Morgunblaðið - 15.06.1939, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 15.06.1939, Qupperneq 3
Fimtudagur 15. júní 1939. 3 BlaðamaSur frá Morgunblaðinu hitti Mr. Hymus Jones að máli é Hótel Borg í gær og spurði hann um þessa nýju bofnvörpugerð. — Fjelag mitt hefir síðastliðin 10—15 ár gert tilraunir með að bæta veiðarfæri og ])á einkum botnvörpur togara. Hefir fjelagið haft til þessara rannsókna sjer- stakt skip og valinkunna sjer- fræðinga. Hafa rannsóknir þessar gengið svo vel að við teljum nú að okkur hafi tekist að biia til fyrirmyndarvörpu. Þessa vörpu höfum við nvi reynt á frönskum togurum undanfarin 3—4 ár og hafa þær gefist mæta vel. Aðalkostir vörpunnar eru þeir, að fiskurinn heldur sjer bet- ur í lienni heldur en gömlu vörp- unni, vegna sjerstaks útbúnaðar. Við auglýsum ekki með að meira veiðist með okkar vörpu en venju- legri vörpu, en við höldum því hiklaust frain, að þeir sem nota okkar vörpu, landi meiri og betri fiski en hinir. Lítil liætta er á að varpa þessi rifni í botni vegna sjerstaks útbúnaðar. Þá hefir einn- ig komið í Ijós, að togarar, sem nota þessa nýju vörpu, eyða minna af kolum en þeir sem nota gömlu gerðina. Fleiri kosti hefir varpan, sem jeg vona að íslensku togara- skipstjórarnir sannfærist um er þeir sjá hana og reyna. Með mjer er enskur togaraskipstjóri, sem liefir reynsru í meðferð þessarar vörpu, og ætlar hann að vera með í ferðinni. Þannig fórust Mr. Hymus Jones orð um þessa nýju vörpu. Á reynsluferðinni með Venusi verður veiðunum svo liagað, að togað verður með tveimur vörp- um, nýju vörpunni og vörpu af venjulegri gerð. Það er Fiskimálanefnd, sem fær Venus til að farh í þessa ferð. Engin síldveiði Ekkert hefir orðið vart síldar . ennþá fyrir norðan, þrátt fyrir ágætis veðurlag nyrðra, und- anfarna daga. Er bygflingar- tjelag alþýðu I upplausn ? Ofríki Hjeðins Róstusamt ev í Bygging- arfjelagi alþýðu, síðan fjelagsmálaráðherrann gaf út bráðabirgðalögin á dög- unum. Fjelagið þurfti að breyta sam- þyktum sínum í samræmi bráða- birgðalögin. Strax og það er gert, stendur fjelaginu til boða lán til nýrra verkamannabústaða, að upp- liæð 650 þús. kr. En Hjeðinn og kommúnistar vilja ekki sleppa tökum á fje- laginu. Fundur var haldinn í fje- laginu á þriðjudagskvöld og skyldi þar breyta, samþyktunum í samræmi við bráðabirgðalögin. En úr því varð tóm vitleysa. Komm- únistar smöluðu á fundinn og rjeðu þar öllu. ITjeðinn óð þarna uppi og dró upp íir vasanum plagg, er hann ljet komnránista samþykkja. Þar eru sett ýms skil- yrði fyrir því, að fjelagið breyti sínum samþyktum, sem þýðir ekk- ert annað en það, að fjelagið get- ur ekki starfað samkvæmt lands- lögum, meðan skilyrðin standa. Með þessu tefur Hjeðinn fyrir byggingu nýrra verkamannabú- staða. Á fundinum tilkynti fjelags- málaráðherra brjeflega, að stjórn- in befði skipað Gnðm. í. Guð- mundsson formann Byggingarfje- lagsins. Við þessum boðskap varð Iíjeðinn svo reiður, að hapn vissi varla sitt rjúkandi ráð. Ilann neit- aði að yíkja fyrir Guðmundi og |ljet nú kommúnista kjósa sjálfan FRAMH. Á 8JÖTTU SÍÐU