Morgunblaðið - 19.08.1938, Síða 7

Morgunblaðið - 19.08.1938, Síða 7
7 Festudagur 19. ágúst 1938. MORGUNBLAÐIÐ Andstaða stjórnarflokkanna gegn liitaveitunni FRAMH. AF fara fram ítarlega rannsókn á því, kvort: ekki sje unt að ná betri ár- an.gri um upphitun á bænum með fultnaðarvirkjun Sogsfossa. Sje lögð til grundvallár rannsókn þess ari skýrsla verkfræðinganna Ber- ■dals og Nissens frá árinu 1934. Samhliða sje svo gerð rannsókn á því, liver verður aukakostnaður húseigenda í bænum með lauga- Tatnshitun og rafhitun. Ennfremur leggur bæjarstjórn- in fyrir bæjarráð, að láta nú þeg- -ar hefja nýjar boranir við Þvotta- iaugarnar“. Ársæll Sigurðsson lagði til, að reynt yrði að byrja á verkinu ®aeð því að taka innanlandslán. Skýrði borgarstjóri frá því, að það hefði komið til athugunar í foæjarráði, og myndi verða athug- að, og var þeirri tillögu því vís- ■að til bæjarráðs. Jón Axel vill rann- saka nálæga staði. Þá talaði Jón Axel Pjetursson. ICohi hann enn með uppáhaldsræðu ■sósíalista um það, að ekkert mætti «iga við hitaveitu frá Reykjum, fyr en búið væri að rannsaka aðra heita staði í nágrenni Reykja víkur, Hengil, Krýsuvík o. s. frv. Og til þess þyrfti að leita til rík- isstjórnar, til erlendra sjerfræð- nga og innlendra verkfræðinga. í>að var mikið og margt, sem þurfti að gera, að hans áliti. En alt miðaði það að því að tefja íyrir og drepa málinu á dreif. Hann fann að því, að vatnið frá Reykjum væri ekki „nægi- lega heitt“. Eins og það skifti máli, hvort einhversstaðar lengra í burtu fyndist vatn sem væri ein- h verjurn gráðum nær suðumarki. Hann sagði m. a.: „•Teg er sannfærður um, að lán 'fæst ekki til hitaveitunnar af því vatnið á Reykjum er ekki nægi- lega heitt, og þeim líst ekki á í Svíþjóð að það verði nægilegt til að hita upp bæinn“. Hann komst og þannig að orði: „Það eru fjarskalega margar mis munandi aðferðir, sem hægt er að hafa. En jeg skal játa, að jeg hefi ekki mikið vit á þeim. Mjer þyldr skárra en ekki þessi hitaveita með 168 lítrum, sem hitar npp allan bæinn innan Hringbraut- arr. Eu jeg mun, eða mínir flokks-' metut, koma með tillögu um það, að rannsökuo verði öll hitasvæði í íiágrenni Reykjavíkur, með að- stoð ríkis og erlendra sjerfræð- ínga“. Örðugleikarnir ekki eingöngu til ilis. Bjarni Benediktsson tók því- næst, til máls. Hann komst að orði n þessa leið: Óhætt, er að fullvrða, að Reyk- víkingar hafa yfirleitt orðið fyr ii' vonbrigðum, að ekki hefir onn fengist lán til hitaveitunnar. En það er öllum ljóst, að Reykja víkurbær ræður ekki við orsakir þess, að lánið er ekki fengið enn- þá. Biikin á því hvílir á alt öðr- um aðilum. I’ó það sje mjög bagalegt og hiirmulegt, að hitaveitumálið hefir ekki enu náð fram að ganga, ]iá má segja, að það er að vissu leyti vinningur, þegar um slíkt stór- mál er að ræða, sem örugt er, að kemst í framkvæmd á tiltölulega skömmum tíma, að afturkippur komi í það í bili, svo það sjáist alveg greinilega, hverjir eru í hjarta sínu með málinu og hverjir eru mótfallnir því. Andstæðingarn ir koma í dagsljósið jafnskjótt og eitthvað gengur miður, eins og við höfum greinilega sjeð á þessum fundi. Hitaveitumálið er áreiðanlega eitthvert mesta framfara- og menningarmál, sem þjóð vor hef- ir unnið að. Það er því mikill vinningur fyrir bæjarbúa, þegar kastað verður skýru ljósi yfir af- stöðu flokkanna til málsins. Einkennilegt er það, að hvernig sem. afstaða flokkanna er, og af- staða einstakra bæjarfulltrúa lijer heima fyrir, þá kemur það fyrir hvað eftir annað, að menn, sem standa allfjai’ri meirihlutanum í bæjarstjórn