Morgunblaðið - 18.11.1938, Page 2

Morgunblaðið - 18.11.1938, Page 2
2 MQRGUN BLAÐIÐ Föstudagur 18. nóv. 1938. Oturcliiil safnar liHi gegn Ghamberlaiii Ágreiningur um stofnun nýs ráðuneytis Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Mr. Winston Churchill fór þess á leit í breska þinginu í dag, að a. m. k. 50 þingmenn íhaldsflokksins greiddi atkvæði með tillögu frjálslynda flokksins um stofnun sjerstaks ráðuneytis til þess að hafa umsjón með hergagnaframleiðslunni. Breska stjórnin hefj,r lýst sig mótfallna því að þetta ráðuneyti verði stofnað. Tillaga frjálslynda flokksins er fram komin sem breyt- ingartillaga við hásætisræðu konungs. Atkvæðagreiðslunn- ar um hana er beðið með mikilli eftirvæntingu, þar sem vitað er að margir íhaldsmenn eru hlyntir stofnun her- gagnaráðuneytis. VÖRN STJÓRNARINNAR Sir Thomas Inskip, landvarnarráðherra Breta gerði þá grein fyrir afstöðu bresku stjórnarinnar í dag, að þýðingarlaust væri að stofna þetta ráðuneyti, nema að það fengi heimild til þess að þvinga iðnrekendur til þess að hlíta ráðstöfunum þess. Ef þessi heimild fengist ekki, væri ekkert unnið við að stofna þetta ráðuneyti. Gyðingar verða fluttir til nýlendna Breta Á kostnað U. S. A. Sundrung < * frönsku Alþýðu- fylkingarinnar Daladier ósveigjanleg- ur gagnvart Leon Blum Churchill. Nansenskrifstof- an hlaut friðar- verðlaun Nobels Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Nansen-alþjóðaskrifstofan til aðstoðar flóttamönnum hefir hlotið friðarverðlaun No- bels, að því er skeyti frá Oslo hermir í kvöld. Skrifstofan heldur áfram starfi því, sem dr. Friðþjófur Nansen hóf árið 1921. Þjóða- bandalagsráðið fól dr. Nansen í júní það úr að finna lausn á vandræðum miljón rússneskra flóttamanna sem dreifðir voru um Evrópu og Kína. Þegar Friðþjófur Nansen dó árið 1930 var alþjóðaskrifstofunni í Genf falið að halda þessu starfi á- fram. Mark skrifstofunnar er að safna skýrslum um hag flótta- mannanna, hjálpa þeim til þess að afla sjer atvinnu og koma þeim fyrir og afla upplýsinga fyrir þá um atvinnuskilyrði í löndum, sem þeir ætla að flytja til. Samkvæmt skýrslum, sem skrifstofan hefir safnað, voru á síðastliðnu ári í Evrópu, hinum Sir Thomas skýrði frá því að hergagnaframleiðslunni miðaði nú mjög ört áfram, eftir að hin- ar nýju ráðstafanir voru gerð- ar er septemberhættan var lið- in hjá. Hann sagði að Bretar hafi ekki verið viðbúnir í sept- ember vegna þess að nokkrum árum áður hafi sú skoðun ver- ið ríkjandi að styrjöld myndi ekk'i brjótast út í næstu 10 ár. En eftir að Bretar hafi byrjað að vígbúast, hafi vel miðað á- fram, ekki síst síðustu mánuð- ina. RÆÐA CHURCHILLS. Mr. Churchill var á ann- ari skoðun. Um leið og hann bað a. m. k. 50 þingmenn í- haldsflokksins að styðja tillögu frjálslynda flokksins, sagði hann, að þetta myndi ekki stofna stjórn Mr. Chamberlains í hættu, heldur myndi það að- nálægari Austurlöndum og ejng verga hvatning fyrir stjórn- Kína 972.191 flóttamenn, þar jna> ag hraða vígbúnaðinum í Krónprinshjónin við- stðdd 1. des. hátíð íslendinga i Khöín Khöfn í gær F.