Morgunblaðið - 19.08.1938, Side 8

Morgunblaðið - 19.08.1938, Side 8
f MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 19. ágúst 1938. R Sstærsti danssalnr í heimi er í landstjórabústaðnum í Mel- bourne í Ástralíu. Þegar verið var að teikna húsið í sína tíð, spurði húsameistarinn landstjóraun hve stór danssalurinn ætti að vera. — Hvað eru danssalir stórir í slíkum byggingum?, spurði land- stjórinn. —• Jeg þekki aðeins einn stóran danssal og hann er í Buckingham- höllinni, svaraði húsameistarinn. — Hafið þá þenna danssal þriðj- ungi stærri, svaraði landstjórinn og þar með var stærð danssalarins' ákveðin. ★ — Jeg vildi eiga unga, fallega, ríka og góða konu. — Já, það vildu víst fleiri, en fjölkvæni er ekki leyfilegt. ★ Kona vasaþjófsins: Hvað er þetta maður. Ertu nú farinn að lesa tískublöð ? — Já, maður verður að fylgj- ast vel með hvar vasarnir verða settír í ár. ★ Járnbrautarlestin milli Buenos Aires og Tuburucnaya er sjálf- sagt hægfarasta járnbrautarlest í heími. Leiðin sem liún fer er 64 kílómetrar, og er lestin 8 klst. á leiðinni. ★ Síðastliðið ár voru 4500 manns vcikir eftir að haf'a verið á snyrti- stofum í Bandarikjunum. Flestir höfðu smitast vegna sóðaskapar á snyrtistofunum. ★ í Bandaríkjunum er farið að framleiða skó, sem ekki þarf að hafa fyrir að bursta. Skórnir eru búnir til úr efni, sem verður gljá- andi ef það er strokið yfir með dulu. R M.s. Dronning Alexandrine fer mánudaginn 22. þ. m. kl. 6 síðd. til Kaupmannahafnar (um Vestm.eyjár og Thors- havn). Farþegar sæki farseðla í dag og fyrir hádegi á morg- un. — Tilkynningar um vörur komi sem fyrst. Skipaafgr. Jes Zinsen Tryggvagötu. — Sími 3025. Amatörar. FRAMKÖLLUN Kopiering — Stækkun. Fljótt og vel af hendi ley»t. Notum aðeins Agfa-pappír. Ljósmyndaverkstæðið Langaveg 16. Afgreiðsla í Laugavegs Apó- teki. 1 Jfaups&apui? Tjöld og tjaldsúlur fyrirliggj- andi, einnig saumuð tjöld eft- ir pöntun. — Ársæll Jónasson — Reiða- og Seglagerðaverk- stæðið. Verbúð nr. 2. — Sími 2731. Blómabrjefsefnin marg-eft- irspurðu, fást nú í Bókaverslun Sigurð- ar Kristjánssonar, — Bankastræti 3. Bolerojakkar og vesti, ísaum- uð eftir nýjustu tísku, verulega fallegt úrval. Vesta, Laugaveg MaSur í fastri atvinnu Óskar eftir 1 stofu og eldhúsi, með öllum þægindum. Uppl. í síma 1511. ÓskaS eftir 2—3 herbergjum eldhúsi og baðherbergi frá 1. okt. Þ. Thoroddsen, sími 1308. Haf narf jörður: Eitt herbergi með ljósi Og hita og ræstingu, og morgun kaffi ef vill, til leigu í Hafn arfirði fyrir 25 krónur á mán- uði. Uppl. í Verslun Gunnþör- unnar í Hafnarfirði, ekki í síma. 40. Karlmanna-rykfrakkarnir eru góðir, þó þeir kosti ekki nema kr. 44.00 til 74.50. Það er ekki mikið til af þeim og óvíst hvort meira fæst fyrst um sinn. — Vesta, Laugaveg 40. b IHtmo> Mótoristi óskast. Sími 4651. Unglingsstúlka óskast nú eða september. Uppl. í síma 1697 Það er löngu viðurkent, að Bikum þök, fyrsta flokks Vesta innleiðir tískuna í prjóna- vinna. Sími 4965. Benedikt. vörum, aðrir koma á eftir. Kom- Qtto B; Amar, löggiltur út ið og skoðið, við teljum ekki varpgvirki> Hafnarstræti 19. - eftir að syna yður. — Vesta, ;gími 2799 Upp3Htmng og vi8- Laugaveg 40.