Morgunblaðið - 02.11.1938, Síða 9

Morgunblaðið - 02.11.1938, Síða 9
Miðvikudagur 2. nóv. 1938. MORGUNBLAÐIÐ 7 hefir frá ^nvvvjwuvwjvw fyrstu tíð átt miklum vinsældum að fagfna í Ileykjavík, og hefir þetta verið mesti styrkur blaðsins. Það ræður því að líkum, að áhrif Morgunblaðsins í Reykjavík hafa verið mikil og marg- vísleg þau 25 ár, sem liðin eru síðan blaðið hóf göngu sína. Að vísu hóf Morgunblaðið göngu sína með þeim ásetningi, að standa utan við hinar eiginlegu flokkadeilur. Fyrstu árin sást heldur ekki pólitísk .grein í Morgunblaðinu, og kosningar Jjet blaðið afskiftalausar. En þótt Morgunblaðið hafi fyrstu árin ekki tekið virkan þátt í deilum stjórnmálaflokkanna, gat ekki hjá því farið að fljótlega gætti áhrifa frá blað- inu á ýmsan hátt, ekki síst á málefni Reyk j avíkurbæ j ar. f""\ að hafa alls farið fram 13 bæjar- stjórnarkosningar í Reykjavík síðan Morgunblaðið byrjaði að koma út. Verður hjer stuttlega drepið á þess- ar kosningar, og um leið getið hvaða afstöðu Morgunblaðið tók til þeirra. 1914. — Þá voru 7 listar í kjöri, en enginn þeirra með sjerstökum pólitísk- um lit. Morgunblaðið hafði ekki önnur afskifti af kosningunum en þau, að það gat um listana og nöfnin sem á þeim voru. 1 desembar 1914 fór einnig fram kosning þriggja bæjarfulltrúa. Fjórir listar voru í kjöri. Morgunblaðið ljet Losninguna afskiftalausa. 1916. — Þá voru 5 listar í kjöri, og stóðu pólitísku flokkarnir að þremur þeirra. Úrslitin urðu: Sjálfstæðismenn ..... 163 atkvæði Heimastjórnarmenn . . 634 — Verkamannafl..........911 — Konur ............... 204 — Óháðir ............... 80 — Listi verkamanna hlaut þrjá menn kosna, og Heimastjórnarmenn tvo. Afskifti Morgunblaðsins af kosning- unum voru í stuttu máli þessi: Tveim dögum fyrir kosningarnar birtist í blaðinu grein undir dulnefni, þar sem konur eru hvattar til að fylkja sjer um kvennalistann, en að honum stóðu þrjú kvenfjelög: Hið íslenska kvenfjelag, Kvenfjel. Hringurinn og Thorvaldsenfjelagið. Næsta dag, 30. janúar, daginn fyrir kosningarnar, birt- ir Morgunblaðið grein eftir frú Bríeti Bjarnhjeðinsdóttur, og er það svar við greininni frá deginum áður. Frú Bríet vildi ekki að konur hefðu sjerlista. Svo kosningadaginn, 31. janúar, birt- ist pólitísk ritstjórnargrein í Morgun- blaðinu. Er það ádeilugrein á Ólaf Friðriksson, og jafnframt svar við á- deilu hans á Thor Jensen, sem var á lista Heimastjórnarmanna. Þetta er fyrsta pólitíska ádeilugreinin, sem jeg hefi sjeð í Morgunblaðinu. Upp úr þessu fer Morgunblaðið að harðna í sókninni. ★ 1918. — Ilinn 4. janúar skýrir Morg- wnblaðið frá því, að þá fyrir tveim Eftir Jón Kjartansson dögum hafi verið stofnað fjelag hjer 1 bænum, er Sjálfstjórn hjet. Tilgangur fjelagsins var að starfa að bæjarmál- um Reykjavíkur með því: Að vera á verði gagnvart tilraunum af hálfu löggjafarvalds, eða stjórnar- valda lands og bæjar til að raska at- vinnufrelsi einstaklinga, að beita sjer fyrir hagsýni í fjár- málum bæjarins, að beita sjer fyrir því við kosningar, að kosnir verði hæfir menn til opin- berra starfa í þarfir bæjarfjelagsins. Morgunblaðið tók þessari fjelags- stofnun mjög vel og hvatti menn til að styðja fjelagið. Við bæjarstjórnarkosningarnar, sem fram fóru svo í lok mánaðarins voru 3 listar í kjöri. Úrslitin þessi: Sjálfstjórn ............ 1593 atkv. Verkamannaflokkur . . 1193 — Óháðir ................... 76 — Sjálfstjórn kom 4 mönnum að og Verkamannaflokkurinn 3. Morgunblað- ið studdi Sjálfstjórn í kosningunum, og ljet þær verulega til sín taka. 1920. — Enn voru 3 listar í kjöri, og úrslitin þessi: Sjálfstjórn ............ 1562 atkv. Verkamannafl............. 807 — Óháðir ................... 22 — Sjálfstjórn hlaut 4 kosna og Verka- mannaflokkurinn tvo. Kjósa skyldi einn mann í bæj- arstjórn í nóv. 1920, í stað Sveins Björnssonar, er þá varð sendiherra. Tveir voru í kjöri, þeir Georg Ólafs- son hagfr., studdur af Sjálfstjórn og Morgunblaðinu, og Þórður Sveinsson á Kleppi, studdur af Vísi og Alþýðu- flokknum. Þórður var kosinn með 1467 atkv.; Georg hlaut 1148 atkv. Þetta er eina skiftið, sem andstæðingar Morg- unblaðsins hafa unnið kosningar í Reykjavík. Kosningin var ekki hörð; Georg vildi alls ekki vera í kjöri, en var þröngvað fram á síðustu stundu. Geta má þess að Þórður á Kleppi var si'ðar kjörinn í bæjarstjórn, studdur af Morgunblaðinu. 