Morgunblaðið - 12.11.1938, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.11.1938, Blaðsíða 3
Laugardagur 12. nóv. 1938. MORGUNBLAÐIÐ 3 Samskotin Lögreglan og slökkviliðio í harkalegri deilu Sakamálið gegn stðkkviliðsstjora | Hann sýknaðnr i Hæstarfetli Hæstirjettur kvað í gær upp dóm í máli rjett- vísinnar gegn Pjetri Ingimundarsyni slökkvi- liðsstjóra., sem ákærður var fyrir að hafa ráðist með skömmum og svívirðingum á lögregluna. í undirrjetti var slökkviliðsstjórinn dæmdur fyrir brot gegn 102. gr. hengingarlaganna, en í Ilæstarjetti var hann sýknaður. Nýtt sæluhús á Hveravöllum Ferðafjelag íslands á nú þrjú sæluhús í óbvsðum LOKIÐ er nú við smíði þriðja sæluhússins, sem Ferðafjelag Islands hefir látið smíða. Er það sæluhús á Hveravöllum. Hin sæluhúsin tvö eru við Hvítárvatn og í Kerlingafjöllum. Öll eru sæluhúsin stór og myndarleg og hagleg að öllum frá- gangi. í nýja sælidiúsinu á Hveravöllum eru rúm fyrir 30 manns, en miklu fleiri geta gist þar. Húsið er hitað upp með hveravatni og fyrirhugað er að gera sundlaug hjá sæluliúsinu stras á næsta sumri. Igær hárust blaðinu alls kr. 2.390.00. Vafalaust mun starfs fólk fleiri fyrirtækja taka sig sam an og safna í sínum hóp í sam- skotasjóðinn. Munið, að heimilin eru mörg, sem eiga um sárt að binda eftir togaraslysið. M. G. 10.00 M. J. 50.00 Gyða Gunnarsdóttir, Ragnar og Gunnar Gunnarssynir 10.00 Skúli 10.00 Á. 1.00 T. 3.00 K. S. 10.00 Mæðgur 10.00 H. og A. 100.00 Á. Þ. 5.00 A. Bridde 100.00 jsr. kt. ío.oo jN. N. 5.00 N. N. 15.00 T. B. 10.00 Tveir bræður 10.00 S. í. B. 5.00 Ónefndur 15.00 Ónefnd 5.00 Starfsfólk hjá L. G. L. 105.00 Máf Egilsson 20.00 A. 10.00 N. N. 100.00 Ðjössi 5.00 K. N. 25.00 Þ. S. 10.00 Nýja Bíó 500.00 N. N. 10.00 B. V. D. 10.00 Ekkja 10.00 G. G. 10.00 Vigfús Guðbrandsson & Co. 100.00 Tvéfr bræður 200.00 J. Ó. . 5.00 Guðjón Jónsson 30.00 Kristján Siggeirsson 100.00 S. V. G. 5.00 Lóa og Magga 5.00 Ónefnd 5.00 H. J. 5.00 O. J. O. 26 25.00 L. P. 10.00 Sveitaheimili 50.00 Boston klúbburinn 50.00 Póstmenn í Reykjavík 154.00 J. E. 10.00 R. Þ. 10.00 H. H. 10.00 Inga Gunnars 5.00 V erslunarmannaf j elag Reykjavíkur 100.00 Elma 20.00 .Steindór Ingibergur 5.00 Ó. P. 10.00, Starfsmenn í Vjelsmiðj. Hjeðni 150.00 O. og J. K. 10.00 N. N. 5.00 Bagga 10.00 Kjötbúðin Ilerðubreið, Hafnarstr. 4 100.00 N. N. 2.00 2.390.00 Áður birt 9.093.00 Samtals 11.483.00 Sundnámskeið sjómanna. Á bæj- arráðsfundi í gær var samþykt, að sjómenn fái ókeypis kenslu á sundnámskeiðum Slysavarnafjel. íslands. Stúdentafjelag Akureyrar gekst fyrir skemtun í gærkvöldi á af- mælisdegi Matthíasar Jochums- sonar. Ágóðinn rann til bókhlöðu- byggingarinnar. Eru málavextir þessir, samkv. forsendum dóms undirrjettar: Þriðjudaginn 29. júlí 1937 kom upp eldur í svönefndu Puglahúsi við Sundlaugaveg. Sex lögreglu- þjónar fóru á brunastaðinu til að halda þar uppi reglu. Er þangað kom fól lögregluvaktstjórinn, Magnús Eggertsson, þeim lög- regluþjónununi Bjarna Eggerts- syni og Jóhanni Ólafssyni að sjá um að umferð teptist ekki á Sund- laugaveginum. Stóðu þá tveir slökltviliðsbílar hlið við hlið og lokuðu