Morgunblaðið - 31.03.1939, Blaðsíða 5
Fösludagur .31, mars 1939.
j :........... JFftoroitmMafcið =
j t«ef.: H.f. Árv»knr, Reykjavlk.
Ritstjörar: Jön Kjartanaaon og VaJttr Btafknaaon (kbyraBarmaaur)
lugljilniar: Árnl óla.
Rltatjörn, au«lýaincar oa afaretOala anatnratrotl * 8tau 1*00
ÁakrlftaraJald: kt. 1,00 á aaánndl.
t lausaaölu: 16 anra slntaklO — II anra aasO Lissbök
TOGARINN NÝI
t
./ .1 'j Vt u
Viðskifti Þjóðverja
og Mexico
Bandaríkjamenn tapa
árlega 20 milj. doll-
urum vegna samkepni
Þjóðverja
Eftir Hubert R. Knickerbocker
O^venju xnargir Reykvíking-
ar hafa lagt leið sína nið-
«r á hafnarbakka síðustu dag-
ana, til þess að skoða hinn ný-
keypta togara Alliancefjelags-
ins, „Jón Ólafsson“. Ánægjan
og gleðin hefir skinið út úr and-
Jiti manna og þeir hafa óspart
■látið í ljós hrifningu sína yfir
hinu glæsilega skipi.
Það er ekki að undra þótt
Reykvíkingar fagni komu nýs
togara. Þeir hafa síðustu 10 ár-
in orðið að horfa upp á það, að
þessi atvinnugrein, sem um
skeið bar uppi ,alt athafnalíf í
landinu, hefir stöðugt dregist
saman. Þegar togari hefir far-
íst eða flust burtu úr bænum,
liefir flotinn minkað að sama
skapi. Ekkert skip hefir komið
í skörðin. Þetta. hefir haft al-
varlegar afleiðingar fyrir bæj-
-arfjelagið. t
★
Einhverntíma kemur að því,
-að þeir, sem með völdin fara í
þessu landi, finna til þess, að
hrun togaraútgerðarinnar kem-
ur ekki aðeins niður á þessu
bæjarfjelagi og fólkinu, sem
hefir haft atvinnu á togurunum
'Og í sambandi við þá. — Það
verður ékki langt að bíða þess,
• að valdhafarnir komast að raun
mm, að togaraútgerðin hafði
'Cinnig þýðingu fyrir þjóðarbú-.
skapinn í 'héild og að hrun hans
hafi djup og varanleg áhrif á
starfrækslu ríkis- og þjóðar-
íbúsins.
Síðustu 8—10 árin hefir þjóð-
in aðallega fengið fregnir af
stórtöpum togaraútgerðarinnar.
Það hefir ekki staðið á að tí-
unda þessi töp, enda hafa þau
— því miður — verið mikil,
einkum síðustu 5—8 árin. En
vegna þess hve óspart hefir
verið básúnað út um þessi töp,
og oft í því sarcbandi verið
taliað um eyðslu, óreiðu og
.sukk, hefir sú skoðun smám
;saman fest rætur í hugum
ýmsra manna, að togaraútgerð-
in væri fjárglæíraspil, sem
þjóðinni væri hollast að losna
wið með öllu.
En þeir menn, sem alið hafa
•á þessum ;'áróðri um togaraút-
•gerðina, hafa alveg gleymt að
skýra þjóðinni frá hinu, hvaða
þjýðjingu togaraútgerðin hefir
haft fyrir ríkisbúskapinn. Þeir
hafa látið sjer nægja að skýra,
frá stóru töpunum, en alveg
slept hinu, sem færa má tekju-i
jmegin hjá togurunum. En ef
reikriingurinn væri gerður upp
irjettur, myndi það sýna sig, að
stóru töpin eru hverfandi móts
við hítt, sem togaraútgerðin
hefir fært þjóðarbúinu tekju-
megin. Töpin hafa komið illa
niður á bönkum og einstakling-
um, sem lagt hafa fram fje til
reksturs togaranna. En gróðinn,
Jhvert héfir hann farið? Hann
hefir lent hjá þjóðarheildinni,
í aukinni atvinnu í landinu,
mikilli framleiðslu, sem hefir
lagt grundvöllinn að utanríkis-
verslun landsins.
