Morgunblaðið - 10.08.1939, Síða 7

Morgunblaðið - 10.08.1939, Síða 7
Fimtudagur 10. ágúst 1939. MORGU M BLAÐID 7 Sviþjóðarfararnir I'RAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU — Yoru ekki fleiri íslendingar í Stokkhólmi? — Jú, fimleikakennararnir Björn Jakobsson, Benedikt Jakobs- son og Þórunn Claessen sóttu mót fimleikakennara, sem haldið yar að Ling-mótinu loknu. Því miður gat jeg ekki setið mót þetta vegna sýninga. BLAÐAUMMÆLI Ármenningarnir komu með mik- inn fjölda af blaðaúrklippum, frá bllum þeim löndum, sem þeir ferð- uðust um. Alstaðar er flokkun- um hrósaS og Norðurlandablöðin ■eru öll sammála um að íslenska leikfimin sje mest í anda Lings af þeim fimleikaflokkum, sem sýndu. Bitt danskt blað getur þess, að ihver einasta þjóð, sem þátt liafi tekið í Liugmótinu, þykist liafa unnið stórsigra, en eftirtektarverð- astar hafi samt sýniugar íslensku úrvalsflokkanna verið. Annað blað „Berlingske Aften- avis“ ræöir um íþróttaáhuga þ.ann, sem ríki á íslandi og hve langt. við sjeum á veg komnir í íþrótt- Um, það hafi fimleikaflokkar Ár- manns' sýnt best. Það væri að færast of mikið í fang,” að élla sjer að þýða svo Uokkru næmi af öllum, þeim ara- grúa blaðaúrklippa, sem Ármenn- íngar hafa meðferðis. Hjer skulu aðeins tetknar tvær af handahófi. „Social-Demokraten“ í Stokk- hólmi segir m. a.: „.... Þar næst sýndu úrvals- fimleikaflokkar kveiina og karla frá íslandi. Stúlkurnar eru án efa, með því besta sem sjest liefir á Ling-mótinu og sjerstaklega vekja þær hrifningu með jafnvægisæf- ingunum. Bæði leikfimi þeirra og karlaflokksins var meira í anda Lings en flestar aðrar sýning- ar , .. .“ í sænsku blaði frá Gautaborg segir svo: „ . Pyrst komu stúlkurnar í ljósbláum búningum, og á eftir þeim piltarnir, hvítklæddir. Öll voru þau með íslenskt flagg á hrjóstinu, og í fararbroddi gekk fánaberi með íslenska fánann ,..“ „ . . ...... Það var furðulegt, hve firni þeirra (stúlknanna) var mik- il. Æfingarnar voru margbrotn- ar og fjölbreyttar, og ótrúlegt, hve „amateurar“ gátu gert þeim góð skil. Virtist hjer sem frekar væri um þaulæft atvinnu-leikfim- isfólk að ræða. En Sigurjón Pjet- ursson fullvissaði oss um, að þetta væri aðeins árangur af frístunda- vinnu. Piltarnir voru ef til vill eíin betri en stúlkurnar. Bnda fengu þeir hvað eftir annað dynjandi lófaklapp frá binum fjölmenna hópi áhorfenda". „ . . . . Þau voru alveg fyrirtak <„praktexemplar“) öll til hópa, hæði stúlkurnar og piltarnir. ís- lendingar hljóta að vera hraust þjóð. Að vísu er þessi hópur úr- val úr því besta. En það, sem úr er valið — þjóðin — hlýtur að vera góð, eftir kunnáttu þessa hóps að dæma, því að ánnars hefði «kki svona góður árangur náðst......