Morgunblaðið - 02.11.1938, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 02.11.1938, Blaðsíða 29
Miðvikudagur 2. nóv. 1938, MORGUNBLAÐIÐ 27 Sólarhringur við Morgunblaðið Frá Setja rasalnum: Sigmar Björnsson viS aðra setjaravjelina, sem notuð er við setningu Morgunblaðsins. Það eru setjaravjelarnar, sem gera núverandi jlýti við setvingu blaða mögulegan. En duglegir vjelsetjarar setja jafn fljótt cg hraðvirkur maður skrifar. Framh. af 25. síðu. samvinna og samhygð nauðsyn- legri en við ritstjórn dagblaða, svo vel farnist og batnandi ár- angri af starfinu verði náð. Jeg fyrir mitt leyti get ekki betur lýst minni hlutdeild við ritstjórn blaðsins hin síðari ár en þannig, að jeg reyni að gera það þann og þann daginn, sem aðrir starfs nienn blaðsins komast ekki til að gera. En hvað samvinnu Snertir er hún og hefir verið hin ánægjulegasta, langa vinnu- daga og erfiðar vökunætur. Nú má ekki líta svo á, að ekki komi fleiri við sögu en þeir sem hjer hafa verið taldir, þegar um ritstjórn Morgunblaðsins er að ræða. Einn starfsmaður við blaðið hefir aldrei stigið sínum fæti á skrifstofu þess. Ilann heitir Páll Jónsson. Hann er búsettur 1 Höfn og hefir ekki komið til landsins síðan hann varð stú- úent árið 1915, og sigldi utan til náms. Hann sendir blaðinu frjettaskeyti daglega, og hefir gert í nokkur ár, síðan blaðio fúr að fá einkaskeyti frá út- löndum. Þá koma hjer við sögu margir menn, sem eru í samstarfi við blaðið, og það eru frjettaritarar þess víðsvegar um land, er hafa fekið að sjer, margir hverjir um Lngt skeið, að senda blaðinu markverðar frjettir hver úr sínu hjeraði. í mörg ár hefir sjerfróður maður í tónlist ritað um hljóm- leika fyrir blaðið. Fvrst var það Árni Thorsteinsson, þá Sigfús Einarsson, síðan Páll ísólfsson, en nú hefir Emil Thoroddsen annast þetta um skeið fyrir Pál. Um myndlist ritar Jón Þor- leifsson málari, undir höfundar- nafninu Orri. Ennþá hefir ekki tekist að koma bókmentagagnrýninni í æskilegt horf, og fá ákveðna menn til að annast hana að öllu leyti. Sá maður, sem mest hefir ritað um bækur í blaðið síðustu árin, er Guðni Jónsson magister. Þá eru ótaldir þeir menn, sem hvenær sem er eru reiðubúnir til þess að styðja blaðið með penna sínum, ráðum og dáð, bæði í stjórnmálabaráttunni og í öðrum greinum. Þeir eru marg- ir. Og styrkurinn frá þeim blað- inu mikilsvirði. En segja má um þá eins og skáldið ságði forðum, að eigi þýði „að þylja nöfnin tóm — þjóðin mun þau annars- staðar finna.“ Jeg geri þó á því eina undantekningu, þar sem er Oddur Guðjónsson skrifstofu- stjóri Verslunaráðsins, sem hef- ir verið ráðunautur ritstjórnar- innar í verslunarmálum undan- farin ár. Með því hefir komist á fult og örugt samræmi í stefnu og starfi blaðsins við starf Versl unarráðsins í verslunarmálum þjóðarinnar. ★ Líður að miðaftni. ú líður að miðaftni. Dag- vaktin í Isafoldarprent- smiðju er hætt vinnu. Setjarar þeir, sem eiga að setja í blaðið um kvöldið, eru komnir til starfa. Þeir þurfa að fá sín handrit, svo tími vinnist til þess að alt verði sett, sem setja þarf í blaðið þann daginn. Á skrifstofum ritstjórnarinn- ár hefir ýmist verið ös eða „mannlaus bær“ að kalla, eftir því hvernig á hefir staðið þann daginn. Hver blaðamaður hefir haft sínu að sinna,máske þurft að vera úti um allar þorpagrundir, til að hitta menn að máli, eða vera þar, sem eitthvað markvert ger- ist. En hinn, sem hefir ætlað að hafa handrit til fyrir „kvöld- vaktina“ í prentsmiðjunni, og setið í skrifborðsstólnum, kemst kannske að þeirri niðurstöðu kl. að ganga 5, að hann hefir sama og engum staf komið á pappír- . inn, því hjá honum hefir ekki „stansað hurð“ allan daginn. Til hans hafa komið menn í þeim margvíslegustu erindum, sumir með greinar er þurfa að komast í næsta blað, eða að minsta kosti