Morgunblaðið - 27.06.1939, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.06.1939, Blaðsíða 5
HÞriðjudagur 27. júní 1939. í ! JjHorgtmMiiðtð Útget.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Ritstjfirar: Jön Kjartanaaon og Valtýr Stefánaaon (ábyraSarraaCur.). Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjörn, auglýsingar og afgretCala: Auaturatræti I. — Stnd 106«. ÁskriftargrJald: kr. S,ðO á raánuCl. í lausaaölu: 16 aura elntaklt) — 26 aura moB I>«sbök. GISTIHÚS OG SAMKOMUSTASIR Raddir hafa heyrst um það, í sambandi við hið vænt ^anlega nýja skip Eimskipafje- lagsins, sem vitanlega verður ’til þess að auka stórlega ferða- mannastrauminn til landsins, að fyrst yrði að koma lagi á gisti- liúsin hjer í landinu og þegar það væri búið, mætti fara að örfa ferðamannastrauminn, en :fyr ekki. Enda þótt allir geti að sjálf- :-sögðu verið sammála um það, að mikið vanti á að okkar gisti- hús sjeu í lagi, er hitt fjar- •stæða, að við megum ekki örfa tferðamannastrauminn til lands-i ins, vegna vöntunar á góðum gistihúsum. Gistihúsin hljóta að Ikoma strax og þörfin kallar að, þau væru vafalaust komin sumstaðar, «f ekki væru lagð- ar óeðlilegar hömlur á þessar framkvæmdir hjer heima. lEnlþegar við höfum búið þann ijg í þaginn, að því er samgöng-i urnar við útlönd snertir, að er- Jendir ferðamenn eiga kost á fferðum Ihingað með ágætum skipum, þá verður ekki langt að Mða þess, að ferðamanna- rstraum/urinn kallar eftir gisti- húsunum. Þá verða einnig anögulefkarnir meiri til þess, að iáta gistihúsin bera sig fjár- Jhagslega. Annars eru gistihúsin sjer- ætakt vandamál, sem þarf að leysast þannig, að við höfum sóma af en ekki vanvirðu. HTi8 þurfum að bæta stórlega ■gistihúsin á þeim stöðum, sem íútlendingar koma mest á, eins <og t. d. á Þingvöllum og við <!eysi. Á báðum þessum stöðum .eru ófullnægjandi gistihús. Og -á Þingvöllum er sá stóri galli á, að þar ægir nú öllu saman, vegna þess að gistihúsið og sam- komuhúsið er eitt og hið sama. J>ví er það, að þegar samkomur «ru á Þingvöllum, sem oft vilja "verða nokkuð róstusamar, eins •og gengur, þá er alt gistihúsið undirlagt og hvergi frið þar að hafa. Þetta kunna útlendingar jafar illa við. Þeir vilja fá að vera í friði á sínum dvalarstað. Geysir er án efa sá staður iiijer á landi, sem útlendingar þrá mest að sjá. Fjöldi útlend- inga kemur beinlínis hingað til lands, til þess að sjá þetta furðu verk náttúrunnar, Geysir. Við ■Geysi þarf að vera fullkomið .-gistihús, með öllum nútíma þæg- indum. Þar þarf einnig að vera tfullkomin sundlaug og leik- ■vangur, golf- og tennisvellii*. JOtlendingar vilja hafa slík þæg- indi og það ætti að vera auðj velt að koma þeim upp, án :mjög mikils kostnaðar. ★ En fyrst við á annað borð minnumst á gistihúsin, er ekki íúr vegi að minna á annað í sambandi við þau og samkomu- staði yfirleitt. Nú er það svo á flestum gistihúsum og samkomustöðum, að þar ríkir yfirleitt megnasta óregla. Oft verða menn á slík- um stöðum fyrir aðkasti frá ölvuðum mönnum, án þess að nokkur skifti sjer af. Útlend- ingar telja þetta vott menning- arskorts og vissulega er það r j ett. Yfirleitt verðum við að koma meiri menningarbrag á okkar gistihús og samkomustaði, en verið hefir. Það verður að gera þær kröfur til þeirra manna, sem starfrækja gistihúsin, að þeir hafi fyrir þeim menn, sem kunna sitt verk og sjá um, að þar ríki regla á öllum