“ Vívax. Dagbók Háflóð er í dag kl. 1.55 e. li. Næturlæknir er í nótt Kjartan Ólafsson, Lækjargötu 6B. Sími 2614. Næturvörður er í Reykjavíkur Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn. Lágafellskirkja. Messað sunnu- daginn n.k. 13. þ. m. kl. 12.45 (ferming), síra Hálfdan Ilelgason. Viðeyjarkirkja. Messað sunnu- daginn n.k. 13. þ. m. kl. 4 e. h., síra Hálfdan Helgason. Kveðjusamsæti hjeldu Víkingar Pritz Buchloli, þjálfara sínum, í gærkvöldi í Oddfellowhúsinu. Por- maður Víkings, Guðjón Einarssön, þakkaði. Buchloh fyrir starf hans og afhenti honum að gjöf íslend- ingasögurnar í þýskri útgáfu. Þá talaði varafortnaður í. S. í., Er- lingur Pálsson yfirlögregluþjónn, Ólafur Sigurðsson, form. Vals, Ein- ar Björnsson fulltrúi K. R. R., Gísli Sigurbjörnsson forstjóri og loks talaði Buchloh sjálfur. Sam- sætið var fjölment og skemtu menn sjer fram eftir nóttu. Eimskip. Gullfoss er á leið til Kaupmannahafnar frá Leith. Goða- foss er væntanlegur að vestan og norðan fyrir hádegi í dag. Brú- arfoss er í Reykjavík. Dettifoss fór frá Hamborg í gær, áleiðis til Hull,- Lagarfoss er á leið til Leith frá Kaupmannahöfn. Selfoss er í Reykjavík. Guðrún Árnadóttir, Barónsstíg 30, hefir beðið Morgunblaðið fvr- ir eftirfarandi: Hjer með vil jeg votta Húsmæðrafjelagi Reykjavík- ur mitt innilegasta þakklæti fvriri ánægjulega dvöl í sumarbústöðum þess, sem jeg hefi notið, ásamt börnum mínum 3 undanfarin sum- ur, okkur til mikillar hressingar og ánægju. Sjerstaklega vil jeg þakka frú Maríu Thoroddseji,( frk. Maríu Maack og frú Jóp|np Guð- mundsdóttur fyrir þeirra einstökui alúð., . ísland í erlendum blöðum. Tíma- ritið Echo Continental, sem flytur greinar með miklum fjölda mynda frá ýmsum löndum, bifti nýlegá grein um íslandsferð eftir von Eugen Kuseh. Myndirnar eru all- ar góðar, vel valdar, nema ein,; sem höfundur greinarinnar kallar „Alteer Bauernhof in der Náhe Reykjavik“. Hvoft sem svo er eða ekki er myndin áreiðanlega af lje- legasta torfbænum, sem höf. hefir getað fundið, og er leitt er slíkar myndir eru valdar til birtingar í vönduð tímarit, ekþi síst þar sem; engin hinna myndanna gefur nein- ar upplýsingar um húsakost manna hjér á landi í bæjum eða sveitum. Blaðið Herald í Hespeler birtir grein um ísland og Canada, frái Kanadisku hagstofunni. — Blaðið News í Newþort Rhode Island flytur grein um ísland og heims- sýninguna með ýmsum upplýsing- um og fjallar greinin að' talsverðu levti um Heimssýningarfrímerkin íslensku. Blaðið bendír á, að af erlendum heimssýningarfrímerkj- um (gefnum út í tilenfi heims- sýningarinnar) sjeu íslensku frí- merkin ein jafnframt upplýsandi um fund Ameríku og táknræn. —■ (FB.). Póstferðir á morgun. Prá Rvík: Mosfellssveitar, Kjalarness, Revkja ness, Ölfuss og PlóapÖsjar, Þing- vellir, Þrastalundur, Hafnarfjörð- ur, Pljótshlíðarpóstur, Austan- póstur, Akraness, Borgarness, Snæ- fellsnesspóstar, Stykkishólmspóst- ur, Norðanpóstur, Dalásýsíupóst- ur, Brúarfoss til Akureyrar. Til Rvíkur: Mosfellssveitar, Kjalar- ness, Reykjaness, Ölfuss og Plóa- póstar, Þingvellir, Þrastalundur, Hafnarfjörður, Meðallands og Kirkjubæjarklausturspóstar, Akra- ness, Borgarness. Norðanpóstar. Útvarpið í dag: 13.05 Sjötti dráttur í happdrætti Háskólans. 19.45 Frjettir. 20.20 Frá Perðafjelagi íslands. 