Morgunblaðið - 30.11.1938, Qupperneq 2
2
Miðvikudagur 30. nóv. 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
Daladier hefir herinn við-
búinn í dag
Sósíaiistar
farnir að óttast
Olíuveitur frá
Rúmeníu til
Þýskalands
ósigur sinn
Frá frjettaritwra vorum.
Khöfn í gær.
SÁTTAUMLEITANIR ÞÆR, SEM FRAM
FÓRU I PARÍS, TIL ÞESS AÐ KOMA í
VEG FYRIR ALLSHERJARVERKFALL,
URÐU ÁRANGURSLAUSAR. VERKFALLIÐ HEFST
KLUKKAN 12 I NÓTT.
Daladier heimtaði, að verkföllunum vrði öllum af-
lýst alveg skilyrðislaust, áður en sest væri að sáttasemj-
araborðinu með fulltrúum verðalýðsfjelaganna.
Ríkisstjórnin hefir tekið í sínar hendur alla stjórn
bæjar- og sveitarfjelaga. Hefir hún jafnframt lýst yfir
því, að hver sá starfsmaður, sem ljeti falla niður vinnu,
eða tæki þátt í verkföllunum, misti samstundis atvinnu
sína hjá því opinbera.
PARÍS í HERNAÐARÁSTAND ?
Fjörutíu þúsund lögreglumenn og liðsmenn úr borgarlið-
inu eru þar til taks, hvenær sem á þarf að halda.
En auk þess getur alt setuliðið gripið til vopna fyrirva.ra-
laust.
Ef verulegar óeirðir brjótast út, þá er talið víst, að borgin
verði lýst í hernaðarástand.
Blum er áhyggjufullur um það, hvað morgundagurinn
kunni að bera í skauti sínu. Fer þeim verkamönnum
fjölgandi, sem eru tregir til þess að hlýða fyrirmælum
verkfallsmanna, sakir þess að þeir óttast afleiðingarnar.
SfÐASTA SÁTTATILRAUN
London í gær F.Ú.
Þótt sáttatilraun Paul Boncour og fulltrúa landssambands
uppgjafahermanna, hafi engan árangur borið, ætla þeir að gera
enn eina tilraun til þess að afstýra verkfallinu og ræða í kvöld
við Lebrun ríkisforseta og aðalskrifara verklýðsfjelaganna.
Stjórn sambands verklýðsfjelaganna hefir lýst yfir því á
ný, að til allherjarverkfallsins sje ekki stofnað í pólitískum til-
gangi.
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Karol konungur Rúmena, sem talinn er að vera
mesti olíuframleiðandi í Evrópu og Göring mar-
skálkur, sem kallaður er mesti olíunotandi álfunnar
áttu tal saman í Leipzig í gær, að því er Berlínarfregn
hermir.
Mælt er að þeir hafi þar ráðgert að koma í fram-
kvæmd þeirri fyrirætlun Görings, sem er ein af fyrir-
ætlunum hans um framkvæmdir Þjóðverja og við-
reisn á næstu árum. En það er hvorki meira nje minna,
en að leggja olíupípur frá Rúmeníu um Rutheníu til
Þýskalands.
FORDÆMISLAUST.
Þingmenn socialista hafa á-
kveðið að koma saman í full-
trúadeildinni næstkomandi
föstudag. Socialistar hafa kraf-
ist þess, að þingið væri kallað
saman, út af þeim málum, sem
um er deilt og leiddu til á-
kvörðunarinnar um allsherjar-
verkfall, en Daladier neitaði að
verða við þeirri kröfu að sinni.
Fordæmið mun ekki vera fyr
ir þeirri ákvörðun, sem social-
istar hafa nú tekið, um að
koma saman á fund í fulltrúa-
deildinni vegna þess að kröfum
þeirra um að þingið væri kallað
saman, var ekki sint.
HEIMILD FRÁ ÞVÍ
í SUMAR.
Til viðbótar við þœr ráðstafanir,
sem ríkisstjómin hefir þegar gert,
vegna hins yfirvofandi allsherjarverk-
falls, er gefiS í skyn af henni, að hún
hafi heimild til, samkvæmt tilskipun
útgefinni í júlí, að fyrirskipa öllum
borgurum landsins að starfa, þegar svo
sje ástatt, að alþjóðarvelferð krefjist
þess. Það er þó enn eigi kunnugt hvort
stjómin notar sjer þessa heimild.
FRAMH. Á 8JÖTTTJ SÍÐU.
Sögur Þjóðverja
um stjórn Breta
í Palestínu
London í gær F.Ú.
ýsk blöð ræða í dag mjög
yfirlýsingu Chamberlains í
neðri málstofunni í gær, þar
sem hann sagði, að Bretar hefði
ekki tekist á hendur neinar
nýjar skuldbindingar gagnvart j
Frakklandi. Eru blöðin ánægðj
yfir þessari yfirlýsingu.
Þýsk blöð halda áfram árás-
um sínum á nýlendustjórn og
kalla meðferð Breta á Aröbum
blett á mennh'gunm. Segja þau
m. a., að Aröbum hafi verið
bannað að fíytja matvæli til
þorpa, þar sem skortur var
matfanga.
En sannleikurinn er sá, segir
breska útvarpið, að þar sem
matvælaskortur hefir verið í
Palestínu, hafa matföng verið
flutt þangað í vöruflutninga-
bifreiðum hersins.
103 nazistar
skotnir!
Schusclinigg
boöið frelsi
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
he Times flytur um það
fregnir, að nú hafi hinir
þýsku nazistar „hreinsað til“ í
Austurmörk. eins og þeir ætli
sjer meðal nazistaflokksins
þar. Segir blaðið, að þeir muni
vera 103 sem skotnir hafi verið.
Hitler er farinn til Vínar-
borgar, að því er The Times
segir. Er erindi hans ságt vera
það, að ræða þar um það við
flokksmenn sína, hvort Schus-
chnigg skuli eigi látinn laus.
Talið er að Hitler hafi jafn-
vel boðið honum að fara til út-
landa ásamt konu sinni og syni
sínum.
En Schuschnigg hefir neitað
að taka því tilboði og þiggja
f j elsi sitt. nema samtími: verði
ýmsir af flokksmönnum hans
Iá+nir lausir.
RÁÐSTEFNA UM
FLÓTTAMENNINA
London í gær F.Ú.
immveldaráðstefna hefst
í London í lok þessarar
viku til þess að ráðgast um
flóttamannamálið og taka á-
kvarðanir þar að lútandi.
Er starf nefndarinnar fram-
hald þeirrar starfsemi, sem
grundvöllur var lagður að á
Evian-ráðstefnunni.
Koloman de Kanya, utan-
ríkismálaráðherra Ungverja-
lands, hefir beðist lausnar
vegna heilsubrests. (F.Ú.).
Franco
og Bretar
London í gær F.Ú.
að var staðfest í neðri mál-
stofunni í dag af Butler,
aðstoðar-utanríkismálaráðherr-
anum, að herskip Francos
hefði 23. og 26. nóvember tek-
ið þrjú grísk skip og flutt til
Palma. Skip þessi voru með
hveiti frá Rúmeníu, sem breska
stjórnin hafði keypt.
Butler kvað stjórnina líta
mjög alvarlegum augum á þetta
mál og hefði Burgosstjórninni
verið send mótmæli og kröfur
um, að skipin væri látin laus
og ekkert hróflað við farmi
skipanna.
Fyrirskipánir hafa og verið
sendar til ræðismanns Breta í
Palma.
„Fjarstæða"
segir Göbbels
London í gær F.Ú.
r. Göbbels hefir opinber-
lega neitað að rjett sje,
sem breskt blað skýrði frá í
morgun, að Þjóðverjar væri að
vígbúa herfylki Rutheníu tjl
varnar.
Talaði Göbbels um þessa
fregn sem fjarstæðu.
YIÐSKIFTAFULLTRÚI
TIL FRANCO
London í gæi F.Ú.
ósíalistinn Spaak, forsætis-
ráðherra Belgíu, lýsti yf-
ir því í öldungadeild þjóðþings-
ins, að Belgía ætlaði að send v
viðskiftafulltrúa til Franco-
stjórnarinnar, þar sem það
væri mikilvægt með tilliti til
viðskifta Belgíu og þess hluta
Spánar, sem Franco rjeði yfir.
Skúli Guðjónsson
prófessor í heilsu-
fræði við Árósa-
háskóla
i
I
|
n
i
i
i
r
K
í-
!!
b
Dr. Skúli Guðjónsson. ,
Frá frjettaritara vorum. }
Khöfn í gær.
msóknarfresturinn er út-
runninn, til þess að
sækja um nýtt prófessorsem-
bætti í heilsufræði við Árósa-
háskóla.
Dr. Skúli Guðjónsson er eini
I umsækjandinn og er því talið
víst að hann fái embættið.
F ullveldisafmælið
í erl. blöðum
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
p orystugrein í fylgiblaði
* ,,Politiken“, „Ekstra-
bladet“ í dag fjallar um Is-
landsmál.
Þar er m. a. komist að orði á
þessa leið:
Mikið ranglæti var jafn-
að, þegar sáttmálinn var gerður
milli Dana og íslendinga árið
1918. Síðan hafa viðskifti milli
sambandsþjóðanna farið fram
með kyrlátri þróun, sem hefir
ýmislegt gagn hlotist af.
Leggur blaðið áherslu á, að
skýra frá framförum þeim, sem
orðið hafa á íslandi á þessum
20 árum, enda þótt hin íslenska
þjóð hafi orðið að berjast við
fjárhagskreppu og vinna bug á
þeim erfiðleikum. Að lokum
óskar blaðið, að framfarir ís-
lands geti haldið áfram og tek-
ur það fram, að þetta sje ein-
læg ósk Dana.
GREIN FINSENS.
Khöfn í gær F.Ú.
„Tidens Tegn“ í Oslo flytur langa
grein eftir Vilhelm Finsen um hina
geysilegu þróun atvinnulífs og menn-
ingar á Islandi síðan sambandslögin
voru samþykt og fylgja greitiinni marg
ar myndir.
■ Hann segir í greininni að Island sje
ríki sem sje þrungið af starfslöngun
og lífsorku og sem leitist við að skana
sjer jafningjaaðstöðu meðal Norður-
landaþjóðanna, þrátt fyrir fámennið.
Eimskip. Gullfoss var á ísafirði
í gær. Goðafoss fór frá Kaup-
mannahöfn í gærkvöldi áleiðis til
Vestmannaeyja. Brúarfoss er á
leið til Leith frá Hull. Dettifoss
fer í kvöld til Grimsby og Ham-
borgar. Lagarfoss er á Akureyri,
Selfoss er á leið til útlanda frá
Siglufirði.