sviðum. Víða er allmjög ábótavant um þrifnað á gistihúsum, rúm eru ekki góð og sóðaskapur ríkir á stöðum, sem almenningur á að- gang að. Þessu þarf að kippa í lag. ★ Það, sem sagt var hjer að framan á aðallega við um gisti- húsin og samkomustaðina utan Reykjavíkur. Hjer í bænum eru til góð gistihús, en þó mun út- lendingum finnast einkennileg- ur menningarbragur á ýmsu í höfuðstaðnum. Þeir eiga t. d. bágt með að skilja það, að ekki skuli vera hægt að fá glas af víni nema á einu gistihúsanna og það enda þótt allir viti, að leynivínsala er hjer nálega í hverri götu. Þegar spurt er um ástæðuna fyrir því, að aðeins eitt gisti- húsið í bænum fær að selja og yeita áfengi, verða svörin ekki altaf hin sömu. Sumir gefa þá skýringu, að þessi ráðstöfun sje gerð til þess að styrkja þetta gistihús, Hótel Borg, sem ríki og bær standi í ábyrgð fyrir. Aðrir gefa þá skýringu, að með þessu sje verið að draga úr drykkjuskapnum. Fyrri skýringin er vafalaust hin rjetta; hin síðari er fráleit. Það er áreiðanlega miklu meira drukkið hjer í bænum einmitt fyrir það, að bannað er að veita vín opinberlega nema á einum stað. Þegar samkomur eru á öðrum stöðum, koma menn með áfengi með sjer í vasanum og drekka þá oftast miklu ver. Þegar svo vasa-forðinn þrýtur, er leitað til leynivínsalanna, sem aldrei þrjóta. Lögreglan mun áreiðanlega geta sannað það, að meira ber á ölvun manna einmitt á þeim samkom- um, sem engin vínsala er, held ur en á samkomum á Hótel Borg. Sigurgeir Sigurðsson vígður biskup Frá athöfninni á sunnudaginn Silfurbrúðkaup eiga í dag frú Sigurjóna Magnúsdóttir og Magn- ús Jónasson frá Efri-Sílalæk í Villingaholtshreppi, nú til heimil- is á Reynimel 50. Sunnudagurinn raiiA upp bjartur og skínandi eins og íslenskur miðsumarsdag- ur getur fegurstur verið. Þennan dag var mikið um að vera víðsvegar í nágrenni höf uðstaðarins; Hvanneyr- ingamót, kommúnistamót að Ferjukoti, Árnesingamót á Þingvöllum m. m. Það var því margt, sem dregið gat að sjer athygli manna þennan dag — þó ekki sje minst á veðrið og sumardýrðina Þó var það kirkjan, sem átti þennan dag, átti athygli liöfuðstaðarins og þjóðar- innar allrar, og liennar vegna verður þessi dágur festur í annála hinnar íslensku þjóðar, geymdur í minningum kirkju vorrar. Það var vígður nýr biskup, nýju nafni bætt inn í röð ísienskra biskupa * Þeess mátti verða vart undan- farið, að kirkjuleg tíðindi voru í aðsigi. Prestarnir voru að safnast til bæjarins undanfarandi daga hvarvetna að af landinu. Líklega hafa ekki strandferðaskip siglt hjer í höfn síðustu dagana nje bílar runnið ofau Laugaveginn ut- an af landi, án þess að þar væri einhver klerkur innbyrtur. Það kom líka á dagiun, þegar alt var heimt, að fleiri prestar voru sam- an komnir hjer en nokkru sinni fyr, og líklega hafa aldrei í sög- unni jafnmargir kirkjunnar þjón- ar verið á einum stað á íslandi, eins og sunnúdaginn 25. júní 1939. Kl. 91/2 á sunuudag fóru prest-. ar að safnast saman í Alþingishús- inu, til þess að skipa sjer í skrúð- fylkingu. Voru allir liempuklædd- ir. Síra Friðrik Hallgrímsson pró- fastur hafði umsjón með ytra fyr- irkomulagi vígsluathafnarinnar, og skipaði liann mönuum niður í fylk- inguna. Fyrir utan Alþingishúsið og Dómkirkjuna tók þegar fólk að safnast saman. Þegar klukkan í Dómkirkjuturninum sló 10 lagði fylkingin af stað. 80 hempuklædd- ir prestar með biskupana þrjá og biskupsefni í