__________________|'gerðir á útvarpstækjum og loft Kaupum flöskur, flestar teg. netum. Soyuglös, whiskypela, meðala-1 ~Sokkaviðgerðin, Hafnarstræti glös, dropaglös og bóndósir. — 19> gerir við kvensokka, stopp- Versl. Grettisgötu 45 (Grettir). ar - dúka> rúmföt Q fl Fljót af_ Sækjum heim. Sími 3562. j grei8gIa. sími 2799. Sækjum, Kaupum flöskur, stórar og sendum. smáar, whiskypela, glös og bón- j Allskonar f jölritun og vjelrit- j dósir. Flöskubúðin, Bergstaða- un Friede pálgd Briem Tjarn.| stræti 10. Sími 5395. Sækjum ötu 24 gími 2250. heim. Opið 1—6. i Kaupum flöskur, flestar teg- undir, soyuglös, dropaglös með skrúfuðu loki, whiskypela og bóndósir. Sækjum heim. Versl. Hafnarstræti 23 (áður B. S. í.) Sími 5333. Bókbandskensla. Lærið að binda yðar eigin bækur. Rósa Þorleifsdóttir. Vonarstræti 12. Friggbónið fína, er bæjarin*. besta bón. Síðan er fögur sveit —. Fast— ar áætlunarferðir frá Reykja- vík til Kirkjubæjarklausturs* alla þriðjudaga. Frá Kirkju- bæjarklaustri til Reykjavíkur alla föstudaga. Vandaðar bif— reiðar. Þauiæfðir bílstjórar. Afgreiðslan Bifreiðastöð Is- lands, sími 1540. 3áfta$-foncU$ Snittkassi tapaðist um mán- aðamótin júlí og ágúst á leið- inni austan undan Eyjafjöllum,. til Reykjavíkur. Finnandi er vinsamlegast beðinn að skila honum til H.f. Kol og Salt. o o fyrir haustið. orsttttHaéid r> MARGARET PEDLER: DANSMÆRIN WIELITZSKA 25. Hvorugt þeirra niælti orð frá vörum. Hún fann nær- veru hans í hverri taug og hvernig hann átti í bar- áttu við sjálfan sig. Henni var full ijóst, af hverju sú harátta stafaði, og áður en hún vissi af, var veikt og sársaukafult hljóð komið yfir varir hennar. „0, Sainte Miehael! Getið þjer aldrei — aldrei hætt að tortryggja mig?“ Á sama augabragði var hann búinn að taka hana í faðm sinn. Kossar hans brunnu á vörum hennar og hrendu sig inn í hjarta hennar. Mannamál og fótatak fyrir utan. — Fleiri en þau liöfðu uppgötvað aldingarðinn Eden, og Michael slepti henni snögglega. Það var farið að lýsa af degi, þegar Magda loksins ók heimleiðis. I hinni daufu dagsbirtu virtist hún enn fölari í andliti en hún átti að sjer, og hinar fiugerðu kniplingar á barmi hennar bærðust ótt og títt í takt við andardrátt hennar. Miehael hafði haldið henni í faðmi sínum fyrir að- eins fáum mínútum, og hún hafði verið gripin af slíkri óvæntri og ástríðufullri blíðu, að hún hræddist það sjúlf. Var þetta ást — ástin, sem móðir hennar hafði var- að hana við? Þau höfðu aðeins skifst á nokkrum hæverskum orð um að skilnaði. Magda einblíndi gegnum döggvotar bílrúðurnar. Hvað bar framtíðin í skauti sjer? Var hún nú komin í tölu þeirra, sem ástin hertók, þessi flularfulla tilfinn- ing, sem getur breytt ömurleika hver.sdagslífsins 'í hel- víti eða Paradís, frá degi til dags? Gillian tók á móti henni við dyrnar. Hún var föl í andliti og dökkir skuggar undir augunum, en hún brosti ánægjulega. „Hvernig líður Glókoili?