Morgunblaðið - 05.01.1940, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.01.1940, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 5. janúar 1940. Bóndabær á Kyrjálaeiðinu, þar sem Finnar verjast nú hetjulega innrás Rússa. iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuimr I Leikhúsið i Efnilegur nýr leikari egar menn ræða leikhúsmálin í þessum bæ, þá kveður það oft við, að altaf sjáist sömu and- litin hjer á leiksviðinu, að leik- Jiúsið vanhagi um nýja menn og ungar konur til að fylla í skörðin fyrir*, þá eldri. Menn aðgæta ekki, að leikarar spretta ekki upp úr jÖrðunni, og hjer í fámenninu má það þykja gott, ef sæmilegt leik- araefni kemur fram á sjónarsviðið •— segjum annað hvort ár, piltur ieða stúlka. Hjer í bæ er samt ein stofnun, sem lagt hefir leiksviðinu til alveg ótrúlega mörg leikaraefni, og nokk ur þeirra hafa lialdið trygð við leiksviðið og eru nú með leikurum í fremstu röð. Hjer er átt við Mentaskólann og hina árlegu skólaleiki hans. Frá skólanum hafa komið auk annara, sem leikið hafa skemri eða lengri tíma með góð- um árangri, Gestur Pálsson, Þor- steinn Ö. Stephensen og Lárus Pálsson, sem nú er leikari í Kaup- naannahöfn. Og nú síðast kemur cinnig frá skólaleik Mentaskólans Ævar R. Kvaran. Ævar R. Kvaran ljek í fyrsta skifti í skólaleiknum Hinrik og' Pemilla, eftir Ilolberg, ve.turinn 1935. Árið eftir Ijek hann enn með skólasystkinum sínum Alma- viva greifa í Rakaranum í Sevilla, cftir Beaumarckhais. Það var strax tekið eftir hinum unga manni og honum var falið vandasamt hlutverk í sjónleik, sem Leikfjelag Reykjavíkur sýndi í hitteðfyrra. Það var hlutverk að- stoðarprestsins í „Skírn, sém segir sex“, eftir O. Braaten. í fyrra ljek hann aðeins eitt hlutverk, húskarl í sjónleiknum „Fróðá“, «n í vetur hefir hann haft með höndum tvö hlutverk, sem fyrst fyrir alvöru reyna á hæfileika lians. Það eru hlutverkin Jóhann ■bamakennrai í „Á heimleið" og dr. Watson í „Sherlock Holmes“. í. rauninni sætir það furðu, hve Ævar Kvaran sem Jóhann barna kennari í „Á heimleið“. vel jafn ungur maður og Ævar er skilar þessum hlutverkum. I hinu fyrra sýnir hann ungan kennara, nokkuð hæðinn og sjálfbirgingslegan, en ætíð prúð- mannlegan, svo hann heldur samúð áhorfenda. í hinu síðara er hon- um bundiun sá vandi á herðar, að leika á móti Bjarna Björnssyni. Einnig þar er leikur hans öfga- laus og með rjettum skilningi á hlutverkinu. Ungum leikurum er nauðsynlegt að fá góð hlutverk til að æfa á kraftana. Klassiskir gamanleikir eru einkar vel til þess fallnir, en í einum þeirra, „Erasmus Montan- us“ eftir Holberg, virðist aðalhlut verkið vera tilvalið fyrir hæfileika Ævars og alla leiksviðsframkomu. L. S. 5 mínútna krossgáta 6 Lárjett. 1. skríða. 6. kaðall. 8. vafi. 10. skammstöfun. 11. farartæki. 12. hnoðri. 13. þvertrje. 14. ágóða. 16. afglapa. Lóðrjett. 2. aktygi. 3. ljósop. 4. værð. 5. sljettir. 7. gjöld. 9. dýr. 10. grein- ir. 14. hey. 15. gelt. Gjöf JÓns Pálssonar og konu hans tií stofnunar drykkju- mannahælis Hve dapurt.og víðfeðmt er drykkjumannsböl, með drepandi, nagandi friðleysis- kvöl, því fórn þess á bara eingöngu völ á eyðileggingu og dauða, — svo fremi að alls engin finnist ráð, er fullnægi þörfum í lengd og bráð; ;og gjörvöll er æfi hans glötun háð í grimmum örlögum nauða! Hann drekkur af því að ást og þrá fá eigi heilbrigðu takmarki að ná; hann veruleikanum flýja vill frá í faðm hinna glitrandi veiga; hann velur huggandi helstefnuleið, í huganum áfengið magnar seið, í hjartanu sorgin í hamförum reið í hryllingu dauðann vill teyga! Hann drekkur af því hans erfða- mein er áfengislöngun í sannleika hrein, hún fylgir sem vofa vitskert og ein og villir hvert spor, sem hann stígur. Án lækningar formyrkvast fram- tíðarsól, því fjöldi hans líka, til dauða kól, sjálf ástin veitir hjer ekkert skjól, um örlög fram dauður hann hnígur! Öll mannkynsins von er á vísind- um treyst, öll vandamál heimsins þau ein geta leyst; allt gagnlegt og fagurt og gott verður reist á grundvelli þekkingarinnar. Sje drykkjumannshæli það hjálp- ræði í neyð, sem hjörtu flest vona, er opnuð ný leið til frelsunar þeim, sem að fatast lífsskeið án