Morgunblaðið - 07.08.1938, Page 2
MÖRGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 7. ágúst 193
lestinu
Látlausir baröagar viö
Lítil stúlka, sem særst hfcfir í óeirðunum í Palestínu. Breskur lögregluþjónn kemur
henni til hjálpar.
Tjekknesku flugvjelarnar:
Æsingar i Þýskalandi
Frá frjettnritara vorum.
Khöfn í gær.
T'jekknesk blöð halda því fram, að Þjóðverjar noti
flugvjelamálið (er tjekkneskar flugvjelar flugu jrfir
þýsku landamærin), til áróðurs gegn Tjekkum. Þau segja
að markmið Þjóðverja sje að gera starf Runcimans lá-
varðs, eins örðugt og unt sje.
I Tjekkóslóvakíu er bent á það, að flugmenn fljúgi oft
yfir landamærin á báða bóga, vegna þess hve erfitt sje
að átta sig á því, hvar flugvjelarnar sjeu staddar.
Meðal annars hafi þýskir flugmenn flogið þrisvar sinn-
um yfir landamæri Tjekkóslóvakíu í júní síðastliðnum, án
þess að nokkurt veður hafi verið gert úr því.
Franska frjettastofan ,,Agence Havas“ skýrir frá því
að sudeten-þýska vandamálið eigi að nokkru leyti rót sína
að rekja til kreppunnar í atvinnumálum, sem gengið hef-
ir yfir undanfarinn áratug. Af kreppunni hefir leitt at-
vinnuleysi í sudeten-þýsku hjeruðunum, sem skapað hef-
ir góðan jarðveg fyrir áróður nazista.
„Agence Havas“ segir, að Runciman lávarður álíti að
ekki sje hægt að Ieysa sudeten-þýsku deiluna, nema með
því að skipuleggja að nýju atvinnumál allra Dónárland-
anna, og viðskiftum þeirra á milli. Kreppan hefir komið
sjerstaklsga hart niður á Dónárlöndunum, sem stafar af
þeirri landmæraskipun, sem gerð var með Versalasamn-
ingunum.
Sendiherra Bandaríkjanna í Berlín, sem nú er stadd-
ur í Prag, mun í dag heimsækja dr. Krofta utanríkis-
málaráðherra og ræða við hann.
iitiiiiiiiiimiiiiiiiimmiiiuiHniiiiiiiiimimiHHiHiiniiiiiiiiiiiti
S =
| Atlantshaf sf lug-1
I maðurinn brýt- |
| ur tvö rifbein
»wm——imm nniMiiHinHm»mT
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
r. Douglas Corrigan, mað
urinn, sem fEaug yfir
Atlantshafið í níu ára gömlu
flugvjelaskrifli, braut tvö rif-
bein í sjer, er hann kom ti.l New
York í gær.
Meiri mannfjöldi hafði safn-
ast- saman tii þess að taka á
móti honum, en dæmi eru til,
jafnvel í Ameríku. Lögreglan
reyndi að halda mannf jöldanum
í skefjum, en árangurslaust. —
Corrigan var um skeið klemduf
á milli í ösinni. Þá var það,
sem rifbeinin brotnuðu.
Nítján hundruð smálestum
af ,,confetti“ var kastað úr
gluggum yfir Corrigan, er hann
ók í sigurför til ráðhússins í
New York.
Fer Göring
til London?
Kalundborg í gær. FÚ.
undúnablaðið „Evening
Standard“ skýrir frá því
í kvöld að þegar Wiedemann
kapt., erindreki Hitlers, var á
ferð í London á dögunum, hafi
hann látið það í ljósi við bresku
stjórnina, að Göring hefði hug
á að koma í heimsókn til Lon-
don til þess að ræða við stjóra-
ina og ábyrga stjórnmálamenn
um samskifti Englands og
Þýskalands.
Jafnframt hafi Wiedemann
farið fram á það, að stjórnin
gerði ráðstafanir til að tryggja
það, að Göring fengi svo vin-
samlegar viðtökur hjá almenn-
ingi, sem stöðu hans hæfði.
250 kg.
sprengja
London í gær. FÚ.
ex flugvjelar uppreisnar-
manna gerðú loftárás á
Alicante í dng. ,;Ein sprengi-
kúla, sem vóg 250 kg., kom nið-
ur í bústað breska ræðismanns-
ins, og særðist hann mjög al-
varlega, en miklar skémcHr urðu
á húsinu.
Ein sprengja kom niður í
skólahús og biðu þar 14 börn
bana.
Flugheræfingar
Breta
MIKLAR flugheræfingar
standa yfir í Bretlandi
um þessar mundir.