“, var það fyrsta sem Magda sagði. „Hann sefur, Guði sje lof. Og nú er hann úr allri hættu. Það var hræðilegt, Magda. En hvernig læt jeg! Jeg gleymi að segja þjer, að þú átt brjef inni. Það kom, á meðan við vorum hjá lafði Arabellu". Magda opnaði umslagið. Hún bjóst við, að þetta mvndi vera eitthvað af þessum vanalegu boðsbrjefum, sem hún fekk oft á dag. En þegar hún var búin að lesa brjefið, rak hún ósjálfrátt upp lágt hljóð. „Hvað er að?“, spurði Gillian, óttaslegin á svip. Magda leit þegjandi á hana og rjetti henni brjefið. „Lestu sjálf“, sagði hún með hljómlausri röddu. „Það er frá móður Kits Raynham". Gillian rendi augunum yfir hinar fáu línur: „Kit er horfinn. Vitið þjer hvar hann er? Alícia Raynham“ BYRJUNIN. Magda va óróleg og æst í skapi við morgunborðið nokkrum stundum síðar. Viðburðir síðustu daga höfðu haft mikil áhrif á liana. Fyrst var hin ódulda fyrirlitning Michaels Quarring- ton á henni. Því næst hið brjálæðislega kast Davilofs. Og nú, þegar hún var farin að halda, að mestu ósköjj- in væru liðin hjá, þurfti Kit Raynham. sem hafði ver- ið einn af hennar dyggustu fylginautum um hálfs árs skeið, að koma henni í bobba, með því að hverfa orða- laust. Og til þess að gera ilt verra, hafði móðir hans skrifað henni, í ástæðulausum ótta sínum og kvíða, eins og hún, Magda, bæri ábyrgð á hvarfi hans! Magda brást grörn við, er Gillian gerði {>á athuga- semd ofur stillilega, að ekkert hefði frjest af Rayn- ham. I „Æ, vertu ekki svona leiðinleg, Gillian!“, sagði hún. „Pilturinn skilar sjer. Hann hefir sjálfsagt verið úti ,að skemta sjer og kemur heim, þegar hann er búinn að jafna sig“. „Mjer skilst, að ekkert hafi til haus spurst síðan í fyrradag“, svaraði Gillian alvarleg í bragði. „Það er óttast um, að hann hafi stytt sjer aldur . Það fór hrollur um hana við tilhugsunina. „Lafði Raynham hefir látið slæða vatnið í lystigarðinum“. „Hvaðan liefurðu þenna þvætting — þu mintist eklc- ert á þetta í gærkvöldi?“ „Lafði Raynham símaði til mín rjett áðan, til þess • að spyrja, hvort við hefðum fengið nokkrar fregnir af honum“, svaraði Gillian blíðlega. „Það er þó ekki getið um það í morgunblöðunum spurði Magda og ótta brá fyrir í rödd hennar. Hrygðarsvipur færðist í augu Gillians. „Jú — það er getið um það“, sagði liún og lagði höndina á blaðið, til þess að taka það í burtu. En Magda flýtti sjer að þrífa það. Gillian stóð á fætur. „Vertu ekki að lesa það“, sagði hún í bænarróm. Magda svaraði ekki, en leit jrfir dálka blaðsins, uns - hún kom auga á fyrirsögnina: „Kit Raynham horfinn“. í greininni var í fám orðum rakinn hinn stutti lífs- ferill Kits Raynham, sagt, að liann hefði þótt óvenju efnilegur arkitekt og átt glæsilega framtíð fyrir sjer sein slíkur. Þá var minst á það, með all berum orð- um, að hann hefði verið einna fremstur í flokki þeirra, sem fylgdu "Wielitzska, hinni frægu dansmær, og engin dul dregin á það, að hann hefði verið einn af hennar allra innilegustu aðdáendujn. Rjett við hliðina á greininni var iist Mademoiselle Wielitzska gerð að umtalsefni, og míkU hrifning látin í ljós yfir dansi hennar í „Jómfrúsvaninum“. „Jeg held, að allir sjeu gengnir af göflunum!“, liróp- aði Magda reiðilega. Gillian hafði enga hugmynd um það, sem hent hafði Mögdu í laufskálanum lijá lafði Arabellu, og skildi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.