1922. — Þá voru aðeins tveir listar í kjöri. Úrslitin þessi: Listi borgaranna ......... 3100 atkv. — Alþýðuflokksins . . 1757 — Listi borgaranna hlaut 3 menn kjörna, og Alþýðuflokksins 2. Morgun- blaðið studdi borgara-listann. 1924. — Þá voru 3 listar í kjöri, og þessi úrslitin; Listi borgaranna ...... 3237 atkv. — Alþýðuflokksins . . 1729 — — óháðra . .............. 102 — Listi borgaranna hlaut 3 menn kjörna og Alþýðuflokksins 2. Morgun- blaðið studdi lista borgaranna. 1926. — Þá voru 2 listar í kjöri. Úrslit urðu þessi: Listi borgaranna ......... 3820 atkv. — Alþýðuflokksins .. 2516 — Listi borgaranna, sem Morgunblaðið studdi, fær enn þrjá menn kjörna, og Alþýðuflokks-listinn tvo. ★ 1928. — Þá voru 3 listar fram born- ir af pólitísku flokkunum. Úrslit: Ihaldsflokkur .... 3207 atkv. 48,4% Alþýðuflokkur . . 2402 — 36,2% Frjálslyndi fl....1018 — 15,4% íhaldsflokkurinn hlaut 3 menn kjörna og Alþýðuflokkurinn 2. Morgunblaðið studdi íhaldsflokkinn. 1930. — Nú var bæjarstjórnin kosin öll í einu lagi. Þrír listar voru í kjöri, fram bornir af stjórnmálaflokkunum. Úrslit: Sjálfstæðisflokkur 6033 atkv. 53,5% Alþýðuflokkur .. 3897 — 34,5% Framsóknarflokkur 1357 — 12,0% Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 8 full- trúa kjörna. Alýðuflokkurinn 5 og Framsókn 2. — Morgunblaðið studdi Sjálfstæðisflokkinn. 1934: — Fimm listar í kjöri, bornir ir fram af stjórnmálaflokkunum. Úr- slit: Sjálfstæðisflokur 7043 atkv. 49,3% Alþýðuflokkur 4675 — 32,8% Kommúnistafl. 1147 — 8,0% .Framsóknarflokkur 1015 — 7,1% Þjóðernissinnar 399 — 2,8% Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 8 full- trúa, Alþýðuflokkurinn 5, Kommúnista- flokkurinn 1 og Framsókn 1. Morgun- blaðið studdi Sjálfstæðisflokkinn. 1938. — Fjórir listar í kjöri, og úr- slit þessi: Sjálfstæðisflokkur 9893 atkv. 54,7% Alþ. og Komm.fl 6464 — 35,8% Framsóknarflokkur 1442 — 8,0% Þjóðernissinnar 277 — 1,5% Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 9 full- trúa, sambræðsla Alþýðu- og Kommún- istaflokksins 5 og Framsóknarflokkur- inn 1. Morgunblaðið studdi Sjálfstæðis- flokkinn. Hvað sýna svo kosningarnar ? Þær sýna, að eftir að Morgunblaðið fór að hafa bein afskifti af bæjar- stjórnarkosningum í Reykjavík hefir blaðið að heita má altaf borið sigur úr býtum. Hefir því öll þessi ár ráðið í bæjarstjórn Reykjavíkur sú stefna, sem Morgunblaðið hefir stutt. Hvaða þýðingu þetta hefir haft fyrir bæjar- fjelagið, verður drepið lítillega á í eftir- farandi greinarköflum. ★ rið 1890 voru allir landsmenn tæp lega 71 þúsund talsins, og bjuggu þá flestir í sveitum. Þá hafði landsfólk ið staðið í stað í 20 ár, því að hin ár- lega viðkoma -— um 1000 manns — fluttist til Vesturheims. Á þessu varð mikil breyting um og eftir 1890. Það tók fyrir fólksstrauminn til Vesturheims. Fólkið fór að setjast að við sjóinn í landinu sjálfu — í kaup- stöðum og kauptúnum. Og nú er svo komið, að af þeim nálega 118 þúsund sálum sem byggja landið, búa tæplega 70 þúsund í kaupstöðum og kauptúnum víðsvegar um landið. Langmest af því fólki, sem flust hefir úr sveitunum síðustu hálfa öld, hefir sest að í höfuðborg landsins, Reykja- vík. Eftirfarandi tölur sýna íbúatöluna á landinu og í Reykjavík á 5 ára fresti síðan um aldamót, svo og hundraðs- töluna í Reykjavík miðað við alt landið. Ár Alt Reykja- landið vík % 1900 76308 5802 7.6 1905 79462 8997 11.3 1910 84856 11449 13.5 1915 89059 14160 15.9 1920 94436 17450 18.5 1925 100117 22022 22.0 1930 108629 28052 25.8 1935 115870 34231 29.5 1937 117692 36103 30.7 Það hefir verið mikið átak fyrir Reykjavík að fá þenna öra vöxt á svona skömmum tíma. Hætt er við, að allir bæir hefðu ekki staðist þetta. En hvern ig hefir Reykjavík staðist áhlaupið? Vilji menn líta á þetta óhlutdrægum augum verður ekki annað sagt en að Reykjavík hafi staðist áhlaupið prýði- Haustkvöld í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.