Morgunblaðið - 15.06.1939, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 15.06.1939, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 15. júní 1939, Bretar tefja á stofn upplýiingaráðuneyfi Stórorðar árásir Þjóðverja á Breta „Bretar taka upp aftur rvtingspólitíkina“ j Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Isambandi við lausafregn sem komist hefir á loft um það að breska stjórnin ætli að stofna út- breiðslumálaráðuneyti, svipað og ráðuneyti dr. Göbbels í Þýskalandi, hafa þýsk blöð hafið stórorðar og gífuryrtar árásir á Breta, t : • Bretar kalla hið nýja ráðuneyti, sem ráðgert er að stofna, „upplýsingaráðuneyti" (Ministry of Information). Búist er við, að Perth lávarði verði falið að veita því forstöðu. Perth lávarður hefir verið sendiherra Breta í Rómaborg og gerði m. a. bresk-ítalska samninginn fyrir hönd Breta. Hann var áður framkvæmdastjóri* Þjóðabandalagsihs (hjet Sir Eric Drummond áður en hann var aðlaður). Þjóðverjar og Danir undir- skrifa öryggissáttmála Myndin er tekin þegar Herluf Zahle, sendiherra Dana í Berlín (t. h.), og von Ribbentrop, sendiherra Þjóðverja, undirskrifuðu dansk-þýska öryggissáttmálann í Berlín. Þýsk blöð virðast óttast, að aðalstarf hins nýja ráðherra verði að reyna að koma bresk- um upplýsingum til almennings í Þýskalandi. Fyrirsagnir blað- anna eru eitthvað í þessum dúr: • „Bretar taka upp aftur rýtings- ' pólitíkina“, „Óvinurinn North- , rCliff rís upp aftur“ CNorthcliff var á stríðsárunum — oft með rjettu — sakaður um að hafa rekið áróður gegn Þjóðverjum með lognum fregnum. Hann var ritstjóri „Daily Mail“, „rihe Times“ o. fl. blaða). Eitt blaðið segir: „Bretar eru um það bil að hefja glæpsam- legan áróður í því augnamiði, að skapa sundrung milli þýsku þjóðarinnar og foringja henn- ar. En Þjóðverjar eru ómóttæki- legir fyrir lygasýklum Breta“. Annað blað talar um „breska ósvífm“, „saurugan tvískinnung Breta“ o. fl. o. fl. Þjóðverjar boða, að þeir muni grípa til gagnráðstafana. Bretar sæta Hka miklu að- kasti fyrir fregnir, sem bresk blöð hafa flutt und- anfarna daga um herflutn- inga Þjóðverja í Slóvakíu, við landamæri Póllands. Blöðin segja að þessar fregnir sjeu úr lausu lofti gripnar og til þess ætlaðar, að hafa áhrif á samninga Rússa og Breta. Blöðin leggja áherslu á, að lygafregnir þessar, sem þau kalla, sjeu undan breskum rótum runnar. Þau segja, að frönsk og hollensk blöð hafi birt fregnirnar, en tekið það skýrt fram, að þau hefði fregn- ir sínar frá London. „Það er því auðvelt að komast fyrir rætur þessarar lygasmiðju“ segja blöðin. En þau segja að það hafi verið kunnugt um langt skeið, að Þjóðverjar væru að gera varnarvirki á austur-landamær- um sínum. « ^ 3L sþ-'í. «;;■ Þýskar njósnír i Englandi og Selgfu London í gær E.Ú. Breska stjórnin hefir fárið fram á við þýsku stjórn- j ina, að hún kalli heim ræðis- mann sinn í Liverpool. Maður a%* nafni Kelly, var fundinn sekur um að selja Þjóð- verjum hernaðarleyndarmál, og hafði hann komist í kynni við þá, er kaupin gerðUr.fýtif tniUi- göngu ræðismannsins. Cham- berlain sagði í. neðri málstof- unni í dag, að stjórnin hefði komist að þeirri niðurstöðu, að ræðismaðurinn hefði verið við málið riðinn, og því óskað eftir, að hann væri kvaddur heim. ÞÝSKAR NJÓSNIR í BELGÍU. Einn af þingmönnum full- trúadeildar belgiska þjóðþings- ins gerði að umtalsefni á þingi í gær nazistiskan undirróður í Belgíu og væri meðal annars njósnað um flóttamenn frá Þýskalandi, sem fengið hefði aðáetursleyfi í Belgíu. Forsætisráðherrann sagði, að athugun færi fram að því er snerti öll þau njósnamál, sem á döfinni væri, en það væri enn ekki sannað mál, að njósnir hefði farið fram. Hann kvað Belgíu ekki mundu þola neina pólitíska íhlutun erlendis frá. Átökin í Tientsin ogrun, sem Japanar hafa sýnt r i Frá frjeitaritara voruni. " Khöfn í gær. 