Morgunblaðið - 02.12.1939, Blaðsíða 8
8
'orjgutiMa$3&
Laugardagur 2. des. 19391
LITLI PISLARVOTTURINN
„Hvenær? — Seint í gærkvöldi,
Uvar? -— Iljer í íbiið sinni. Hvern
ig? —• Af hermönnum velferðar-
nefndarinnar. Hún og gamla kon-
an! Sko til, þetta er alt sem jeg
veit. Nú ætla jeg í rúmið og þjer
skuluð hypja yður á brott. Þjer
vahlið erfiðleikuin og jeg fæ
vskammir fyrir það. Má jeg spyrja
livort [lað sje almenn kurteisi að
vekja iieiðvirða föðurlandsvini á
þessuin t.íina nætprf'
Hann reif sig frá Armand og
gekk niður stigann.
Armand stóð við stigagættiha
'«ins og maður, sem hefir verið sleg
inn meðvitundarlaus. Ilann var al-
veg laimaður. Hann hefði á þess-
■ari stundu ekki getað hreyft sig
nje sagt eitt einasta orð þó líf
hans hefði verið í veði. Hann
sundlaði, svo hann varð að styðja
«ig við vegginn til þess að detta
ekki. Skortur á góðri fæðu, svefn
leysi og hugaræsing undanfarandi
sóiarhrings hafði dregið svo úr
mótstöðu hans og líkamlegu þreki,
»ð hann var að gefast upp.
•Guð minn góður! Hann var að
missa vitið.
Eins og villidýr, sem sært hef-
ir verið banasári, hljóp hann
aiður tröppurnar, framhjá hús-
verðinum, sem var að fara inn í
íbúð sína, og sem sneri sjer við
til þess að horfa á hlaup þessa
sturlaða manns.
Armand hljóp áfram eftir Rue
St. Honoré. Hattur hans var far-
inn og hárið alt úfið, en samt
hljóp hann áfram. Leðjan á gang-
stjettinni dró úr hávaðanum af
fótataki hans. Hann hljóp og
! hljóp, aðeins með eitt takmark fyr
| ir augurn.
Það var búið að taka Jeanne
fasta. Hann vissi ekki, hvar hann
átti að leita hennar, en hann vissi
J hvert hauu sjálfur átti að fara
j eins fljótt og hann gat komist á
staðinn. Það var ennþá dimt, en
Armand St. Just var fæddur í
Parífs og hann þekti hvern krók og
kima í þessit borgarhverfi, þar
sem hann og Marguerite höfðu átt
heiima í mörg ár. Hann hjelt áfram
eftir Rue St. Honoré — loks var
gatan á enda. Hann hafði enn svo
skýra hugsun — eða var það eðl-
ishvöt? — að hann hafði gætt
þess að koma ekki þar sem von
var á þjóðhernum á ferli, sem
gekk sína venjulega eftirlitsferð
um París á þessum tíma dags.
Hann fór framhjá Place du Car-
rouset og höfninni, loks beygði
hann til hægri inn í St. Germain
l’Auxerrois.
.......................
Framhaldssaga 25
MIHIIIHIIIIIIIIIIHHIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIIHIIIIIHIB
Hann beit á jaxlinn, aðeins fyr
ir næsta horn og þá hefði hann
náð settu marki. Hann var eins
og sært dýr, sem hugsar um það
eitt áð komast í grenið. Hann
hljóp upp stigann upp á aðra hæð,
greip í dyraklukkustrenginn, og
hann varð að halla sjer upp að
veggnum til þess að hann fjelli
ekki um koll.
Nú heyrði hann stigið fast til
jarðar, fótatak, sem hann þekti
svo vel; dyrnar opnuðust og hann
fann að einhver tók í öxlina á
honum. Síðan inundi hann ekki
imeira.
Hingað til hefir kartöflugras
ekki verið til neins nema
að fleygja því og bóndinn hefir
-afieins haft fyrirhöfnina við að
brenna því eða eyðileggja á ann-
an hátt. Bn nú hafa Þjóðverjar
sett kartöflugras á lista með gagn
legri framleiðslu.
Þjóðverjar hafa rannsakað, að
binar seigu trefjar kartöflugrass-
ins eru vel til þess fallnar að
vinna úr þeim efni í klæðnað óg
pappír, og efni sem unnið er úr
bartöflugrasi, er nefnt Kolanum-
Ceilulose-efni.
Þetta nýja efni þykir sjerstak-
lega hentugt til að vinna úr blaða-
pappír, og hinn 26. ágúst s.l. kom
ót 36 síðu blað af „Thiiringer
Gauzeitung“ og var allur pappír-
inn, sem notaður var í upplagið,
unninn úr kartöflugrasi.
★
Kenslukonan: Hvaða dýr er
manninum næst, Siggi litli.
Siggi: Lúsin, kennari.
★
Óli Iitli var úti á gönguferð með
föfiur sínum síðari hluta dags.