★
Eftirtektarvert er, að sam-
tímis því, sem hæst hefir verið
hrópað um töpin hjá togaraút-
gerðinni, hafa hinir sömu menn
verið að básúna út miklar fram-
farir hjá ríkinu. Þeir hafa; bent
á hafnarmannvirki, dýrar hallir
og stofnanir, skóla, brýr, vegi
og margt fleira. Þeir hafa verið
að birta tölur, sem hafa sýnt að
varið hefir verið tugum og
hundruðum miljóna í framfarir
þessajr og framkvæmdir síð-
ustu 20 árin. s
En þegar verið er að skýra
fólkinu frá hinum stórfeldu og
glæsilegu framkvæmdum ríkis-i
ins, og skrautlegar myndir birt-1
ar til þess lað sýna svart á hvítu
hvað gert hefir verið, er venj-
an sú, að þakka einungis vald-
höfunum fyrir öll þessi miklu
gæði. Þá vill það gleymast, að
skýra frá því, hvaðan vald-
hafarnir fengu fjármagnið til
framkvæmdanna. En ef þetta
hefði verið gert jafn skilmerki-
lega og hitt, að tíunda stóru
töpin hjá togurunum, þá hefði
vissulega verið ríkjandi hjá
þjóðinni annar skilningur á
þýðingu togaraútgerðarinnar
fyrir þjóðarbúskapinn en nú er
alment.
Hafi menn ekki komið auga; á
þann sannleika fyr,hlýtur að því
að koma nú að menn sjái og
skilji, að það er fyrst og fremst
togaraútgerðinni að þakka, að
við getum nú í da!g bent á stór-
stígari framfarir og athafnir á
undanförnum tveim áratugum,
en á nokkru öðru jafnlöngu
tímabili í sögu okkar lands.
Af þessu leiðir líka það, að
ef togaraútgerðin á að leggja'st
í rústir og ekkert kemur í
hennar stað, þá verður ekki um
að ræða neinar framfarir hjá
því opinbera á næstu árum. —
Þar skapast þá kyrstaða og aft-
urför.
Þetta’ hafa nú vonandi vald-
hafarnir skilið, þótt nokkuð
seint sje. Þeir hafa nú lofað
stuðningi sínum við þenna
hrynjandi atvinnuveg þjóðar-
innar, sem borið hefir uppi ná-
lega allar framkvæmdir ríkisins
á undanförnum áratugum. Þess-
um straumhvörfum ber að
fagna, og það er skylda allra
sannra Islendinga^ að stuðla
að því eftir megni, að þessi við-
reisn megi takast.
Ungbamavernd Líknar, Templ-
arasundi 3, sem hefir verið lokuð
■Undanfarið vegna veikindahættu
tekur aftur til starfa í dag og
verður opin á venjulegum tíma,
ltl. 3—4 síðdegis.
að er langt síðan Banda-
ríkin hafa fengjð jafn
eftirminnilegan kinnhest
eins og er stjórnin í Mexico
tók olíulindir Bandaríkja-
manna eignarnámi. En
Bandaríkin rjettu aðeins
hina kinnina og fengu enn-
þá verri kinnhest. Þeir sem
mest græða á hessum kinn-
hestum eru Þjóðverjar.
Síðustu liagskýrslur sýna að
Bandaríkjamenn tapa að minsta
kosti 20.000.000 — tuttugu milj-
ónum — dollara á ári á verslun
sinni við Maxico og er þetta bein
afleiðing af eignarnámi olíulind-
anna.
Þetta tap er tilfinnanlegra held-
ur en tap olíufjelaganna vegna
þess að það kemur niður á fram-
leiðendum í Bandaríkjunum. Mexi-
co kaupir nú fjölda vörutegunda
frá Þýskalandi, sem áður voru
keyptar frá Bandaríkjamönnum
og greiða Þjóðverjum með olíunni,
sem stjórnin í Mexico tók eignar-
námi og samkepni af hálfu Banda-
ríkjamanna kemur ekki til greina.