ofanverðri fylkingu, og gegnu famulí fjTrir þeim, þeir 2 prestar, sem vngstir eru að vígslu. Fylkingin gekk inn um anddyri kirkjunnar og inn eftir miðju gólfi inn að kór, beygði síðan til hægri og inn í skrúðhús. Kirkjan Var fullskipuð og fram yfir það, hvert sæti og hver þumlungur gólfsins uppi og niðri. Viðstaddir voru m. a. forsætisráðlierra og fulltriiar er- lendra ríkja. . ★ Nú hófst guðsþjónustan. Síra Halldór Kolbeins las bæn í kór- dyrum og síðan var sunginn lof- söngurinn „Ó, syng þínum drotni Guðs safnaðarhjörð“. Á meðan sungið var gengu fyrir altari síra Garðar Þorsteinsson og síra Jón prófastur Þorvarðarson og sungu messuupphaf vígslumessunar. Þá söng söfnuðurinn sálminn „Víst ert þú, Jesú, kóngur klár“, en síra Friðrik prófastur Hallgríms- son steig í stól, lýsti vígslu og las upp „vita“ (æfiágrip) biskups- efnis. Þá söng söfnuður hinn fagra lofsöng „Lofið Guð, ó, lýðir göfg- ið hann“, Við upphaf hans gengu farnuli, biskupa1' biskupsefni og Sigurgeir Sigurðsson prjedikunarstól, eftir vígsluna. vígsluvottar, en þeir voru prófast- arnir fjórir, síra Friðrik Hall- grímsson, síra Jós'ep Jónsson, síra Ólafur Magnússon og síra Þor- steinn Briem, úr skrúðhúsi og inn kór. Gengu vígsluveitandi, dr. Jón Helgason, og vígslubiskupar fyrir altari, en vígsluþegi og vígslu vottar krupu við gráturnar. Hóf nú Jón biskup upp liinn fornhelga bænarsöng „Vení sancte spiritus“, en söngflokkur svaraði. Að söngn- um loknum flutti biskup ræðu til biskupsefnis og hafði að texta þessi orð: „En Guð vonarinnar fylli yður öllum fögnuði og friði í trúnni, svo að þjer sjeuð auðugir að voninni í krapti heilags anda (Róm. 15, 13). Vígsluvottar lásu sinn ritninagrkaflann hver, en- eftir lestri livers fyrir sig voru sungin vers úr sálminum númer 594v „Andinn Guðs lif- andi af himnanna liæð“. Þá gaf biskupsefni vígslaheit sitt og var síðan vígður tii biskups með handayfirlagningu vígsluveitanda og vígsluvotta. Djúp og heilög þögn ríkti í kirkjanni meðan þetta fór fram, mettuð af liljóðum bænum. Það fanst að hvert hjarta, setn í kirkjunni sló, var með í þessari athöfn, með honum, sem við altarið kraup og yfir var lagður hinn helgi vandi. Nú var sunginn sálmurinn nr. 232 og gengu biskupar í skrúð- hús ásamt vígsluvottum og af- skrýddust. Þá steig hinn nývígði biskup í stólinn og flutti prjedik- un út af guðspjalli dagsins. Að lokinni prjedikuu biskups fór fram altarisganga. Þjónuðu þeir síra Friðrik Hallgrímsson og síra Frið- rik Friðriksson við liana. Þá voru messulok og gengu prestar út úr kirkju í skrúðgöngu. ★ Sunnudagurinn 25. júní var bjartur og heiður, einhver feg- ursti dagurinn, sem komið hefir á þessu fagra vori, sem mun vera eittlivert hið blíðasta, sem yfir ís- land liefir komið. Bjartur og heið- ur er og svipur hins nýja biskups, sem meðtók heilaga vígslu þennan dag, viðmót hans ljúft, lífsskoðun hans mild og björt. Mun ekki alt þetta stuðla að því, að vonir manna verði öruggar um það, að biskupsdómur hans verði bjartur, að geislar falli af heiðum himni yfir störf hans og vordögg frjóvgi þau til farsældar fyrir börn þessa lands? Það er vor í vændum fyrir íslenska kristni. Öll þjóðin þráir það vor og bíður eftir því. Hún fagnar hinum nýja biskupi og bið- ur þess, að hann verði í biskups- dómi gróandans og vorsins maður. Sb. Skrúðganga prestanna til kirkju.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.