Morgunblaðið - 02.11.1938, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 02.11.1938, Qupperneq 6
MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 2. nóv. 1938. Stuttorð greinargerð: Stefna Morgunblaðsins T formálsorðum þessa blaðs er í fám orðum drepið á meginatr- iðin í stefnu Morgunblaðsins. Þótt mikið af efni blaðsins hafi frá öndverðu verið, og sje enn, á degi hverjum, frjettir og frásagnir af því, sem gerist fjær og nær, þá má segja, að gegnum straumgný daglegra við'ourða, gæti jafnan þeirr ar undiröldu, sem stefna blaðsins skapar. Hjer skal nokkru nánar, en í for- málsorðum er gert, gerð grein fyrir því, hvernig blaðið telur að þjóð vor megi í framtíðinni verða efna- lega sjálfstæð þjóð, er með hverju ári tryggir betur rjett sinn til þess að ráða málum sínum. Þá er fyrst að minna á það, sem alkunnugt er, að blaðið fylgir Sjálf- stæðisflokknum að málunm, og læt- ur einskis ófreistað til þess að efla fylgi hans, enda er það sannfæring vor, að efling þess flokks sje lífs- skilyrði fyrir þjóð vora. Hefir það á undanfömum árum tekist að auka íylgi flokksins meðal þjóðarinnar, þrátt fyrir hina hörðustu baráttu og vjelabrögð frá hendi andstæðing- anna. En kosningalög landsins eru með þeim hætti, sem kunnugt er, að fulltrúatala Sjálfstæðismanna á Alþingi er í harla litlu samræmi við kjörfylgi flokksins. ★ UNDIRSTAÐAN. Undirstöðuatriðin í bústjórn vorri, þegar rætt er um ábúð- ina á landi voru, eiga að vera þessi: Að atvinnuvegirnir sjeu þannig reknir, að þeir gefi arð af því fje, sem í þá er lagt, um leið og þeir veita þeim, sem við þá vinna, lífvænleg kjör. Við þetta á fjármálastjórn lands- ins að miðast. Þetta hefir hjer verið sagt svo oft, að engin ábending hef- ir hjer oftar verið gefin, svo oft, að jafnvel andstæðingar vorir eru orðn- ir uppgefnir á því að andmæla henni. Hver dagur sem líður, án þess að þessari grundvallarreglu sje fylgt, er óhappadagur þjóðar vorrar. Þeim mun fleiri dagar, sem þannig líða, þeim mun verr er þjóðin á vegi stödd. Því á meðan þessarar gull- vægu reglu er ekki gætt, er þjóðin að tapa, tapa úr höndum sjer sjálfs- forræði sínu, eyða því fjármagni, sem hún þarf á að halda, til þess að auka arðsemi landsins, bæta at- vinnuna, auka framleiðsluna og skapa almenna hagsæld meðal landsmanna. ★ SJÁVARÚTVEGURINN MÁTTARSTOÐIN. TH yrir efnahagsafkomu vora velt- ur mest á því, hvernig sjáv- arútveginum farnast. Þessa augljósu staðreynd var almenningur lengi að læra. Uppgrip þau, sem sjávaraflinn gaf um skeið, þegar nútíma-tæknin kom hjer til sögunnar, óx mönnum svo í augum, að margir litu svo á, að sú fjáraflalind væri lítt tæmandi. Hún hefir verið að tæmast undan- farin ár. Takist ekki að gera sjávar- útveginn aflögufærann, þá rísa ekki atvinnuvegir þjóðarinnar undir ríkis- útgjöldunum til langframa. Hallalaus rekstur útgerðar í meðal ári, svo varasjóðir safnist í góðær- um, til að mæta þeim lakari, er fyrsta lífsskilyrði fyrir fjárhagslegu sjálfstæði þjóðarinnar. Til þess þarf: Lækkun á útgjöld- um við útgerð, frá því, sem nú er, meðan afurðaverðið hækkar ekki, svo og rannsóknir á fiskigöngum, stofnun og rekstur fjölbreyttari fisk iðnaðar en hjer hefir verið. Ef valdhafarnir líta á sjávar- útveginn, eins og hann er, sem meg- instoð þjóðfjelagsins, en ekki sem brak er þeir höggva í eldinn, eins og þeir hafa gert, er lagfæring á hög- um hans og högum þjóðarinnar vís. ★ VANDLEYST VERKEFNI. l\f iklu vandasamari, vandleyst- ari verkefni bíða þjóðarinn- ar í landbúnaði. Þar hefir verið unn- ,ið að umbótum í áratugi, og árang- urinn í ýmsum greinum orðið minni en vænta mætti. En svo hörmulegur er skilnings- skortur núverandi valdhafa á þörf- um búnaðarins og framtíðarvegum, að sá styrkur, sem hann hefir feng- ið bestan og rjettlátastan, er, af und anlátssemi við fræðilegar kreddur sósíalista, gerður vafasamur og ó- vinsæll. Á jeg þar við, þegar bænd- um er gert að skyldu að afsala sjer eignarjetti á