Morgunblaðið - 05.01.1940, Side 7
Föstudagur 5. janúar 1940.
MORGUN BLAÐIÐ
7
Minningarorð um Qísla
Jónsson, Álafossi
I
dag verður borinn ,til grafar
Gísli Jónsson á Álafossi. Hann
andaðist 22. ‘desember s.l. tæpra
'76 ára að aldri, fæddur 20. janúar
1864 í Austur-Meðalholtum í Gaul-
vérjabæjarhreppi. Poreldrar hans
voru Jón Gíslason bóndi þar og
tona hans, Ingveldur Jónsdóttir.
Jón faðir hans var smiður, hag-
leiks- og fræðimaður og hrepp-
*tjóri Gaulverjabæjarhrepps. Þau
voru mörg systkini Jóns, þar á
meðal Grímur ríki í Óseyrarnesi,
Crísli á Ásgautsstöðum og Margrjet
tmóðir Jóns Pálssonar fyrv. banka-
gjaldkera og þeirra bræðra.
Gísli ólst upp í foreldrahúsum
og stundaði algenga vinnu, nam
ÆÖðlasmíði; dvaldi á ýmsum stöð-
um austanfjalls þar til hann flutt-
ist til Reykjavíkur um aldmótin —
var starfsmaður við verksmiðjuna
Iðunni, og var við veggfóðrun o.
fl., þar til liann árið 1918 varð
starfsmaður á Álafossi, er hann
var til æfiloka.
Hvern dag var hann kominn að
starfi sínu á rjettum tíma, og var
það hönd hagleiksmannsins sem
gerði starfið auðveldara og not-
hæfara, vinnan var honum lífs-
hamingja, og gerði alt sem hann
gat til þess að starf hans kæmi að
sem: bestum notum, tnunenska og
hagnaður af starfi hans var hon-
um ekki síður áþugamál, en vinnu-
launin — og honum þótti mjög
leitt þá er óviðkomandi menn
rgerðust ráðunautar hans um hans
eigin átvinnu. — Hann var einn
af þeim sem sjá fram á það þjóð-
arböl sem vofir yfir okkar fá-
mennu þjóð, ef það verður alment
— að. vinna sem styst og sem
minst — til þess gat Gísli sál.
ekki hugsað.
Þeir sem vinna eins og hann —
«ru stundvísir, áreiðanlegir og á-
hugasamir við vinnu sína eins og
hann, og finst það mesta ánægjan
þégar miklu dagsverki er lokið —
eru áreiðanlega meiri og betri liðs-
menn þjóðarinnar, en þeir sem
tala mikið en gera lítið.
Gísli sál. taldist til hinna kyr-
látu í landinu, en starf sitt vann
hann með þeirri trúmensku og
samviskusemi, sem: er aðalsmerki
þeirra manna sem ekki hugsa alt-
af eingöngu um sinn hag, heldur
•einnig um hag þess sem verkið
þyggur. — Þessir menn leggja
drýgri skerf fram til frelsis og
sjálfstæðis síns föðurlands en hin-
ir sem hafa hæst og tala flest
orðin.
Hann var bókelskur og minnis-
góður á ýmsar sögur og sagnir
— og kom þá sem oftar fram
góðar gáfur og athygli á mönnum
•og málefnum. Hann gætti bóka-
safns Álafoss með ágætum, meðan
aldur entist.
Hann var söngelskur sem ætt
hans öll, og hafði mjög gaman af
söng.
Allir sem störfuðu með honum
sakna hins glaðlynda og prúða
manns, sem í orði og verki vildi í
engu vamm sitt, vita — virtur
drengskaparmaður, sem vildi í öllu
stuðla að góðu samstarfi milli
starfsfólks og vinnuveitanda, og
ánægja í hverju því sem varð til
þess að þeim yrði lífið bjartara og
betra.
Hann var sjerstakur reglumaður
í einkalífi sínu, í starfi sínu —
og skilvís — og reglumaður í fjár-
málum, enda vel að efnum.
Jeg sem atvinnuveitandi hans í
þessi mörgu ár, sakna hans úr
hópnum sem eins hins besta manns
er jeg liefi unnið með.
Sigurjón Pjetursson,
Hvað liggur
eftir Iþingið?
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
stefnu, sem nauðsynleg var, eins
og þeim málum er komið.
Alþingi gerði engar ráðstafanir
til breytingar á þinghaldinu á
þessu ári. Kemur því þingið aft-
ur saman 15. febrúar, eða eftir
tæpan hálfan annan mánuð.
Þessi ráðstöfun sýnist ekki
hyggileg og næsta ósltiljanleg.
Hvað á þingið að gera hjer aftur,
eftir 1 mánuð? Ætlar það þá að
afgreiða fjárlög fyrir 1941? Er
hugsanlegt, að nokkurt vit geti
orðið í þeirri fjárlagaafgreiðslu?
Vitanlega verður ekki unt að
afgreiða fjárlög í vetur fyrir ár
ið 1941, svo nokkurt vit verði í
Alt verður í óvissu um afkonru at-
vinnuveganna, og enginn tími til
að undirbúa fjárlög á svona stutt-
um tíma. Má því telja nokkurn-
veginn víst, að útkoman verði sú
á vetrarþinginu, að þingi verði
frestað til haustsins, eftir tveggja
til þriggja mánaða setu.
Þegar um það hefir verið spurt
á Alþingi, hversvegna sú ákvörð-
un er ekki tekin strax, að fresta
þinghaldinu til haustsins, er svar-
ið: Um þetta er ekki hægt að fá
samkomulag.
Það má vera, að þingmenn hafi
gaman af að sitja hjer mánuðum
saman yfir litlu eða engu starfi.
En þjóðin ætlast vissulega til ann-
ars af Alþingi. Hún ætlast til, að
ríkisstjórnin leggi málin rækilega
undirbúin’í hendur þingsins og að
hætt verði þeirri hroðvirkni í lög-
gjafarstarfinu, sem því miður hef-
ir gætt mjög undanfarið. Laga-
syrpan mikla, með breytingum á
breytingar ofan, sýnir og sannar
þetta best.
Þar sem nú situr að völdum
þjóðstjórn, er hefir stuðning ná-
lega alls Alþingis ög mikils hluta
þjóðarinnar, átti vissulega að
gefa ríkisstjórninni starfsfrið, svo
að hún gæti undirbúið þingmálin
rækilega.
Dagbók
I.O.O.F.l = 12il58V2 =
□ Edda 5940167 — 1. Atkv.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
S eða SA-kaldi. Dálítil rigning
með köflum.
Næturlæknir er í nótt Halldór_
Stefánsson, Ránargötu 12. Sími
2234.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Næturakstur næstu nótt annast
bifreiðastöðin Geysir, sími 1633.
Dánarfregn. Látinn er í Hafn-
arfirði Hinrik Jóhannsson frá Jó-
fríðarstöðum, 82 ára að aldri.
Hinrik þótti einn besti sjómaður,
sem völ var á í skiprúm, er hann
var upp á sitt besta, sökum: frá-
bærrar fiskisældar og dugnaðar.
Fimtugsafmæli á í dag Páll
Jónsson sjómaður, Haðarstíg 16.
Trúlofun. Á gamlársdag opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú Sól-
veig Guðmundsdóttir, starfsstúlka
á Sólheimum, og Einar Norðfjörð,
húsasmiður í Keflavík.
Starfskráin birtist í blaðinu á
sunnudaginn. Komið auglýsingum
til skrifstofu blaðsins í dag eða á
morgun. Starfskráin kemur í hend
ur tugþúsunda, og smá -auglýsing
í henni er því lang ódýrasta ráð-
ið til þess að ná til fjöldans.
Tvö innbrot voru framin í fyrri-
nótt, annað í mjólkurbúð á Berg-
þórugötu og hitt í Harðfisksöluna
við Þverveg. í mjólkurbúðinni var
stólið um 20 krónum í skiftimynt
og sælgæti, en einskis var saknað
í Harðfisksölunni. — Lögreglan
rannsakar málin.
Þrettándafagnað heldur Skíða-
deild Iþróttafjelags Reykjavíkur
að Kolviðarhóli þrettándakvöld
(laugard. 6. þ. m.). Parseðlar eru
seldir í Gleraugnasölunni Laugav.
2. Sækist. fyrir kl. 6 á laugardag.
Lúðrasveitin Svanur heimsótti
sjúklinga í Kópavogi á 2. jóladag
og skemti þeim með hljóðfæra-
slætti. Hafa sjúklingar beðið Mbl
að flytja þeim kærar þakkir fyrir
komuna.