★
Þróunin í þessa átt sýnir, að á
næstu 12 mánuðum mun Þýska-
land auka innflutning sinn til
Mexico u.m helming, en útflutn-
ingur Bandaríkjanna til Mexico
minkar á sama tíma um %.
Utflutningur Bandaríkjamanna
til Mexico minkar svo að segja á
öllum vörutegundum, sem áður
voru seldar til Mexico. Sumar
vörutegundir, sem Mexico kaupir
nú frá Þýskalandi, höfðu Banda-
ríkjamenn áður einskonar einka-
rjett á að selja þeim.
I fyrsta skifti í sögunni liafa
amerískir verkfræðingar orðið að
láta í minni pokann fyrir þýskum
verkfræðingum í Mexico. Hafa
Þjóðverjar nýlega gert samning
um að byggja járnbrautarbrú í
Micoacan, sem verkfræðingar frá
U. S. A. höfðu boðið í.
Ameríska verkfræðingafirmað
bauðst til að vinna verkið fyrir
800.000 pesos, eða ca. 500.000 krón
ur gegn staðgreiðslu. Þjóðverjar
fengu verkið fyrir 600.000 pesos
og buðust til að taka greiðsluna í
olíu.
Þjóðverjar fengu verkið, en það
verður að álíta að ómögulegt hafi
verið fyrir þá að taka að sjer
slíkt verk fyrir 25% minna verð
en Bandaríkjamenn, án þess að
hafa notið styrks frá þýsku stjórn-
inni.
Þetta atvik sýnir greinilega að
Þjóðverjar láta einskis freistað til
að yfirbjóða Bandaríkjamenn til
þess að ná viðskiftunum úr hönd-
um þeirra. Bandaríkjamenn geta
ekki kept við Þjóðverja á þessu
sviði þar sem þeir neita að taka
á móti olíu, sem tekln hafði verið
eignarnámi af þeim.
★
Þegar maður athugar livaða
vörutegundir það eru, sem Þjóð-
verjar selja nú orðið í Mexico
sjer maður vel hve verslunarstríð-
ið milli Þjóðverja og Bandaríkja-
manna er rekið af miklu kappi
af Þjóðverja hendi.
Þjóðverjum hefir t. d. tekist að
vinna markað fyrir ritvjelar og
reiknivjelar í Mexico, sem Banda-
ríkjamenn höfðu áður algeran
einkarjett á að selja þar. Banda-
ríkjamenn hafa i stórum stíl mist
pantanir á alskonar vjelum, rör-
um, tini og stáli.
Ymsar efnavörur, svo sem amm-
oniak, sem Dupont seldi áður til
Mexico, eru mi keyptar frá Þýska-
landi. Þjóðverjar hafa nýlega selt
diesel-vjelar til Mexico fyrir 280.-
000 dollara gegn greiðslu í olíu
og í fjölda mörg ár hafa ekki
sjest í Mexieo annað en amerísk-
ir bílar, þar til nú að þýskir bíl-
ar eru komnir á markaðinn í
Mexico. Rafmagnsvörur liafa ekki
fyr verið innfluttar frá öðrum
löndum en Bandaríkjunum, þar til
nú að Mexico er farið að kaupa
þær af Þjóðverjum gegn greiðslu
í olíu.
★
Hagskýrslur sýna, að innflutn-
ingsverðmæti Mexico fjell um 84.-
000.000 pesos frá 1937 til 1938, og
innflutningur Bandaríkjanna til
Mexico fjell á sama tíma úr 290,-
541.000 pesos í 214.439.000 pesos.
Það sýnir aftur á móti að inn-
flutningur Bandaríkjanna mink-
aði um 76.000.000 pesos á einu
ári, eða 90% af því sem utan-
ríkisverslunin í Mexico minkaði
um á árinu.