MORGUNBLAÐIÐ til R )m Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Franco ætlar aS fara í opinbera heimsókn til Rómaborgar í september næstkomandi. Þetta hefir verið opinberlega tilkynt í Rómaborg. ítölsk blöð fagna þessari ákvörðun mjög og nota tækifærið til þess að benda á þann þátt, sem ítalir hafi átt í því að sltapa binn nýja Spán. Fiskimálanefnd lætur r • reyna nyja vorpu Enskur sjerfræðingur ng margir togaraskipstjórar fara ð veiðar með Venusi i nðtt 25 ðra skðlabræður Ikvöld fara flestir togaraskipstjórar í Reykjavík og Hafnarfirði með b.v. Venusi til að reyna nýja vörpu, sem komin er hingað til lands. Ef varpa þessi talin hafa fjölda marga kosti, og ef húr. er eihs góð og eigendur hennar vilja vera láta, má búast, við að hún valdi algjörum straumhvörfum í sögu íslenskra botnvörpuveiða. Það er enskur maður. Mr. Hymus Jones, sem kemur hingað með þessa nýju vörpu. Er hann hjer á vegum Fjelags íslenskra botnvörpu- skipaeigenda og- er hann fulltrúi fyrir firmað V. D. Ltd. í London sem frarnleiðir þessa nýju botnvörpugerð. S.l. smmudag iiittust nokkrir skólabræður nr Stýrimannáskólau- mn og mintust Jiess að ‘25 ár voru liðhi frá jiví að jieir útskrifuðust úr skólanum. Flestir eru jieir skipstjórar irá. Fóru skólabræðurnir til Þingvalla á snnnudaginn og skeiutu sjer )>ar. Þátttakenduf í jieirri för eru á ínyjKliniii lijef að ofan, sem Loftur Guðnnindsson tók af jieim áður en þeir lögðu npp í ferðalagjð. Á myndinni eru (freairi riið talið f'rá vinstri) ; Jóhami Stefáns- son, 1. stýrim. á b.v. Geir; Magnús Magnússon i'ramkv.stj. (sem var kennari í skólanum) ; Páll Halldórsson, fyrv. skólastjóri; Theodór Frið- riksson. bátsm. á Snorra goða; Ásgeir Jónassmi, skipstjóri á Selfossi; Bergur Pálsson. skipstj.; Jónas Jóuasson. Aftarj röð; Jón Höguason, skipstjóri; Pjet.ur Björnsson, skipstj. á Goðafossi; Aoalsteinn Pálsson, skipstj. á Belgaum; Friðrik Olafsson, skipherra. skólastjóri Stýri- mannaskólans; Magnús K.jæruested, skipstjóri á Slceljungi; Jón Ei- ríksson, skipstjóri á Lagarfossi; Kolbeinn Signrðsson. skipstjóri á Þórólfi; Pálmi Loftsson, t'orstjóri. Alls voru Jieir 26. sem útskrifuðust úr skólanum vorið' 1914, og eru 18 þeirru á lífi. Dánir ern: Friðrik Benónýsson, Sveinn Jónsson, Guðmundur Kr. Guðinundsson, Byjólfur Grímsson, Einar Magnússon. Benjamín Gíslason, Magnús Snorrason og Guðjón Þorsteinsson. — Fjarverandi voru: Ásgeif Sigurðsson, skipstjóri á, Esju; Bjarni Jóns- son. 1. stýrimaður á Gullfossi; Páll Hannesson, skipstjóri á Isafirði, og Sigurður Gíslason, 1. stýrimaður á Dettifossi. Gamall maður verður tyrir mótóriijóli og fótbrotnar Það slys víldi til í fyrradag, að gamall maður, sem er aðkomumaður hjer í bænum, varð fyrir irótorhjóli og fótbrotnaði. Maðurinn heitir Finnbogi Kristó- fersson og er frá Galtalæk í Rang- árvallasýsln. Slysið varð á Hringbrautinni hjá Brávallagötu um fimmleytið. Finn bogi var þar á gangi ásamt öðr- um maimi. Komu á mót.i þeim tveir menn á mótorhjóli og varð Finnhogi fyrir hjólinu. Maðurinn, sem stýrði hjólinu, segir svo frá, að er hann hafi