Morgunblaðið - 19.08.1939, Page 7
laugardagur 19. ágúst 1939.
MOEGUNBLAÐIÐ
7
Sambandsmálið
I
rætt I sænsku
blaði
Khöfn í gær F.Ú.
öteborgs Handels och Sjö-
fartstidning hefir birt
langa ritstjórnargrein nm sam-;
JbandiÖ milli íslands og Danmerk-
ur. Blaðið segir, að það komi fyr-
ir, að snurða hlaupi á þráðinn í
sambúð landanna, en báðar þjóð-
irnar sjeu svo veikar fyrir, að
samvinnan sje þeim báðum í hag,
af fjárhags- og viðskiftaástæðum
og fleiri ástæðum.
Blaðið segir, að það sje eltki ó-
kunnugt, að ýmsir íslendingar
vilji skilnað, og sje Jónas Jóns-
son röggsamastur þeirra leiðtoga,
sem æskí skilnaðar, en það sje
«ekki með öllu ljóst, hvort flokkur
hans fylgi honum þar óskiftur að
málum.
Blaðið segir emifremur, að allar
Norður 1 andaþj óðirnar hafi áhuga
fyrir því, að sambandsmálið verði
leyst þannig, að báðum aðilum
verði til farsældar, en vegna þess
hversu horfur eru ískyggilegar í
alþjóðamálum nix á tímum, væri
óheppilegt að taka fullnaðar-
ákvörðun um lausn málsins, og
h.yggilegra að fresta því þar til
um hægist og alt er með kyrrum
kjörum í álfunni.
Samkoma á Þingeyri
Sunnudaginn 6. ág. var fjöl-
anenn samkoma á Þingeyri, bæði
úti- og innisamkoma. Hófst kl.
1 e. h. með messu í kirkjunni,
er sr. Marino Kristinsson sólcn-
arprestur á Isafirði flutti. Þá
hófst útisamkoma með ræðu-
höldum. Ræðumenn: Ólafur R.
Hjartar, Ólafur Ólafsson og
<lunnar Andrew, ísafirði. —
Blandaður kór söng, undir
astjórn Ólafs Ólafssonar nokkur
lög.
Kl. 5 e. h. hófst samkoma í
kirkjunni. Þar töluðu sr. Sigurð-
ur Gíslason og Kristján Sig.
Kristjánsson rithöf. Rvík, en sr.
Marino Kristinsson söng. Kirkj-
an var yfirfull af fólki. Veiting-
ar í tjaldi sýslunnar og enn-
fremur í barnaskólahúsinu. Sam
komuna sóttu 5—600 manns,
J>. á. m. fjöldi ísfirðinga. Ferð-
ast þeir nú mjög í sumarleyfum
sínum til Dýrafjarðar, eftir að
vegasambandið opnaðist vestur
yfir Breiðdalsheiði.
Samkoman var haldin til á-
góða fyrir samkomuhúss bygg-
ingu Þingeyringa.
Dagbók
Veðurútlit í Beykjavík í dag:
NV-goIa. Bjartviðri.
Veðrið í gær (föstud. kl. 6):
Vindstaða var milli N og SV kl.
6 og veðurhæð 2—5 vindst. Á Vest
fjörðum og í útsveitum norðan
lands er kalsaveður (hiti 6—8 st.)
og sumstaðar rigning, í öðrum
landslilutum er hiti 10—-15 st. og
loft meira og minna skýjað. Rign-
ing eða skúrir liafa verið á flest-
um stöðum í dag. Lægðin milli ís-
lands og Jan Mayen mun halda á-
fram' að þokast NA-eftir og vind
staða verða milli N og V næsta
sólarhring.
Háflóð er í dag ld. 20.35 síðd.
Næturvörður er þessa viku í
Ingólfs Apóteki og Laugavegs
Apóteki.
Messað í dómltirkjunni á morg-
un kl. 10, S. Á. Gíslason cand.
theol.
Messað í fríkrikjunni á morg-
un kl. 5, sr. Árni Sigurðsson.
Messað í fríkirkjunni í Ilafnar-
firði á morgun kl. 2 e. h., sr. Jón
Auðuns.