Það var dimt yfir og hnokkinn,
sem ekki var nema fjögra ára,
sagði áhyggjufullur við pabba
sinn :
—• Heyrðu pabbi, af hverju er
ekki sólskin? Er loftvarnaæfing,
efia er það bara venjuleg stríðs-
skömtun ?
★
Amerísk kona, Virginia Overs
biner hefir verið gift 9 sinnum.
Pyrst gifti hún sig er hún var 16
ára og var það eðlileg afleiðing
þess, að þá hafði hún nýlega ver-
ið kjörin fegurðardrotning í Ge-
orgia.
XIV. kapítuli.
Foringinn.
Hann var ekki alveg meðvit-
undarlaus, en hið erfiða
; hlaup hafði sljóvgað hann mjög.
Hann vissi, að honum. var óhætt
j núna í herbergi Blakeneys og
i hann fann, að einhverju heitu og
j styrkjandi var helt upp í hann.
„Þáð er búið að handtaka hana,
Percy!“ sagði hann æstur, undir
einsj og hann inátti mæla.
„Það er ágætt. Segðu ekki neitt
núna. Bíddu þar til ]>jer fer að
líða betur“.
Með kostgæfni og blíðu hag-
ræddi Blakeney koddum umhverf-
is Armand, dró sófann að eld-
stæðinu og kom skömmu síðar
með heitt kaffi handa vini sínum,
sem drakk það ímeð miklum á-
kafa. Hann var of þreyttur til að
tm.ega mæla. Þó hafði honum 'tek-
ist að gera Percy skiljanlegt það
sem gerst hafði, og hann var sann
færður um, að nú yrði alt gott.
Með hálfopnum augum sá hann
mág sinn ganga um í herberginu.
Blakeney var fullklæddur og Ar-
mand var að hugsa um, hvort hann
hefði farið úr fötum um nóttina.
Hann var jafn vel til fara og vant
var og hinar fjörlegu hreyfingar
lians báru ekki vott uim, að hann
hefði verið svefnlaus heila nótt.
„Percy“, sagði Armand, „jeg
hefi hlaupið alla leið frá Rue St.
Honoré. Jeg var bara uppgefinn
af mæði; nú líður mjer bétur. Má
jeg segja þjer frá því?“
Blakeney gekk án þess að segja
eitt einasta orð að sófanum, þar
sem, Armand sat og settist hjá hon-
um. Hann var lúngjarnlegur og
ekki einn dráttur í aiidliti hans
bar vott um, að Arinand hefði með
framferði sínu truflað fyrirætlan-
ir þær, seni! gerðar höfðu verið.
Armand, sem eingöngu hugsaði
um Jeanne og vandræði hennar,
tók ákafur í handlegg Blakeneys.
„Heron og blóðhundar hans
fóru heim til hennar í gær“, sagði
hann æstur. „Þeir hafa vafalaust
gert ráð fyrir að ná mjer þar; en
þegar þeir náðu ekki í mig, tóku
þeir hana í staðinn. O! guð minn
góður!“
„Jeg vissi þetta“, sagði Blak-
eney rólega.
Armand leit upp forviða.
„Hvernig? Hvenær vissir þú
það?“ staímaði hann.
„í gærkvöldi, þegar þú fórst að
sofa. Jeg fór niður á Carrefour du
Roule og kom aðeins of seint“.
„Percy!“ hrópaði Armand og
blóðroðnaði. „Þú gerðir þetta —
j í gærkvöldi, þú —“.
„Vitanlega“, svaraði Percy ró-
lega. „Var jeg ekki búinn að lofa
þjer, að jeg skyldi gætp* hennar?
Þegar jeg koms't að þessu, var
orðið of seint að gera nauðsynleg-
ar athuganir. Jeg var einmitt á
leið út núna, þegar þú komst, til
þess að komast að því, í hvaða
fangelsi ungfrú Lange væri. Jeg
verð að fara strax, Armand, áður
en skift verður um verði við
Temple og Tullrienne. Þetta er
öruggasti tími dagsins til slíkra
verka, og hamingjan veit, að við
höfum þegar beðið nógu lengi“.
Pramh.
*V%
Jámps/Uyuw
Blóin & Kransar la.ff.
Hverfisgötu 37. Sími 5284. —
Bæjúrins lægsta verð.
STIGNAR SAUMAVJELAR
ca. 4 stk. óskast til kaups núe
þegar. Contant greiðsla. Tilboð
merkt: „Saumavjel“ sendist á
Hótel Skjaldbreið í dag og á
morgun.
ATVINNA.
Kvenmaður eða karlmaður, er
kann að sníða manchettskyrtur
o. fl. getur fengið atvinnu fyr-
ir norðan eftir áramót. Aðeins
kunnáttu manneskja kemur til
greina. Uppl. á Hótel Skjald
breið kl. 4—5 í dag.
ÞVÆ ÞVOTTA
og tek að mjer hreingemingar.
