Morgunblaðið - 08.02.1939, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 8. febr. 1939.
KVEMDJOÐIN OQ MEIMILIH
53BS
Til kvenþjóðarinnar:
Það, sem karlmenn
vilja ekki, að við
gerum:
Notum of áberandi fegurðar-
meðul. Yerið ekki svo örlátar á
varalitinn, að hann liti ef til vill
tennurnar jafn mikið og- varirn-
ar. Og verið ekki heila eilífð að
,,bæta upp á útlitið“, ef þjer
g'erið það í nærveru annara.
Snúum mönnum í kringum
okkur. Karlmenn hafa gaman
af að vera svolítið stimamjúkir
við yður, taka upp hanskana
^ða vasaklútinn, hjálpa yður í
jkápuna, — endrum og eins. En
þeir hata að vera sífelt að
stjana við yður.
Flissum og sjeum heimsku-
lega teprulegar. Flestum mönn-
um gremst slíkt látæði, að
minsta kosti að vinum sínum
viðstöddum.
Kvörtum yfir vinnustúlkun-
um. Stjórnið stúlkunum, verið
góðar við þær og látið þær virða
ykkur, — eða látið þær fara
uð öðrum kosti.
Sjeum skemtilegar á annara
kostnað. ,,Meinlaust grín“ get-
ur verið gott, en ef það gerir
aðra hlægilega á illgirnislegan
hátt, fer gamanið að grána, og
er aldrei svo skemtilegt, að það
vegi á móti því, að særa aðra.
Gortum af því, hve margir
aðrir menn sjeu hrifnir af okk-
ur. Það er smekklaust.
Kvörtum og sjeum þreyttar,
þegar við erum búnar að þiggja
boð. Enginn maður kærir sig
um, að það sje skoðað sem
greiði við þá að fara út með
þeim.
Gæði leðurs má reyna, með því
að leggja það í edik. Gott leður
breytist lítið, en slæmt leður leys-
ist upp og verður slímkent.
Ellen Kid dansar
Dansmærin Ellen Kid, kona
Jóhanns Briemi listmálara,
ætlar (að halda danssýningu í Iðnó
á föstudaginn kemur.
Frú Ellen Kid hefir dvalið hjer
undanfarin ár og kent dans, ballet,
stepp, dansleikfimi o. fl. Hefir
hun nú afráðið að efna til dans-
sýningar og sýna Reykvíkingum
listir sínar. Er ekki að efa, að
margir munu hafa hug á að sjá
hana dansa, enda á dansmærin
marga aðdáendur hjer, er danslist
unna, ekki síst meðal kvenþjóðar-
innar.
Frúin hefir lært í „Mary AVeg-
mann Sehule“ í Dresden og hefir
mikinn áhuga fyrir því að kynna
hjer þá list, er hún hefir aðallega
lagt stund á, og kend er í þeim
skóla.
Auk „karakterdansa“, alvarlegs
eðlis, mun Ellen Kid dansa ýmsa
dansa ljettara eðlis, og hefir lagt
áherslu á að gera. „prógrammið“
fjölbreytt og vel úr garði.
M. a. eru á „prógramminu“:
Valse triste — Sibelius, Pastorale
— Scharlatti, Ungverskur dans —
Brahms, Aufschwung — Schumann
o. fl. o. fl.
Birtast hjer tvær myndir af
dansmærinni í dönsum, sem hún
dansar í Iðnó á föstudaginn kem-
ur. —
Óts fra-piíður
er ekki „mikroniserað“. en það er samt sem
áður fíngerðasta púðrið, sem fáanlegt er á
íslenskum markaði.
Ó/s tra -ptídur
er þannig til búið, að það getur ekki runnið
saman í kekki, en það er einkenni á óvönd-
uðu púðri.
S
gefur andlitinu þess vegna jafnan og áferð-
arfagran blæ.
S
fæst í öllum litum, með verði við allra hæfi.
ömur!
Reynið Astra-púður og þjer munuð sann-
færast um kosti þess.
Matreiðsla á hrognum
Nýjasta framleiðsla Niðursuðu-
verksmiðju S. í. F. eru nið-
ursoðin þorskahrogn. Hjer koma
tvær góðar uppskriftir af því
hvernig matbúa má hrognin.