Jarðarför Soffíu Skúladóttur
matreiðslukennara fór fram í gær,
að viðstöddu fjölmenni. Ilúskveðju
flutti sr. Halfdán Helgason, prest-
ur að Mosfelliv. en í ltirkjunni
flutti sr. Gísli Skúlason prestur að
Stóra-Hrauni, ræðu. Vinir og ætt-
ingjar hinnar látnu báru kistuna
í kirkju, en starfsmenn Morgun-
blaðsins og ísafoldarprentsmiðju
báru hana úr kirkjunni.
Hjónaband. í dag verða gefin
saman í hjónaband ungfrú Lauf-
ey Bjarnadóttir, Galtafelli og
verkfr. Árni Snævarr, Bergstaða-
stræti 73.
Hjúskapur. í dag verða gefin
saman í hjónaband í Augustenborg
í Danmörku ungfrú Grethe Laur-
sen, dóttir Laursen skrifstofu-
stjóra í „BikubeÁ', og^ Viðar
læknir Pjetursson Zophoníassonar.
Hjónaband. Ungfrú Jöhanna
Elíasdóttir og Kristinn Jónssoú
verkamaður voru gefin saman í
hjónaband í gær, af sr. Garðari
Svafarssyni. Heimili þeirra er á
Kringlumýrarbletti 11.
K. R. I. og meistaraflokkur. Æf-
ing í dag kl. ^ á grasvellinum.
Jón Pálmason alþm. á Akri er
kominn til bæjarins og bjrrjaður
að vinna hjer að söfnun skýrslna
yfir allar launagreiðslur ríkisins.
Fjárveitinganefnd hafði ákveðið
að gera skýrslur þessar. Sigurvin
Einarsson kennari vinnur einnig
að þessu starfi.
Knattspyrnufjel. Víkingur. Æf-
ing í dag kl. 4 hjá 3. fl. Áríðandi
að allir mæti.
Guðrún Guðmundsdóttir frá
Hjálmstöðum á ekki heima á Elli-
heimilinu, heldur á Grundarstíg 6.
Hvöt, Sjálfstæðiskvennafjelagið
fer skemtiför á Þingvöll á þriðju-
daginn kemur.
Skipshafnir af Brúarfossi og
Dettifossi keptu í knattspyrnu í
gærkvöldi. Vann skipshöfnin af
Brúarfossi með 2:0.
Súðin var væntanleg til Stvkkis
hólms kl. 6—7 í gærkvöldi.
Fram. 3. flokks æfing ltl. 5 í dag
Næstu hraðferOir
okkar til og frá Akureyri. eru á
morgun (sunnudag) og mánudag.
Sfeindór.
Skemtisamkoma að Eiði. Full-
trúaráð sjálfstæðisf jelaganna í
Reykjavík efnir til skemtisam-
komu að Eiði á morgun, sunnu-
daginn 20. þ. m. Skemtunin verð-
ur sett kl. 3 e. h. Ræðumenn verða:
Benedikt Sveinsson bókavörður og
Árni Jónsson alþm. Lúðrasveitin
Svanur, undir stjórn Karls Run-
ólfssonar tónskálds, spilar öðru
hvoru allan daginn. Um kvöldið
verður dansað. Hljómsveit Bern-
burgs leikur undir dansinum.
Hótel Valhöll
býður yður upp á sænskt „smörgás“-borð, ásamt miklu
úrvali af heitum rjettum. Músik eins og endranær. -
Músikant: Matsveinn:
Aage Lorangc Anker Jðrgensen
Frjáls berjatínsla í Brúsastaðalandi.
Fólk skemti sjer vel í Gamla
Bíó í gærkvöldi. „Segðu sannleik-
ann, Nicole“ er óvenju skemtileg
og vel leikin. Danielle Darrieux
er ljómandi, Douglas Fairbanks
er prýðilegt kvennagull og Mischa
Auer er sprenghlægilegur sem
þjónn. Það er ekki hægt annað
en hlæja að honum, og reyndar
ótal mörgu öðru, sem fyrir kemur
í myndinni! Þó er enginn gaura-
gangur í henni. Danielle Darrieux
hefir sjerstakt lag á að vera hnytt
in, segja gamanyrðin ofur rólega,
grafalvarleg og sakleysisleg á svip
með þessum skemtilega franska
hreim í enskunni. En þegar hún
stekkur alvarlega upp á nef sjer,
fer hún út í frönskuna, enda á hún
að vera frönsk í myndinni, þó hún
sje í New York 'til þess að reyna
að ná sjer í ríkan mann.
