Morgunblaðið - 20.05.1939, Page 3
Laugardagur 20. maí 1939.
MORGUN B.LÁÐJ Ð
3
364 lúður
• BJökull“ vænt-
anlegur í dag
Línuveiðarinn „Jökull,, er á
heimleið frá lúðuveiðinni
vestur í Grænlandshafi; er vænt
anlegur í dag.
Jökull veiddi alls 364 lúður og
vógu þær rösk 9 tonn. Sennilega
verður aflinn seldur Fiskimála-
nefnd og hún sendir hann svo
til Englands. Verðið, sem Fiski-
málanefnd gefur fyrir lúðu, er
90 aurar pr. kilóið.
Ef það verður svo, að aflinn
verði seldur hjer á staðnum, er
ekki ósennilegt að „Jökull“ fari
aðra, stutta veiðiför vestur í haf.
Sióliðarnir á Vindictive
leika við Vial
annaðkvðld
Kappleikurinn milli sjóliða af
herskipinu „Vindictive" og
úrvalsliðsins úr K. R. og Fram,
var skemt-ilegur og spennandi,
eins og búist hafði verið við. Lauk
honum með jafntefli (3:3). Áttu
íslendingar fult í fangi með að
vinna Englendingana, sem Ijeku
hratt og g'áfu hvergi eftir. Er ó-
hætt að fullyrða, að ekki liafi
hingað komið betra enskt kuatt-
spyrnulið með herskipi, nema ef
vera skyldi kappliðið, af enska
herskipinu .,Frobisher“, sem
kepti hjer fyrir nokkrum árum.
Vrvalslið K. R. og Víkings var
þanriig skipað, að 7 inenn voru úr
K. R., en aðeins 4 frá Víking, og
heyrðust raddir um, að rjettara
væri að kalla liðið „K. R. með
styrktu liði“, heldur en „úrval“.
Framvarðalíná Islendinga var
ágæt, en framlínuna vantaði mjög
tilfinnánl'ega skotfimi, er kom
upp að markinu.
í liði Englendinga voru margir
ágætir menn, t. d. iniðframherji,
bakverðir báðir og markvörður.
IJm tíma leit svo xit, sem Eng-
lendingar myndu vinna, en Is-
lendingarnir gáfust ekki upp.
Liðið sem Ijek við K. R. og
Víking. á sunnndag, er samsett af
sjóliðum og er hesta lið skipsins,
eða A-lið. Hefir það nnnið marga
knattspyrnusigra innan Iflotans,
eins og verðlaunageymsla þeirra
urii borð sýnir.
Valur keppir við
Englendingana.
Valur keppir annað kvöld við
sjóliðana af „Vmdictive“. Verð-
ur það án efa spennandi leikur.
Á; sunnudagskvöldið v.erður lúðra
sveit frá skipinu á íþróttavellin-
um, sem ekki gat komið í fyrra-
kvöld, eins og ráðgert hafði verið
Veður var hið besta á leiknum
í fyrrakvöld og áhorfendur a. m.
k. 3—4 þúsund. Vívax.
Hjónaband. I dag verða gefin
saman í lijónaband ungfrú Magn-
hildur Líndal, Frakkastíg 16, og
Ásbjörn Þorkelsson, 1. vjelstjóri á
Agli Skallagrímssyni.
Pegar Beck
ofursti svaraði
Hitler
Heimsókn uiti borð i „Vlndictive"
Herskiplð sem var
afvopnað og gert að
.MÖ' skó,askipi
reknir úr „Hllf“
í Hafnarfirði
1 ræðu sinni sagði Beck að rjett;-
indi Pólverja í Danzig vær.u.þeiii
Jífsnauðsvn. £
Hraðferðir norð-
ur um Akranes
Með SteindðrsbíluiH
þrisvar í viku
Hraðferðir verða í sumar
brisvar í viku frá
Reykjavík til Akureyrar, um
Akranes, og jafnmargar að
norðan. Bifreiðastöð Stein-
dórs annast þessar ferðir,
með aðstoð Fagraness.
Ferðum þessutri verður hagað'
þannig, að farið verðúr frá
Reykjavík alla mánudaga, niið-
vikudaga og föstudaga, og frá
Akureyri mánudaga, fimtudaga
og laugardaga.
I« » erkamannaf jelagið „Hlíf“ í
V Hafnarfirði hjelt fund í
'gærkveldi og' var á fundinum
samþykt að víkja þremur mönn-
um úr fjelaginu. Menn þessii
eru allir stjórnarmeðlimir í
Verkamannafjelagi Hafnarfjarð-
ar, senv stofnáð var í vetnr,
skömmu áður en Hafnarfjavðav
deilan svonefnda hófst.