Reykjavíkur, tala um hitaveituna sem hið merkasta mál þjóðarinnar, er þeir koma út fyr- ir landsteinana. í fyrrasumar birtist t. d. í enska blaðinu „Manehester Guardian“ viðtal við Jónas Jónsson, þar Sem hann vjek að nokkrum málum hjér heima. En þó talaði hanumestum hitaveituna og fór um hana lang- lofsamlegustum orðum. I samtali, sem dahskt blað átti við Eystein Jónsson fjármálaráð- herra nýlega, fór á söniu leið. Hann talaði einnig mest um hita- veituna og framgang hennar. (Sig. Jónasson: Átti hann að sþilla fyrir málinu?) Ef hann hefði verið á sömu skoð un og Sigurður Jónasson virðist vera, að hitaveitan s.je fjárhags- lega vafasamt fyrirtæki, þá myndi hann ekki hafa talað svo lofsam- lega um hana. Sannleikurinn er sá, að öllum skynbærum mönnum er það full- Ijóst, að hitaveitan er það mikil- vægasta mál, sem okkar kynslóð fær að vinna að. Samt er það á engan hátt und- arlegt, að nokkrir örðugleikar verði á framgangi þessa máls, eins og fjármálaástand þjóðarinnar er orðið. Örðugleiltarnir stafa ekki af því, að fyrirtækið í sjálfu sjer sje óglæsilegt, eins og Sigurður Jónasson heldur fram. Hann segir, að hinn sænski v.erk fræðingur hafi verið fenginn til þess að „skrifa uppá“ áætlun bæj- arverkfræðinganna. En sannleikur- inn er sá, að Nordenson verkfræð- ingur var ráðinn eftir ábendingu fjármálamanua í Stokkhólmi, af því þeir trevstu honum allra manna best til ]>ess að segja það. sem sjerfræðingar teldu sann- ast og rjettast í málinu. Svo er verið að gera veður út úr því, að Nordenson hafi umturnað áætlunum verkfræðinga bæjarisis. En „umturnunin11 er sú, að hann ætlast til að hitalagnir í allan bæ inn kosti meira en lagnirnar í hálf an bæinn! Það eftirtektaverðasta í þessu er, að maður, sem sænskir fjár- málamenn veljá til þess að rann- salea, fyrirtækið, hann gerir það .glæsilegra. en verkfræðingar bæj- arins hafa gert. Hafi verkfræðing- ar bæjarins brotið af sjer, þá er það fólgið í því, að þeir gerðu . hitaveituna ekki eins glæsilega og hinn sænski sjerfræðingur. En þetta er þeim til hróss, en ekki til lasts. Sigurður Jónasson lieldur því fram, að glæ.silegt sje að hita uþp allan bæinn með rafmagni. Það fer hjer svo sem oftar fyrir hon- um, að hann veit lítið livað liann er að segja. Þetta mál hefir livað eftír annað verið athugað í bæjar- ráði, með þeim árangri, að sýnt er að rafmagnið er svo dýrt, að það getur að engu leyti kept, við hita- veituna. Þetta hefir vérið athug- að fyrir lifandi löngu. En það er fullkomin ósvífni af Sigurði Jónassyni, að hann skúíi halda því fram, að skýrsla hips sænska verkfræðings beri það méð sjer, að fyrirtækið sje vafasamt. Venjulega láta menn sjer nægja að fá um 20% af fyrirtækjum síþ- um, þó vera kunni einhverjir fjár brallsmenn, sem telja sjer þaþp ársarð of lítinn. En það er um. 20% af stofnkostnaði sem Nördenson á- ætlar að Iiitaveitan gefi af sjer á V • ij; ' ■ 'i Z: ,an. Tillaga Sigurðar Jónassonár, sem hann ber hjer fram, lýsir hinu svartasta afturhaldi, þar sem hún er borin íram til höfuðs þessu þjóðþrifamáli. Eti vissu- lega eru menn í harts flokki, sem eru vitibornari e.n hann. Yrði tillögu sem þessari ekki beinlínis vísað frá, invndi það spilla fyrir máÍinú“. Flutti Bjarni síðan svoldjóðandi rökstudda dagskrá: „Þar sem skýrsla sænska verk- fræðingsins Tom Nordensons sýn- ir, að hitaveita frá Reykjum sje hið glæsilegasta fvrirtæki, og full- yrðing varabæjarfulltrúa Sigurðar Jónassonar um að skýrslan sýíú hið gagnstæða, er sannleikamim algerlega ósamkvæm. þá vísai' bæj- arstjórnin tillögu varabæjarfiill- trúans