Morgunblaðið - 23.01.1940, Síða 2

Morgunblaðið - 23.01.1940, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 23. janúar 1940. Smáþjóðirnar svará hvatningu Churcills um að ganga í lið með Bretum og Frökkum „VIÐ ÞURFUM ENGRA RÁÐLEGGINGA „Diplomatiskt vixlspor Churchilis hnossgæti fyrir Þjóðverja“ Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. HLUTLAUSU smáþjóðirnar á Norðurlöndum og í Vestur-Evrópu hafa nær einum rómi svarað ræðu, sem Mr. Churchill flutti á laug- ardaginn, á þann hátt, að segja: „Við þurfum engar ráð- leggingar um það, hvaða afstöðu við tökum til styrjaldar- innar, jafnvel ekki frá vinsamlegum ríkjum“. Mr. Churchill sagði í ræðu sinni, að ef stríðið dræg- ist á langinn þá myndi hlutur smáþjóðanna, sem ekki taka beinan þátt í stríðinu, fara stöðugt versnandi. Hann hvatti því þessar þjóðir til þess að ganga í lið með Bretum og Frökkum, „því að öðrum kosti er ósennilegt að fljótt verði bundinn endir á stríðið“. „ALT AÐ VINNA----------“ Ummæli þessi hafa vakið hina mestu undrun meðal smá- þjóðanna, sem hjer er um að ræða. í Englandi hafa blöð eins og Times og „Manchester Guardian“ reynt að breiða fjöður yfir þau, ön þó virðast jafnvel þessi blöð ekki líta svo á, að Chur- chill hafi hjer gengið of langt. ,,The Times“ segir t. d., að smá- þjóðirnar, sem hafi alt að vinna að Bretar og Frakkar beri sigur úr býtum, verði, ef þær ekki vilja standa við skuldbindingar sínar gagnvart Þjóðabandalaginu og taka upp vopn gegn árás- arþjóðunum með Bretum og Frökkum — þá verði þær að líta með umburðarlyndi á tálmanir þær, sem lagðar verða í veg fyr- ir verslun þeirra og viðskifti og torvelda ekki Vestur-Evrópu- þjóðunum sigurinn. í sama streng taka blöðin í Frakklandi og segja, að ef Bret- ar og Frakkar semdu frið, sem fæli í sjer uppgjöf fyrir Þjóð- verjum, þá myndi það bitna á smáþjóðunum, sem lægju þá opin fyrir ofbeldi Þjóðverja. DJARFLEG ORÐ SJÓMANNSINS Meðal ábyrgra stjórnmálamanna í Lóndon er því þó haldíð fram, að ræða Churchills tákni enga stefnubreytingu í Englandi gagnvart hlutlausu þjóðunum. Hefir verið látið svo um mælt, að flotamálaráðherrann beri það stundum við, að tala djarflega, eins og sjómenn gera, og því bætt við, að það sje ekki Winston Churchill, heldur Halifax lávarður, sem túlki utanríkismála- stefnu Breta. Er opinberlega látið í veðri vaka, að hvorki Bretar nje Frakkar sjeu að leitast við að fá hlutlausu þjóðirnar til þess að ganga í lið með sjer. Ósk í>reta eje ekki önnur en að hlut- þxusu þjóðirnar verji hlutleysi sitt og fullveldi. Margir líta svo á, að Chur- (^hill hafi stigið ,,diplomatiskt“ vjxíspor með ræðu sinni. Ræðan gje hreinasta hnossgæti fyrir á- róðursstarfsemi Þjóðverja. í Þýskalandi hefir ekki staðið á því, að ræðan væri notuð sem sönnunargagn fyrir því, að Bret ra vilji að stríðið breiðist út. EKKI BREYTING? F Svenska Dagbladet gerir ræðu Churchills að umtalsefni í dag og segir, að ummæli hans þurfi ekki nauðsynlega að hafa í för með sjer neinar breyting- ar á stefnu Breta gagnvart híut lausu þjóðunum. Njósnarar meðal sænskra kommúnista Sænska blaðið „Socialdemo- kraten“ heldur því fram, að meðal sænskra kommúnista sje margt njósnara. Margir menn hafa verið handteknir og yfirheyrðir. M. a. er sagt, að fundist hafi leynileg útvarpsstöð, sem sendi hernaðarlegar upplýsingar er- lendu veldi. Var þessi hjósna- starfsemi allvel skipulögð og hafði starfsmenn um alt land. (NRP—FB). Rússar hóta Finnum með „að Þjóðverjar muni maia þá!“ Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. PAÐ hefir vakið athygli, að rússnesku flugmenn- irnir í Finnlandi þykja hafa sýnt nokkuð meiri kunnáttu og leikni síðustu dagana. Hefir í því samhandi vaknað sú spurning, hvort Þjóðverjar sjeu farn- ir að hjálpa Rússum, annað hvort með því að senda þeim flugmenn, eða með því að lána þeim flugkennara. Svissneska blaðið National-Zeitung skýrir frá því í dag, að Hitler sje það nú meira kappsmál en nokkru sinni áður, að fá enda.bundinn á finsk-rússneska stríðið, og til þess að hraða úrslitum, sje hann við því búinn að hjálpa Rússum til sigurs. Rússar eru jafnvel sjálfir farnir að ógna Finnum með Þjóð- verjum. „ÁHLAUPATÆKNI RÚSSA“ Á vígstöðvunum á Kirjálaeiði hafa Rússar sett upp hljóm- stérka hátalara, og þruma nú í þá hvatningarorðum til finsku hermannanna um að gefast upp, „eða að öðrum kosti munu Þjóð- verjar koma og mala ykkur“. Rússar hótuðu líka að taka Viborg innan 24 klst. Eru hót- anir þessar einn þátturinn í áhlaupatækni Rússa. Samkvæmt hemaðartilkynningu Finna í kvöld gerðu Rússar 5 áhlaup í gær á svæðinu frá norðanverðu Kirj- álaeiði til miðvígstöðvanna á austurlandamærunúm. Öll- um áhlaupunum var hrundið. Á miðvígstöðvunum fellp 450 manns af liði Rússa og Finnar tóku 5 skriðdreka. Finnar tóku aðra 5 skriðdreka á vígstöðvun- um fyrir norðan Ladogavatn og þar fellu þrír rússneskir herfor- ingjar og 120 óbreyttir hermenn. Á þriðju vígstöðvunum mistu Rússar 110 menn og 2 skriðdreka. 6667 sprengjum varpað yfir Finnland „En við látum ekki bugast. segja Finnar Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. G '7 sprengjum var varp- W vJ vJ # ag njður ur rúss- neskum flugvjelum, að baki víg- stöðvanna í Finnlandi í síðustu vfku. Þetta upplýsti yfirmaður lcftvarnanna í Finnlandi í dag. Hann sagði, að þetta væri talsvert meir en nokkru sinni áðúr á einni viku, síðan s'tríðið byrjaði. En manntjón varð að- eins 18 dauðir og 109 særðir. Að manntjón hefir ekki orðið meira, er því þakkað, að almenn ingur í Finnlandi er farinn að íæra að leita sjer hælis . fyrir loftárásum Rússa og líka því, FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. Finnlandssöfnunin, afh.. Mbl.: Ilúnvetningur 10 kr. Sr. Gunnar Árnason 25 kr. G- G. 5 kr. P. Egg- erz Stefánsson 25 kr. Spilakvöid á Reynimel 40 kr. Bardagar hafa haldið stöðugt áfram á Salla-vígstöðvunum seinustu daga. Þótt fátt sje um bardagana sagt í opinberum til- kynningum bendir alt til, að Finnar haldi áfram að hrekja Rússa til baka. Rússar hafa sennilega komið sjer upp flugstöð á þessum slóð- um og þaðan munu flugvjeiar þær hafa komið, sem gerðu loftárás á Uleá við Helsingja- botn, með þeim árangri, að 4 menn biðu bana og að nokkur hús eyðilögðust af eldi. Á Kirjálaeiði hafa Rússar nú hafið sókn nyrst, hjá Ladoga- vatni. í hernaðratilkýnningu Finna segir, að Rússar hafi gert stórskotaliðsárás á herlínu þeirra þarna í gær og hafi síð- an rússn. herdeild reynt að ráð- ast í gegn en árásinni var hrund ið aftur. í Finnlandi er nú verið að mynda þrjár sjerstakar her- deildir sem útlendingar verða í eru það menn svo að segja frá öllum þjóðum Evrópu, Þjóð- verjar, ítalir, Ungverjar, Hol- lendingar, Eistlendingar, Lit- háuar, Tjekkar, Pólverjar, Frakkar og Englendingar. TILKYNNING UM SIGLIN G AHÆTTU Irish Sea: Breska flotamálaráðuneytið hirt- ir án ábyrgðar ráðleggingar til hlutlausra skipa, sem ætla til Liverpool, um að fara sem næst vitaskipinu í Morecamb Bay, og sigla síðan svo nærri ströndinni sem óhætt er að fara og aðrar tálmanir leyfa. Ennfremur hefir verið tilkynt um hættulegt skipsflalr, sem ligg- ur 1.5 sjóm. í 300° stefnu frá Point of Ayr á Isle of Man. „Rðssar stáiu olfunni frð Þjóðverjum“ - segir The Times Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Ibreska blaðinu News Chronicle er því haldið fram, þrátt fyrir mótmæli ÞjóSverja, að þýskur her- vörður hafi með samþykki Rússa, verið settur við járn- brautina frá Þýskalandi til Rúmeníu, sem liggur um þann hluta Póllands, sem er á valdi Rússa. Rússar höfðu ekki bolmagn til þess að sjá til þess að pólskir skemdaverksmenn stöðvuðu ekki olíuflutningana frá Rúmeníu til Þýskalands. ,,Times“ segir í þessu sambandi, að Rússar hafi ekki aðeins skort bolmagn, heldur hafi líka aðrar or. sakir legið til þess að Þjóð- yerjar fengju ekki olíu sína. „T,imes“ segir að Rússar hafi stolið rúm- enskri olíusendingu til Þýskalands og sent hana til rússnesk-finsku vígstöðv- anna. Rússneskir flugmenn, sem fallið hafa í hendur Finna, skýra frá því, að farið sje að skorta bensín í sumum flugvjelabækistöðý- unum meðfram austurlanda mærum Finnlands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.