ver- ið rjett kominn að mömiunum, hafi gamli máðurimi alt í einu gengið til hliðar fyrir hjólið og ekkert svigrúm hafi verið til að afstýra slysinu. Maðurinn, sem var með Finn- boga, segist aftur á móti ekki hafa sjeð að Finnbogi liafi gengið fyrir hjólið. Finnhogi var fluttur á spítala fyrst og þar gert að þeinbrotinu, en síðan var hann fluttur lieim til jiess fólks er hann býr hjá hjer í bænum. dr. Eiður $. Kvaran látinn Dr. phil. Eiður S. Kvaran, lektor í norrænum fræðum við háskólann í Greifswald í Þýskalandi, andaðist á sjúkrahúsi í Greifswald s.l. mánudag. Hafði hann legið rúmfastur á auuað ár, eða frá því hann kom til Þýska- lands aftur eftir stutta kynnisför hjer heima. Eiður var sonur Sigurðar Kvar- au læknis. Franco fer i Frú Ottósson greiöi 4000 krúna bætur Atvinnubannið ísamn- ingnum við írú Helgu Siguíðsson Hæstirjettur kvað í gær upp. dóm í málinu: Jóhanna Goldstein-Ottósson gegn Helgtt Sigurðsson og gagnsök. Máiavextir eru þeir, að með samningi dags. í Berlín 16. ág. 1934 rjeði frú Helga Sigurðs- son, eigandi verslunarinnar ,,Gullfoss“, þýska konu, Jó- hönnu Goldstein (er síðar gift- ist Hindrik Ottóssyni) til að veita forstöðu saumastofu, er hún starfrækti í sambandi við verslunina. í samningnum var m. a. svo hljóðandi ákvæði: „Frú Uold- stein sku-ldbindur sig til þess, meðan dvöl hennar í Reykjavík stendur yfir, að búa hvorki til nje láta búa til föt á einstaklinga (nema sjálfan sig), og til þess að taka ekki að sjer aðra stöðu í Reyk.javík“. Hinn 4. ágúst 1935 gerðu að- ilar með sjer nýjan samning. Þar var ráðningartíminn 3 ár. Jafnframt skuldbatt frú Gold- stein sig til ekki að taka starf frá öðrum eða vinna fyr- ir utan verslunina á meðan jeg dvel á íslandi“. Var fram tekið að bannið næði til Reykjavíkur og nágrennis og Hafnarfjarðar. Hinn. 15. júlí 1938 sagði frú Goldstein upp samningum við frú Sigurðsson frá 15. sept. s. á„ en til þess tíma náði samning- urinn. Reyndi frú Sigurðsson að ná nýjum samningi við frú Gold 'stein, en það mistókst. Um þetta leyti giftist frú Goldstein Hin- rik Ottóssyni. Hinn 1. okt. 1938 opnaði frú Goldstein-Ottósson sína eigin „tískusaumastofu fyrir dömur“ í Kirk.juhvoli hjer i bænum. Var þetta samskonar saumastofa og frú Sigurðsson starfrækti, sem taldi þetta brot á samningunum frá 4. ág. 1935. Frú Sigurðsson höfðaði því mál gegn frú Goldstein-Ottós- son og gerði þessar kröfur: 1) Að viðurkent verði með dómi rjettarins, að stefndri sje óheimilt, að viðlögðum 100,00 króna dagsektum, að roka saumastofu hjer í Reykjavík og nágrenni og í Hafnarfirði, eða vinna við slíka stofnun á einn eða annan hátt. 2) Að stefnd verði dæmd til að grciða sjer allt að kr. 6000.00 í skaða- bætur fyrir samningsrof og fyrir það tjón og þau óþægindi, er hún (stefn- andi) hafi orðið fvrir við það, að stefnd hafi tekið til sín á óleyfilegan hátt og eyðilagt málbækur licitnar. 3) Að stefnd verði dæmd til ai greiða sjer málskostnað að skaðlausu. Frú Goldstein-Ottósson krafð ist sýknu. Með dómi undirrjettar (lög- FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.