Þeírii, setri vikið var úr fje-
laginu, eru :
Þórður Þórðarson, form. Verka
mannafjel. Hafnarfjarðar.
Níels Þórarinssón, gjalkeri V.
H„ og Guðmundur Gissurarson.
Einnig samþykti fundurinn að
allir verkamenn, sem meðlimir
eru í Verkamannaf jelagi Hafn-
arfjarðar og einnig í „IIlíf“, skuli
fá 5 daga frest til að segja sig
úr V. II. Að öðrum kosti skuli
þeir rækir úr „Hlíf“.
Þeim þrem mönnum, sem vikið
var úr fjelaginu, var gefið að
sök að þeir ynnu gegn samþykt-
um „Hlífar“, með því að standa
fyrir Verkamannaf j elagi Hafnar
fjarðar og koma fram s.em full
trúar hafnfirskra verkamanna
f. h, Verkamannafjelags Hafnar
fjarðar.
í Hafnarfirði er litið mjög al-
varlegum augum á brottvikningu
þessa úr „Hlíf“ og menn óttast
að vandræði: geti af hlotist.
Enska herskipið „Vindictive“, sem liggur hjer á
ytri höfninni og bæjarbúar hafa dáðst að und-
anfarna daga, bæði með því að skoða það um
borð og frá landi, er gagnslaust sem herskip!
Mönnum kann að finnast þessi staðhæfing hljóma sem öfugiriæli,
en sauuleikurinn er sá, að Skipið er ekki þeim vopnnm búið, sem her-
skip af þessári stærð eru vön að hafa, Á skipinu eru aðeins tvær fall-
byssnr, lítið eitt stærri en fallbvssur danska varðskipsins „Hyidbjörn*
en“. Þessar byssur eru eingöngu notaðar til þess að skjóta með heið*
ursskotum, þ.egar fyrirmenni koma í heimsókn nm borð, eða við önnnr
hátíðleg tækifæri. .
Fðxasildin likar vel
I Þýskalandi
B
— Nú fer að komast líf í okk , . , .
, ... _ .■"'* atar fra Akranesi hafa und
ar ferðu'. sagði íæifur Boðvars- |-<
, „ I 1 anfanð venð að veiða sild
sou, ergandi Fagraness, er tio- *
, ^ ,,, , , v • , .... hjer í Faxaflóa og aflað sænu-
nulamaðtir Morgunblaðsins hitti
hann að ináli í' 'gær. Jeg hefi frá e^a"
því fvrsta að jeg kom með Fagra- Síldin hefir jafnóðum verið
nesið, barist fvrir því, að fá hrað- send ísnð til Þýskalands. Hefir
ferðir um Akranes. en skipulags- Magnús Andrjesson kaupmaður
nefnd hefir aldrei viljað sam- keypt síldina. Verðið er 9 kr
þykkja það. Að vísu fengum við fyrir tunnuna við skipshlið.
eina ferð í fyrra, en það vár of Tvö skip, Gullfoss (togarxnn)
lítið. Fyrir atbeina núverandi °S Ólafur Bjarnason hafa loS'
samgöngumálaráðlierra var ferð- að í Þýskalandi. Líkaði síldin þar
unum fjölgað nú, og eruiri við vel. Togarinn Hilmir er á leið
Akurnesingar þakklátir ráðherr-
anum fyrir það
— Þjer hafið stækkað og end-
urbætt Fagranesið ?
— Já. Skipið má nú heita nýtt.
Það hefir verið léngt um 12 fet
og rúmar því miklu meira. Sett var
í skipið ný dieselvjel, 19—28 ha.,
og með henui er framleitt rafmágn
sem notað er til að knýja vrndu.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
út með síldarfarm og verið er
nú að láta í Hafstein.
Morgunblaðið spurði Magnús
Andrjesson í gær, hvað ltann
byggist við að þessi síldarút-
flutningur gæti staðið lengi.
— Jeg býst við að taka í eitt
skip ennþá, svaraði Magnús —
Meira verður það,varla að þessu
sinni, því að nú eru Þjóðverjar
farnir að fá síld annarstaðar frá
og sjálfir fara þeir nú að veiða
Skipið «r • í, 3*aun og yeru, ekki
annað en fljótandi skóli fyrjr 270
sjóliðsforingja efni á aldrinum 17
—19 ára. I skólánuni eru inargir
hekkii' eða deihlir og eiu deiklin
er ■ nefnd ..háskólinn". ,
1 gærmorgun var blaðaniiinnuin
dagblaðanna boðið að skoða skip-
ið, og ei' þeir komu ,um borð kl
11 sátu s j 61 iðsf oringjáéf niri á
skólabekkuum, með bækur og rit-
föng fyrir framau sig, en sjóliðs-
foringi stóð við kennaraborðið og
kiunli nemendum sínum. Skóla-
stofurnar voru ekkert frábrugðn-
ar enskum skólastofum að öðru
levti en því, áð „kýraugu“ voru
í stað glugga.