Gengið í gær:
Þýsk skip
hætta sjer út
á Atlantshaf
í
Skattar hækka
f Noteni
■' vö þýsk skip, eign Nord-
deutsche Llovd, lögðu iir
höfn í Equador í dag, og er talið
að þau ætli að reyna að komást
austur um haf.
Skip þessi, sem eru með nýj-
ustu skipum Nord-deutscher Lloyd
yfir 1200 smálestir hvort, hafa
verið í Equador frá því að stríðið
hófst.
SJÓLIÐAR REYNA AÐ
STRJÚKA.
Tj RÍR sjóliðar af ,,Graf
Spee“ reyndu í dag að
flýja frá Montevideo til Buenos
Ayres.
Þeir'höfðu náð í vjelbát úr
,Graf Spee“, en vjelbilun
tafði þá. Náðist í þá, og voru
jeir fluttir aftur til Montevideo.
Sterlingspund 25.73
100 Dollarar 651.65
— Ríkismörk 260.76
— Franskir frankar 14.78
— Belg. 109.87
— Sv. fr. 146.28
— Pinsk mörk 13.27
— Gyllini 347.40
— Sænskar kr. 155.28
— Norskar krónur 148.23
— Danskar krónur 125.78
Útvarpið f dag:
19.50 Frjettir.
20.15 Yegna stríðsins: Erindi.
20.30 Útvarpssagan: „Ljósið, sem
livarf“, eftir Kipling.
21.00 Hljómplötur: Ljett lög.
21.05 Heilbrigðisþáttur (Jóhann
Sæmundsson læknir).
21.25 Strokkvartett útvarpsins
Kvartett nr. 11, D-dúr, eftir
Mozart.
21.50 Prjettir.
R
íkisútgjöld Noregs á árinu
1940 hafa verið áætluð 750
miljónir króna. Stjórnin leggur
til, að skattar sjeu stórlega hækk-
aðir og ný lán tekin.
Norska verslunarráðið hefir
komið með þá tillögu, að ríkið
kaupi óseldar birgðir af saltfiski
og þurfiski, sem nú liggja í Nor-
egi.
Norðmenn liafa nú selt 1800
smálestir af þurkuðum fiski til
Italíu og gert samning við Þýska-
land um sölu á 200 þúsund hekto-
lítrum af frystri síld þangað. PÚ.
Christmas Möller fyrverandí
form. íhaldsflokksins danska,
hefir með uppástungu um nor-
ræna samvinnu til hjálpar
Finnlandi og verndar Norður-
löndum yfirleitt. (FÚ).
Lokað
*
1
dag
kl. 12-4 vegaa jarðarfarar.
ÍJívannGergs6rfcbur
I
1 dag verður
Afgreiðsla Álafoss
lokucl kl, 1-4 síðd. vegna
farðarfarar.
Afgr. Álafoss.
L O. G. T.
FREYJUFUNDUR
í kvöld kl. 81/2. Venjuleg fund
arstörf. Atkvæðagreiðsla um
skipulagsskrá. Embættismenn
st. Eingingin nr. 14, koma í op-
inbera heimsókn. Sig. Helgason
kennari, annast hagnefndarat-
riði. — Fjelagar! sýnið áhuga
ykkar í húsmálinu og fagnið
góðum gestum með því að fjöl-
menna. Æt.
Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að
GUÐNÝ EINARSDÓTTIR
frá Nýlendu á Miðnesi, andaðist 4. þ. m. á heimili sínu, Bakka-
stíg 1.
Guðrún Hákonardóttir. Magnús Þórarinss-on.
Jarðarför
ÞORGERÐAR ÞÓRÓLFSDÓTTUR,
Ránargötu 3, fer fram frá dómkirkjunni laugardaginn 6. janú-
ar kl. 114 e. hád. Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum.
Tengdasonur 0g bræðrabörn hinnar látnu.
Hjer með tilkynnist, að jarðarför
SIGMUNDAR GUÐMUNDSSONAR
leikfimikennara
fer fram í dag, föstudaginn 5. janúar, og hefst með húskveðju
að Barónsstíg 80 kl. 1 e. h.
Aðstandendur.
Jarðarför mannsins míns og föður okkar
BALDVINS BJARNASONAR
fer fram laugardaginn 6. þ. m. 0g hefst með húskveðju að
heimili hans, Freyjugötu 34 kl. 1 e. hád.
Ragnheiður Þorsteinsdóttir og d»»tur.