Morgunblaðið - 26.05.1939, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 26.05.1939, Blaðsíða 5
T’östudagur 26. maí 1939. 5 —■ .......................................................... Útgef.: BLf. Árvakur, Reykjavlk. Ritstjðrar: Jðn KJartansson og Valtýr Stefánsson (ábyrgBo.rmatSur). Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjðrn, auglýsingar og afgreiBsla: Austurstræti 8. — Síml 1600. Áskriftargjald: kr. 8,00 á mánuCl. f lausasölu: 16 aura eintakltS — 25 aura meB Lesbðk. OULLKISIAN HV A Ð, skyldu þeir vera margir Reykvíkingarnir, sem hafa gert sjer fulla grein fyrir því, hvers virði er gull- kistan sem bærinn á, þar sem er hitasvæðið á Reykjum í Mos- fellssveit, er Jón Þorláksson var ■á sínum tíma svo forsjáll, að trygg.ja bænum eignarrjett á| Úr borholunum á Reykjum rennur nú um 170 sek. lítrar af vatni og er meðalhiti þess ■87° C. Auk þess eru í gömlu ; uppsprettunum 30—40 sek. lítr ar, en meðalhiti þess nokkuð lægri. Verkfræðingar áætla að til iþess að hita upp öll hús í bæn- um, innan Hringbrautar og að auki húsin á Melunum og Norð urmýrinni þurfi 207 sek. lítra af heitu vatni. Miðast sú áætlun við upphitun í alt að 10° frosti sutan húss. Heita vatnið á Reykjum er því þegar nægilegt, til þess að ihita upp allan bæinn. Danska firmað, Höjgaard & .Schultz, sem hefir gert tilboð í Hitaveitu frá Reykjum, hefir stilt upp rekstraráætlun fyfir fyrirtækið fyrstu 8 árin, en á þeim tíma á lánið að greiðast. 1 áætlun firmans nemur rekst- urshagnaðurinn fyrsta starfs- ;úrið 720 þús. d. kr., annað árið 855 þús. d. kr., þriðja 995 þús. d. kr., fjórða 1130 þús. d. kr. og 5.—8. 1270 þús. d. kr. í áætluninni er reiknað með kolaverði 45 d. kr. pr. tonn, heimkeyrt. Ekki þurfum við að vænta þess, að kola- verðið lækki niður úr þessari .upphæð. Hinsvegar þarf lítið út -af að bera, til þess að kolaverð ið hækki. Ef t. d. kolaverkfall kæmi í Englandi, myndi verð kolanna áreiðanlega hækka stór Jega. Hitt vita allir, að ef stríð skyldi brjótast út, mundi kola- werðið fljótlega margfaldast. ★ Tilboð það, sem fyrir liggur :frá danska firmanu Höjgaard & Schultz er vitanlega ekki «ins hagkvæmt og gera mætti ráð fyrir að fáanlegt væri til fyrirtækis, sem sýnir sig að vera eins álitlegt og Hitaveitan er. En við megum ekki gleyma því, að tilboðið kemur á þeim tím- um, sem allar Evrópuþjóðir eru í óðaönn að búa sig undir stríð og lán því ófáanleg, nema þau sjeu á einn eða annan hátt tengd stríðsundirbúningnum. Við megum heldur ekki gleyma ‘því, að lánstraust okkar erlend- is er nú lamað, eftir óreiðu und janfarinna ára. ;Okkur finst það eðlilega hart, •að ekki skuli vera hægt að fá hagkvæmt lán til Hitaveitunn- ar, fyrirtækis, sem er svo álit- legt að dómi allra sjerfræðinga, er um hafa fjallað, að það get- ur greitt allan stofnkostnaðinn ,á 8 árum. En þetta sannar' okk- ur hvers virði traustið er, og hve afar áríðandi það er fyrir okkar fjármagnssnauða land, að brátt takist að endurheimta lánstraustið erlendis. ★ Það þýðir ekki að sakast um crðinn hlut. Allir hljóta að verða sammáia um, að Hitaveit an verði að komast í fram- kvæmd og það nú þegar. Fá- ist umbætur á tilboðinu, sem fyrir liggur, er það vel. Fáist þær ekki og ef trygður verði friður í jEvrópu í náinni fram- tíð, er mjög sennilegt, að við getum innan fárra ára fengið hagkvæmt, langt lán til fyrir- tækisins og greitt þá upp danska lánið. Hitaveitan er svo stórt fjár- hagsmál, að við höfum ekki ráð á að slá framkvæmdum á frest, síst nú, meðan stríðsblikan grúfir yfir Evrópu. Nágrannaþjóðir okkar á Norð urlöndum hafa varið tugum og hundruðum miljóna til kaupa á matvælum og öðrum brýn- ustu nauðsynjum, og eru það birgðir, sem geyma á handa fólkinu, ef ófriður skyldi brjót- ast út. íslenska ríkið hefir ekk ert fje handbært til