frá sem ósæmilegri, þar sem hún er til þfess löguð að spilla fvrir hitaveitumálinu á óviður- kvæmilegan hátt“. Bjarni Benediktsson“. Dagskráin var samþykt með 9 atkv. gegn 2. Rafmagnshitun óf ramkvæmanleg. Nokkrar umræðuf urðu enn um málið. Helgi H- Eiríksson tók m. a. til máls, þar sem hann rakti sundúi' ýmsar firrur þeirra' Sig. Jónassonar og Jóns Axels. Hann sýndi fram á, hve eðlilegt það væri að nota heita vatnið i allan bæinn, enda þótt það nægði ekki til fullhitunar í néma 8° f'rosti. Benti hann þeim fjeíögum J. A., P. og Sig. Jónassyni' á, hve berir þeir væru orðnir að andúð gegn framgangi- málsins, með tali sínu.: Ilann sagði Sigurði m. a.. að Norðmenn hefðu þrautreynt að nota rafmagu til upphitunar. eins og hann sl ingi upp á. En það tækist ekki. Þvrfti hann ekki anú- að en spyrjast fyrir um þetta hjá rafmagnsstjóra. Að loknum lunræðum gaf borg- arstjóri, sem fyr segir, skýrslu uni utanför sína á lokuðum fundi. Dagbók. Veðurútlit í Reykjavik í dag: NA- eða N-kaldi. Ljettir tiL Næturlæknir er í nótt Halldór Stefánsson, Ránargötn 12. Síini 2234. Skíðafólk úr K. R. er beðið að mæta í K. R.-húsirtu í kvöld kl. 9. Mikilsvert inál á dagskrá. Magnús Stefámsson frá Laugar- hvoli við Reykjavík hefir verið skipaður dvravörður í stjórnar- ráðinu og er hann tekinn við því starfi. í Norðurlandakepninni um leyni lögregluskáldsogu hafa borist 334 Jiandrit frá dönskum höfunduin, 60 frá norskum, 80 frá sænskum t)g 60 frá finskum. (FB) O Jarðarför Ingibjargar Jónsdótt- ■>hr fer ekki frain í dag, eins og fyrst var ákveðið, heldur á, unorgun. ý Rafvirkjafjelagið fer í hring- ferð um Grafning og Þingvelli á 'kunnudagsmorgun ltl. 8. Knattspyrnumót III. fl. lielt á- fram í fyrrakvöld og fóru leikar svo. að K. R. vann Fram með 2:0 Ug Valur vann Yíking með 1:0. Eimskip. Gtílífoss kom til Kaup- niannahafnar kl. 5 í gær. Goða- foss fór frá Hamborg í gær. Brú- arfÖSs er í Reykjavík. Dettifoss var á ísafirði í gær. Lagarfoss fór frá Leith í gærkvöldi. Selfoss er fyrir norðan land. Útvarpið: 20.15 Erindi: Um einvigi (Pjetur Magnússon frá Vallanesi). 20.40 Strokkvartett útvarpsins leikur. 21.05 Hljómplötur: a) Fiðlusónata í c-moll, eftir Grieg. b) (21.40) Harmóníkulög. REYKJAVÍKURMÓTIÐ. FRAMH. AF ÞRIÐJTJ SÍÐU. Dómari var Hrólfur Bene- diktsson og fórst frekar vel starfið. Eftir þenna leik vex spenn- ingurinn enn mjög og er ó- mögulegt að sjá fyrir úrslit mótsins. Næsti leikur verður á sunnu- daginn kl. 5, milli Vals og K.R. Vívax. Bálfarafjeiag íslands. Skrifatofa: Hafnarstræti 5. Fjelagsskírteini (æfigjald) kosta 10 kr. Skírteini, sem tryggja bálför, kosta 100 krónur, og má greiða þau í fernu lagi, á einu ári. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu fjelagsins. Sími 4668. Fægiklútar fyrir póleruð húsgögn. vmn Laugaveg 1. Fjölhisveg 2. Búðugler, höfum við venjulega fyrirliggjandi, útvegum það einnig frá Þýskalandi eða Belgíu. Eggert Krislfánsson & Co. Sími 1400. Harðfiskur í heilum böllum og smærri vigtum. 5ig. \?. Skjalðberg. Jarðarför móður og tengdamóður okkar Ingibjargar Jónsdóttur fer fram frá dón?,kirkjunni laugardaginn 20. þ. m. — en ekki á föstudag, eins og áður auglýst, og hefst með bæn á Elli- héímílinu kl. 1 e. hád. Gpðbjörg Ólafsdóttir. Jón Pjetursson. Eiríksgötu 9. Hjer með tilkynnist, að maðurinn minn elskulegur, faðir og tengdafaðir Valdimar Guðmundsson verður jarðaður laugardaginn 20. þ. m. frá heimili hans, Laug- arnesveg 55. Athöfnin hefst kl. 1 e. h. Anna Jónasdóttir, börn og tengdabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.