Morgunblaðið - 14.03.1939, Side 7
MORGUNBLAÖItí
7
Þrið.judagiir 14. mars 1939.
Fjölmennur fundur
Stúdentafjelagsins
um sjálfstæðismálin
Stúdentafundur sá, sem Stúdentafjelag Reykja-
víkur og Stúdentaráð Háskólans boðuðu til
um sjálfstæðismálin á sunnudaginn, var geysi
fjölmennur.
Fundarstjórar voru Hörður Bjarnason form. Stúdentafje-
lagsins og Sigurður Bjarnason form. Stúdentaráðsins.
Fyrsti frummælandi var
Bagnar Kvaran landkynnir. Var
ræða hans alllöng og ítarleg.
Ræddi hann aðallega um
það hvernig vjer íslendingar
ættum að snúast við er að því
kæmi, að vjer skyldum taka
úrslitaákvörðun um samband
vört við Dani.
I ræðu frummælanda kom
fram það höfuðsjónarmið hans,
að vjer íslendingar ættum að
halda sem nánustu sambandi
við Dani.
Utanríkismálin væri varhuga
vert fyrir oss að taka í vorar
hendur að svo komnu máli, og
jafnrjettisákvæði sambandslag-
anna væri oss íslendingum mik-
ils til meira virði en Dönum og
tiltölulega lítil hætta á því, að
það yrði notað af Dönum okkur
til óþurftar.
Annar frummælandi Bened.
Sveinsson fyrv. alþm. rakti sögu
sjálfstæðisbaráttunaar í stórum
dráttum.
Saga þeirrar baráttu sann-
■aði það, að öll viðleitni íslend-
inga í þessu efni, hefði verið
barátta fyrir því, að fá að
standa á eigin fótum. Fyrir
1918 hefðu allir verið sammála
um það, að lokatakmark bar-
áttunnar væri skilnaður við
Dani.
Sambandslögin 1918 hefðu
verið mikilsverður áfangi í þess-
ari baráttu, en þau hefðu haft
mikla galla. Með þeim hefði í
raun rjetti verið þvingað upp á
Islendinga samningsatriðum, er
gætu verið stórhættuleg og auk
þess einstætt, að fullvalda ríki
ætti samning við aðra þjóð um
jslíkt.
Síðan 1918 hefði komið fram
ákveðinn vilji hjá forystu-
mönnum þjóðarinnar í þá átt
að uppsagnarákvæði sambands
laganna yrðu hagnýtt á sínum
tíma. Benti frummælandi á af-'
stöðu stjórnmálaflokkanna á A1
þingi árið 1928, þegar formenn
allra stjórnmálaflokka lýstu
vilja sínum í þessa átt.
Kvaðst ræðumaður vænta, að
íslenskir stúdentar myndu enn
sem fyr verða ótrauðir í barátt-
unni til hins síðasta áfanga í
sjálfstæðismálum þjóðar sinn-
ar.
En íslendingar yrðu að vera
yel vakandi í þessum efnum.
Nú væri skamt þess tíma er
úrslitaákvörðun yrði að takast
um þessi mál. Þjóðin yrði með
forsjálni og fyrirhyggju að búa
sig undir að taka öll sín mál í
eigin hendur og rasa í engu
fyrir ráð fram.
Var máli Benedikts Sveins-
sonar tekið mjög vel.
Að loknum þessum tveim
framsöguræðum hófust frjálsar
umræður.
I þeim tóku þátt Gísli Sveins-
sin alþm., sem tók upp sama
sjónarmið og Bened. Sveinsson
og vildi uppsögn sambandslag-
anna og skilnað við Dani. 1
sama streng tóku og Guðmund-
ur Benediktsson bæjargjaldkeri
og Carl Tulinius.
Eiríkur Sigurbergsson ræddi
sjerstaklega um nauðsyn þess
að vjer tækjum utanríkismálin
i vorar hendur að fullu og öllu.
Ennfremur tók til máls próf.
Guðbrandur Jónsson.
Kvaðst hann að svo kómnu
máli ekki vera fylgjandi sam-
bandsslitum.
Yfirleitt snerust umræður um
þau tvö höfuðsjónarmið, sem
fram komu í ræðum frummæl-
enda.
Fór íúnclurmn prýðilega
fram í hvívetna.
Mun í ráði að framhalds-
fundur verði bráðlega um þessi
mál og ennfremur útvarpsum-
ræður milli Stúdentaf jelags Ak-
ureyrar og Stúdentaf jejágs
Reykjavíkuv.
Stúdentar hafa nú tekið þessi
mál upp og má vænta að sú
iþögn sem um þessi mál hefir
ríkt undanfarin ár sje nú rofin.
Er vel að eldri og yngri stú-
dentar skuli sameiginlega beita
sjer fyrir umræðum um þessi
mál.