í kvöld eru öll Ijós slökt á
.götum í borginni, í þeim hluta
landsins, sem æfingarnar ná yf-
ir, en í járnbrautarlestum, bíl-
um og húsum á að hylja öll
Ijós þannig, að þau sjást ekki
úr lofti.
Katla fór í gær áleiðis til Akra
ness og Ilafnarfjarðar til að lesta
fisk.
Chengku-feng
Japanar búast vi l
að ná sáttum
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Forsætisráðherra Japana er farinn til sveitabi
staðar síns og ætlar að dvelja þar yfir hel|
ina. Er litið á þetta sem örugt merki um þa
að Japanar búist við því, að deila þeirra við Rússa veri
leyst friðsamlega.
Japanar vísa þó á bug kröfu Rússa um það, að ja;
anska herliðið hverfi skilyrðislaust á brott frá Chengk'
feng hæðunum. Japanar vilja, að báðir aðilar dragi herl
sitt á burt á meðan sjerstök nefnd ákveður hvar land
mærin skuli vera.
En báðir aðilar virðast þó óska þess að deilan verði lej
með því að ný landamæralína verði dregin.
BARDAGAR HALDA ÁFRAM.
London í gær. FIT.
Sendiherra Japana í Moskva fjekk í dag nýjar fyrirskipai
frá Tokio, en ekki nánar frá þeim sagt, enn sem komið er.
Fregn hefir borist um, að Japanar hafi lokað ræðismani
skrifstofu sinni í Khabarosk í Síberíu.
Bretar 09
Þjóðverjar
London í gær. FÚ.
veit breskra uppgjafaher-
manna, sem tóku þátt í
heimsstyrjöldinni er nú á heim-
sóknarferðalagi í Þýskalandi.
Foringi hennar er lan Hcmiil-
ton hershöfðingi. Hitler ríkis-
leiðtogi ljet í ljós ósk um það,
að Hamilton kæmi á fund sinn,
og heimsótti Hamilton Hitler á
sumarbústað hans í Berchtes-
1gaden.
Hamiltön h^rshöfðingi sagði
að viðræðunni lokinni, að hann
gæti ekki sagt frá því sem non
um og Hitler fór á milli, fyr en
hann hefði átt tal við Sir Ntv-
ile Henderson, sendiherra
Breta í Berlín, og beðið hann
að skýra bresku stjórninni frá
viðræðunum. Ian Hamilton gaf
í skyn, að Hitler hefði sagt, að
hann vildi forðast Evrópustyrj-
öld.
Duff Cooper, breski flota-
málaráðherrann, er einnig í
heimsókn í Þýskalandi um þess-
ar mundir, og hefir hann átt
tal við einn af þýsku yfir-flota-
foringjunum. Duff-Cooper hef-
ir lýst yfir því, að um kurteisis-
heimsókn hafi verið að ræða,
og alþjóðamál hafi ekki borið
á góm«a.
Málverkasýning Eggerts Guð-
mundssonar verður opin í dag kl.
10—7 í seinasta sinn.
STÖÐUGT
BARIST
Styrjöldin á landamæn
um heldur þó áfram
meðan samningar stani
yfir milli Tokio og Mosk
Samkvæmt japönskum hei
ilclum hefir að kalla verið stc
ugt barist við Chanku-feng f
því í gærkvöldi. Hófu Rúss:
að því er Japanar segja, áka
fallbyssuskothríð á varnarstö?
ar þeirra. Sótti fótgöngu
Rússa fram með fjöldamörgt
skriðdrekum, uns þeir áttu £
eins ófarna um 250 metra,
stöðvum Japana. Þá hófu Ja
anar fallbyssuskothríð á Rús
og dreifðu liði þeirra.
Sendu Rússar síðar 90 flu
vjelar inn yfir stöðvar Japa:
og voru þeirra meðal stór
árásarflugvjelar. Um tjón
völdum þessarar árásar er el<
getið í hinni japönsku frjetl
Nýjar árásir hafa verið gei
ar á Chanku-feng í dag
Rússum, en staðurinn virð
enn vera í höndum Japana.
FLUTNINGAR
TEPPAST
Japanar segja að
rússneskar flugvjelar hafi fh
ið inn yfir landamæri Kór
og varpað sprengikúlum á jái
braut með þeim árangri
flutningar teptust. Virðist s
sem Rússar hafi ætlað að kor
í veg fyrir að Japanar gse
sent liðstyrk til Chanku-fer
Viðurkenna Japanar, að h«
flutningalestir hafi verið le
inni þangað, er loftárásin v
gerð.
VEIKT
AÐSTÖÐU
JAPANA
Fregnir frá Kína benda i
FRAMH. Á SJÖTTB 6ÍÐU