Morgunblaðið - 10.02.1939, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 10. febr. 1930.
Samtal við Kristínu Jacobson
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU.
réyna að verða þeim að liði, sem
við veikimjii eiga að stríða og fá-
tœkt í ofanálag. Jeg var Vel stæð,
en fanst veikindm æði þungbær
fyrir það, og myndu hafa orðið
óbærileg, ef jeg hefði haft fjár-
hagsáhyggjur í ofanálag.
Maðurinn minn, Jón Jacobson,
og jeg settumst að í Rvík. Hann
fekk tvær stöður, en mjög lítil
laun. Hann var forstöðumaður
Forngripasafnsins og aðstoðar-
bókavörður við Landsbókasafnið.
Hann varð landsbókavörður
nokkru síðar, er Iiallgrímur Mel-
steð dó.
— Lögðuð þjer málverkið al-
veg á hilluna, er hingað kom?
— Já. Jeg fjekk annað um að
hugsa. Við eignuðumst fjögur
börn, en þrjú þeirra eru dáin.
Við mistum einn son kornungan,
annan tvítugan úr berklum og
dóttur, sem legið liafði lieilt ár í
liðagigt. Sjálf fekk jeg hverja
stórleguna á fætur annari.
Samt kom að því, að jeg lagði
út í það að reyna að efna það
löforð, sem jeg hafði gefið
sjálfri mjer er jeg var sem veik-
ust á „Kommunehospitalet" í
Höfn, að hjálpa fátækum, sem
ættu við veikindi að stríða. Jeg
ráðfærði mig mikið um þetta við
Her-mann Jónasson á þingeyruip.
Hann var mikill vínur okkar
hjónanna og koni oft til okkar.
Hann örfaði mig mikið til þess
að gangast fyrir fjelagsstofnun
til að hjálpa berklasjúklingum.
Og í janúar 190G stofnuðum við
nokkrar konur hjer í Reykjavík
kvenfjelagið Hringinn. .Teg var
heppin með það, hve jeg fjekk
duglegar og ábugasamar konur
með mjer í þenna fjelagsskap,
sem nú hefir starfað í 32 ár, og
bæjarbúum er því kunnur. Ætla
jeg ekki að rekja hjer starfsemi
þessa, aðeins segja þetta.
Mjer hefir altaf fundist, að
jeg hefði meiri skyldur en aðr-
ir til þess að leggja fram krafta
mína í fjelagsskap þessum, þareð
jeg var fyrsti hvatamaður hans
og hann er, ef svo má segja, á-
vöxtur af heitstrenging minni.
Fjelagið hefir komist blessun-
arlega vel af. Eji það er mörgum
að þakka. Nú höfum við í mörg
ár rekið Iiressingarhælið í Kópa-
vogi, og búið rekum við þar líka.
Hælinu hefir vegnað vel. En þar
hefir líka lánið elt okkur. Mesta
lán okkar hefir verið að fá Helga
Ingvarsson sem lækni hælisins.
Auk þess sem hann er afbragðs
læknir, þá er hann sá elskuleg-
asti og óeigingjarnasti maður,
sem jeg get hugsað mjer.
Merkir |orngripír.
— Hva8a mýTíu "r þetta á
veggnum við hliðina á altaristöflu
hjónamyndinni frá Ögri ?
— Hún er eftir Bache prófess
or og er af Bolla óg Ouðrúnu
Ósvífursdóttur í selinu.
— En þetta er mynd eftir Guð-
mund Thorsteinsson —1
— Já. Það er ekki annað en
afmælisósk til mín, tvö trölla-
börn, sem rogast með fult ker-
ald af heillaóskum. En máske
hafið þjer gaman af að skoða
eitthvað af mínum gömlu mun
um, sagði frúin.
Þessi gylta kommóða, í roeoceo-
stíl, er úr búi Böga Benedikts-
sonar að Staðarfelli.
Einkennilegt að hugsa sjer að
slíkur skartgripur skuli hafa verið
í torfbæ.
— Og hjer eru nokkrir silfur-
bikarar gamlir. Brennivínsstaup
Páls lögmanns Vídalín, þrífætt.
Stendur á því fangamark hans
P. J. S. W. og ártalið 1697. Stór
bikar, er átti Lárus Hannesson
Scheving sýslumaður, með ártal-
inu 1688, og púnskolla sr. Egg-
erts Jónssonar, föður Friðriks
Eggerz í Akureyjum. Á henni
stendur letruð með skrautlegu
letri þessi vísa:
Meðan nockuð er í mier
andann kiætast láttu.
Eckkert tel jeg eptir þier,
óhætt sotra máttu.
Meðal silfurborðbúnaðarins er
silfurskeið með fangamarki
Bjarna Halldórssonar á Þingeyr-
um, og þarna er á stól söðul-
umbúnaður frá 1779, en Ijósa-
krónan, sem í stofunni er og nú
ber rafmagnsljós frá Soginu, var
eitt sinn Ijósakróna í Leirár-
kirkju.
Jeg átti aðra, Ijósakrónu, sem
tengdafaðir minn gaf mjer, segir
frúin. Hún er úr Víðimýrar-
kirkju. En jeg hefi gefið dóttur
minni hana.
