Morgunblaðið - 11.12.1938, Blaðsíða 2
2
) flOM
MOLGUNuL A^Ml
Sunnudagur 11. défe. 1938.
Ný viðhorf á Evrópu:
Brefum skýrt
frá að Musso-
lini ætlar að
knýja fram
kröfur sinar
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
ILONDON er fullyrt, að bresku stjórninni hafi borist frá
Rómaborg áreiðanlegar frjettir uœ að* áróðurinn, sem nú
er rekinn í Ítalíu gegn Frökkum, sje aðeins upphafið að langvarandi
baráttu, sem að líkindum muni leiða til svipaðrar óvissu í alþjóða-
málum, og í september. Þegar svo langt er komið, gerir Mussolini
sjer vonir um, að gengið verði að landamærakröfum ítala.
Það er búist við að Mussolini muni leggja kröfur sínar
frarn 'fyrir Mr. Chamberlain og Iialifax lávarð, þegar þeir koma til
Rómaborgar um miðjan næsta mánuð.
í ítölskum blöðum er gefið í
skyn, (skv. FÚ) að Bretar hafi
samúð með kröfum Itala gagu-
vart Frökkum. Frjettaritari eins
blaðsins símar frá London, að
breska stjórnin telji óhjákvæmi-
legt, að Frakkar slaki eitthvað
til gagnvart Itölum Þessi fregn
hefir enga staðfestingu fengið í
London.
„Daily Herald“ skýrir frá
því, að tvö hundruð þúsund
franskir og ítalskir heimenn
standi andspænis hvor öðrum við
landamæri Tunis og Tripolis (sem
er ítölsk nýlenda).
Frakkar hafa síðastliðin 5 ár
reist öflug varnarvirki sín megin
við landamærin.
Frakkar þreytt þjóð.
Blaðið Giornale Internationale
ræðir aðallega um Tunis, sem það
segir að Frakkar geti aðeins hald
ið meðan ítalir láti yfirráð þeirra
yfir landinu afskiftalaus. Frakk-
ar, þessi gamla og þreytta þjóð,
geti ekki skirst við til lengdar
að humma fram af sjer að sinna
kröfum ítala.
Hjónaband. í gær gaf síra Frið-
rik Hallgrímsson saman í hjóna-
band ungfrú Kristínu Samúels-
dóttur og Daníel Þorsteinsson
klæðskera. Heimili þeirra er á
Frakkastíg 15.
B.v. Arinbjörn hersir kom af
veiðum í gær og fór áleiðis til
Englands með aflann.
Sjálfstjórnar-
krafa Ukraine
komin fram!
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn ígær.
undurliðarar kröfur Ukraína
I Póllandi um sjálfstjórn
voru lagðar fyrir pólska þingið
í gær. Er með þessu í raun og
veru krafist, að Pólverjar láti
þriðja hluta af landi sínu (eða
sem svarar til 120—130 þús. fer
km. — ísland er 103 þús. ferkm.)
af hendi við sjö miljónir Ukra-
ína (af 34 milj.), sem í landinu
búa.
Ukraníar krefjast eigin stjórn-
ar og eigin þings í öllum sínum
málum, nema utanríkis- og her-
málum og að nokkru leyti fjár-
málum, sem lögð verði fyrir
pólska miðstjóm í Varsjá.
Forseti þingsins hefir enn ekki
tekið ákvörðun um, hvort frum-
varpið verður tekið til umræðu,
þar sem vafasamt sje, hvort það
sje í samræmi við stjórnar-
skrána.
í Póllandi er því haldið fram,
að leynileg útvarpsstöð í Þýska-
landi hafi hafið ákafa undirróð-
urstarfsemi gegn Pólverjum.
M.s. Dr. Alexandrine kom til
Kaupmannahafnar í gær.
Verkamennirnir fá kaldar
í stjórnarráðinu
„Ef Reykjavikurbær gefst upp“
— pð mð við okkur tala
Fyr fáið þið ekkerl
hjá okkur
úrf muf-i'
Nýr maður -- en
handtökur ö'g
ofsóknir halda
afram
Frá frjettaritm a , vorum.
i Khöfn í gær.
Eftirmaður Vésofs, rússneska
böðulsins, heitir Berja og
heíir þegar sagt upp 490 GPU-
leynilögreglumönnum, þ. á- ni.
35, sem gegnt hafa mikilvægum
embættum. Hann hefir auk þess
svift starfi sínu fimm hundruð
háttsetta embættismehn.
Berja hefir m. a. lagt löghald
á einkaskjalasafn Yesofs og fund-
ið í því skjöl, sem sanna, að 500
tryggir þjónar Stalins hafi verið
teknir af lífi efti'r fýrirskipun
þess opinbera, án rjettarrann-
sóknar.
UfVE klukkan 10 árdegis í gær fór atvinnuleys-
isnefnd „Dagsbrúnar“ ásamt tveim mönnum
úr stjórn fjelagsins á fund ríkisstjórnarinn-
ar, til þess að ræða við hana um hið alvarlega ástarid sem
nú ríkir meðal verkamanna í bænum, vegna hins mikla
atvinnuleysis, sem hjer er.
