Morgunblaðið - 24.01.1940, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.01.1940, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 24. jan. 19401 CXí HEIMILIT1 Finska konan fórnar sjer fvrir ættland sitt Án Lottanna væri hernað- urinn við Rússa óhugsandi HUGREKKI finsku konunnar í hinni grimm- úðugu styrjöld Rússa við Finna er mjög rómuð. Sjerstaklega fer mikið orð af hin- nm finsku Lottum, sem gegna öllum mögulegum störfum, sem barnfóstrur munaðarleysingja, hjúkrunarkonur dauð- vona hermanna á vígvellinum, varðmenn við þýðingar- miklar brýr í stórhríðum og kulda í nyrstu hjeruðum Einnlands og ótal margt fleira. Danskur blaðamaður, sem verið hefir í Finnlandi, lýsir fagur- lega hetjudáð, ekki einasta finsku Lottunnar, heldur hiniiar finsku kvenþjóðar í heild. Hann segir m. a.: Hin finska „Lotta“. Þegar talað er um konuna í Finnlandi, er ekki nema eðlilegt, að það sjeu fyrst og fremst „Lott- tirnar", sem vekja athygli manna víða um heim. Þessar kyrlátu kon- ur, í gráu einkennisbúningunum sínurn, eru liðssveit út af fyrir sig, sem ekki á sinn líka í ver- uldarsögunni. Enda hafa finskir herforingjar látið svo um mælt við mig, að hernaður eins og Finna, gegn ofurefli Bússa, væri óhugs- andi, ef ekki væri þar til fjelags- skapurinn „Lotta Svárd“. Aldur og stjett gleymist. Jeg hefi sjeð sjötugar Lottur, °g jeg befi sjeð þær á aldrinum 11—13 ára. Jeg hefi sjeð Lottur úr hinum glæsta finska aðli, og jeg hefi sjeð Lottur úr lægstu stjettum alþýðunnar. En aldur og stjettamismunur hverfur undir gráa einkennisbúningnum og þeg- ar allar þessar konur leggja sam- an verða þær að samstæðri, vold- ugri og áhrifamikilli vjel. SkfOapeysur Húfur og hettur Sportpeysur Golftreyjur Ullarsokkar Ullarlegghlífar Nærfðt og fleiri ullarvörur á konur, karla og börn í mjög fjölbreyttu úr- vali. VESTA Laugaveg 40. Skólavörðustíg 2. Þær eru allar hetjur. Eft.ir að hafa dvalið með Finn- um í nær þrjá mánuði á mestu hörmungatímum í lífi hinnar ungu þjóðar hika jeg ekki við að segja, að hver einasta finsk kona er hetja! Mikið heyrist um Lotturnar tal- að, en minna um þær þúsundir kvenna, sem gegna störfum karl- mannanna heima fyrir. Það er þegar orðin algeng sjón á götunum í Helsingfors, að sjá konur sem umsjónarmenn í sporvögnum. En nú eru vagnstjór- arnir einnig konur, sem leyst hafa af hólmi karlmennina, er farnir eru á vígvöllinn. En það er varla til nokkurt starf, sem reynir meira á taugarnar en það að stjórna sporvagni í borg, sem daglega hef- ir loftárás vofandi yfir höfði sjer. Það reynir á taugarnar. Á sama augabragði og viðvör- unarmerkið er gefið, verður spor- vagninn að nema staðar, hvernig sem á stendur, og umsjónarmenn og ökumenn að sjá um að farþeg- arnir komist úr vagninum, án þess að fara sjer að voða, og flýja í næsta skýli. Þá fyrst komast þeir sjálfir úr vagninum, og venjulega með þeim árangri, að næsta skýli er fult, svo að ekki er um annað að ræða en horfast í augu við hættuna. Strax og merki er gefið um að hættan sje liðin hjá, verður spor- vagninn að fara af stað aftur, ef hann og teinarnir hafa þá staðist árásina. Það er ábyrgðarmikið starf að stjórna sporvagni — en margfalt erfiðara, þegar taugarnar titra enn eftir lífshættu og andlega áreynslu loftárásar. Símastúlkan í „Hotel Kámp“. Þetta er aðeins eitt dæmi. Jeg gæti nefnt mörg fleiri. Aldrei gleymi jeg til að mvnda litlu símastúlkunni á „Hotel Kámp“, aðalbækistöð frjettaritar- anna í Helsingfors. Án þess að hirða hót um loftárásir sat hún kyr í glerstúku sinni og sá um, að við blaðamennirnir fengjum hrað- samtöl okkar hreint og beint með- an á loftárásum stóð! Einu sinni var loftþrýstingur vegna sprengingar, í fárra hundr- Ungar Lottur í æfingaskóla, syngja aettjarðarsöngva. aða metra fjarlægð, svo mikill, að stúlkan hentist frá skiftiborð- inu niður á gólf, og þar lá hún meðvitundarlaus. En ekki var hún fyrr vöknuð til sjálfrar sín aftur en hún skjögraði að borði sínu og settist að því starfi, sem henni hafði verið falið að gegna. Sígarettur og vindlar. Sumum kann að finnast sala á sígarettum og vindlum lítilfjörlegt starf, er banvænum sprengikúlum er varpað niður yfir höfuð manna. En lífið verður nú einu