Morgunblaðið - 23.01.1940, Page 4

Morgunblaðið - 23.01.1940, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 23. janðnr 19#. Chamberlain ð vest- 5' Isíirðinga Að lokinni guðsþjónustu í hjeraðsskólanum í Reykjanesi var 13. Hjeraðs- þing Norður-ísfirðinga sett þar á staðnum þann 27. des. síðastliðinn og var því lokið að hvöldi hins 29. Þingið sátu kjörnir fulltrúar úr iillurn hreppum sýslunnar, nema treimur. í>á sátu það og í boði Hjeraðsþingsins þeir Sigurður Bjarnason frá Vigur og Aðalsteinn Eiríksson skólastj. hjeraðsskólans. Fluttu þeir báðir erindi á þing- inu. Til forseta var einróma kjörinn sr. Þorsteinn Jóhannesson prófast- ur í Vatnsfirði og varaforseti Jón H. Fjalldal bóndi á Melgraseyri. Hjeraðsþingið fjallaði að þessu sinni um fjölmörg mál, er lutu í senn að landsmálum alment og velferða- og liagsmunamálum hjer- aðsins. Verður hjer getíð nokkurra þeirra. í sjávarútvegsmálum voru m. a. þessar samþyktir gerðar: 1. Hjeraðsþing N.-ísf. telur tal- stöðvar í fiskibáta mjög þýðing- nrmikia öryggisráðstöfun gegn sjóslysum, og skorar því á Alþingi að gera ráðstafanir til þess að árs- leiga stöðvanna verði færð niður í 60 kr. með tilliti til aukinnar notk- unar. Ennfremur að talstöðvar verði lánaðar í báta niður í 6 smá- lestir. 2. Hjeraðsþing N.-ísf. lítur svo á, að styrkur til smábátakaupa sje þýðingarmikið spor til eflingar bátaútveginum, og skorar á Al- þingi að halda styrkveitingum þessum áfram. 8. Með tilíiti til aukinna örygg- istækja á fiskibátum undir 30 smál. telur Hjeraðsþingið að tryggingargjöld þeirra til vá- tryggingarfjelaganna sjeu nægi- lega há til þess að þeim sje fært -að greiða alla sjóskaða. Fyrir því skoraj Hjeraðsþingið á Alþingi að hreyta 1. um vjelbátaábyrgðarfje- iög til samræmis við þetta. 4. Hjeraðsþing N.-ísf. skorar á Alþingi að breyta löggjöf um trýggingar sjómanna þannig, að iðgjöld sjeu tekin af óskiftum afla á þeim skipum, sem mann- skapur er ráðinn upp á hlut af afla, í stað þess að útgerðin hef- ir greitt þau eingöngu. í landbúnaðarmálum voru m. a. þessar samþyktir gerðar: 1. „Hjeraðsþing N.-ísf. skorar á Búnaðarþingsþingmenn Búnaðar- sambands Vestfjarða að beita sjer fyrir því, að næstu Búnaðarþing geri að tillögu sinni til Alþingis, Æ.ð 17. gr. Jarðræktarlaganna verði feld niður úr lögunum“. Þá var samþykt tillaga, sem fól í sjer áskorun til kjötverðslags- nefndar um að miða framkvæmd kjötsölulaganna meira við hags- muni bænda en áður. Ennfremur tillaga um^að fresta framkvæmd nýbýlalaganna, en að leggja áherslu á að styrkja bænd- air frekar til endurbyggingar jarða sem í eyði hafa lagst á síðustu ár- um. ^ í fjármálum voru þessar sam- þyktir helstar: „Hjeraðsþing N.-ísf. telur heppi lega þá viðleitni til samstarfs, sem hafist hefir milli stjórnmálaflokk- anna um viðreisn atvinnuveganna og þar með fjárhag ríkisins. Alít- ur Hjeraðsþingið nauðsynlegt á jafn alvarlegum tímum og yfir standa, að stefnt verði fyrst og fremst að því, að bætt verði úr því ömurlega fjárhagsástandi, sem skapast hefir á undanförnum ár- um meðal þjóðarinnar. Þessum tilgangi telur Hjeraðs- þingið að best verði náð með því: 1. Að leitast verði við í hví- vetna að færa niður útgjöld ríkis- ins t. d. með fækkun opinberra starfsmanna, launalækkun, á- kvörðun hámarkslauna og niður- felling meginhluta þeirra persónu- styrkja, sem á fjárlögum eru. 2. Að úr ríkissjóði verði sjer- staklega lögð áhersla á að veita fje til þeirra fyrirtækja, er álít.a má að beri sig fjárhagslega og gefi sem bestan arð í þjóðarbúið, enda veiti þatt jafnframt sem flest um aukna atvinnu. 