umferð- inni. Bað Bjarni þá Jóhann ,að aka öðrum bílnum fram fyrir liinn. Er Jóhann var að byrja, að aka bílnum kallaði Kjartan Pjeturs- son slökkviliðsmaður til hans og bannaði honum að hreyfa bílinn; stöfivaði þá Jóhanu;, strax bíþpn.' Pór þá Kjartan til. slökkviliðs- stjóra, sem þarna var mættur og skýrði honum frá þessu. Slökkvi- liðsstjóri sveif þá þegar á Bjarna Eggertsson lögregluþjón með hörkuskömmum, og segir Bjarni að hann hafi m. a. sagt að lög- regluþjónarnir væru „bullur“ og’ „helvítis dónar“, og að hart væri að þurfa að segja það, að lög- regluþjónarnir væru einu menn- irnir, sem flæktust fyrir er slökkvi liðið væri að verlti. # Yið ranusókn málsins játaði slökkviliðsstjóri ,að hafa svifið á lögregluþjóninn með liörkuskömm- um, en mundi ekki hvaða orð hann notaði. Ekki kvað slökkvi- liðsstjóri hafa sagt að lögreglu- þjónarnir væru einu mennirnlr sem flæktust fyrir við eldsvoða, lieldur hitt, að þeir gerðu slökkvi- liðinu oft óleik, m. a. með því að troðast inn í logandi hús meðan á slökkvistarfinu stæði. Hjelt slökkviliðsstjóri því fram fyrir rjettinutn, að lögreglan hafi, eink- um upp á síðkastið, bæði flækst fyrir slökkviliðinu og vanrækt mjög skyldu sína til að halda uppi reglu við eldsvoða og bægja óvið- komandi fólki frá brennandi hús- um. Lagði slökkviliðsstjóri fram fjölda vottorða frá slökkviliðs- mönnum til staðfestu þessu. Yar síðan liöfðað mál af rjett- vísinnar liálfu gegn slökkviliðs- stjóra, fyrir brot gegn 12. kap. hegningarlaganna (brot á móti valdstjórninni). Setudómari í málinu var skip- aður Ragnar Bjarkan, fulltrúi í stjórnarráðinu. Hann taldi það að vísu ekki rjett af lögregluþjónunum að bjrrja að færa slökkviliðsbílinn án sam- þykkis slökkviliðsstjóra. En dóm- arinn leit hinsvegar svo á, að hvorki þetta nje hin framlögðu vottorð mn vanrækslu lögreglunn- ar við eldsvoað gæti rjettlætt framkomu slökkvíliðsstjóra og þau - FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Scx menn reknir úr Dagsbrún Þrfr fá áminningu p undur var haldinn í *■ verkamannaf.ielaR'inu Dagsrbún í gærkvöldi, og var hann fjölmennur. Fyrst var ræTf úm atvinnuleys- ismálin. Samþykt var áskorun til ríkis- og bæjarstjórnar, að auka framlag til atvinnubóta ufn 80— 100 þús. kr. Þá var rætt um „áróðursstarf- semi“ gegn stjórn Dagsbrúnar og fjelaginu. Hafði stjórnin þar sak- ir fram að bera gegn nokkrum mönnum, svo miklar, að hennar dómi, að hún kom með tillögu um að eftirtaldir 6 menn skyldu ræk- ir úr Dagsbrún: Guðjón B. Bald- vinsson varaformaður fjelagsins, Kristinus Arndal, Erlendur Vil- hjálmsson, Vilhj. S. Vilhjálmsson, Haraldur Pjetursson og Guðm. R., Oddsson. Var það í sambandi við brjefaskriftir þessara manna til ýmsra fjelagsmanna fyrir allsherj- ar atkvæðagreiðsluna á dögunum, sem þeir voru sakfeldir. Var brottrekstur þessara manna samþ. með 169:27 atkv. Þá var samþykt að gefa eftir- töldum (þrem) verkamönnum á- minningu: Sigurði Guðmundssyni fyrv. fjármálaritara fjelagsins, Símoni Bjarnasyni og Guðmundi Finnbogasyni. 18 menn voru kjörnir í fulltrúa- ráð í stað þeirra sem reknir voru og sem viðbót. Nokkur fleiri mál voru rædd á fundinum. K. R.