Elín Þorbjörnsdóttir. Sími 4895.
TEK AÐ MJER ALLSKONAR
VJELPRJÓN.
Jónína Halldórsdóttir, öðins-
götu 32 B.
SMURT BRAUÐ
fyrir stærri og minni veislur.
Matstofan Brytinn, Hafnar-
stræti 17.
ÍUCAynnvntjue
VENUS SKÓGLJÁI
mýkir leðrið og gljáir skóna af-
burða vel.
Þannig fór flugeldasalinn að því
að aka bíl sínum án bensíns.
★
Loftvarnir Munda fiskimanns.
★
5 mínútna
krossgáta I
— Komdu hingað vinur minn,
þá skal jeg hjálpa þjer á fætur!
Lár jett:
1. lindýr. 6. virðing. 8. imynni.
10. dýr. 11. mannsnafn. 12. ull.
13. tónn. 14. bær. 16. muldrar.
Lóðrjett:
2. imynt. 3. hermálaráðherra. 4.
viðureign. 5. ^lasleiki. 7. þjóð. 9.
eldstæði. 10. ílát. 14. eining. 15.
frumefni.
VENUS-GÓLFGLJÁI
afburðagóður og fljótvirkur. —
Ávalt í næstu búð.
ZION, Bergstaðastræti 17.
Munið vakningasamkomurnar. 1
kvöld kl. 8. Cand. theol Magn-
ús Runólfsson talar. Allir vel-
komnir.
HJÁLPIÐ BLINDUM
Kaupið minningarkort Bóka-
sjóðs blindra, fást hjá frú Mar-
en Pjetursdóttur, Laugaveg 66,
Körfugerðinni og Blindraskól-
anum.
KÁPUR OG FRAKKAR
fyrirliggjandi. Einnig saumað
með stuttum fyrirvara. Gott
snið! Kápubúðin, Laugaveg 35..
MEÐALAGLÖS, FLÖSKUR
Fersólglös, Soyuglös og Tómat-
flöskur keypt daglega. SpariH
milliliðina og komið beint tik
okkar ef þið viljið fá hæsta.
verð fyrir glösin. Við sækjunfe
heim. Hringið í síma 1616. —
Laugavegs Apótek.
ÞORSKALÝSI
Laugavegs Apóteks viðurkenda
meðalalýsi, fyrir börn og full-
orðna, kostar að eins 90 aur®>
heilflaskan. Lýsið er svo gott,
að þaö inniheldur meira af A-
og Ð-fjörefnum en lyfjaskráÍKi
ákveður. Aðeis notaðar ster*
ilar (dauðhreinsaðar) flöskur..
Hringið í síma 1616. Við send»
um um allan bæinn.
DÖMUFRAKKAR
ávalt fyrirliggjandi. Guðnv.
Guðmundsson, klæðskeri. —-
Kirkjuhvoli.
KALDHREINSAÐ
þorskalýsi sent um allan bæ. —
Biörn Jónsson, Vesturgötu 28.
Slmi 3594.
DÖMUKÁPUR
og vetrarfrakkar kvenna. Fáll-
egt úrval. Ágætt snið. Versí..
Kristínar Sigurðardóttur.
REYKJAVÍKUR
APÓTEK
kaupir daglega meðalaglös^
smyrslkrukkur (með loki), hálf
flöskur og heilflöskur.
KAUPUM FLÖSKUR
stórar og smáar, whiskypel»»
glös og bóndósir. Flöskubúðin,
Bergstaðastræti 10. Sími 5396*.
Sækjum. Opið allan daginn..
FRIGGBÓNIÐ FÍNA,
er bæjarin3 besta bón.
i o. G. T.
ST. VÍKINGUR NR 104
TILKYNNIR.
Sala aðgöngumiða að 35 ára af-
mælisfagnað.i næstkomandi
mánudag, 4. des. hefst kl. 1 e.h.
í dag í G.T.-húsinu. Fjelagar
eru ámintir um að sækja að-
göngumiða sína þegar í dag, ef
þeir geta komið því við.
SALTVlKUR GULRÓFUR
góðar og óskemdar af flugu og
maðki. Seldar í 1/1 og V2 pok-
'im. Sendar heim. Hringið K
síma 1619.
HARÐFISKSALAN,
Þvergötu, selur saltfisk nr. k*.
2 og 3. Verð frá 0,40 au. pr..
kg. Sími 3448.
SPARTA- DRENGJAFÖT
Laugaveg 10 — við allra hæfi.
Sapxið-funcUS
TAPAST HEFIR
lykill í rauðu bandi og hvít púð-
urdós á verslunarskóladansæf-
ingunni s.l. fimtudag. Finnandi
vinsamlega beðinn að gera að-
vart á afgr. Morgunblaðsins.
ÓSKILAHROSS
Gráskolótt tryppi, mark: blað-
stýft fr. v. í óskilum á Hálsi í
Kjós.