'E ERLIÐ, Breta' og Frakka hefir tekið sjer . sfoðu í víggirðingum í alþjóðahverfinu í Tientsin. . Handan vjo alþjóðahverfið hafa Japanar aukið sitt herlið og éru'ailir hermannaskálar þar fullskipaðir. Gaddavírsgirðing- ar hafa verið gerðar umhverfis bresku og frönsku hverfin. Mr Butler aðstoðar utanríkismálaráðherra Breta, sagði í breska þinginu í dag, að Halifax lávarður biði eftir skýrslu um það, sem gerst hefði í Tientsin. Hvað gert yrði færi eftir því, hvað Japanar hefðust að. „Daily Telegraph“ kallar aðfarir Japana í Tientsin svæsn- ustu ógnun, sem þeir hafi nokkurntíman sýnt Bretum í Kína. Húnvetningaf jelagið efnir til skemtiferðar norður á Blönduós á afmælishátíð Kvennaskólans. Farið verður frá Bifreiðastöð Steindórs kl. 5 síðd. á morgun. Fjelagið á- minnir menn um að mæta stund- víslega. Áður en jjapanar ákváðu, ,að loka sjerrjettindasvæðum Breta og Frakka, höfðu Bretar stung- ið upp á, að skipuð yrði þriggja manna nefnd, til þess að kveða upp úrskurð um framsal kín- versku mannanna fjögra, sem deilan í Tientsin spanst út af. Samkvæmt tillögu Breta skyldi nefndin vera skipuð einum breskum mapni, einum japönsk- um og ameríska ræðismannin- um í Tientsin, sem odd^manni. Japanar höfnuðu þessari t i 1 - lögu. i Aðalatriðið! London í gær F.Ú. Japanir segja nú, að krafan um að Bretar framselji kín- versku hermdarverkamennina sje ekki mikilvæg b agur. 'Er talið, að fyrir Jspöru: vaki, að ná viðskiftum c v,ödnm í Ti- entsin algerloga í sínar hendur. Krefjast þeir þess af Bretum, að þeir aðhafist ekkert, sem sje hnekkir stefnu Japana gaga vart Kína. Forsætisráðherra Japana, her mála- og utanríkismálaráð- herrann, hafa á fundi í dag á- kveðið að fylgja fastara fram stefnu Japana, að því er for- rjettindasvæðin snertir, en þau sjeu miðstöðvar undirróðurs gegn Japönum. Þjóðverjar vilja að smáríkin segi sig úr Þjóða- bandaiagieu Frá frjettariiara vorum. Khöfn. í gær. Berliner Börsen Zeitung“ gefur í skyn í dag að til mála geti komið að Þjóðverjar krefjist þess, að hlutlaus ríki segi sig úr Þjóðabandalaginu. Þessi ríki eru Holland, Belgía, Eystrasaltsríkin og Norðurlönd. Blaðið segir, að sú spurning Lljóti að vakna í sambandi við einangrunarpólitík Breta, hvort hlutleysi þjóða, sem ekki eru í bandalagi við neina aðra eða aðrar þjóðir geti samrýmst þátttöku þeirra í Þjóðabanda- laginu. ,,Börsen-Zeitung“ heldur því fram, að samningar Breta og Rússa stefni í þá átt, að safna öllum þjóðabandalagsríkjunum í eina fylkingu gegn Þjóðverj- um. ÍSL. KNATTSPYRNU- MENNIRNIR í KHÖFN Khöfn í gær F.Ú. Hátíðahöld í tilefni af 50 ára afmæli knattspyrnu sambandsins danska byrja á morgun í „Idrætsparken“ í Kaupmannahöfn. Gestir á minn-i ingarhátíðinni eru forseti í þróttasambands fslands, B. G. Waage og 20 manna flokkur úr Knattspyrnuf jelaginu Fram Reykjavík. Morðið í Klatlno Tjekknesk kona í þorpinu Kladno hefir verið hand- tekin, g;runuð um hlutdeild í morðinu á þýska lögregluem- bættismanninum á dögunum. Áformað hafði verið að jarð- setja í dag tjekkneska lög- regluembættismanninn í Nahcod sem Þjóðverji drap, en jarðar- förinni var frestað, vegna þess, að yfirvöldin óttuðust æsingar meðal Tjekka og alvarlegt upp- þot. (F.Ú.).

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.