framkvæmda mannúðarinnar. Jón Pálsson og frú hafa hafið það starf, er hlýtur verðandi kynslóð í arf, svo einblína framvegis alls ekki þarf á innantómt fjas og ræður; því gjöf þeirra hjóna er grundvöll- ur sá, er góðir og framsýnir menn byggja á; þeim ógæfusömu ber aðstoð að fá, því allt er mannkynið bræður. Sá minnisvarði ei mótaður er úr málmi, sem blasir nú; við oss hjer; hann litfagrammannúðarljóma ber, sem lýsir á framtíðarárum. Öldruðu hjónin sinn auð nota vel því ei lionum grandar rotnun nje hel. Þau líta í anda yfir lífsins hvel, — þau Ijett hafa böli og tárum! J. B. Islensk fyndni íslensk fyndni. (Tímarit). VII. hefti. 150 skopsagnir (með myndum). Safnað og skráð hefir Gunnar Sig- urðsson frá Selalæk. Bóka- verslun Þorsteins M. Jóns- sonar. Akureyri 1939. ndanfarin ár hefir íslensk fyndni verið föst jólabók, sem ekki hefir brugðist fremur en jólakertin og blessað jólahangi- kjötið. Hefir hvert þetta um sig sína ákveðnu náttúru og sitt á- kveðna gagn, fyndnin íyrir skamm degisþreytta sál, eu hitt fyrir börnin og magann. Að vísu má segja, að bæta megi upp íslenska fyndni með öðrum bókum á líkan hátt og hangikjötið með öðrum mat, en þó ekki til fulls, vegna þess að ekkert jafnast að öllu á við hana eða getur komið í stað- inn fyrir hana. Islensk fyndni er bók alveg iit af fyrir sig, ólík öllum öðrum bókum og sjerstök í eðli sínu. Hún er ekki þannig, að menn kasti henni frá sjer fyrir fult og alt, þegar búið er að lesa hana, og láti sjer á sama standa, hvað um hana verður. Þvert á móti er hún í þeim flokknum, sem rnenn geyma vandlega og grípa til aftur og aftur sjer til hressingar og á- nægjta. Ilún er meðal þeirra bóka, sem geymast, en gleymast þó ekki. Jeg liefi getið um flest heftin af Islenskri fyndni hjer í blaðinu, jafnóðum og þau hafa komið út, og hefi því litlu við að bæta það, sem jeg hefi áður sagt um þetta safn Gunnars Sigurðssonar. Það er í heild sinni besta heimildin og raunar næstum hin eina um vissan þátt íslenskrar skapgerðar, eða andlegs hæfileika, sem vírðist fult svo frjór og fjölbreyttur og al- ment er talið. Að minsta kosti er svo að sjá sem ekki sje nein þurð á orðin sögum Gunnars ennþá. Hið nýútkomna, sjöundi hefti, virðist mjög áþekt hinum fyrri, sögurnar svipaðar að gæðum og fjölbreytni þeirra engu minni en fyr. Gaman væri að tilfæra hjer nokkur sýnishorn úr heftinu, en því verður að sleppa. Guðni Jónsson. Þórhallur Þorgilsson: Bylt- ingin á Spáni. Rvík 1939. ram til síðastliðins vors sner- ust erlendar frjettir í blöð- um og átvarpi, bæði hjer á landi og erlendis, að mjög miklu leyti um spænsku innanlandsstyrjöld- ina, sem endaði með sigri Francos hershöfðingja og þess hluta þjóð- arinnar, sem fylgdi honum að málum. — Allan tímann, sem styrjÖld þessi stóð, voru skoðanir manna auðvitað mjög skiftar um hana. Voru þær mjög mótaðar af skoðun þeirra á þjóðfjelagsmái- um yfirleitt, en sjaldnar grund- vállaðar á þekkingu og kunnleik á málefnum Spánverja. Með ritinu Byltingin á Spáni hefir verulega verið bætt úr þeirri vanþekkingu, sem gætt hefir með íslendingum á aðdragana og gangi styrjaldarinnar. Hefir höf- undur dregið saman stórmikinn fróðleik um það efni í riti þessu. — Fyrst lýsir hann í fáum drátt- um stjórnmálaástandi Spánar frá því snemma á 19. öld og fram til þess, er Primo de Rivera gerðist einvaldur 1923. En meginhluti bók arinnar fjallar um tímabilið frá því, er hann kom til valda, og þar til er innanlandsstyrjöldinni lauk snemma á þessu ári. Af bókinni virðist mega draga þá ályktun, að byltingin hafi ver- ið óhjákvæmileg vegna ríkjandi glundroða og óstjórnar. Einnig- bendir margt, sem sagt er frá f bókinni, og saga Spánar yfirleitt til þess, að þjóðareðli og menning- arástand Spánverja sje með þeiín hætti, að þeim hæfi naumast ann- að stjórnarfar en einræði í ein- hverri mynd. Af heimildaskránni er auðsætt, að höfundur hefir aflað sjer gagna úr mörgum áttum. Frásögnin er skýr og víða mjög skemtileg. En ef litið er á bókina frá sagnfræði- legu sjónarmiði, má telja, að sam- úð höfundar með öðrum styrjald- araðiljanum komi óþarflega ber- lega fram. Snorri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.