Ú. t—ÍT riðrik ríkiserfingi og Ingrid *■ krónprinsessa hafa lofað að vera viðstödd hátíðahöld Is- Iendingaf jelagsins í Khöfn 1. desember. Hóf fjelagsins verð- ur í Moltkes Palais í Breið- götu. í hófinu flytur Sveinn Björns- son sendiherra ræðu. Elsa Sig- fúss syngur einsöng, Haraldur Sigurðsson leikur á píanó o. m. fl. munu íslendingar einnig gera sjer til skemtunar. Ðanska útvarpið ætlar að efna til minningarathafnar um 20 ára afmæli sambandslag- af 737.303 Rússar. Síðan hafa | hlutfalli við þá hættu, sem steðj (anna 1. des. Verður athöfnin þúsundir flóttamanna bæst við, agj ag breska heimsveldinu. Þjóðverjar, og nú síðast Gyð- ingar. Lögreglan iyk- ur eftftrlit með umferðlnnft Lögreglan hefir nú ákveðið, að auka talsvert eftirlit með farartækjum hjer í bænum og nágrenni. Verður reynt að sjá til þess að reglur og lög um öku- hraða, ljósaútbúnað og þessháttar verði ekki brotið. Lögreglustjóri skýrði blaðinu frá því í viðtali í gær, að Björn Blöndal löggæslumaður mundi fyrst um sinn verða lögreglunni til aðstoðar við umferðargæslu hjer í bænum og nágrenni bæjar- ins, og verður bifreið sú, er hann hefir haft undir höndum og er eign ríkisins, notuð við gæsluna. Hann helt því fram, að ef stofn- að yrði hergagnaráðuneyti, myndi verða hægt að komast hjá ýmiskonar drætti í her- gagnaframleiðslunni. Mr. Churchill spurði sjálfan sig í ræðu sinni, hvort hann bæri traust til stjórnarinnar, og sagði, að svarið væri bæði já og nei. Hann treysti henni til þess að starfa samkvæmt stjórn arskránni og meginreglum í- haldsflokksins, en þegar til þess kæmi, að fella dóm um ráðstafanir hennar í hermálum, þá bæði hann þingheim að ganga ekki hart eftir svari. ATKVÆÐAGREIÐSLA I KVÖLÐ. Atkvæðagreiðsla um tillögu frjálslynda flokksins fer að Jík- indum fram í kvöld. Sósíalistar styðja tillöguna. tveim hlutum og hefst fyrri hlutinn kl. 17,30 eftir íslensk- fum tíma, en síðari hlutinn kl. 13,10 eftir íslenskum tíma. Athöfnin hefst með því, að Stauning forsætisráðherra og Sveinn Björnsson sendiherra flytja ræður. Klukkan 20,20 til 21,15 verða ieikin íslensk þjóð- lög eftir Sigfús Einarsson. Einnig fer þar fram kórsöngur. Elsa Sigfúss syngur. Nýjar kröfur F London í gær F.Ú. regnir frá Prag í dag herma, að ÞjóSverjar hafi gert nýjar kröfur um af- hendingu hjeraSa í Tjekkó- slóvakíu. Engar stórar borgir eru á því svæSi, sem hjer er um aS ræSa. Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. jP»J" orustugreinin í „The Tim- * es“ í gær er álitin túlka skoSun Mr. Chamberlains í ný- lendumálinu. Er fullyrt, að GyS ingaofsóknir Þjóðverja hafi haft í för með sjer breytingu á afstöðu Breta til nýlendu- krafa þeirra. Margir málsmetandi breskir stjórnmálamenn hafa til skams tíma viljað ganga til móts við þessar kröfur og stuðla á þann hátt að friðun Evrópu. En þeir skiftu um skoðun er þeir sáu hverri meðferð Gyðing-ar sættu. MIKINN HNEKKI. Sir Thomas Inskip land- varnaráðherra Breta sagði í ræðu í gær, að friðarstarfsemi Mr. Chamberlains hafi beðið mikinn hnekki síðustu dagana. Tillögur Breta og Banda- ríkjamanna um hjálp til handa flóttamönnum verða að líkindum birtar innan skamms. Þessar tillögur fjalla ekki aðeins um hjálp til handa þýskum Gyðingum, heldur einnig til handa öðrum flótta- mönnum í Evrópu. Tillögumar verða lagðar fyrir al- þjóðanefnd í