slíkra birgðasöfnunar. Það verður að láta sjer nægja að greiða götu einstaklinganna til vörukaupa, en geta þeirra er einnig mjög takmörkuð. Sjeð frá þessu sjónarmiði er Hitaveitan einhver besta stríðs- ráðstöfunin, sem völ er á fyrir Reykjavíkurbæ og reyndar alla þjóðina. En hún hefir þann' mikla kost, fram yfir aðrar stríðsráðstafanir, að hún er var-. anleg. Hún sparar þjóðinni í íramtíðinni yfir miljón krónur árlega í erlendum gjaldeyri. IJitaveitan er því stór liður í sjálfsbjargar- og sjálfstæðis- baráttu þjóðarinnar. En sú þjóð er áreiðanlega best komin, sem hefir möguleika til að búa sem mest að sínu. Bróðursonur Mon- bergs druknaði Niels Monberg verkfræðing- ur og framkvæmdastjóri — sá er bygði höfnina í Vest- mannaeyjum — hefir símað póst- og símamálastjóra, Guð- mundi Hlíðdal, og óskað þess getið, að sá Niels Monberg verk fræðingur, sem druknaði af slys förum í Færeyjum hafi verið bróðursonur sinn og sonarsonur Etatsráðs Monbergs, þess sem bygði höfnina í Reykjavík á stríðsárunum. Bæjarstjórnarfundur verður haldinn á morgun kl. 2 e. li. Átta mál eru á dagskrá, þar á meðal 2. umræða um hitaveitumálið. Þorlákshöfn Hr. Sia'irt'ður Þorsteins-1 son (faðir sjera Árnai fríkirkjuprests) hefir leyst vel af hendi þarft verk með því að rita endurminninRar úr Þorlákshöfn. Bæði hann or ísafoldarprentsmiðja eig'a bakkir skilið fyrir að gefa þær út, I. í fyrra og II. í ár, báðar með mörgum vel völd- 'um og prýðilegum myndum. Með þesskonar ritum og hjeraðs sögum er hjer lagður drjúgur skerfur til þjóðmenningarsÖgu og æfikjara feðra vorra. Og Þorláks- höfn 1. og II.. ev aðallega fiski veiðaþátturinn, veigamesti kaflinn í sögu þess staðar um þann tíma, sem elstu menn ennþá muna, eða 70—80 ár. Hjer er því líka um að ræða drjúgan kapítula úr (væntanlegum?) söguþáttum Ár- nessýslu — og jafnframt því úr „Landnámi Ingólfs“. Margir eru þeir, sem telja þjóð vorri þarfara og æskulýðs lands- ins hollara og nytsamlegra til að-' vörunar og eftirhreytni, að vita deili á og læra að gera sjer grein’ fyrir því, hvaða hættir liafa reynst þjóð vorri liollir, og hverjir liættu- legir. ★ Margir telja, að menningarsjóði og- ríkissjóði væri skyldara fyr og fremur að styrkja og hvetja til útgáfu nytsamlegra innlendra fræða og þjóðhátta — eigi síst bjeraðasagna um landið alt — en þýðingar útlendra sagna og innlent skáldsagnarubb. Þar eð sumt af því, sem liæst er liossað, er þjóð vorri til lýta utan lands og innan. Þesskonar bóbmentir þurfa ekki stuðnig, á kostnað þeirra manna, sem hafa ímigust á þeim. Hinir eru nógu margir, sem vilja lesa skáldsögur (hversu ó- merkilegar, sem þær eru), og þeim er skyldara að kosta þær, en hin- um fáu, sem þjóðarreynslu og þjóðnytjafræði verða að kosta á | sínar spýtur. Menningarsjóði og 1 ríkissjóði her að glæða og styrkja j þjóðholla lestrarfýsn æskulýðsins, og vara hann við glapstigum. Þorlákshöfn II., allra helst end- urminningar Jóns hreppstjóra á Hlíðarenda, sýna vel og sanna það. að skyldurækni og trúrækni, sam- fara ósjerhlífni og Kappi með for- sjá, hafa mótað vora hestu menn. Grundvallar þá eins og kletta í hafinu, sem engin bára fær brotið, og gert þá jafnframt að sífrjóum Vitaðsgjafa fyrir þjóð vora, á mörgum sviðum. ★ Endurminningar Jóns bónda eru ágætar um alt, sem lýtur að sjó- menskunni. En jeg sakna þar bóndans og hans miklu húsýslu, á hans stóra búi. Frá því er of lítið sagt. — Vel hefði líka mátt hafa fleiri fyrirsagnir og flokka efnið nokkru nánar. — Eigi að síður er það hverjum manni, ung- um og öldruðum, liolt og liress- andi, að lesa jafn ágætar endur- minningar, sem í báðum kverunum finnast um marga, ágætismenn. ■ Þótt jeg nefni þá ekki hjer, get jeg ekki látið vera að minna að- eins á — auk liöf. — stórmerka bóndann „Jón í Höfninni" (I.), og hinar hugljúfu endurminning- ar um „Þuríði formann“, blessun hennar, heilræði og bænir fyrir Jóni á Illíaðrenda. Vel man jeg hans góða heimili, og liversu hann átti bæði margt og fallegt sauðf je, þá er jeg bólu- setti hjá honum, gegn bráðafári, á þriðja hundrað fjár, haustið 1900.