Morgunblaðið - 02.11.1938, Síða 16

Morgunblaðið - 02.11.1938, Síða 16
14 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 2. nóv. 1938,- Efttr 25 ára sfarf r Nokkrir menn úr ýmsum starfsgreinum hafa sent Morgunblaðinu til birtingar eftirfarandi ummæli, um álit þeirra á blaðinu, þar sem hver tekur það fram, sem hann vill einkum vekja athygli á, eða þykir mestu varða í fari blaðsins eða starfsemi þess. Ólafur Thors, form. Sjálfstæðisflokksins: Sfálfstæ3ismenn þakka Morg’un- blaðinu. STOFNENDUR Morgun- blaðsins voru stórhuga menn, bjartsýnir og framsýnir. En ekki munu þeir hafa gert sjer grein fyrir því, að áhrif blaðsins á alt menningar og stjórnmála- líf þjóðarinnar yrðu jafn stór- vægileg og raun hefir borið vitni um þennan umliðna aldarfjórð- ung. Það er afrek núverandi rit- stjóra og blaðamanna Morg- unblaðsins, að blaðið er í dag stærsta, fjölbreyttasta, fjöllesn- asta og áhrifamesta blað lands- ins. í dag þakka Sjálfstæðismenn Morgunblaðinu eigi aðeins hin- ar óteljandi ánægjustundir, heldur og mikilvæga baráttu fyrir áhuga og stefnumálum flokksins, og bera fram þá ósk, að ritstjórn blaðsins auðnist að halda áfram á sömu braut, sjálf- um sjer til 'sóma en Sjálfstæðis- stefnunni tii ómetaniegs gagns. Pjetur Halldórsson, borgarstjóri: Sannleikurinn «*» prúðmenikan. Morgunblaðið orðið 25 !|pÍ;ára? Mörgum okkar, sem erum kaupendur blaðsins frá upphafi mun þó þykja sem ekki sje svo mjög langt síðan Vil- hjálmur Finsen sendi fyrsta tölublaðið út. Síðan eru þó kom- in út yfir 7500 tölublöð! Gengi blaðs á að byggjast á því, að blaðið segi ávalt satt, en aidrei ósatt, að ritstjórnin láti skoðanir sínar í ljós með prúð- mannlegum rithætti, vandi mál- far blaðs síns og haldi í burtu frá blaðinu öllu því, sem ófagurt er og til spillingar sambúð manna og samstarfi. Vinsældir Morgunblaðsins bera þess vott, að blaðið hefir leitast. 'við að halda þessi boð- orð. Með þessum forsendum óska jeg Morgunblaðinu góðs gengis og batnandi. (fÍliAr Guðm. Benediktsson, form. Varðar: Geta ekki án þess verið. BJÁLFSTÆÐISFLOKKN- UM hefir ekki tekist það ^nnþá, að ná hreinum meirihluta alþingiskjósenda undir merki sín. Það stafar þó ekki af því, að meirihluti kjósenda sje and- vígur stefnu flokksins. Það er þvert á móti óhætt að fullyrða að allur þorri þjóðarinnar hafi þær sömu lífsskoðanir, sem eru uppistaða og ívaf í sjálfstæðis- stefnunni. Það stafar heldur ekki af því, að illa sje haldið á málum flokksins, í blöðum og á fundum. Þar standa Sjálfstæð- ismenn áreiðanlega feti framar en andstæðingarnir. Þetta hvorttveggja sjest m. a. á því, að andstæðingarnir reyna eftir megni að koma í veg fyrir að fólk kynnist stefnu flokksins og málflutningi hans. Það sýnir að þeir óttast málefni og mál- flutning flokksins. Andstæðing- unum hefir tekist þetta í mörg- um hjeruðum landsins. Þar þora fylgismenn þeirra hvorki að hlusta á ræðumenn flokksins nje að lesa blöð hans. Þessi ótti andstæðinganna úti á landinu er erfiðasti þröskuldurinn á vegi flokksins til verulegrar fylgis- aukningar. Morgunblaðið hefir tvímæla- laust sigrast til fulls á þessum erfiðleikum hjer í Reykjavík, því að það er alkunnugt, að hjer geta menn ekki án Morg- unblaðsins verið, hvorki fylgis- menn nje andstæðingar. Hið mikla fylgi