, Sjálfstæðismálin verða og að
vera hafin upp yfir pólitískt
dægurþras.
Enda þótt íslendinga greini
;ef til vill í einhverju á um það,
hvernig þessum málum skuli
skipa, þá eiga umræður og skriv
um þau, að geta verið með við-
urkvæmilegri blæ, en um mörg
hin pólitísku deilumál dagsins.
í Því sem gerist í þessum mál-
um, hvort heldur það er meðal
stúdenta eða annara Islendinga,
hlýtur framvegis að verða veitt
náin athygli.
Hjónaefni. .S.l. laugardag opin
beruðu trúlofun sína ungfrú Elín
Ingvarsdóttir og Arni Haraldsson
verslunarmaður.
Skíða- og skautafjelag Hafuar-
fjarðar heldur fund að Hótel
Björninn í kvöld kl. 8U- Verður
þar rætt um framtíðar starfsemi
fjelagsins og væntanlega skála-
byggiiigu. \ stjórn fjelagsius
eindregið mæla með, að fjelagar
sæki þenna fund, þar sem mikil-
vægar ákvarðanir kunna að verða
gerðar.
Fróðlegur spá-
dómur um fram-
tið vísindanna
Jimariös eftir Plató er hið
frægasta spekirit hinnar
grísku fornaldar, og þar er þessi
mjög fróðlega spá um framtíð vís-
indanna (ntg. Stallbaums, 68 D.):
,,En ef einhver vill með tilraunum
fá sönnun fyrir ],ví, sem sagt hefir
verið (um eðli litanna), ])á er
hann alveg ófróðnr um það, hver
munur er á mannlegu eðli og guð-
legu. Hann veit ekki, að guð er
fær iim að blanda mörgu samau
þannig, að ]>að verði eitt, og eins,
að le.vsa sundur í margt það sem
er eitt, því að haim hefir til þess
hæði þekkinguua og máttinn. En
sá maðnr er ekki til og mun ald-
rei verða, seni þetta geti gert“.
PlatÖ spáir því þarna, að ljós-
fræði og efnafræði slík sem nú-
tíniinn þekkir, muni aldrei til
verða, þvi að slíkt sje með öllu
ofvaxið mannlegri getu.
Það er býsna íróðlegt að veita
því eftirtekt hve rangt jafnvel
hinir vitriijStU mcnn hafa spáð um
fraíntíð vísindanna. Þannig var á
17. öldinni sagt, nokkuð líkt og
Plató komst að orði, að mannlegu
viti væri með öllti ofvaxið að
finna orsakir flóðs og fjöru. Og
einii af mestu spekingnm 19. ald-
arinnar, Auguste Comte sagði, að
meðal þess sem segja mætti fyrir
með vissú, væri það. að aldrei
mundu vísindin komast svo langt
að geta fundið livaða efni er í
stjörnunum.
Ilinn ágæti Stallbaum segir í
athugasemd við ]>an orð Platós,
að eftir dauðann fari sáliriiar (eða
öllu heldur sumar sálir) aftur tíl
stjarnanna, að þar sje spekingur-
inn að fást við efni, sem sje mann
legum skiluingi með öllu ofvaxið,
og leggi því ekki nein bönd á
hugmyndaflug sitt. Og í síðasta
hefti náttúrufræðitímaritsins Kos-
mos (þetta ritað 24. jan. 1939),
ern tvær greinar mii lífið á stjörn
unuin, þar sem niðurstaðan verð-
ur þessi vanalega, að úin ]>að ef'öi
sje með öllu ómögulegt að vita
nokkuð.
Þegar Comte spáði því, að efná-
fræðin mundi aldrei ná til stjarn-
anna, ])á liafði liann vitaulega al-
y,e,g rjett fyrir sjer í því, að með
þeim tækjum og aðferðum, sem
]>á tíðkuðust, mundu stjörnurnar
(að löftsteinum undanteknum)
aldrei yerða rannsakaðar efna-
fræðilega. En haun varaði sig ekki
á því, að gersamlega nýjar að-
ferðir mundu koma til sögunnar.
Það er nokkuð líkt um lífið á
stjörnunum. Það er alveg óhætt
að segja það fyrir, að jafnvel
liinar ágætustu stjörnusjár og
Ijósmyndunaraðferðir muni ekki
geta orðið til að veita oss neinn
fróðleik um lífið á stjörnnnum, a.
m. k. þegar voru eigin sólhverfi
sleppir. En ]>að er hinsvegar þeg-
ar komið í Ijós, að aukin þekking
á sjálfu manneðlinu, hugareðli
mannsiiis, getur orðið til þess að
afla oss þeirrar þekkingar á líf-
inu annarsstaðar í heiminum, sem
er svo áríðandi, að það mann-
kyn, sem verður að vera án henn-
ar, líð.ur undir lok án þess að
Iiafa nokkurntíma komist á leið
hinna sönnu framfara.