Nokktil' yfirniannanna sýndu
blaððmöriiiuiri skipið og skýrðu
frá sögu þ'ess.
— „Vindictive“ get.ur á engan
hátt talist frillnægja kröfum liú-
tímans, sem g.érðar eru til her-
skipa. Það er bygt í stríðslok,
1918,'og heitir eftir skipi, er frægt
varð í heimsstyrjöldinni.
Gamla „Yindietive“ var eitt.
þeirra skipa, er gerði árás á Zee-
brugge og Ostende vorið 1918, én
]>á höfðu Þjoðverjar þessa belg-
isku hafnabæi á valdi síuu og
notuðu sem kafbátabækistöð.
,,\undictive“ gamla tókst að
leggjast upp að hafnarvirki í
Zeebrugge nóttina milli 22. og 23.
apríl 1918 og setja hermenn á
land. Vav þetta gert til að leiða
athygli Þjóðverja frá öðrum er.sk-
um herskipum, sem hjeldu uppi
skotárás á hafnarvii'kin til að
eyðilegg'ja þau. Þjóðverjai' Ijetu
skothríðina dynja á „Vindictive“,
en samt komst hún undan við ill-
an leik og öll sundur tætt.
í þessari árás ensku lierskip-
anua fórust 214 manns, 338 særð-
ust og 19 voru teknir til fanga,
en ]>að voru sjóliðar af „Vindie-
tive“, sem settir höfðu verið á
land.
Nokkru seinna, eða 14. maí 1918,
söktu Bretar „Vindictive“ gömlu
í hafnarmynninu í Ostende í þeim
tilgangi að eyðileggja siglingu til
ög frá höfninni.
„Vindictive“, sem nú liggur hjer
á höfninni, var bygð síðar á árinu
1918, og var hygt sem flugvjela-
móðurskip. Fyrir 2—3 árum var
skipinu breytt í skólaskip fyrir
sjóliðsforingjaefni. Var skipinu þá
„Klukkuverk-
lallið"
Athugasemdir
Sigurvins Ein-
arssonar
UT af viðtalinu við Magnús
Magnússon um „klukku-
verkfallið4' við símann, hefir Sig'
urvin Einarsson óskað þessa
getið:
1. Á Alþingi 1938 samþykti
fjárveitinganefnd ýmsar ályktan
ii’ til ríkisstjórnarinnar, snert-
andi starfsmenn opinberra stofn
ana.
2. Með brjefi 18. nóv. f. á. fól
'íkisstjórnin Sigurvin Einarssyni
að semja uppkast að reglugerð
fyrir starfsmenn ríkisins. Var
Öllum stofnunum tilkynt þetta.
3. Við samning þessarar reglu
gerðar kom í ljós, að dómi ríkis
stjórnarinnar, að setja yrði lög
um þessi mál, og var Sigurvin
falið að semja *uppkast að slíku
frumvarpi.
4. Nokkru eftir að frumvarps-
uppkastið var sent ráðherra
(seint í febrúar s. 1.) átti fyrv.
formaður F. I. S. tal við Sigur-
vin og spurði hvort fjelag síma
manna fengi ekki tillögurnar til
umsagnar. Sigurvin kvað það á
valdi ráðherra og þingnefndar,
en kvaðst hafa tjáð formannin-
um, að hann teldi eðlilegast, að
stofnanirnar og starfsmannafje-
lögin fengju frumvarpið, þegar
það væri komið í þann búning,
sem það yrði flutt Inn í þingið.
Um líkt leyti hefði Guðm. Pjet-
ursson símritari átt tal við ráð-
herra um málið.
Af þessu telur Sigurvin, að
ekki sje rjett hermt í viðtalinu,
að farið hafi verið dult með þetta
mál.
FRAMH. Á S.JÖUNDU SÍÐU.
Gestir í bænuœ. Hótel Vík: Hin-
rilc Gíslason, Vestmannaeyjum;
Garðar Jónsson skipstj., Reyðar-
firði; Benedikt Sæmundsson, Vest-
mannaeyjum; Garðav Guðmunds-
son, Gavði.