*) Við endurminningar Jóns á Hlíðarenda bætir höf. formanna- vísum, framhaldi af sögu veiði- stöðunnar og ýmsum athugasemd- um. Þar á meðal nokkru úr Sókna- lýsing Hálfdáns á Reykjum, frá 1703. Er það góð viðbót, það sem þetta nær. En að vonum, í ekki stærri bók, vantar enn mikið í Sögu Þorlákshafnar, af því sem til eru skrifleg skilríki fyrir, þó slitrótt sjeu þau að vísu. Má þar til nefna: Greinargerð fyrir því, að Höfnin lijet Elliðahöfn, áður eu liún hlaut Þorláks-nafnið. Ábúend- ur má rekja þar um 3 aldir, eða meira, og viðskifti sumra þeirra #) Kyntist jeg á fyrstu bú- skaparárum mínum mörgum fleiri góðnm fjárbændum, því næstu ár- in við aldamótin, bólusetti jeg Srúml. 18000 fjár í 18 hreppum. við Brynjólf biskup. Útgerð bisk- ups þar, og útgerða alla stöku ár, með tölu skipa og sjómanna. Til- raun Lambertsens kaupm. á Eyr- arbakka (1800), að veiða þorsk í net í Þorlákshöfn. ,,Borgarana“ í ILöfninni, nálægt þeim aldamótum, ,,spekúlanta“ og verslun þar. (Leið rjetta þarf ártalið í „Þorláksh. I.“, bls. 9. Höfnin þar var ekki lög- gilt 1875, lieldur frá 20./7. 1878). Þá eru og til uokkrar lieimilidir um kirkjuna í Þorl.h. — m. a. leyfði Gísli bisk, Oddsson, árið 1635, líkgröft þar í nauðsyn. ★ Skal jeg nú hvorki telja hjer fleira, nje heldur hrella þá meira, sem telja flestan fróðleilr þyrrinn og leiðinlegan, ef hann er ekki teygður og kryddaður með orða- flúri, eða. ýktur og afbakaður að þjóðsagnahætti. Vil jeg svo enda þessi orð, með þessu ágæta erindi Guðmundar Friðjónssonar: Lýðurinn kýs hin ljettu spor: lóuflug og kvakið. En altaf sýnir afl og þor arnarvængj atakið. Og lesendur „Þorlákshafnar" vil jeg fullvissa um það, að þeir geta fundið þar bæði „lóukvak“ og enn fremur „arnarvængjatak“. 37 366 ibúar i Beykjavik Ibúar í Reykjavík voru við manntalið 1938 37,366 — eða 1263 fleiri en við manntalið 1937. Þetta er samkvæmt upplýsingum frá manntalsskrif- stofu Reykjavíkur. Aúkningin á árinu hefir samkvæmt því numið rúmlega 3.3%. — Eins og fyr eru konur í talsvert miklum meirihluta. Kon- ur voru við manntalið 1938 20117 á móti 17249 karlmönnum. (í fyrra voru konurnar 19403, en karlmenn 16700). Skift eftir götum kemur í ljós, að langflestir búa við Laug- arveg, eða samtals 2332 manns. Næst koma: Hverfisgata með 1480 manns, Njálsgata með 1396 manns, Grettisgata með 1306, Hringbraut með 1290 manns og Bergstaðastræti með 1208. Aðr- ar götur hafa ekki yfir 1000 íbúa. (Vesturgata 913, Laufás- vegur 890, Ásvallagata 805, Bergþórugata 710, Ránargata 683, Framnesvegur 630 o. s. frv.). Það er athyglisvert að í fyrra var Grettisgata þriðja fjölmenn asta gatan í bænum, á undan Njálsgötu. En fólkinu við Njáls götu hefir f jölgað um 93 manns, en við Grettisgötu hefir því fækkað um 5 manns. Fæstir búa við Vallarstræti 2, Defen- sorveg 2, Borgarveg 3, Mjóu- mýrarveg 5 o. s. frv. Yfirleitt eru karlmenn í minni hluta við einstakar götur. Þó eru undantekningar. Við Hörpu götu bjuggu 124 kvenmenn og jafnmargir karlmenn, við Holtsgötu 126 af hvoru kyni, við Framnesveg 316 karlmenn og 314 kvenmenn, við Mímis- veg 48 karlm. og 39 kvenmenn Við aðalgöturnar í Miðbæn- um eins og Austurstræti búa 45 manns, við Bankastræti 82 manns, Hafnarstræti 79 manns, Aðalstræti 144 manns og Lækj- argötu 92 manns. Síðustu árin hefir mannfjölð inn í Reykjavík verið sem hjer segir: 1938 37 366 1937 36 103 1936 35 300 1935 34 231 1934 32 974 1930 28 304 1928 '25 217 1926 23 190 1920 17 679 Eftír Vigfús Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.