Fulltrúar verkamanna hittu fyrst að máli Sltúla Guðmunds-
son atvinnumálaráðherra. Þeir höfðu áður átt tal við ráðherrann um
þessi mál, og ítrekuðu nú óskir sínar og kröfur.
50 þús. króna vinningurinn í
10. flokki Haþþdíættisins var á
% miðum, seldir hjá Stefáni A.
Pálssyni & Ármann í Varðar-
húsinu og ísafjárðarumboðinu. 25
þús. kr. vinningui'inn var einnig
á miðum, í umboði Dagbjartar
Sigurðssonar, Vestui'götu. 20 þús.
kr. vinningurinn á 1/4 miðum í
umboði Stefáns A. ;Pálssonar &
Ármann, 10 þús. kr. á Á4 miðum
kom upp í Stykkishóimsumboði.
Aunar 5 þús. ki’. vinníngurinn á
1/4 miðum og kom upp í Vopna-
fjarðarumboði og úmboði Þorv.
Bjarnasonar, líáfnarfírði. Hinn 5
þús. króna»vinningurinn kom upp-
á i/ó miðum í, mnboðum -liirgens
I. Hansen, Laufásvegí og . St. A.
Pálssonar & Árxnanns,
Fulltrúar verkamanna fórú fram
á, að fjölgað yrði mi þegar í at-
vinnubótavinnunni, og að fylgt
vrði þeirri reglu um hlutfallið á
milli framlags bæjar- og ríkis,
sem gilt hefði undanfarin ár, sem
sje þeirri, að þátttakan yrði jöfn
af heggja hálfu þegar liði á árið
og atvinnuleysið færi að sverfa
að verulega.
Núverandi stjórn hefir hinsveg-
ar algerlega brugðið út af þessari
venju, með þeim afleiðingum, að
ríkið hefii’ nú 130 mönnum færra
í atvinnubótavinnu en bærinn.
FuÍltrúar verkamanna bentu at-
vinnumálaráðherra á, að atvinnu-
leysið væri nú meira í bænum en
nokkru sinni fyr, og því væri
aldrei meiri þörf en nú, að ríkið
brygðist ekki.
Við þetta var ekki komandi
Atvinnumálaráðherrann kvaðst
ekki leggja fram til atvinnubóta
eyri fram yfir það, sem fjárlög
áætluðu og ekki víkja frá skil-
yrðum þeim, er þar væru sett,
um framlag á móti af hálfu hæj-
arfjelaganna. Alt annað væri lög-
brot, sagði ráðherrann. Ef hins-
vegar Reykjavíkurbær gæfist
upp við að hjálpa sínum borgur-
um, og stjórnarvöld bæjarins
kæmu og' bæðu um hjálp, myndi
ríkisstjórnin taka til athugunar
hvað unt væri að gera.
Þetta urðu lokasvörin frá þess-
um háa herra.
Fnlltrúar verkamanna vildu
gjarna eiga einnig viðræður við
foi'sætisráðherrann og heyra und-
irtektir hans. Hann kom því inn
í viðræðnrnar, en hans svar var
nákvæmlega hið sama og atvinnu
málaráðherrans.
Fulltrúar verkamanna kvöddu
þvínæst hina háu herra í stjórn-
arráðinu. En hinn fjölmenni hóp-
ur atvinnuleysingja bæjarins sjer
af því sem sagt befir verið, hver
hún er jólagjöfin sem ríkisstjórn-
in sendir þeim að þessu sinni.
Landakröfur Hitlers --
í nýjum búningi
Pjóðverjar í Memel kröfðust
þess í fyrsta skifti, opin-
berlega, í gær, að Memel yrði
sameinað Þýskalandi. Kosningar
til þings Memelbúa eiga að fara
fram á morgun. Því hefir verið
lýst yfir að í kosningum þessum
muni í raun og veru verða greitt
atkvæði um sameiningu Memels
og Þýskalands.
1 Berlín er látið í veðri vaka,
að breytingar á landamærum,
sem eigi rót sína að rékjá til ó-
tvíræðra óska þjóðárbrots, geti
ekki talist fara í bág við yfir-
ýsingu Hitlers um að Þjóðverjar
muni ekki ætla að gera frekari
landakröfur í Evrópu.
(Skv. einkask.)
Jólabazar - Jólagjafir við allra hæíi.
Litið í gluggana á Kápubúðinni, Laugaveg 35
Ast og knattspyrna. Mest spennandi saga ársins.
Bókin, sem allir lesa viðstö ðulaust til enda. Ódýrasta bók ársins! Aðeins kr. 5.50 í ágætu bandi (240 bls.). —
Fæst í öllum bókaverslunum. Lítið óselt. Flýtið ykkur því að kaupa bókina.
’ Stjórn E. R.