jörðum sínum jafnóð- um og þeir taka á móti verðlaunum fyrir að gera varanlegar umbætur í landinu. Þeir menn, sem slík lög setja, hafa engan skilning á nauðsyn jarðræktar fyrir framtíð þjóðarinn- ar, eða á ræktarþeli íslenskra bænda við jarðir sínar. Meðan slíkt skiln- ingsleysi ríkir hjá valdhöfum þjóð- arinnar gagnvart landbúnaðinum, er engra gagngerðra umbóta von. Á núverandi breytingatímum hafa margskonar orsakir leitt af sér ó- hollar truflanir og jafnvægisrask í hinu litla þjóðfjelagi voru. Ein er sú, hve ólík eru hjer skilyrði frá nátt- úrunnar hendi fyrir landbúnað og sjávarútveg, þegar til þess kemur, að atvinnuvegir þessir eiga að keppa við framleiðslu annara þjóða. Er einkennilegt, hve þessi aðstöðu mismunur hefir að vissu leyti dulist mönnum. Af gamalli erfðavenju hafa menn oft talið landbúnaðinn í orði kveðnu aðal atvinnuveg þjóðarinn- ar, þó hnattlega og loftslag geri að- stöðu hans engan veginn þannig, að hann geti gefið þau afköst og þann arð, sem sambærilegt er við útveg- inn. Fiskimiðin eru ein þau bestu í heimi. Landbúnaðarframleiðsla norð ur við heimskautsbaug getur því eng anveginn þolað samanburð við afl- ann á þeim. Skiljanleg er sú afstaða manna, að segja sem svo: Hjer er mismun- urinn svo mikill, að landbúnaðurinn verður að njóta styrks og hlunninda þjóðmálum frá fiskimiðunum. En svo óhöndug- lega hefir farið einmitt fyrir mörgum sem aðhyllast, þá hugsun, að þeir hafa gengið í stjórnmálabar- áttunni, í lið með því fólki við sjávarsíðuna, sem unnið hefir að því, að gera sjávarútveginn ekki lengur aflögufæran. Með því hafa þeir sjálfir kipt fótum undan þeim styrk, sem þeir ætluðust til að feng ist og sjálfsagður væri til handa bún aðinum. Heilbrigða stefnan verður sú, að gera sveitabúskap sem sjálfstæðast- an, lífvænlegastan, arðsamastan upp á eigin spýtur, eins og til var ætl- ast með því að leggja fram fje til þess að rækta svo mikið af landi hverrar jarðar, að fóðuröflun yrði öll á ræktuðu landi. ★ FRAMTÍÐARMÁL SVEITANNA. THil þess að tryggja framtíð land- búnaðarins þarf í stuttu máli þetta: Að gera gagngerða rannsókn á búrekstri bænda um land alt, til þess að sjeð verði, hverskonar búrekstur er arðvænlegastur í hverju hjeraði landsins, og hvernig þeir bændur haga búrekstri sínum, er reka hann með mestri hagsýni. Af þeirri rannsókn verði ráðið með öruggri vissu, hvar er mest bú- sæld og búsældarskilyrði, og sje síð- an lögð áhersla á, að þar fjölgi býl- um. Menn verða að gera sjer fulla grein fyrir því, að íslensk bænda- stjett unir ekki eins vel hag sínum um þessar mundir, sem skyldi. Alt of margir bændur sitja um tækifæri til þess að hverfa frá þessari at- vinnugrein -— og mætti margt um það segja, hve núverandi valdhafar hafa tekið óskynsamlega á því máli. Fyrir nokkrum áratugum fóru þeir til Ameríku, sem brugðu búi. Síðar hafa fólksflutningarnir úr sveitun- um beinst til kaupstaðanna. Næsti þátturinn verður að vera sá, að þeir, sem yfirgefa jarðir sínar, þar sem þeim finnst óbyggilegt, þeir eigi þess kost og sjái sjer hag í, að flytja búferlum á jarðir eða nýbýli, þar sem lífvænleg framtíð blasir við þeim í sveit. Á þann eina hátt verð- ur girt fyrir að sveitafólki fækki á íslandi. Leiðbeingar þær, sem bændur geta fengið, eða bændaefni, að undanfar- inni þeirri allsherjar rannsókn, er jeg áður drap á, verða að vera gagn gerðari en hjer hafa verið fyrir hendi. Og þeir bændur, sem ætla sjer að njóta opinberra styrkja, til þess að koma undir sig fótum, verða að vera skyldaðir, til þess að fara eftir þeim leiðbeiningum, sem augsýni- legast eru þeim sjálfum í hag. En til þess að taka upp það um- bóta starf, sem framundan er, til viðrjettingar og öryggis fyrir sveit- irnar, þarf fyrst og fremst að leggja áherslu á uppeldis- og skólamál sveit anna. Uppeldi sveitaæskunnar þarf ■e- á .4 , * Valtýr Stefánsson rítstjóri. Stúlkan með pröförkina er Gyða Einarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.