sinni að ganga sinn gang, og í sam- svarandi glerstúku, bak við lítið afgreiðsluborð, í anddyri hótels- ins, sat stvilkan, sem afgreiddi okkur blaðamennina, og hreyfði sig ekki, þótt sprengikúlunum rigndi yfir borgina. Einu sinni heyrði jeg eitthvert þrusk undir afgreiðsluborðinu hennar. Þetta reyndist vera dóttir konunnar, 8 ára gömul. Þarna hafði hún falið barnið, sem hafði kpmið sjer þar vel fyrir. Þær tvær vildu undir öllum kringum- stæðum vera saman, ef eitthvað kæmi fyrir .... Miklar konur — mikilla manna. Oft og mörgumi sinnum hlaut jeg að dást að ýmsum merkis- konum, eiginkonum mestu áhrifa- manna landsins. Jeg nefni hjer aðeins tvær kon- ur: Forsetafrúna, frú Kallio, sem er einn þektasti jarðræktarfræð- ingur í Finnlandi og hefir um margra ára skeið gætt hinna miklu búa manns síns, meðan hann var á kafi í stjórnmálunum — og konu núverandi utanríkismálaráðherra, frú Tanner. Hún er einn þektasti efnafræðingur Finnlands, doktor við háskólann, höfundur vísinda- rita — og reyndar líka áhrifa- mikill ræðuskörungur. Engin fórn of stór. Jeg minnist þess enn, er frú Tanner sagði við mig í stillileg- um. og sorgmæddum róm, meðan á samningum: stóð milli Finnlands og Rússlands: „Það er sárt að missa af landi feðra sinna — en ef til vill enn sárara að fórna blóði sona sinna. Höfum það í huga, meðan samið er í Moskva!" Lotta í einkennisbúningi. i Það var sannarlega engin þrjóska eða bardagahugur bak við þessi orð konunnar. En þegar hún skildi, að frelsi Finnlands var í veði, valdi hún — eins og allar konur í Finnlandi — að berjast — og senda syni sína út á vígvöll- inn, þó lítil værn líkindi fyrir að þeir sæjust nokkurntínia aftur. Við víkjum aldrei. Það er líklega engin tilviljun, að sagan getur um Finnland, sem fyrsta landið í sögunni, sem veitti konunni fult stjórnmálalegt jafn- rjetti á við karlmanninn. Nú er það endurgoldið; því að líklega hefir aldrei verið barist heima fyr- ir af jafn órjúfanlegri einingu og nú í Finnlandi, frá rústum Yiborg- ar, í Helsingfors, alt til ískaldra auðna umhverfis Petsamo. Heimili eru leyst upp og eyði- iögð, heimilislíf liorfin tíð, lífs- þægindi úr sögunni og kuldi og einvera hlutskifti þúsunda. En yf- ir alt þetta lyftir finska konan fögru andliti sínu í stæltum mót- þróa: Við víkjum hvergi! Þetta er hin sanna og ókúgandi finska „Sisu“. „Jeg kysti á hönd hennar* Norskur blaðamaður, sem verið hefir í Helsingfors síðan finska styrjöldin braust út, skrifar blaði sínu: Pegar myrkur skellur yfir Helsingfors hættir öll vagna- umferð, bæði sporvagnar og al- menningsbifreiðar, ekki hægt að fá. leigubíl hvað sem í boði er. Mað- ur verður að ramba í myrkrinu eftir því sem best gengur. Hvergi er ljósglætu að sjá. Framan við innganginn að veitingahúsum eru þjett plankaþil. Menn venjast þessu eins og öðru og rata sína leið. Jeg var eitt kvöld á gangi úti, því einhverja hreyfingu verður maður að fá. Þá var stúlka á vegi mínum, sem átti fult í fangi með að komast áfram með allan þann farangur, er hún hafði meðferðis. Hún var með þungan bakpoka, gasgrímu, tösku með sjúkragögn- um og handkoffort. Jeg gerðist svo djarfur að ávarpa hana og spyrja, hvort jeg mætti ekki bera eitthvað af farangrinum fyrir hana; jeg var á gangi hvort sem var, og það var ekki nema betra fyrir mig að bera bakpokann. Hún tók boði mínu þakksamlega. Hún sagðist vera á leið til járnbraut- arstöðvarinnar og ætla að fara til vígstöðvanna. Síðan tókum við tal saman, og komst jeg brátt að raun um, að þetta var ekki í fyrsta sinn, sem hún færi út á vígvell- ina. Annars var hún fremur fá- mál. Hún hafði í haust farið út að víggirðingunum á Kyrjálanesi, þar sem liðsveitir voru að vinna við varnarvirkin, að styrkja þau, þar hafði hún unnið að matseld handa sjálfboðaliðunum, sem þar vorn. Og meðan hún starfaði þar, skall styrjöldin á. Þær voru þarna þrjár stallsyst- ur — allar voru þær „lottur“. Þær kusu að vera þarna áfram er árásir Rússa byrjuðu. Þeim var ekki vandara um en hermönnun- um, þó byssukúlum Rússa rigndi niður. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. AUOAÐ hvilist TI||C| C með glerangum frá I n itLti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.