En Mexico hætti ekki aðeins
innflutningi frá Bandaríkjunum,
heldur jólt innflutning sinn á sama
tíma frá öðrum löndum. T.d. flutti
Mexico vörur inn frá Þýskalandi
fyrir 71.041.000 pesos 1938 á móti
70.664.000 pesos 1937, og frá Ítalíu
vörur fyrir 6.446 000 pesos 1938
á móti 4^.675.000 pesos 1937.
EigMBÉSim olíulindanna fór
fram í mars 1938, þannig að þess-
ar tölur sýna aðeins utanríkisversl-
un Mexico í 5 mánuði frá því að
eignarnám olíulindanna umturnaði
allri utanríkisverslun landsins. A
þessum grundvelli er lág't áætlað,
að Bandaríkjamenn muni tapa 20.-
000.000 dollurum á næstu 12 mán-
uðum. Þeir sem svartsýnastir eru
telja að tapið muni nema 30.000,-
000 dollurum.
Útflutningur Þjóðverja til Mexi-
co hefir aukist óhemju mikið síð-
an Ilitler fekk völdin. Árið 1934
fluttu Þjóðverjar inn vöi’ur til
Mexico fyrir 9.554.000 dollara og
1936 fyrir 19 790.000 miljónir
dollara.
Endanlegar tölur fyrir 1938
liggja ennþá ekki fvrir, en talið er
*
að heildartalan muni nema 21.000.-
000 dollara og 1939 verður talaa
sjálfsagt komin upp í 35.000.000,
ef eklii verður stórkostleg breyt-
ing á frá því sem nú er.
★
Þegar hjer er komið verða Þjóð
verjar komnir ískyggilega nálægt
BandaríkjamöniUim um innflutn-
ing til þess lands, sem um langan
aldur liefir nær eingöngu versla5
við Bandaríkjamenn.
Frá ómunatíð liefir U. S. A.
verið aðalinnflytjandinn til Mexi-
co. Hagskýrslur Mexieo frá 1912
sýna að Mexico hefir aldrei keypt
tninna en helming alls innflutn-
ings síns frá Baudaríkjamönnuni.
Mestur var innflutningurinn frá
Bandaríkjunum 1918, eða 89%, af
öllum innflutningnum. Meðaltalið
frá 1900 er í kringum 65%.
Með þeim dugnaði, sem Þjóð-
verjar sýna í því að ná undir sig
innflutningi til Mexico, verður
ekki annað sjeð en að Mexíce
þurfi ekki á Bandaríkjum að
halda eftir nokkur ár. Bandaríkja-
menn segja að þeir geti ekki trá-
að þessu. Þeir segja sem svo, að
hinn óheiðarlegi verslunarmáti
Þjóðverja geti ekki blessast til
lengdar.
En samt sem áður liefir hótun
Cordenas forseta borið árangur,
en liann hótaði að gera langa
verslunarsamninga við „önnur
lönd“ til að geta selt olíufram-
leiðslu landsins.
Hinir fyrverandi eigend-
ur olíulindanna, sem teknar
voru eignarnámi, eru einka per-
sónur, sem reyna að ná rjetti sír.-
um með því að fara í mál við ein-
ræðisstjórnina í Mexieo.
Bandarísku kaupsýslumennirnir,
sem reka viðskifti við Mexico, eru
einnig einkapersónur, sem keppa
við einræðisstjórn Þýskalands. Á
meðan þannig er ástatt er ekki
hægt að búast við að Bandaríkja-
menn beri hærri hlut.
Frá Hafnarfirði. B.v. Surprise
kom af veiðum í gær. Aflinn var
rúmar 100 smálestir, mestmegnis
þorskur, en tæpar 15 smálestir
upsi. — Danska flutningaskipið
Kristiansborg fór frá Hafnarfirði
í dag.
Blindravinafjelagið lieldur að-
alfund sinn í Kaupþingssalnum í
kvöld kl. 9.
Þing Umdæmisstúkunnar nr. 1
verður háð í Hafnarfirði að þessu
sinni og hefst annað kvöld kl. 8.