Genf, sem umsjón befir með hjálp til handa flóttamönnum. í BRESKUM NÝ- LENDUM. Er gert ráð fyrir að Bretar muni út- vega Gyðingum og ÖSrum flóttamönn- um jarðamæði. En Bandaríkin eiga að standa straum af kostnaði við fram kvæmd þessa máls. Búist er við að 20 þús. Gyðinga- f jölskyldur verði fluttar til JSTýju- Guineu, þess hluta, sem Bretar ráða yfir. Einnig er gert ráð fyrir að> marg- ir Gyðingar verði fluttir til Ástralíu og Nýja-Sjálands. Meðal hinna mörgu, sem mótmælt hafa Gyðingaofsóknunum, er landstjóri Nýja-Sjálands, sem sagði að vi'ð lægi, að menn örvænti um að friðurinn gæti haldist, er þeir hugleiddi það, sem gerst hefði í Þýskalandi. (Skv. F.Ú.). Árásunum í þýskum blöðum gegn Bretum og Bandaríkjamönnum er hald ið áfram í dag. GREMJA 1 BANDA- RlKJUNUM. La Guardia borgarstjóri í New York hefir skipað svo fyrir, að eingöngu Gyðingar í lögregluliði borgarinnar skuli gæta þýska ræðismannsbústaðar- ins; Þýskur nazistahópui' er á leið- jnni vestur um haf og verður hans einnig gætt af Gyðingum. Útför von Raths. sendisveitarrit- ara fór fram með mikilli viðhöfn í Diisseldorf í dag. Ræður fluttu von Ribbentrop og Bohle, yfir- maður utanríkisdeildar nazista- flokksins. London í gær F.Ú. Framkvæmdanefnd social- istaflokksins í Frakk- landi (flokks Leon Blum), hef- ir samþykt ályktun um að vinna gegn tilskipunum þeim, sem ríkisstjórnin hefir gefið út, til' f járhagslegrar viðreisnar, ,og hefir þingflokkur jafnaðar- manna einróma fallist á þessa ályktun. Er óánægja mikil með- al verkalýðsins yfir því, að 40 klst. vinnuvikan hefir verið af- numin. Daladier forsætisráðherra hefir lýst yfir því, að hann muni halda til streitu áform- um stjómarinnar í viðr ‘ málunum, þrátt fyrir mótspyrnu þá, sem nú sje komin til sög- unnar. Miðstjórn flokks hans, radikalsocialistaflokkurinn, hef- ir samþykt traustsyfirlýsingu til Daladiers. Hefir hann þingflokk radikal socialista óskiftan að baki sjer, að því er talið er. Atvinnubótavinnan verður aukin Arsæll Sigurðsson fulltrúi komm únista bar fram tillögu úm það á bæjarstjórnarfundi í' gsér, að bæjarstjórn yki atvinnubóta- fjeð sem næmi 80—100 þús. kr. eins og Dagsbrún hefði farið fram á. Ennfremur spurði hann hvort þeir Jakob Möller og Stefán Jóh. Stefánsson hefðu átt tal við rík- isstjórnina, en þeim var falið á bæjarráðsfundi þ. 4. nóv. að ræða við ríkisstjórnina um atvinmlleys- ismál bæjarmanna. Stefán Jóhann færðist undan að svara þessu, en Jakob Möller skýrði frá því úr forsetastól, að þessar viðræður hefðu ekki enn farið fram. Borgarstjóri upplýsti þá, að hann hefði nokkrum sinnum, síð- an síðasti bæjarstjórnarfundur Var haldinn, og síðast í gær, átt tal við atvinnumálaráðherra um þessi mál. Sagði hann að ráðherrann hefði, er þeir hittust síðast, fallist á, að framlag ríkissjóðs til atvinnubóta- vinnunar yrði aukið nokkuð frá því sem það var í fyrra. Og sam- kvæmt því vonaðist borgarstjóri eftir, að hægt yrði að fjölga í at- vinnubótavinnunni, frá því sem nú er, og myndi sú fjölgun geta kom- ist á í næstu viku. En bæjátstjórn myndi leggja fje á móti þýí sem ríkisstjórnin legði fram. Tillögu Ársæls var vísað til bæjarráðs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.