3. Að hlynt verði jöfnum hönd- um af fremsta megni að báðum höfuðatvinnuvegum þjóðarinnar, sjávarútvegi og landbúnaði, og að í engu sje þar gert upp á milli, hvað snertir styrkveitihgar frá hálfu þess opinbera, en stefnt. að því, að atvinnuvégir þesSÍr geti sem bráðast borið sig fjárliags- lega. í mentamálum og uppeldismál- um voru þessar samþyktir helst- ar: 1. IJjeraðsþing N.-ísf. skorar á Alþingi að samþykkja frv. það um alm. vinnuskóla ríkisins, er nú liggur fyrir þinginu. Telur Hjcr- aðsþingið að með því sje stefnt í rjetta átt um þegnlegt uppeldi æskunnar í landinu. Jafnframt ítrekar Hjeraðsþ. fyrri yfirlýsingar sínar, að það, sem stefna beri að í þessu efnj, sje almenn Jiegnskylduvinna ungra manna. 2. Hjeraðsþing N.-ísf. skorar á kenslumálaráðuneytið að ákveða í reglugerð fyrir alþýðuskólana: a. Að innganga í skólana verði ekki veitt yngri nemendum en 15 ára að jafnaði. b. Að lögð skuli sjerstök á- hersla á að glæða trú nemenda á sveitirnar og landbúnaðinn og vekja metnað sveitanemenda á því, að yfirgefa ekki arfleifð sína. Unnið sje að þessu með vikulegum erindum um íslenskan landbúnað og hlutverk sveitanna og bænda- stjettarinnar í íslensku þjóðlífi. c. Að leggja áherslu á að fram fari hagnýt kensla í verklegum efnum, er komið geti nemendum að haldi í heimahúsum. 3. Hjeraðsþing N.-ísf. telur, að allar beinar takmarkanir á aðgangi að mentástofnúnum þjóðariúnar sjeu mjög varhugaverðar. Hins- Mr. Neville Chamberlain heimsótti nýlega vígstöðvarnar í Frakklandi. — Á myndinni sjest for- sætisráðherra (á stuttbuxum) vera að skoða liulið fallbyssustæði. vegar álítur Hjeraðsþ., að nauð- syn beri til þess að gera urigu fólki sem stunda vill sjernám í ákveðnum greinum, sem ljósast, hverjir sjeu atvinnumöguleikar í þeim atvinnugreinum og koma með þeim hætti í veg fyrir of- fjölgun sjermentaði'a manna á einstökum sviðum. Og eiga ákvæði um þetta írekar heima í reglugerð um en lögum. Þá var og undir dagskrárliðn- um „Önnur mál“ samþ. svohlj. tillaga: „Hjeraðsþingi N.-ísf. er það Ijóst, að stjórnmálastarfsemi kommúnista geti haft hinar alvar- legustu afleiðingar fyrir þjóðfje- lagið, ekki hvað síst á jafn við- sjárverðum tímum og yfir standa, þar eð vitað er, að flokkur þessi starfar hjer einungis samkvæmt skipunum erlendra kúgunarvalda, er miða að því að rífa niður lýð- ræðislegt stjórnarfar og koma á einræði. Yill Hjeraðsþingið beina því til Alþingis og annara stjórnarvalda, hvort ekki muni þegar nauðsyn- legt að uppræta með öllu þessa starfsemi hjer og skorar jafnframt á veitingarvaldið að veita enga stöðu launaða af ríkisfje þeim mönnum, er flokki þessum fylgja“. Tillaga þessi var samþykt með öllum greiddum atkv. I hjeraðsmálum voru margar samþyktir gerðar. Eru þessav helstar: 1. Hjeraðsþing N.-lsf. skorar á Alþingi að breyta lögum um drag- nótaveiðar í landhelgi þannig, að við ísafjarðardjúp hefjist sú veiði ekki fyr en 1. júlí ár hvert. 2. Hjeraðsþing N.-ísf. skorar á Alþingi að veita á fjárl. 1941 kr. 15.000 til framhalds byggingar Hnífsdalsbryggju. Ennfremur að veitt sje ríkisábyrgð fyrir jafn hárri upphæð vegna Eyrarhrepps í sama skyni. 