Helgi Pjeturss.
Qagbófc.
□ Edda 59393147 — Fy>l
I. 0. 0. F. Rb.n. 1 Bþ. 889,148y2.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
SA hvassviðri og rigning.
Veðrið í gær (mánud. kl. 5):
Yfirleitt er nú hæg Y-átt hjer á
landi og úrkomulaust. 1—3 stiga
frost norðvestan laiids, en 4 st.
liiti á S- og A-landi. Ný lægð er
að nálgast suðvestan af liafi og
niun valda SA-hvassviðri hjer við
land.
Næturlæknir er í nótt Ofeigur
Ófeigsson, Skólavörðustíg 21A,
sími 2907.
Næturvörður í Ingólfs Apóteki
og Laugavegs Apóteki.
íslendingur andaðist í Khöfn
26. febr., Erlendur Höskuldsson að
nafni, segir Politiken.
Trúlofun sína hafa opinberað
ungfrú Auður Steinsdóttir og
Egon Rasmussen bólstrari.
Trúlofun sína liafa opinberað
Svava Magnúsd. og Helgi Einars-
son bifreiðarstjóri.
Súðin var á Sauðárkróki í gær-
livöldi.
Ungfrú Bára Sigurjónsdóttir
danskennari tók sjer far í gær með
Dettifossi til ísafjarðar. -— Fjekk
Sjálfstæðiskvennafjelagið á ísa-
firði ungfrúna til að koma vestur
til að kenna dans í vikutíma. —
Einnig mun ungfrú Bára halda
danssýningar á Isafirði og Akur-
evri.
Togarinn Maí kom til Hafnar-
fjarðar í gærmorguu með 62 tonn
af upsa og' Sviði með 50 tonn af
upsa.
Skíðairót Reykjavíkur. K. R.-
ingar unnu sltíðagönguna í öllum
flokkum.
íþróttakennarar halda fund með
sjer í dag að Ilótel Borg.
Um Guttorm Guttormssan skáld
og bónda í Riverton-bygð, hefir
dr. Richard Beck skrifað ágæta
grein í ,.Tribune“, Winnipeg. —
Greinina nefnir Beck ,,The Poet
of Riverton“. (FB)
Útvarpið:
20.15 Erindi: Alþýðutryggingar á
íslandi og í Danmörku (Har-
aldur Guðmundsson alþingis-
maður.
20.45 Fræðsluflokkur: IJm Sturl-
ungaöld, IV (Árni Pálsson
próf.).
21.10 Symfóníutónleikar:
a) Tónleikar Tónlistarskólans.
NÝR OLÍUTANK í
KEFLAVÍK.
m
Frá frjettaritara vorum í Kefla-
vík —: Tankskipið Soya losar hjer
olíu til Olíusamlags Keflavíkur og
nágrennis. Samlagsfjelag þetta
var stofnað á síðastliðnu hausti
af bátaeigendum og fleirum í
Keflavíkurhreppi. Ilefir það látið
byggja hjer olíutank, er tekur
550 tonn.
Byggingu tanksins var lokið
fyrir tæpum liálfum mánuði og
sá um byggingu hans vjelsmiðj-
an Hjeðinn og Stálsmiðjan í
Reykjavík.
Stjórn samlagsins skipa Karyel
Ögmundsson, Elías Þorsteinsson
og Þorgrímur Eyjólfsson.
Elsku litla dóttir okkar
Helga
andaðist að heimili okkar Öldugötu 42 hinn 11. þ. mán.
Aðalbjörg Jóakimedóttir. Geir Ólafsson.
Maðurinn minn
Oddur Pjetursson
frá Hól andaðist í dag.
Hafnarfirði 13. mars 1939.
Guðbjörg Guðmundsdóttir.
Jarðarför konunnar minnar, ljósmóður
Jónu Sigríðar Einarsdóttur
fer fram frá dómkirkjunni 14. þ. mán. og hefst kl. 1 e. hád.
með bæn á heimili okkar, Svalbarða við Langholtsveg. —
Kransar afbeðnir.
Kristján P. Andrjesson.
Jarðarför mannsins míns
Guðjóns Guðlaugssonar
fyrv. alþingismanns
fer fram frá dómkirkjunni miðvikudaginn hinn 15. þ. m. og
hefst með húskveðju frá Hlíðarenda við Laufásveg kl. 1 y2.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Jarðað verður í gamla
kirkjugarðinum.
Fyrir hönd mína og annara aðstandenda
Jóney Guðmundsdóttir.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu
við andlát og jarðarför konu minnar, móður, tengdamóður
o g ömmu
Jóhönnu Sigríðar Jóhannesdóttur.
Deild, Akranesi.
Ólafur Ólafsson, dætur, tengdasynir og barnabörn.