Morgunblaðið - 02.11.1938, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 02.11.1938, Qupperneq 26
24 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 2. nóv. 1938., „Þ að er þó altaf munur I fyrir ykkur, sem hafið frí á mánudögum. Því ]jann dag kemur blaðið ekki út.“ Þessa heillaósk um mánudags- frí okkar starfsmanna Morgun- blaðsins hefi jeg heyrt við og við í 14—15 ár. Og enn í dag er þessi meinloka vafalaust í huga margra manna. En hvemig ætti að vinna að mánudagsblöð- um á mánudögum, til þess ac koma þeim út um bæ fyrir fóta- ferðatíma þann dag, og hvenær ætti að vinna að því að þriðju- dagsblöðin kæmi út á þriðjudags morgna, nema á mánudögum og aðfaranótt þriðjudags? Það hefi jeg aldrei heyrt neitt um. En úr því okkar kæru lesend- ur og viðskiftamenn brjóta heil- ann um það, hvenær unnið er og hver er hvíldartími þeirra, sem við blaðið vinna, þá er rjett að nota þetta tækifæri á 25 ára af-; mæli blaðsins og segja frá því í aðaldráttum, hvernig starfinu við útgáfu blaðsins er hagað. Er þess þá fyrst að geta, að það eru aðeins 20 klukkustund- ir á viku hverri, sem ekki er unnið við blaðið, að einhverju leyti, og það er frá því klukkan 12 á hádegi á sunnudögum, þeg- ar afgreiðslu blaðsins er lokað til kl. 8 á mánudagsmorgna er dag- vinna byrjar í prentsmiðjunni. Allan ársins hring, að undan- skildum 20 klukkustundum fyrir hvern einstakan helgidag og sól- arhring að auki, þegar tvíheilagt er, er unnið að því að einhverju leyti, og mikinn hluta tímans að mörgu í senn, að skrifa, prenta og afgreiða Morgunblað- ið, koma því út á tilsettum tíma. Hjer skal þá lítillega rakið, hvemig sólarhringsvinna við út- gáfu blaðsins fer fram, eins og henni nú er háttað. stræti. Lampaskinið úr vjela- salnum varpar birtu framan í þenna vörð laganna, en dynur tveggja prentvjela heyrist út um Austurvöll. Lögregluþjónn að sækja Morgunblaðið að glugga í prentsalnum við Vallar- stræti. í „lögregluhúsið^. Lögin þurfa að hafa sinn gang“. Klukkan að ganga 5 að morgni, þegar Reykvík- ingar sofa fastast, og einna minst umferð er á götum Mið- bæjarins, ber lögregluþjónn á gluggann í prentvjelasal Isa- foldarprentsmiðju í Vallar- Lögreglumaðurinn er þarna kominn til þess að fá eitt eintak af Morgunblaðinu, sem þarna er í prentun. Því svo skal það vera. Máske fær hann tvö ein- tök upp á gamlan kunnings- skap. Því hann er þarna dag- legur gestur um þetta leyti sól- arhringsins. Því lögin mæla svo fyrir — þau hin miklu prentfrelsislög, sem samin voru á því herrans ári 1855: Af sjeihverju riti því, sem ekki er stærra en 6 arkir, skal prentarinn, jafnframt því, sem hann lætur af hendi ritið úr prentsmiðjunni, og í síðasta la":i, áður en ein stund er liðin, frá því hann byrjaði að láta ritið af hendi, senda eitt exemplar af því á lögTegiuhúsið, og skal hann þegar fá kvittun fyrir því, ef hann beiðist. Ef útaf er brugðið, varðar það 10—250 rd. bótum. seinni síðurnar, er skilar blað- inu upp úr skornu, brotnu og samanlímdu — 8 síðu blaði. Vjelar þessar eru að starfi a. m. k. til kl. 6 að morgni, eða þangað til prentuð eru sv@ mörg eintök af blaðinu, að nægilegt er í morgunútsendinguna í bæ- inn, næsta nágrenni og í hina daglegu pósta, með flóabát- um og bílum, sem leggja af stað snemma að morgni. En hve næturvinnunni við prentunina er snemma lokið, fer fyrst og fremst eftir því, hvenær prentsíður blaðsins voru afgreiddar um nóttina úr setjarasal. Þegar ekkert ó- venjulegt er á ferðinni, sem tefur fyrir, á það að vera kl. 12—1. Næturprentun Morgunblaðs- ins annast Friðjón Bjarnason, ásamt tveim aðstoðarstúlkum, er leggja blaðið í vjelarnar. Hefir Friðjón haft þetta starf á hendi samfleytt í 4 ár, en sex stúlkur skiftast á um vinnu þessa. Það er leiðisamt starf og þreytandi, að breyta nóttinni í starfstíma sinn, einkum