GRATIN ÚR HROGNUM.
1 dós lirogn, salt, pipar, smjör-
líki, 200 gr. gulrætur, 200 gr. róf-
ur, 45 gr. hveiti, 2 dl. mjólk, 2 dl.
hrognasoð, 3 egg, % tesk. múskat.
Brúnið hrognin og kælið. Sjóð-
ið rófurnar og skerið niður og
setjið saman við. Bakið upp sós-
una og kælið. Setjið síðan eggja-
rauðurnar í, því næst rófurnar og
hrognin. Að lokum eru stífþeyttar
eggjarauðurnar settar í. Þetta er
sett í vel smurt form og bakað í
,'ca. % klst., og framreitt með
tómatsósu. Blómkál má nota í
staðinn fyrir rófur.
HROGNÁ-EGGJAKÖKUR.
y2 dós hrogn, salt, pipar, brún
sósa, 40 gr. smjörlíki, 30 gr. hveiti,
2y2 dl. mjólk, 3 egg, % tesk. salt,
% tesk. múskat.
Skerið hrognin í sneiðar, setjið
salt og pipar á þær og steikið.
Setjið brúnuð hrogn í lög í form
og hellið brúnni sósu yfir. Setjið
því næst eggjarauðurnar á og stíf-
þeyttar eggjahvíturnar síðast
Steikt í hálfa klukkustund.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína Ragna Þórð-
ardóttir frá Högnastöðum í Borg-
arfirði og Valdimar Guðmunds-
son, Högnastöðum í Árnessýslu.
Fegurðaráætlunin,
Að lýsa hörund
Ef maður hefir freknur, er
skynsamlegra að sætta sig
við það en láta þær vaxa sjer í
augum fyrir framan spegil og
gera sjer gramt í geði. Annars
geta freknur oft verið skemtileg-
ar á að líta og gert andlitið barns-
lega unglegt.
Hinsvegar er það staðreynd, að
freknur verða ekki fluttar á brott.
Það eru að vísu til freknukrem,
sem lýsa hörundið þannig, að
freknurnar verða ekki eins áber
andi, en þau geta verið hættuleg,
ef þau eru rn-jög sterk.
Nú er sii tíðin, að það þykir
fallegast að vera frísklegur í út-
liti með rjóðar kinnar, og á sumr-
in vilja allir vera brúnir á hör-
und og sólbrendir. En vilji svo
til, að maður vilji losna við sól-
bruna á andliti éða hálsi, eða lýsa
hörundið fljótlega, mætti nota
eftirfarandi meðul til þess.
Sítrónusafi lýsir hörundið og
má liggja á húðinni um klukku-
stund, eða lengur, ef hörundið ér
feitt að eðlisfari.
Gúrkusafi, sem er búinn til á
þann hátt að rífa gúrku með rif-
járni og pressa safann úr gegnum
þunna rýju, hefir sömu áhrif, en
þurkar hörundið meira upp.
Mysa og áfir hafa frá ómunatíð
verið notaðar til þess að halda
hörundinu hvítu, en þær þarf að
nota daglega, ef koma á að gagni.
Ur 1 tsk. zinkilte og tsk.
bórax, blandað saman við 30 g.
af feitu smyrsli, er búið til milt
krem, sem lýsir og má liggja á
hörundinu yfir nóttina.
Brintoverilte, 3%, lýsir hörund-
ið töluvert, ef það er notað dag-
lega, eftir að hörundið hefir ver-
ið hreinsað. Sje fáeinum dropum
af salmiaki blandað saman við,
hefir það meiri áhrif.
Öll meðul, sem lýsa, þurka hör-
undið um leið, svo að nauðsyn-
legt er að næra það með góðu
smyrsli eftir notkun þeirra. Þá
verður að gæta þess, að nota
þannig meðul ekki of lengi í einu.
AUQAÐ hvílist
með gleraugum frá
THIELE
Langtum betrl
og bó ekki dýrari.
Fæst aðeins í dósum og
pökkum, en ekki í lausri
vifft.
OVl
lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllll
^foeir, sem hafa reynt þetta ttýja smjör-
Iíki fast ekki tjl að fnía að það sfe
smjör XV//\ j/.
miiiimiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinnniiiiinnnnnniH