Morgunblaðið - 05.01.1940, Blaðsíða 8
i« »t
Föstudagur 5. januar 194(11
LITLI PÍSLAKVOTTURINN
„Jæja“, sagði hann grimdarlega,
„ef þú lætur mig ekki fá brjefið
sting jeg fimm frönkunum aftur
í vasa minn“.
„Fimm frankar!“, hrópaði pilt-
nrinn ákafur „Ó! borgári“.
LitJa granna höndin hans fitl-
aði undir treyjuna, en hann tók
höndina tóma undan treyjunni og
roði færðist í fölar kinnar hans.
„Hinn borgarinn gaf mjer líka
fimm franka* ‘, sagði hann í auð-
■ajúkum tón. „Hann á heima í hús-
in.u þar sem móðir mín gerir
hreint. Það er í Rue de la Croix
Blanche. Hann hefir verið svo góð-
or við móður mína. Jeg vil held-
Ur gera eins og hann bað mig um“.
„Guð blessi barnið“, muldraði
Blakeney, „hreinskilni hans vegur
upp á móti mörgum glæp, sem
framinn hefir verið í þessari synd-
ugu borg; en jeg neyðist nú samt
til að hóta honum öllu illu“.
Hann tók hendina úr vasa sín-
uni og hjelt á gullpening milli
okitugra fingranna; með hinni
hcndinni þreif hann í úlpu pilts-
ins.
„Láttu mig fá brjefið strax“,
«agði hann höstulega, „eða jeg
akal----------“
Hann tók í hina tötralegu treyju
piltsins og náði í óhreinan pappírs-
fappa. Drengurinn fór að skæla.
„Hjerna“, sagði Blakeney og
kastaði gullpeningnum; í lófa
drengsins. „Farðu með þenna pen-
ing heim til mömmu þinnar og
ægðu þeim, sem sendi þig, að hár
maður hafi hótað þjer öllu illu
f»ar til þú varðst að afhenda hon-
um brjefið. Hlauptu svo burt, eða
jeg sparka í þig“.
Drengurinn, sem var alveg frá
sjer af hræðslu, tók undir sig
Stökk og var brátt horfinn fyrir
uæsta götuhorn.
Blakeney las ekki strax brjefið.
Hann stakk því á sig og labbaði
svo letilega af stað heim í íbúð
sína á Rue l’Arcade.
Það var ekki fyr en hann var
orðinn aleinn fyrir læstum dyrum,
að hann tók pappírslappann og las
hann. Þar stóð:
Framhaidssaga 42
„Þú munt aldrei geta fyrirgefið
mjer, Percy, og jeg mun heldur
aldrei geta fyrirgefið mjer, en ef
þú vissir hve mikið jeg hefi mátt
þola síðustu tvo daga býst jeg
við, að þú myndir reyna að fyrir-
gefa mjer. Jeg er frjáls, en þó
fangi. Jeg er undir eftirliti hvert
sem jeg fer. Hvað þeir hafa hugs-
að sjer að gera við mig veit jeg
ekki. Og er jeg hugsa til Jeanne
óska jeg eftir því að jeg hefði
þrek til þess að gera endir á minni
aumu tilveru, Percy. Hún er enn
í höndum þessara djöfla .... Jeg
hefi sjeð lista yfir fangana. Nafn
hennar er þar á meðal. Hún var
ennþá í fangelsi daginn, sem. þú
fórst frá París; á morgun, kannske
í kvöld verður hún yfirheyrð og
ef til vill kvalin og jeg þori ekki
að heimsækja þig af ótta við
njósnara. En vilt þú ekki ko.ma til
mín, Percy ? Það væri heppilegast
fyrir þig að koma í nótt. Hús-
vörðurinn er með mjer í ráðum.
í kvöld klukkan 10 verður húsið
ólæst. Ef þú kemst inn, þá gáðu
í gluggann til vinstri. Þar verður
þappírsmiði með stöfunum R. P.
og, þá er þjer óhætt að koma upp
til mín. Herbergi mitt er á ann-
ari hæð til hægri. En jeg særi þig
í nafni þeirra konu, sem þú elsk-
ar, komdu strax til mín. Mundu
eftir því, að dauðinn bíður þeirr-
ar konu, sem jeg elska Og að jeg
get ekki frelsað hana. í guðs
nafni, Percy, mundu, að Jeanne
er alt sem jeg á í þessum heimi“.
20. kapítuli.
Ofureflið.
vama kvöld klukkan hálf ellefu
, gekk Blakeney í sömu verka-
mannafötunum og berfættur, svo
fótatak heyrðist ekki, niður Rue
de la Croix Blanche.
Illiðið að húsgarðinum við hús
það, sem Armand bjó í, var ólæst;
það var enga sálu að sjá í ná-
grenninu. Hann skimaði í kring-
um; sig áður en hann skaust inn í
húsið. í gluggakistunni var papp-
írslappi með stöfunum R. P. hrip-
að með ritblýi. Það var enginn,
sem ávarpaði hann, er hann stökk
hljóðlega ,upp stigann. Einnig
þarna voru dyrnar ólæstar. Eins
og í flestum húsum fátæklinga í
París var anddyri milli inngangs-
dyranna og setustofunnar. Þegar
Percy kom inn var dimt í and-
dyrinu, en dyrnar að innra her-
berginu voru opnar í hálfa gátt.
Blakeney gekk að þeim án þess
að til hans heyrðist og ýtti á dyrn-
ar og opnaði þær rólega.
Strax var honum ljóst, að hann
hafði tapað; hann heyrði fótatak
nálgast og sá náfölt andlit Arm-
ands, sem hallaði sjer upp að
veggnum beint á móti honum.
Sinn hvorum megin við hann stóðu
þeir Heron og Chauvelin á verði.
Á næsta augnabliki var herberg-
ið fult af hermönnum — tuttugu
til þess að handsama einn mann.
Það var einkennandi fyrir þenna
mann, að þegar lagðar voru hend-
Ur á hann úr öllum áttum, kast-
aði hann höfðinu til og hló, hló
glaðlega, og það fyrsta sem hann
sagði var:
„Fjárinn sjálfur!“
„Qfureflið er of mikið, Sir
Percy“, sagði Chauvelin við hann
á ensku, en Heron, sem var í hin-
um enda herbergisins, urraði eins
og villidýr, sem hefir fengið nægju
sína.
obkT onriG^j^un\hci^Á/njuu
¥Tinn frægi enski læknir, John
Hill, sótti um upptöku í
Konunglega vísindafjelagið breska,
en fjekk synjun. Þetta var áður
en hann varð frægur.
Til þess að hefna sín á Vísinda-
fjelaginu sendi hann því eftirfar-
andi brjef undir tilbúnu nafni og
þóttist hann vera hjeraðslæknir
úti á landi:
„Sjómaður nokkur braut fót
ainn á dögunum,. Til allrar ham-
ingju var jeg sjálfur viðstaddur
er slysið skeði. Jeg setti saman
brotin nákvæmlega og síðan
amurði jeg fótinn með tjöruvatni
nokkrum sinnum. Þetta gekk alt
vel og tveim klukkustundum síð-
ar gat sjómaðurinn farið að ganga
JL fætinum.
Nokkru áður en þetta var hafði
Barkerley biskup ritað bók sína
ain tjöruvatn, sem lækningameðal.
Læknar í Englandi skiftust mjög
í tvo flokka um staðhæfingar bisk-
ups og voru langtum fleiri, sem
ekki trúðu á lækningamátt tjöru-
vatnsins.
Brjef hjeraðslæknisins vakti að
vonum mikla athygli í hinu Kon-
unglega vísindafjelagi, þar sem
einmitt var verið að ræða um
tjörumálið. Að hægt væri að lækna
fðtbrot á nokkrum klukkustund-
«m þótti svo merkilegt, að sam-
þykt var að skrifa hjeraðslæknin-
um og biðja hann um frekari
skýringar á þessari. merkilegu
lækningu hans.
Þremur dögum síðar fjekk Vís-
indafjelagið svarbrjef. Þar stóð:
„í síðasta brjefi mínu láðist mjer
að geta þess, að fóturinn, sem
sjómaðurinn braut, var trjefótur.
Yðar o. s. frv. John Hill“.
★
Ungur leikari hafði verið at
vinnulaus lengi. Loks fjekk
hann stöðu í smábæ langt frá
heimili sínu. Með erfiðismunum
tókst honum að aura saman í far-
seðil með gufuskipi, en fæðispen-
inga átti hann enga.
Fyrsta daginn svaf hann til þess
að hann fyndi ekki til hungursins.
Næsta dag gat hann ekki sofið
fyrir hungri, heldur gekk um á
þilfarinu og horfði löngunaraug-
um inn í matsalinn. Á þriðja degi
stóðst hann ekki mátið heldur sett-
ist í veitingasalinn og bað um
mat. Hann bjóst við að hann yrði
kærður fyrir svik og borðaði því
á við tvo til þess að fá eitthvað
fyrir glæp sinn.
Er hann hafði lokið við að borða
kallaði hann á þjóninn og sagði:
— Hvað á jeg að greiða fyrir
matinn ?
— Ekkert, sagði þjónninn kurt-
eislega. Maturinn er innifalinn í
farseðlinum!
★
„Já, það má nú segja“, sagði
Sir Percy rólega, „eða svo kann
manni að minsta kosti að virðast
nú sem stendur".
„Verið viðbúnir — svona flýtið
ykkur“, bætti hann við góðlátlega
og talaði til hermannanna. „Mjer
dettur; ekki í hug að bei’jast við
svona mikið ofurefli. Tuttugu gegn
einum; Nú jæja. Jeg gæti liæglega
gert út af við fjóra ykkar, já, og
jafnvel sex, en til hvers væri það*‘.
Dýrsleg bræði greip um stund
þessa menn og gerði þá vití
sínu fjær og Heron gerði það sem
hann gat til að æsa þá upp. Hinn
leyndardómsfulli Englendingur,
sem þeir höfðu heyrt svo margar
hræðilegar sögur um! Hann hafði
yfirnáttúrlegt afl og tuttugu gegn
einum var ekkert ef sá illi var í
ráðum með honum. Högg með
byssuskefti gerði fljótlega hægri
hönd hans óvíga og stuttu síðar
hjekk vinstri höndin máttlaus nið-
ur og stórt sár var á öxlinni. Síð-
an var hann færður í bönd.
Framh.
SKRIFTARKENSLA
Ný námskeið byrja. Sjerstök
námskeið fyrir þá, sem ætla
að ganga í mentaskólann eða
aðra skóla. Guðrún Geirsdóttir.
Sími 3680.
BÓKBAND
Lærið að binda yðar eigin
bækur. Rósa Þorleifsdóttir,
Ránargötu 21.
KENNI AÐ SNÍÐA
og taka mál. Dag- og kvöld-
tímbar. Herdís Brynjólfsdóttir,
Bergþórugötu 23, sími 2460.
PIANO- og HARMONIUM-
kensla. Þórunn Elfar, Baldurs-
götu 9. Sími 1556.
SNÍÐAKENSLA
Get bætt við nokkrum stúlk-
um. Matthildur Edvald Lindar-
götu 1.
— Kona listmálarans er að búa
sig í eftirrniðdagsboð.
— Húrra! Við vorum á undan
lestinni.
Kaupum allskonar
FLÖSKUR
hæsta verði. Sækjum að kostn-
aðarlausu. Flöskubúðin, Hafnar-
stræti 21, sími 5333.
VENUS SKÓGLJÁI
mýkir leðrið og gljáir skóna af-
burða vel.