í það næstnæsta. Svo eru aftur aðrir, sem koma og segja frjettir, stundum þær íurðulegustu frjettir, sem þeir hafa eftir alveg áreiðanlegustu heimildum, og hljóta því að vera dagsannar, en reynast ramm- bjagaðar og afbakaðar, þegar málið er athugað. Og enn aðrir koma með rjettar frjettir, vond- ar eða góðar frjettir, eða með afmælis-, hjónabands- eða trú- lofunarfrjettir. Því allir merkis- dagar manna koma Morgunblað- inu við. Ef við lítum inn á skrifstof- urnar seinnipart dags, þegar all- ir eru heima, situr t. d. Jón Kjartansson inni í sínú herbergi með Alþingis eða stjórnartíð- indi, og ýms blöð fyrir framan sig,og ritar sinn þátt af blaðinu fyrir næsta daginn. Því engum af starfsmönnum ritstjórnarinn- ar mun vera gert rangt til, þó sagt sje að Jón sje þeirra stað- fastastur við vinnuna. Pjetur Ólafsson situr í næsta herbergi með mikinn haug af er- lendum blöðum og myndamótum í kringum sig, niður sokkinn í blaðagreinar um einhvern þeirra merkismanna, sem mest koma við sögu í frjettaskeytum þá dagana. Hann er með hugann við heimsviðburðina og kann eins og kverið merkisatburði, sem gerst hafa síðasta misserið og meira til. Þar situr og Þórunn Hafstein og safnar að sjer efni fyrir kvenfólkið. En í hinu þriðja er ívar Guð- mundsson, umkringdur af í- þróttamönnum eða öðrum, sem hafa eitthvað að segja úr bæj- arlífinu, því Ivar getur ekki ver- ið alstaðar, en hann þekkir al- staðar einhvern. Og þar er Árni Óla, elsti starfsmaðurinn, í raun og veru einskonar fóstri þessa 25 ára blaðs, sem nú sjer um auglýs- ingarnar. Slíkum mönnum er í starfi dagblaða líkt við hinar iðnu býflugur, er bera jafnt og þjett í búið. Herbergi þeirra Árna og ívars er líka myndamótahlaða Morgun- blaðsins. Gegnt þessu herbergi er skrif- stofa gjaldkerans Sigfúsar Jóns- sonar. Hann hefir á hendi alt bók hald og gjaldkerastörf blaðsins, og hefir umsjón með daglegum rekstri þess og innheimtu allri, bæði á auglýsinga og áskrifta- gjöldum. Frk. Hanna Ólafsdóttir er honum til aðstoðar. Það þarf mikið eftirlit og nákvæmni við það starf, því reikningar á hverj- um mánuði skifta mörgum þús- undum. -— Auglýsingainnheimtu hafa á hendi ungfrú Gyða Einars dóttir og Garðar Bergmann. Sendisveitin, sem ber út blað- ið á morgnana í bæinn, hefir á hendi innheimtu áskriftargjalda. Um hver mánaðamót kemur lítil auglýsing upp á vegg í skrifstofu gjaldkera um það, í hvaða umdæmum sendisveitar- innar hafi verið minst um van- skil og best innheimta þenná mánuðinn. Þeir sem standast best þá samkepni fá lítilsháttar verðlaun í viðurkenningarskyni. Sigfús Jónsson hefir og á hendi umsjón með allri sölu> blaðsins utan Reykjavíkur, sem afgreiðslumenn víðsvegar um land hafa á hendi. Er það mjög mikils virði fyrir blað, sem hef- ir jafn mikla útbreiðslu, að hafa ötula og reglusama áfgreiðslu- menn. Það veltur mikið á þeim, hve ört útbreiðsla blaðsins eykst í kaupstöðum og kauptúnum og út um sveitir. Hafa afgreiðslu- menn blaðsins yfirleitt reynst áhugasamir og duglegir við starf sitt. I herbergi næst útidyrum, sit- ur sá, er þetta ritar. Og þangað kemur Árni frá Múla, er á dag- inn líður, og skrifar sínar hug- leiðingar um dagsins málefni, sem verða umtalsefni bæjarbúa daginn eftir. Kvöldvinnan. Um það leyti, sem flest skikk anlegt fólk hættir vinnu að kvöldinu, skrifstofum og búð- Friðjón Bjarnason, prentari. Ólafur P. Stefánsson, handsetjari Samúel Jóhannsson, Sigmar Björnsson, handsetjari vjelsetjari. Þessir prentarar vinna að Morgunblaðinu Hjer birtast myndir þeirra prentara, sem vinna daglega við setning-u, umbrot og prentun Morgunblaðsins. Sigfús Valdemarsson, handsetjari Ásgeir Guðmundsson, vjelsetjari. Karl A. Jónasson, vjelsetjari. Vilhjálmur Svan Jóhannsson, vjelsetjari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.