinni svara þeirri spurningu, sem svo oft hefir verið lögð fyrir mig: Ilvað verður þá um sjóflugvjel- arnar? Jeg svara: Þær eiga að vera til ásamt landflugvjelun- um. — Það mun einmitt vera eitt af viðfangsefnum flugmið- stöðvarinnar í Reykjavík, að tengja rekstur landflugvjelanna við rekstur sjóflugvjelanna. Hin- ar síðarnefndu eiga að annast flug til afskektra fjarða, þar sem enginn flugvöllur er fyrir hendi, og koma farþegum eða flutningi frá þeim stöðum sem allra fyrst á aðalflugleiðina, sem er starf- rækt með hinum hraðskreiðari landflugvjelum. Flugmiðstöðin í Reykjavík þarf því að sjá um hvorttveggja, og hún þarf að vera sem næst lend- ingarstöðum sjóflugvjelanna, helst þannig, að afgreiðslu- og geymslu skálarnir geti verið notaðir fyrir báðar tegundirnar. Sjóflugvjelin mun því ekki vera úr sögunni, heldur mun henni vera vísað á sinn rjetta stað. Hún á að fljúga til hafna, sem landflugvjel kemst ekki til, en ekki til staða, sem landflugvjel nær til með 200 km. flugleið, en sjóflugvjel ekki fyr en eftir 400 km. flug. ★ Með því að sameina flugrekst- urinn þannig, mun vera hægt að koma á áætlunarferðum um alt landið, sem taka aðeins einn dag. Þetta mætti gera tvisvar í viku, en daglega ætti að fljúga a. m. k. milli Reykjavíkur og Akureyrar. Þetta verður mögulegt og jafnvel nauð- synlegt, undir eins og fólk al- ment hefir fengið tækifæri til þess að viðurkenna kosti flug- samgangnanna. En það mun ekki líða langur tími þangað til! ★ Flugmiðstöðin í Reykjavík gæti þó að mínu áliti ekki afgreitt flug til xitlanda. Staðhættir leyfa það ekki. Slík flug verða, vegna legu íslands, oft að fara fram sem „blindflug“, þar sem flug- maðúrinn getur ektungis áttað sig á stuttbylgjumerkjrfci, sem eru send til hans frá flughöfn- inni. Hann flýgwr þá blindandi, getur ekki varað sig á fjöllum og mishæðum í kringum flugvöll- inn. Flugvðllur sá verður að liggja þannig, að á margra kílómetra umhverfi sje ekkert fjall, enginn ósljettur blettwr. Hjer á Suftúr landi er aðeins til einn staður, sem fullnægir þessum kröfum: melarnir milli ölfusár og Selvogs. Þangað getur flugmaðurinn flog- ið sunnan yfir kafið beint að lendingdtstaðnum, án þess að sjá nokkurn skapaðan hlut, ef hon- um eru gefin áttavitamerki með stuttbylgjum frá flugvellinum. Jeg segi þetta vegna þess að jeg hugsa að reglubundnar flugferð- y-R AlVfTT & 8JÖTTTT 8ÍBUL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.