★
1 einu horninu á dagstofu frú
Krsitínar er lítið borð með hillu
yfir: Á hillunni eru tveir Ijósa-
stjakar fornir, með örmum, sem
ekki eru upprjettir, en með
sveigju, eins og vel hefir farið á
litlu altari lágreistrar kirkju.
Á veggnum vfir borðinu eru
myndir látinna ástvina hinnar 75
ára gömlu konu, safn endurminn-
inga um gleði og sorgir í henn-
ar langa, tilbreytingamikla lífi.
’* V. St.
MatreiQsla.
Tek að mjer matreiðslú og bakst-
ur, jafnframt allan veisluútbúnað
í heimahúsum. (Sími 4274).
Ragna Gísladóttir.
Franco tekur Minorca
Kort af Spáni. Minorca sjest á
kortinu.
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
í yfirlýsingu, sem gefin var út í
I.ondon í dag, segir (skv, F.Ú.), að
breska stjómin eigi engan þátt í því
að Minorca Sje fallin í hendur Fran-
cos. Hún hafí lánað San Luis hers-
höfðingja farkost einungis í á-
framhaldi af þeirri stefnu sinni, að
gera alt sem auðið er til þess að koma
í veg fyrir blóðsúthellingar.
Orðrómur hafði gengið um það und-
anfarið, að Franeo vseri að undirbúa
árás á Minorca, og hafði flugblöðum
verið kastað niður og íbúamir varaðir
við árás.
STOFNUN FAR-
FUGLAFJELAGS
„ÍHALDSSAMASTA
KLÍKA LANDSINS“
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
inn á prestana, vegna kröfu
fólksins út á landi.
Útvarpið hefir einnig reynt
messur úr útvarpssal, en orðið að
leggja þær niður, einnig vegna
kröfu fólksins úti á landi. Það
hefir krafist að fá útvarpað mess-
unum frá kirkjunum í Reykjavík.
Það þótti rjett að birta hjer
orðrjett ummæli Jóns á Ystafelli
um prestana og kirkjugestina í
Reykjavík. Þau sýna e. t. v. bet-
ur en nokkuð annað hvaðá meðdl
Tímamenn geta gripið til, þegar
þeir eru að rægja Reykjavík og
íbúa höfuðstaðarins.
FRAMH AF ÞRIÐJU SÍÐU.
sem ekki hefir úr miklu fje að
spila til að ferðast og kynna,st
landinu. Og landinu kynnast
þeir betur á göngu- og reið-
hjólaferðum heldur en t. d. í
bílum.
Yfirleitt er gert ráð fyrir að
farfuglarnir ferðist í smáhóp-
um, með söng og hljóðfæra
slætti ef svo ber undir. Það efl-
ir fjelagsþroska þeirra og eyk-
ur ferðagleðina.
Á veturna er gert ráð fyrir
að fjelagið starfi með skemti-
fundum, þar sem skýrt verður
frá ferðalögum um landið á
svipaðan hátt og á skemtifund-
um Ferðafjelags Islands.
Farfuglafjelög starfa um all-j
an heim. Síðar er gert ráð fyr-
ir að leitað Verði samvinnu við
erlendu fjelögin til þess að
greiða fyrir ferðalögum ís-
lenskra farfuglí/ erlendis.
RJETTUR GIFTRA
KVENNA TIL EM-
BÆTTA I NOREGI
Khöfn í gær F.Ú.
Hæstirjettur Noregs hefir
kveðið upp þann dóm,
að óheimilt sje að segja kopus
upp starfi, hvers kyns sem err
fyrir það, að hún giftist.
Dómurinn vekur athygli fyrir þá sölc,
að sá siður hefir allmjög viðgengist f
Noregi, að fyrirtæki hafa ekki viljað
hafa giftar konur í þjónustu sinni.
Slökkviliðsæfing í Hafnarfirði.
Kl. 2 e. h. í dag ætlar slökkvilið
Hafnarfjarðar að hafa sýningu
fyrir almenning á torginu fyrir
framan slökkvistöðina. Verður þar
sýnd björgun úr bruna og slökkv-
un elds með handslökkvitækjum
og- úðadreifara. Á morgun mun svo
fara fram æfing í skólum Hafn-
arfjarðar til að æfa nemendúr í
því að ganga skjótt og skipulega
iit úr skólahúsunum undir stjórn
kennara, ef eldsvoða ber að hönd-
um.
Uppskipun
á Best Noutli Yorkshire
Assodation Hard Staem*
kolum stendur yfir þessa
daga hjá
Kolaverslun
Guðna Elnarssonar og Einars
Símð 1595 (2 linur).
IHappdrælti
Háskéla íslands.
Viðskiftamenn eru beðnir að athuga:
Til 15. febrúar hafa n&enn for-
rfeltlndi að númernm þeim9
sem þeir áttu i fyrra. Eftir þann
tima eiga menn á hættia, stM
þau verði sefid öðrum.
- HOO|
eíppskipun nlcnclnr yfir.
Kolasalan s.í.
Símar 4514 ©g 1845.
Mjög' nxikill hörgnli er á fieil-
miðum og hálfmtðum, og er þvi
alveg nauð§yn!egt ail tryggja
sjer þá aftur fyrir þaun tima.
vlð umboðsmann vðar tm fyrst.