Morgunblaðið - 02.11.1938, Blaðsíða 25
Miðvikudagur 2. nóv. 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
23
Fyrsta blað MorgunblaOsins...
EFTIR ÁRNA ÓLA
Vanti yður
Búsáhöld:
meðal annars:
Alum. Pottar.
Flautukatlar.
Kökumót.
Hitaflöskur.
Kjöthamrar.
Kökukefli.
Trjesleifar.
Hnífapör.
Hnífakassar.
Búrhnífar.
Dósahnífar.
Vaskaföt.
Gasbyssur.
Kranaslöngur.
Vírsvampar.
Stálull og m. m. fl.
T ækif ærisg jaf ir:
meðal annars:
Rafm. Borðlampar.
Vasaljós.
Dúkkulampar.
Reyksett.
Rakspeglar.
Öskubakkar.
Handspeglar.
Veggspeglar.
Vasaspeglar.
Sparibyssur.
Kubbakassar.
Smíðatól á spj.
Vörubílar.
Skip, margar teg.
Barnatöskur.
Barnabrjefsefni.
Hárbönd og m. m. fl.
Smávörur:
meðal annars:
Rennilásar.
Kápuspennur.
Káputölur.
Hnappar, margar teg.
Tvinni, hv. og sv.
Silkitvinni.
Hörtvinni.
Lásnælur.
Smellur.
Stoppugarn.
Skæri.
Teygjubönd.
Sokkabönd.
Fingurbjargir.
Tautölur.
Buxnatölur.
Skelplötutölur
og m. m. fl.
MMGASIN
FRAMH. AF 10. SÍÐU.
vera í öðrum pólitískum flokk-
um! Þá voru símfregnir frá
Seyðisfirði, Akureyri og ísafirði
og þótti slíkt nýlunda eður ný-
næmi. Ennfremur var þar tekju-
og eignaskattsskráin, eða nöfn
allra þeirra, sem talið var að
hefði 2000 króna árstekjur eða
meira. Skráin var lögð fram
daginn áður (1. nóv.) í Hegn-
ingarhúsinu, og var jeg nær all-
an daginn að tína þessi nöfn
upp úr bókinni. Var jeg þar í
óþökk allra, sem vildu fá að
skoða skrána, og átti í sífeldu
stríði við þá. Fór jeg jafnan
halloka fyrir hverjum, sem kom
og heimtaði að fá að fletta
skránni, því að jeg hafði þá ekki
þá einurð, sem hverjum blaða-
manni er nauðsynleg í starfi
sínu.
Skrá þessi er hið mesta fróð-
leiksplagg um það, hverjar bylt-
ingar hafa orðið í atvinnulífi
borgarbúa á þessum síðasta ald-
arfjórðungi. Þá voru hæstu árs-
tekjur taldar 40 þús. kr. (D. D.
P. A.). Af tekjuháum fyrirtækj-
um, sem nú eru úr sögunni, má
nefna Brydes verslun (20,000
kr.), Rich. Braun (10,000),
Chouillou (12,000), Duus-versi-
un (20,000), Gunnar Gunnars-
son (9000), Gunnar Þorbjörns-
son (9000), Jónatan Þorsteins-
son (8000), Obenhaupt (8000),
P. J. Thorsteinsson & Co (20,-
000), Siggeir Torfason (9000),
Th. Thorsteinsson (30,000). —
Tvö þúsund krónur þóttu þá
góðar árstekjur. Talið var að
Einar Gunnarsson ritstjóri hefði
haft 3000 kr. tekjur og má af
því marka, að Vísir hefir þá
þegar verið orðinn allgott fyrir-
tæki.
' ★
Það þætti nú óðs manns æði
að gefa út dagblað í prentsmiðju,
sem ekki væri betur út búin
að öllu leyti heldur en ísafoldar-
prentsmiðja var þá. En þó var
hún talin einhver besta prent-
smiðja landsins. Nú mundi eng-
um detta í hug að gefa út dag-
blað, sem þyrfti að handsetja.
Það gengur alt of seint eða er
of mannfrekt. En við það varð
Morgunblaðið að búa í fyrstu,
eins og áður er sagt.
Jeg man nú ekki glögglega
hvenær fyrsta blaðið var full-
sett og komið í „pressuna“, en
það mun hafa verið komið fram
undir morgun. Og lítið varð um
svefn þá nóttina, því að margt
fleira kallaði að.
Ólafi heitnum Rósinkranz, sem
var bókari prentsmiðjunnar, var
lítið um þetta nýa blað gefið.
Hann áleit að fyrirtækið mundi
fara hispurslaust á hausinn, og
taldi því úr eins og hann gat. En
þegar út í það var komið, var
hann hinn áhugasamasti. Og út-
gáfan mæddi eigi lítið á honum
fyrst í stað, því að hún jók störf
hans alt að því um helming.
Blessaður karlinn! Jeg man
eftir dugnaði hans við að koma
fyrsta blaðinu út, því að mjer
var nýtt um það að sjá slík
vinnubrögð. Hann tók blaðið úr
vjelinni jafnharðan til þess að
brjóta það, og það var meira
verk heldur en okkur hina hafði
órað fyrir. Það virðist í fljótu
bragði ekki svo mikið vandaverk
að brjóta blað, en það þarf langa
æfingu til þess að brjóta stórt
upplag og vera fljótur að því.
Við Finsen, sem ætluðum að
hjálpa til, uppgötvuðum það
fljótt að við gátum sára lítið
gagn gert. Blöðin bögluðust alla-
vega í höndunum á okkur, og
það gekk ekkert undan okkur.
En hjá þeim Rosinkranz og Ást-
ráði Hannessyni, sem báðir voru
vanir að brjóta, gekk þetta í
„fljúgandi fartinni“. Þó voru
þeir ekki einhlítir um það, og
varð að fá fólk úr bókbandsstof-
unni að hjálpa til. Hvert blað
varð að brjóta tvívegis, því að
það var 8 blaðsíður. Mikið var
undir því komið að kunna að
hafa blöðin rjett fyrir sjer og
vera laginn á að stokka þau.
Og þótt við viðvaningarnir reynd
um að fara að alveg eins og hinir,
þá er mjer nær að halda að við
höfum ekki brotið nema 5 blöð
á meðatí Rósinkranz braut 50.
En svo þegar opnað var, og
sölukrakkarnir komu og alt fylt-
ist af fólki, sem vildi sjá nýa
blaðið, þá gátum við orðið að
liði við afgreiðsluna. Þó kom í
ljós, að við kunnum alls ekki að
telja blöð. Við höfðum ekkert
lag á því. Þeir Ástráður og Rós-
inkranz tóku greipafylli sína af
blöðunum, undu ofurlítið upp á
þau að neðan við kjöl, svo að blöð-
in mynduðu líkt og veifu, sem
þeir sveigðu ofurlítið, svo að blöð
in losuðu sig sundur í efra
horni, svo að auðvelt var að telja
þau sundur með fingrunum. Þótt
það hefði átt að drepa okkur,
þá gátum við þetta ekki — I
höndunum á okkur klestust blöð
in einhvern veginn saman, svo
að ekkert lag varð á talningunni.
Það fipaði mann að vísu, að vart
var hægt að snúa hendi nje fæti
inni í afgreiðslunni fyrir fólks-
þrengslum, og allir grenjuðu
hver í kapp við annan, því að
allir vildu verða fyrstir að fá
blaðið. Og margir vildu gerast
áskrifendur. Manni hefði varla
veitt af því að hafa margar hend
ur þá til að brjóta, telja, af-
henda blöð, eitt eða fleiri, skrifa
niður nöfn sölukrakkanna og
hve mörg blöð þau tóku, taka við
peningum fyrir eitt og eitt blað,
eða fyrir áskriftum mánaðar-
tíma, skrifa nöfn og heimilsfang
áskrifenda, kvittanir handa
þeim, sem borguðu o. s. frv. Og
mikið tafði það fyrir, að þurfa
að „gefa til baka“, því að blaðið
kostaði ekki nema 3 aura, en
tveggjeyringur ekki altaf á tak-
teinum.
Fyrir hádegi var mestu ösinni
lokið — en þá vorum við líka
orðnir þreyttir, steinuppgefnir.
★
Margt hefir breyst á þessum
síðasta aldarfjórðungi. Og ekki
er síst mikill munur á því, hvem
ig fyrsta Morgunblaðið varð til,
og hvernig það verður til nú á
hverjum degi.
Verkfæri
Saum
Skrúfur
Skrár
Húna
eða aðrar járnvörur
Krossvið
Gaboon
Eikarspón
Hnotuspón
Birkispón
Málningarvörur
Veggfóður
Rúðugler
dettur yður rjettilega strax í hug =
Verslunin BRYNJA
Laugaveg 29
Símar: Búðin 4160
Skrifstofan 4129
Sigurðsson
liúsgagnavinnustofa
Frakkastíg 12. Sími: 3930.
Allskonar bólstruð hús-
gögn smíðuð eftir pöntun.
Rúllugardínur og Legu-
bekkir (Díuanar) marg-
ar gerðir ávalt fyrir-
liggjandi.
Fyrsta flokks efni og
vinna.
liiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimimiiiiimiiiiiiiiiMitmmmiiiiiiimiiimmimmiimimmmiiimiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Remington ritvjelar
Mestu ritvjelaverksmiðjur
‘ heimsins.
Aðalumboð hjer:
i Þorsteinn Jóns§on
Bárugötu 6. — Sími 3650.
^iiimmiiiimiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmm.......
Er mjúk sem rjómi og
hefir yndislegan rósailm.
Fæst í öllum verslunum,
sem leggja áherslu á vöru-
»-n
T'
%
:imiiiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiimiiiimiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiii‘