20.25 Hljómplötur: Ljett lög. 20.55 Hljómplötur: a) Einleikur á píanó. b) Valsar. c) 21.35 Dægurlög. GUÐLAUGUR GESTGJAFI I TRYGGVASKÁLA FRAMH. AF FJÓRÐU SÍÐU. þar með hinni mestu prýði uns hann fluttist að Tryggvaskála og hóf þar 1 gitetihúshald og greiða- soíu. Fýrstú ’tvö vor Guðlaugs í Vátnsnesi eru einhver þau erfið- ustu, sem núlifandi menn muna, én þrátt fyrir þáð faúnaðist hon- um vel í Vathsnesi og búskapur- inn þar' stóð ætíð með miklum blóma, enda var Guðl. þar ekki einn um hituna, þar sem hann naut áðstóðar sinnar dugmiklu könu. Jörð sína bætti hann svo með áveitu, að hún varð að stór- býli í höndum lians. Enda þótt dvöl Guðlaugs yrði ekki lengri en þetta í Grímsnes- inu, festi hánn mikla trygð við> það bygðarlag og munu þeir marg ir Grímsnesingarnir, sem nutu þess eftir að haun kom að Tryggva- skála. Þeir’ sakna þá einnig góðs drengs. Vorið 1925 flutti Guðlaugur að Tryggvaskála og mega það teljast merk tímamót í æfi hans. Ýms at- vik lá'gú til þeirrar ráðabreytni, eins og þeim sem þetta skrifar er best kunnugt'Um. .Jeg minnist þess þá líka; að misjafnlega var spáð úm hvefnig Guðlaugi farnaðist þarna. Um þáð þarf nú ekki að orð lengja, það sýna þær almennu vin- sældir, sem Guðl. hlaut á þessum stað. Nú munu þeir margir, sem saklia lians frá Tryggvaskála, og þykir brottför hans þaðan of skjót. Guðlaugur var pi’ýðilega gefinn. og það sýndi sig ávalt, að hann» gerði hverju verkefni, sem höndum bar, góð skil. Hann hafði mikið yndi af söng og hljóðfæra- slætti, enda ágætur söngmaður og íjek óvenju vel á hljóðfæri og var 'þessvegná ’ oft forsöngvari og org- aníeikari í sóknarkirkjum sínum. Hann var maður óáleitinn og vildi öllum vel, og ef til vill hefir honúm eínmitt þessvegna fallið það þyngra,. þ^gax þann fann, að aðrir vildu honum miður vel. Guðlaugur unni landi sínu og þjóð og yar þessvegna vandur um forystuménn í þjóðmálum. Að Guðlaugi er hinn mesti mann skaði. Vinir hans munu ávalt minn ast háns með Söknuði fyrir mann- kosti hans og trygð. Mestur harmur er þó að sjálf- sögðu kveðinn að konu hans og dætrum, en þeim má það vera harmabót, að liafa átt slíkan eig- inmann og föður, sem í engu mátti vamm sitt vita. Jog þakka þjer vinur fyrir sam- veruna með þeirri ósk, að við heilir á Peginslandi. St. Gunnlaugsson. EF LOFTUR GETUR ÞAÐ EKKI-----ÞÁ HVER7 Hessian, 50” og 72” Kjöpokar, Ullarballar, Binöigarn og saumgarn ávalt fyrirliggjandi. Sími 1370. OLAFUR CÍSLASONc) ^/2 éJuojgf REYKJAVf'K BEST AÐ AUGLYSA I MORGUNBLAÐINU. ÞAÐ ER EINS MEÐ Hraðferðir B. S. A. OG MORGUNBLAÐIÐ. Alla daga nema mánudaga Afgreiðsla í Reykjavík á BIFREIÐASTÖÐ ÍSLANDS. — SÍMI 1540. Bflfrelðastöll Aknreyrar. Hraðferðir Steindórs Til Akureyrar um Akranes eru: FRÁ REYKJAVÍK alla mánudaga, miðvikudaga, föstudaga. FRÁ AKUREYRI alla mánudaga, fimtudaga, laugardaga. M.s. Fagranes annast sjóleiðina. Nýar upphitaðar bifreiðar með útvarpi. BflfreHfastöð Sleindóri. Símar Nr. 1580 — 1581 — 1582 — 1583 — 1584. -1U8>' LITLA BILSTÖÐIN K °°tM UuoWtaðir bflar. Opin allan sólarhringúui Morgunblaðið mað morgunkafíinu - Jarðarför konunnar minnar og móður okkar, INGIBJÁRGAR JÓNSDÓTTUR, fer fram föstudaginn 11. þ. m. frá heimili okkar, Hverfisgötu 76 B, klukkan 1 eftir hádegi. Ingvar Þorvarðarson og börn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.