Morgunblaðið - 24.01.1940, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 24.01.1940, Blaðsíða 7
' fMiðvikudagur 24. jan. 1940. MORGUN FLAÐIÐ Bandaríkin sleppa ekki tök- um á Japönum Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Amerísk-japanski verslunarsamn- ingurinn, sem Bandaríkja- menn sögSu upp af stjórnmálaá- Btæðum í sumar, er öldurnar risu sem hæst út af viðleitni Japana að útrýma erlendum þjóðum af mörkuðum í Kína, gengur úr gildi 26. þ. m. Enginn nýr samningur hefir verið gerður, og ekkert út- lit er fyrir að nokkur samningur verði gerður. En utanríkismálaráðuneytið í WaShingtön hefir íýSt yfir því, að viðskifti Bandaríkjamanna við Japana muni fyrst um sinn halda áfram á sama grundvelli og sett- ur var með gamla verslunarsamn- ingnum, þ. e. a. s. engin tollahækk- ún mun verða gerð, eða hækkun á farmgjöldum til Japan, eins og húist hafði þó verið við. En það er greiniiega tekið fram, að . áframhaldandi viðskifti Bandaríkjamanna og Japana velti á því, hvaða stefnu Japanar taka gagnvart erlendum þjóðum, sem hafa hagsmuna að gæta í Kína. Japönum eru viðskiftin við Bandaríkin mjög mikils virði. Rúmenía: MótmieH Þjóðverja FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. ir að enginn fótur sje fyrir þeirri fregn, sem sögð er vera runnin undan rifjum breska upplýsinga- ráðuneytisins, að 150 herforingjar og verkfræðingar sjeu komnir til Rússlands til þess að veita Rúss- um tilsögn í stríðinu við Finna. Fregnin er sögð uppspuni tómur. Fregnin um að Þjóðverjar hafi sett. hervörð í Galiziu er líka sögð uppspuni tómur. En játað er hins- vegar, að þýskir verkfræðingar starfi í þjónustu Rússa í olíu- námahjeruðunum hjá Lemberg. Einnig er sagt, að 500 þýskir liðs- foringjar sjeu staddir í Lemberg og hafi það hlutverk, að sjá um heimflutning þýskra manna úr pólsku hjeruðunUm, sem eru valdi Rússa. (Olíuhjeruðin í Rúmeníu eru ein auðugustu olíulijeruðin í heimin um. Arið 1937 voru framleiddar 6.981.154 smálestir af hráolíu Rúmeníu). PÓLSKT RÁÐGJAFAÞING Japanar oo Bretar FRAMH. AF ANNARI SÍÐU umstæðum, að sagan um „Assa- mu Maru“ endurtæki sig ekki. Þriðji starfsmaður japanska utanríkismálaráðuneytisins, yf-L irmaður Evrópudeildar ráðu- neytisins, ræddi málið í dag við starfsmann við bresku sendi-1 sveitina. Blöðin í Tokio birta öll á-i deilugreinar á Breta. En blöðin ráðast einnig að skipstjóranum á „Assamu Maru“ fyrir að fram :gelja Þjóðverjana og segja að hann hafi sett smánarblett á japanskan sjómannaheiður. Mikill mannfjöldi safnaðist í dag saman fyrir framan breska sendiherrabústaðinn í Tokio og Ijet í ljós andúð sína á Bretum. í Bretlandi er látin í ljós undr- un yfir gremju Japana. Er bent á, að Þjóðverjar hafi í yfirstandandi styrjöld stöðvað sænskt skip í sjö mílna fjarlægð frá strönd Svíþjóð- ,ar og iðulega tekið pólska menn, gem voru farþegar á skipum í Eystrasalti, og flutt til Þýska- lands. v Hjer hefir verið farið eins að ug í heimsstyrjöldinni, þegar 64 skip voruj stöðvuð í sama tilgangi og aldrei þá eða nú hefir verið vjefengdur rjettur styrjaldaraðila til þess að stöðva skip í framan- nefndu augnamiði. Stofnað hefir verið í Frakk landi pólskt þjóðarráð, sem verður nokkurskonar ráð- gefandi þing Pólverja, „þar til að kjörið pólskt þing getur kom- ið saman í Varsjá“. Forseti þingsins er Paderewski, pólski píanósnillingurinn. f ræðu, sem Paderewski flutti þegar ráðgjafaþingið kom sam- an í París í dag, sagði hann að Pólland væri ódauðlegt. Dagbók Veðurútlit í Rvík í dag: Stinn- ingskaldi á A. Úrkomulítið. Næturlæknir er í nótt Halldór Stefánsson, Ránargötu 12. Sími 2234. Næturvörður er í Reykjavíkur Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn. Bifreiðastöðin G-eysir, sími 1633, annast næturakstur næstu nótt. Silfurbrúðkaup eiga í dag sæmd- arhjónin frú Elinborg Lilja Jóns- dóttir og Eggert Thorberg Gríms- son, Smiðsnesi, Skerjafirði. Hjónaband. S.l. laugardag voru gefin saman lijá lögmanni ungfrú Helga Egilson (Gunnars heitins Egilson) og Rögnvaldur Sigurjóns- son píanóleikari. Hjónaefni. Nýlega hafa opinber- að trúlofun sína Sigurbjörg Levy, Njálsgötu 6, og Ástvaldur Valde- marsson, Bankastræti 6. Fermingarbörn, sem fermast eiga hjá síra Árna Sigurðssyni á þessu ári, komi til viðtals í Frí- kirkjuna á morgun, fimtudag kl. 5. Útvarpstíðindi, 28. janúar til 3. febrúar, eru komin út. Flytja þau ýmsan fróðleik um dagskrá út- varpsins og myndir af fyrirlesur- um og margt fleira. Stúdentaf jelag Reykjavíkur held ur aðalfund sinn n.k. mánudag. Morgunblaðið er beðið að færa þeim Hafsteini Ólafssyni og Stef- áni Líndal innilegar þakkir fyrir harjnóníkuleikinn síðastl. sunnu- dag. Sjúklingar á st. 13, Lands- spítalanum. Mig vantar niann ■ til að kynda miðstöðina í húsi mínu, Sólvallagötu 12. MAGNÚS GUÐMUNDSSON. SumarbústaOalúðir, á ágætum stað í nánd við Akraneskaupstað, til leigu, mjög ódýrt, sjóbaðstaður og fallegt umhverfi. Daglegar ferðir frá Reykjavík. — Upplýsingar í síma 4003 og 3032. Bími 1380. Undraefiiið nýa TIPTOP er langfremsta, drýgsta og ódýrasta þvotta- duftið. IIPTOP Gengið í gær: Sterlingspund 25.82 100 Dollarar 651.65 — Ríkismörk 260.76 — Fr. frankar 14.84 — Belg. 109.87 — Sv. frankar 146.47 — Einsk mörk 13.27 — Gyllini 346.96 — Sænskar krónur 155.34 — Norskar krónur 148.29 — Danskar krónur 125.78 Háskólastúdentar Farið verður í Skólasel Menta- skólans mánudaginn 29. janúar. Þátttaka tilkynnist til Skúla Thor- oddsen, sími 3231, fyrir fimtu- dagskvöld. Útvarpið í dag: 20.15 Spurningar og svör. 20.30 Kvöldvaka: a) dr. Jón Helgason biskup: Jón ritari. Er- indi. b) 21.05 Frú Fríða Ein arsson leikur á paníó. c) 21.20 Jochum Eggertsson: Skreiðar- ferðir til Gríseyjar. Erindi. d) 21.45 Frú Fríða Einarsson leik- ur á píanó. Skákmótið 2. umferð I Móforbáfar. Útvegum allar stærðir af mótorbátum frá FREDE- RIKSSUND SKIBSVÆRFT, Frederikssund. HAGKVÆMIR GREIÐSLUSKILMÁLAR. Gggsrt Kristjánsson& Co. b.f. fyrrakvöld var tefld 2. umferð í fyrsta og öðrum flokki, og 1. umferð í þriðja flokki. Urslit urðu þessi: Fyrsti flokkur: Sigurður vann Aðalstein, Geir Jón vann Ingi- mund, Magnús og Kristján bið- skák og Óli og Ragnar biðskák. Annar flokkur A.: Lárus vann Þorleif, Kjerúlf vann Stefán, Jón- as og Eriðbjörn jafntefli, Áskell og Þorsteinn biðskák og Gestur og Ólafur biðskák. Annar flokkur B.: Haraldur vann Svein, Birna vann Marís, Steinþór vann Jóliannes, Sig. Jó- hannesson og Kaj jafntefli og Ragnar'og Sig. Jóhannsson bið- skák. Þriðji flokkur: Eyjólfur vann Þorstein, Pjetur Jónasson vanr Róbert, Guðjón vann Karl, Þórð ur vann Pjetur Jónsson, Gunnar vann Jón og Haukur vann Inga LITLA BILSTÖÐIN UPPHITAÐIR BÍLAR. Er nokkuð atör Timburverslun P. W. ^acobsen & 5ön R.s. Stofnuð 182 4. Símnefni: Granfuru — 40 Uplandsgade, Köbenhavn S. Selur timbur í stærri og smærri sendingum frá Kanp- mannahöfn. Eik til skipasmíða. —— heila ■kipsfarma frá Svíþjóð og Finnlandi. Hefi verslað við Isiand í cirka 100 ár. Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR JÓNSSON, andaðist að heimili sínu, Bergstaðastræti 32 B, 23. þ. m. Ástríður Jónsdóttir. Jón Guðmundsson.. Sigríður Guðmundsdóttir. Petrúnella Kristjánsdóttir. Ásta Jónsdóttir.. Jarðarför INGIGERÐAR ÖNNU ÞORSTEINSDÓTTUR, sem andaðist í Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 16. þ. m., fer fram fimtudaginn 25. þ. m. og hefst með húskveðju hjer á heimilinu kl. 1 e. hád. Jarðað verður frá bænhúsinu í gamla kirkjugarðinum. F. h. Elli- og hjúkrunarheimilisins Grund. Gísli Sigurbjömss.on. Jarðarför GUÐSTEINS JÓNSSONAR fer fram frá Dómkirkjunni fimtudaginn 25. þ. m. og hefst kl. 1.30 með bæn á heimili mínu, Grettisgötu 74. Fyrir hönd aðstandenda. Bjarni Eggertsson. Innilegt þakklæti til allra er sýndu okkur samúð við andlát og jarðarför HARALDAR SIGURÐSSONAR frá Hrafnkelsstöðumí. Vandamenn. Fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og jarð- arför minnar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, ELINBORGAR MAGNÚSDÓTTUR, Egilsgötu 16, þökkum við af alhug og biðjum guð að blessa ykkur öll. Eggert Eggertsson, börn, tengdaböm og bamahörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.