flokksins hjer í höf- uðstaðnum, stafar vafalaust að nokkru leyti af þessum ástæð- um. Fyrir hönd Landsmálafje- lagsins Varðar vil jeg því nota þetta tækifæri til þess að þakka Morgunblaðinu unnin störf í þágu flokksins hjer í bæ. Jafn- framt óska jeg því góðs gengis á komandi árum. Gunnar Thoroddsen, form. Heim- dallar: Hinn einarði frumherji. mMÍIÐ aldarfjórðungs afmæli í^j'c'Morgunblaðsins eiga Sjálf- stæðismenn margs að minnast. Morgunblaðið hefir verið um langan aldur hinn ótrauði og einarði frumherji í baráttunni fyrir málefnum Sjálfstæðis- flokksins. Dómarnir um það hafa oft verið misjafnir, og ekki hlífst við að gagnrýna það. En þótt þetta blað eins og önnur hafi vitaskuld ekki verið full- komið fremur en önnur mann- anna verk, er það víst, að það gagn er ómetanlegt, sem Morg- unblaðið hefir unnið Sjálfstæð- isflokknum, og að sá flokkur væri ekki það sem hann nú er að fylgi til, ef Morgunblaðsins hefði ekki notið við. Ungum Sjálfstæðismönnum er það bæði skylt og ljúft að flytja Morgunblaðinu þakkir á 25 ára afmæli þess. Það hefir frá önd- verðu sýnt hreyfing'u ungra Sjálfstæðismanna fullan skiln- ing og velvild. Þegar samtök ungra Sjálfstæðismanna fóru fram á það fyrir nokkrum árum að fá sjerstaka æskulýðssíðu í blaðinu, þar sem ungir Sjálf- stæðismenn gætu skrifað um á- hugamál sín, var það auðsótt mál hjá ráðamönnum blaðsins. Varð Morgunblaðið þannig brautryðjandi um þessa ný- breytni, sem önnur blöð hafa síðan tekið upp eftir því. Fyrir unga menn, sem einhver áhugamál eiga og vilja koma þeim á framfæri, er það mikils vert að eiga aðgang að stærsta og útbreiddasta bláði landsins' Þessu láni hafa ungir Sjálfstæð- ismenn átt að fagna. Fyrir það þökkum við Morgunblaðinu og óskum því allra heilla. Síra Bjarni Jónsson: Að halda fólki vakamli. 8EG hefi verið að velta því fyrir mjer, hvernig á því standi, að margir eru daufir í dálkinn á mánudögum. Það mun stafa af því, að þann dag vik- unnar eru þeir Morgunblaðs- lausir. Þeir sakna góðs vinar og finna, að blaðið er þeim ómiss- andi. Morgunblaðið ber nafn sitt með rjettu. Því fylgir hressandi morgunblær. Menn vakna vel, er þeir lesa það. Ekki er það Morgunblaðinu að kenna, ef menn eru úti á þekju. Morgun- blaðið veit vel hvað gerist í heiminum, og skýrir svo fljótt og vel frá viðburðunum, að les- endunum veitist auðvelt að átta sig. Jeg þakka blaðinu góða fræðslu. Hvað segja menn t. d. um þann fróðleik, sem Lesbókin hefir að geyma? Hið kirkjulega starf, sem jeg helga krafta mína, hefir mætt velvild Morgunblaðsins. Þar hefir mjer altaf verið vel tekið. Þakkir færi jeg Morgunblað- inu á aidarfjórðungsafmælinu. En þakklætinu skulu fylgja þær árnaðaróskir, að Morgunblaðið haldi áfram að vera Morgun- blað. Afmælisósk mín er sú, að Morgunblaðið megi um mörg ó- komin ár halda mönnum vak- andi. Pjetur Ottesen, alþm.: Er Morgunblaðið ekki komið? gY R I R nokkrum dögum kom jeg inn á afgreiðslu Morgunblaðsins að morgni dags og var þar alt í uppnámi. Tveir símar eru í afgreiðslunni. Stóð sinn maðurinn við hvorn þeirra og höfðu ekki við að svara, svo ört og óslitið dundu hringing- arnar. Orsökin til þessa var vjel- arbilun, sem seinkaði útkomu blaðsins þannig, að blaðið, sem annars er borið út um bæinn til kaupenda kl. 7—8 að morgni barst