-ingar fara í skíðaskála sinn í kvöld kh 8 frá K. R. hús- inu. X Sæluhús F. í. eru opin öllum al- menningi og þúsundir Reykvík- inga hafa notið næturgistingar í þeim á ferðum uin óbygðirnar. Ferðafjelag íslands er nú eitt lang fjölmennasta fjelag lijer á landi og eru í því á þriðja þúsund fjelagsmenn og konur. Fjelagið vinnur.sem kunnugt er að því að kynna almenningi land- ið og skapa skilyrði fyrir almenn- ing til að ferðast um það og njóta náttúrufegurðarinnar. Ár- bók fjelagsins er afar vinsæl. Áform fjelagsins er að koma upp einu nýju sæluhúsi í óbygð- um á hverju ári og er næst áætl- að að koma upp litlum skálum í Þjófadölum, nokkuð fyrir sunn- an Hveravelli og í Fljótsdrögum norðanvert við Langjökul, enn- fremur síðar meir hjá Hafrafelli, fyrir sunnan Eiríksjökul og hjá Hagavatni, sunnan Langjökuls. Eru þessi hús aðallega ætluð smá ferðamannahópum, 6—8 mönnum, sem fara vilja gönguferðir um óbygðirnar umhverfis Langjökul. Allar þessar framkvæmdir hafa kostað fjelagið mikið fje, en tekj- ur þess eru litlar, auk fjelags- gjalda. Á morgun efnir fjelagið til hlutaveltu í K. R. húsinu til á- góða fyrir sæluhúsasjóðinn. Má vænta þess, að Reykvíkingar bregð ist vel við og sæki hlntaveltuna, svo sæluhúsasjóðurinn eflist. Hjónaband. Gefin verða saman í hjónaband í dag ungfrú Lilja Bjarnadóttir verslunarmær og Paul R. Olsen mjólkurfræðingur. Heimili þeirra verður á Mánag. 13. Minningarsjóður Haralds pró- fessors Níelssonar. Gjafir: Ás- mundur Guðmundsson prófeSsor 100 kr„ frá Húsavík: síra Frið- rik A. Friðriksson 10 kr„ Jóhann Sigvaldason 1 kr., María Vil- hjálmsdóttir 5 kr., Þóra Girðna- dóttir 1 kr., Birgir Steingríms- son 1 kr„ Aðalbjörg Benedikts- dóttir 1 kr„ Þórdís og Bjarni Benediktsson 20 kr. Knattspyrnukapp leikur til ágóða fyrir bágstadda fólkið VIÐ setningu knttspyrnu- þingsins í fyrrakvöld vott- uðu þingfulitrúar aðstandend- um sjómannanna á bv. ,,Ólaf“ samúð sína og hluttekningu með því að rísa úr sætum sínum áður en gengið var til þing- starfa. Á þinginu kom fram tillaga þess efnis, að leikinn yrði knattT spyrnuleikur til ágóða fyrir sam skotasjóðinn og var það sam- þykt í einu hljóði. Kappleikurinn mun fara fram á sunnudegi, þegar veður leyfir. K. R. R. var falið að sjá um leikinn. Er ekki kunn- ugt enn hvaða lið leika, en lík- legt að það verði úrval úr Val og Víking annarsvegar og Fram og K. R. hinsvegar. Tvö umferöaslys T fyrradag varð hílslys á Skóla- vörðustíg, fyrir framan húsið nr. 38. Varð kona um sextugt fyrir híl og meiddist lítilsháttar. Hún heitir Kristíu Sigríður Guð- jónsdóttir og á heima á Skóla- vörðustíg 31. i Konan athugaði ekki að setja á sig númer bílsins og væri rann- sóknarlögreglunni þökk í því, að bílstjórinn gæfi sig fram og sjón- arvottar að slysinu. Þess skal getið, að bílstjórinn ók ekki í burtu strax og slysið hafði orðið, lieldúr aðstoðaði konuna eftir mætti. í gær rákust tveir bílar saman á gatnamótunum, þar sem koma saman Túngata, Hofsvallagata og Sellandsstígur. Báðir hílarnir skemdust töluvert mikið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.