Eimskip. Gullfoss kom til Leith
í gær. Goðafoss er á leið tli Leith
frá Vestmannaeyjum. Brúarfoss
er í Reykjavík. Dettifoss fer vest-
ur og norður í kvöld. Lagarfoss
var á Þórshöfn í gær. Selfoss er
á leið til Aberdeen.
Dansleikur verður haldinn í G.
T. húsinu í kvöld, og ^erða þar
aðeins stignir gömlu dansarnir.
Berklavarnastöð fyrir ísafjarð-
arbæ og sýslu er tekin til starfa
og tekur á móti sjúklingum eftir
tilvísun læknis í sjúkrahúsinu
þriðjudaga og föstudaga. Úngfrú
Helga Thordarsen hefir verið ráð-
iii bjúkrunarkoná stöðvarinnar.
Þegar hefir verið gerð berklapróf-
un á flestöllum börnum bæjarins
1—7 ára gömlum.
Skátamót vestfirskra kvenskáta
fór fram í Tungudal 5.—7. þessa
mánaðar. Þátttakendur voru 40.
Skátinn Friðrik Ottósson á ísafirði
hefir fengið 300 króna verðlaun
úr Carnegiessjóði fyrir björgun á
6 ára dreng', er datt í sjó milli
skips og brygg'ju, svo sem getið
var í sinni tíð. (FÚ)
Sjómannakveðja. Erum á leið
til Þýskalands. Kærar kveðjur.
Skipshöfnin á Karlsefni.
Til Strandarkirkju frá G. E. 15
kr., XII 50 kr„ J. Þ. 5 kr., I. B.
10 kr„ L. M. 4, kr„ Þ. 4 kr.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ:
S. Dal. 10 kr. A. X. 5 kr.
Útvarpið í dag:
12.00 Hádegisútvarp.
19.30 Illjómplötur: Ljett lög.
19.45 Frjettir.
20.20 Illjómplötur: Gigli syngur.
20.30 Upplestur: Útvarpið á Fossi.
smásaga (Hjörtur Ilalldórsson
rithöfundur).
20.55 Útvarpstríóið leikur.
21.15 Illjómplötur:
a) Ljett kórlög.
b) 21.30 Gamlir dansar.
London í gær. FÚ.
Pólski fulltrúinn í Danzig
hefir enn á ný farið á fund
Greiser’s, og stóð viðtalið yfir
í aðeins 20 mínútur. Það er talið
að þeir hafi rætt mál varðandi
sambúð Pólverja og Dangzig-
búa innan borgarinnar sjálfrar.
Skiftafunður
verður haldinn í dánarbúi Sigurðar Jónssonar og Versl.
Hamborg, Laugaveg 45 þriðjudaginn 22. þ m., í Bæjar-
þingstofunni, kl. 10 f. h., og verða þá teknar endanlegar
ákvarðanir um sölu á Versl. Hamborg, vörubirgðum o. fl.
19. ágúst 1939.
Skiftaráðandinn í Reykjavík.
ÞAÐ ER EINS MEÐ
Hraðferðir B. S. A.
OG MORGUNBLAÐIÐ.
. Alla daga nema mánudaga
Afgreiðsla í Reykjavík á
BIFREIÐASTÖÐ ÍSLANDS. — SfMI 1540.
Bifreftðastöll Akureyrar.
>■
Það tilkynnist, að ekkjan
GUÐRÚN KETILSDÓTTIR
andaðist að heimili sínu, Arnarstapa á Mýrum, þ. 17. þ. mán.
Börn, tengdasonur og fóstursonur.
Móðir mín, fósturmóðir og systir
EYBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR
verður jarðsungin á þriðjudag 22. þ. m. Húskveðja hefst á
Elliheimilinu kl. 2 e. h. Þaðan verður líkið flutt í fríkirkjuna
og jarðsett að Lágafelli.
Ásta Guðnadóttir. Hörður Jóhannesson.
Flosi Sigurðsson.