VENUS-GÓLFGLJÁI
afburðagóður og fljótvirkur. —
Ávalt í næstu búð.
NÁGRANNI SÁ,
sem skrifaði mjer á nýársdag
óskast til viðtals strax. Guðjón
Sigurðsson.
GUÐSPEKIFJELAGAR
Fundur í Septímu kl. 8,30 í
kvöld. Erindi: Meistarinn Nilar-
ita.
EFTIR ER AÐ VITJA
þessara vinningsnúmera í Happ-
drætti K.F.U.M. og K. í Hafnar-
firði. Nr. 2837, standlampi;
2053, skíði; 3468, kr. 5,00. —
Munanna sje vitjað til Jóels
Ingvarssonar, Strandgötu 21 —
sem fyrst.
FULLVISSIÐ YÐUR UM
að það sje Freia-fiskfars, sem
þjer kaupið.
reykhOs
Harðfisksölunnar við ÞvergötUp,
tekur kjöt, fisk og aðrar vöruir
til reykingar. Fyrsta flokkft
vinna. Sími 2978.
OTTO B. ARNAR,
löggíltur útvarpsvirki, Hafnar-
stræti 19. Sími 2799. Uppsetn-
ing og viðgerðir á útvarpstækj-
um og loftnetum.
HAFNFIRÐINGAR
Saumum allskonar kven- ogr
barnafatnað. Saumastofan Suð-
urgötu 24.
Jtaufis&apAic
HÆNSAFÓÐUR
Kurlaður og heill mais. Þor—
steinsbúð, Grundarstíg 12. Sími*
3247. Hringbraut 61, sími 2803..
HNOÐAÐUR MÖR
Þorsteinsbúð. Hringbraut 61».
sími 2803, Grundarstíg 12».
sími/3247.
NOTAÐ ORGEL
óskast til kaups. Uppl. í síma.
1788.
TIL SÖLU
nýtísku svefnherbergishúsgögn..
Verð kr. 800,00. Tækifærisverð..
Til sýnis í trjesmíðaverkstæðim®
Skólastræti 1.
EFTIRMIÐDAGSKJÖLAR
og blúsur í úrvali. Saumastofan.
Uppsölum, Aðalstræti 18. —-
Sími 2744.
KALDHREINSAÐ
þorskalýsi sent um allan bæ. —-
Björn Jónsson, Vesturgötu 28-
Sími 3594.
DÖMUFRAKKAR
ávalt fyrirliggjandi. Guðm»
Guðmundsson,' klæðskeri. —
Kirkjuhvoli.
ÞORSKALÝSI
Laugavegs Apóteks viðurkendaa
meðalalýsi, fyrir börn og full-
orðna. Lýsið er svo gott, að það>
inniheldur meira af A- og D-
fjörefnum en lyfjaskráin ákveð-
ur, kostar aðeins kr. 1,35 heil-
flaskan. Aðeins notaðar sterilar
(dauðhreinsaðar) flöskur. --
Hringið í síma 1616. Við sendL-
um um allan bæinn.
MEÐALAGLÖS, FLÖSKUR
Fersólglös, Soyuglös og Tómat-
flöskur keypt daglega. Sparið
milliliðina, og komið beint til,
okkar, ef þið viljið fá hæstæ
verð fyrir glösin. Við sækjum
heim. Hringið í síma 1616. —
Laugavegs Apótek.
KAUPUM FLÖSKUR
stórar og smáar, whiskypela,,
glös og bóndósir. Flöskubúðin*
Bergstaðastræti 10. Sími 5395..
Sækjum. Opið allan daginn.
3apxi$-fundi$,
PENINGABUDDA
með 50 króna seðli tapaðist..
A. v. á.
GULLÚR
með svörtu armbandi tapaðist
á Njálsgötunni eða þar nálægt.
Skilist til Morgunblaðsins, eða.
Njálsgötu 14.