þeim ekki í hendur að þessu sinni fyr en tveimur tím- xm seinna. Þessvegna rigndi yf- ii’ fyrirspurnunum um það, hvað þessu ylli. Sama morguninn á tíunda tímanum átti jeg erindi í hús eitt hjer í bænum, sem margir menn búa í og var jeg ekki fyr kominn inn úr dyrunum en í eyrum mjer gullu hróp og köll um alt húsið. Er Morgunblaðið 'kki komið? Hvernig getur stað- ið á þessu? Þessi rekistefna er órækur vottur þess, hversu föst ítök blaðið á í hugum fólksins í Reykjavík, hversu samgróið það er orðið lífi þess og því ómiss- andi. Svipaða sögu mundi mega segja um þá lesendur blaðsins er fjær búa. Þessar vinsældir blaðsins og almenningshylli eiga vitanlega rót sína að rekja til þess að blað- ið ber langt af öðrum blöðum hjerlendum, ekki fyrir það eitt, að það er langstærsta blaðið, heldur og miklu fremur fyrir það, hversu alhliða það er að efni til, bæði um frjettir, útlend- ar og innlendar, víðsýni í þjóð- málum og áhuga á fjölmörgu því er hrærist í þjóðlífi voru og til nytja horfir. ' Alt þetta veldur því, að jafnt andstæðingar sem stuðnings- menn blaðsins í stjórnmálum, þeir sem dagblöð lesa, geta ekki án þess verið. Morgunblaðið hefir á þeim 25 árum, sem liðin eru síðan það hóf göngu sína, int af hendi mik— ið og merkilegt hlutverk í þjóð- lífi voru og á þar „snaran þátt.“ Á þessum tímamótum Morg- unblaðsins flyt jeg því þakkir fyrir liðinn tíma og bestu fram- tíðar óskir. Helgi H. Eiríksson, form. Iðnsambandsins: Stuðningur við iðnaðinn. Síðastliðin 10—15 ár hefir iðnaðarstarfsemi hjer á. landi farið vaxandi hröðum skrefum. Með samtökum þeim,. sem þá voru hafin og síðan hafa. þróast og eflst með hverju ári, tókst að vekja þjóðina til vit- undar um þá atvinnumöguleika, sem á þessu sviði voru ónotaðiiv og nokkurn skilning á því, að þar mætti meira að gera en verið hefði. Samfara þessu tókst að bæta svo aðstöðu til iðnað- arstarfa, að ýmsir framtaks- samir og ötulir menn sáu sjer fært að leggja í þá áhættu, að- brjóta ísinn og byrja nýjan iðnrekstur, og jafnframt að reyna að vinna sjer markað fyrir framleiðsluna. En þetta hefir ekki tekist baráttulaust. Iðnaðarmenn og málsvarar þeirra hafa orðið að standa í stöðugu stríði til þess að koma sínum málum fram. Málgögn hafa þeir ekki átt nema eitt, Tímarit iðnaðar- manna, sem fáir aðrir en iðn- aðarmenn lesa. Þeir hafa því orðið að leita á náðir blaðanna og fengið þar misjafnar undir- tektir. Sum hafa ekkert viljað málum þeirra sinna, önnur hafa veitt þeim stuðning út frá sjer- stöku, einhliða sjónarmiði, eða frá eigin brjósti rætt iðnaðar- málin með tilliti til þess, hvert. álit þau höfðu á raunverulegu gildi iðnaðarins fyrir atvinnulíf og afkomu þjóðarinnar. Morg- unblaðið hefir vitanlega einnig haft sína eigin skoðun á þeim málum eins og önnur blöð. Það hefir ekki talið þjóðinni hag eða heill að þeim iðnaði, sem aðeins gæti þrifist í skjóli al- gers aðflutningsbanns á sams- konar útlendri framleiðslu, en óhjákvæmilega hlyti að falla í rústir ef innflutningur væri frjáls og verði stilt í hóf. Það hefir einnig talið æskilegt að innlendur iðnaður bygðist að- allega á innlendum hráefnum. Og um þetta hvorttveggja tel jeg víst, að flestir geti verið því sammála. Við þetta tækifæri tel jeg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.