3. Hjeraðsþingið skorar á Alþ. að veita á fjárl. fyrir árið 1941 kr. 3.500 til Öldubrjóts í Bolunga- vík. Sje því varið tíl greiðslu vaxta og annars kostnaðar af skuld Hafnarsjóðs Bolungarvíkur við útibú Landsbankans á ísafirði. 4. Hjeraðsþingið skorar á Al- þingi og ríkisstj. að hafa veí út- búinn bát alt árið úti fyrir Vest- fjörðum, sem annist björgunar- starfsemi, landhelgisgæslu og eft- irlit með veiðarfærum. 5. Hjeraðsþ. skorar á Alþ. og Fiskimálanefnd að veita styrk til þess að koma upp hraðfrystihús- um í Hnífsdal og Súðavík. Ymsar tillögur voru samþyktar varðandi samgöngumá’ hjeraðsins, svo sem um aukinn styrk til Djúpbátsins vegna vaxandi rekst- urskostnaðar hans; um fjárfram- lög til þjóðvegarins milli ísafjarð ar og Bolungavíkur; um að taka veginn frá Seljalandsárósi í Skut- ulsfirði til Súðavíkur í þjóðvega- tölu og láta hefja vinnu við hann á komandi sumri. Þá var og skorað á Alþingi að veita ríflegan styrk til vegagerð- ar, er komi Isafjarðardjúpi í sam- band við akvegakerfi laudsins. Kom fram hvöss gagnrýni á því, að fje það, sem veitt var til Stein- grímsfjarðarheiðarvegar s.l. ár, var eingöngu notuð til vegarins Strandasýslumegin heiðarinnar. Þá var skorað á Alþingi að veita fje til þess að auka húsakost hjeraðsskólans í Reykjanesi, en húsaskortur _ hamlar nú mjög statfsemi hans. Var í því sambandi bent á, að Reykjarnesskólinn nýt- ur minsta styrks allra hjeraðsskóla landsins. í lijeraðinu ríkir mikill áhugi fyrir viðgangi skólans og sækja hann nú nemendur víðsveg- ar af landinu, eu þó flestir frá Yestfjörðum. Nær allar þær samþyktir, sem hjer hefir verið getið, voru gerð- ar með samhljóða atkv. Ríkti þannig á þinginu hinn mesti sam- hugur í senn um afstöðuna til landsmála og hagsmunamála hjer- aðsins. Frá þingmanni kjördæmisins barst Hjeraðsþinginu að þessu sinni ekkert kvak. Var það svo sem vænta mátti af allri afstöðu lians til þessara fjelagslegu sam- taka Norður-ísfirðinga. - En þótt köldu hafi andað i&r þeirri átt er síst skyldi að Hjer- aðsþinginu, munu þó Norður-fs- firðingar þess fullráðnir að halda við þessum árlegu þingum sínum. og treysta með þeim samtök hjer- aðsbúa um hagsmunamál hjeraðs- ins og önnur þau mál, er þau láta til sín taka. Regluboðun á Suðuraesjum Asunnudaginn var fór St. Verðandi nr. 9 suður um Reykjanes í útbreiðsluerindum, og helt tvo fundi, annan á Vatnsleysuströnd, en hinn i Grindavík. Fundurinn á Vatnsleysu- strönd var haldinn í sámkomu- húsinu, Kirkjuhvoli, og var þar rúmlega 70 manns á fundi. Voru þar fjelagar St. Ströndin og barnastúkunnar og auk þeirra margt af utanreglufólki. Þar töl uðu Árni Óla blaðamaður, Pjet- ur Zophoníasson ættfræðingur, Pjetur Sigurðsson regluboði, Guðjón Jónsson bryti, Viktoría Guðmundsdóttir æt. St. Strönd- in og Sveinn Pálsson umb.m. í Grindavík var almennur fundur um kvöldið. Allir bátar höfðu róið um daginn og þótti því dauflegt útlit með fundar- sókn, en samt fór svo, að fund- arsalur samkomuhússins fyltist. Þar töluðu þeir aftur Árni Óla, Pjetur Zophoníason og Pjetur Sigurðsson og enn fremur Sig- valdi Kladalónshjeraðslæknirog tónskáld, sem er lífið og sálin í starfi St. Járngerður þar á staðnum. Viðtökur í Grindavík voru hinar bestu og á eftir fundi var stiginn dans fram undir miðnætti. Ferðalagið gekk að óskum og tóku þátt í því rúmlega 3® Templarar úr Reykjavik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.