í dimm- asta skammdeginu, að þurfa að sofa frá sjer alla dagsbirtu að heita má. MORGUNBLAÐIf)! Nýjustu frjettir! fer að hópast að afgreiðslunni á 7. tímanum og er alt komið áður en klukkan er 7. Jafnóðum og hann blaðið á morgnana, áður en hanik leggur á stað með blaðabagga. sinn til kaupendanna, svo hann hefir geti varast það, að mistökin end- urtaki sig. Flest eru það unglingar sem bera út blaðið í bæinn, og margir þeirra hafa þá atvinnu ár eftir ar. Frá miðnætti til morguns. Frá því aflíðandi miðnætt- is a. m. k., hafa tvær prentvjelar verið að starfi við að prenta Morgunblaðið, fjórar síður blaðsins í hverri vjel, og er brotvjel við þá sem prentar Afgreiðsla Morgunblaðsins. Aðalsteinn Ottesen afgreiðslumaður er að telja eintakafjölda í blaðabunka. Helga Jónsdóttir situr við afgreiðslusímann. Sendi- sveinarnir tveir, Gunnar Magnússon og Carlo V. Kristinsson, sem vinna við blaðið allan daginn, hafa tekið sjer blaðið í hönd og lesa það, sem ætlað er „mtð morgunkaffinu— Yfir þetta afgreiðsluborð eru afgreidd um 100 tonn af blöðum á ári. í prentvjelasalnum: Gunnhildur Eyjólfsdóttir leggur blaðið í aðra prentvjel- ina. Stúlkan, sem sjest fær, er að leggja blaðið í hina prentvjelina. Klukkan 6. Aður en Dómkirkjuklukk- an hefir sent sín 6 stund- arslög inn í prentvjelasalinn við Vallarstræti, meðan dynur og skrölt vjelanna er í algleym- ingi, snarast Aðalsteinn Otte- sen afgreiðslumaður þar inn. Á sumrin, þegar t. d. Laxfoss leggur af stað klukkan 5 að morgni, er Aðalsteinn kominn til afgreiðslunnar á 5. tímanum. Hann er meðal þeirra bæjar- búa, sem árrisulastir eru. Hann hefir unnið við afgreiðslu Morg- unblaðsins síðan árið 1915, eða alla sína starfsæfi, sem af er, að heita má. Hann þarf nú, að hafa hraðann á við að telja blöð- in og skamta blaðabúnkana til handa ,,sendisveitinni“ sem ber blaðið út í bæinn, en það fólk | íengið stafla af blöðum fram á afgreiðsluborðið brettir hann upp á hornin á þeim, sem efst liggja, svo þau greiðast í sund- ur, og „spilar sínum fingrum“ eftir blaðröndunum, og telur svo hratt, sem auga á festir. Hann er enga stund með hvert þúsund. Afgreiðslan hefir skift bænum í 30 eða 31 hverfi, og hefir hver sem ber út blaðið eitt hverfi að hugsa um. Þegar áskrifendurnir fá ekki blaðið með góðum skilum, kvarta þeir til afgreiðslunnar, eins og vera ber. Það er Helga Jónasdóttir aðstoðarstúlka á af- greiðslunni er safnar kvörtunun- um saman er fram á daginn kem- ur og raðar þeim eftir hverfum, svo hver fær þær kvartanir sem honum koma við, er hann sækir „Morgunblaðið!“ „Morgunblaðið!“ Nú er komið það fram á. morguninn, að umferð er' farin að aukast á Austurstræti. í afgreiðslu blaðsins er þá oft eins margt fólk og þar kemst: fyrir, er vill líta yfir helsta efni. blaðsins, þar á staðnum, um leið og það kaupir blaðið. ,,Sendisveitin“ er öll farin. með sína blaðabagga. Og þá. koma þeir krakkar, sem vilja. fá blað til lausasölu þann dag— inn. Þeir fyrstu, sem fá blaðið í götusöluna hafa hraðann ás. skella hurð er þeir þjóta út á götuna og hrópa: Morgunblaðið! Morgunblaðið! Einn hleypur í austur, ann- ar í vestur og sá þriðji veit af' skipi sem er að leggja úr höfn og þýtur þangað niður á hafn- arbakkann. Eftir skamma stund kveða. við köll blaðadrengjanna um allan Miðbæinn að minsta kosti. Með þessum söluhrópum; blaðadrengjanna gerir Morgun- blaðið vart við sig á hverjum: morgni — nema á mánudögum.. Sex daga vikunnar er blaðið sú vekjaraklukka, sem vekur bæj- arbúa til starfa, um leið og blaðið flytur þeim frásagnir af' því, sem markverðast hefir gerst daginn áður, og hvað' helst er væntanlegt þann dag- mn. Klukkan 8 að morg:ni. I/1. 8 að morgni byrjar dag- 1 vinnan í prentsmiðjunni. Eins og gefur að skilja, er ált

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.