Morgunblaðið - 14.03.1940, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 14.03.1940, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 14. mars 1940. 2) 3) Friðarskil- málarnir Aðalatriði friðarsamninganna milli Finna og Rússa eru þessi: 1) Rússar fá Kirjálaeiði alt og Viborg. Ladogavatn og ströndina umhverfis vatnið, þar á með- al bæina Soravala, Soujárvi og Kexholm. Rússar fá Hangö á leigu til 30 ára og mega hafa þar flota- og fJugvjelabækistöð, ásamt þeim her, sem þeir þykjast þurfa í þessu augna miði. Rússar greiða í leigu 8 miljón finskra marka á ári fyrir Hangö (um 650 þús- und.krónur). Hangö verður afhent Rússum fyrir 20. mars. Rússar fá Fiskimannaskag- ann allan. en þessi skagi var áður skiftur milli Finna og Rússa. Finnar halda Petsamo og hjeruðunum þar í kring, en Rússar fá að flytja vörur um Petsamo án þess að gréiða af þeim toll, eða toll- skoðun á þeim fari fram. — Einnig mega rússneskir menn ferðast um Petsamo, hafi þeir vegabrjef útgefin af rússneskum yfirvöldum. Finnar mega ekki hafa fleiri en 15 herskip í PeÞ samo og ekkert þeirra má vera stærra en 400 smálest- Oddur Guðmunds- son fíá Hafrafolli 4) 5) 6) 7) .ir, Finnar Ieyfa að lögð verði járnbraut um mitt Finnland til landamæra Svíþjóðar, frá Murmanskjárnbrautinni til Kemijárvi. Bæði ríkin bera kostnaðinn af þessari járn- braut eftir nánara samkomu lagi. Rússar lofa að skifta sjer ekkert af inanríkismálum Finnlands nje stefnu þess í utanríkismálum. Landamæraverðir eiga að hafa tekið.sjer stöðu á hin- um nýju landamærum kl. 10 f. h. þann 15. mars. Vopnaviðskifti hættu klukk- an 11 f. h. í gær. RÆÐA TANNERS. PRAMH. AF ANNARI SÍÐU. stöðvunum. Á öllum öðrum víg- stöðvum hefir finski herinn ekki aðeins haldið velli, heldur og jafnvel neytt hinn miklu fjöl- mennari rússneska her að hörfa undan. Við vorum tæpar fjórir miljónir á móti 160 miljónum, sagði Tanner. Að lokum hvatti Tanner finsku þjóðina til að standa saman einhuga. Ef þjóðin væri samhent, þá myndu Finnar sigrast'á erfiðleikunum á sínum tíma, og rísa upp úr þeirri nið- urlægingu, sem þjóðinni hefði verið steypt í. Að ræðu Tanners lokinni voru flögg í Helsingfors dregin í hálfa stöng og kvöldblöðin komu út með breiðri sorgarrönd Hann ljest 15. f. m. á heimili sonar síns, síra Pjeturs, prests á Djúpavogi. En hann var borinn Isfirðingur, sonur Guð- mundar Oddssonar bónda og for- manns á Hafrafelli við Skutuls- fjörð og konu hans, Halldóru ^ Sveinsdóttur, hinna merkustu I hjóna. , Oddur ólst upp með foreldrum [sínum, og var því oftast kendur ' við föðurgarð sinn Hafrafell. Hann gerðist snemma formaður við Djúp, en hætti brátt formensk- unni og gekk í Verslunarskólann í Reykjavík.'Lauk hann námi með mikíu lofi, og gerðist verslunar- maður. Síðan setti hann á stofn verslun í Bolungarvík og var jafn framt póstafgreiðslumaður. Áriðí 1918 fluttist hann til ísafjarðar og var póstafgreiðslumaður þar um tíma og bóksali. Bóka,verslunina seldi hann þó bráðlega. Hafði hann á hendi skrifstofustörf eftir það. Oddur var fríður maður sýnum, mikill vexti og ramur að afli. Hann var fjölhæfur maður, mik: ilvirkur og velvirkur. Hann var vinsæll, eins og þeir menn flestir, sem vel er farið. Oddur var tvíkvæntur. Pyrri kona hans var Jósefína Bjarnadótt ir bónda á Ármúla. Hún ljest skömmu eftir að þau fluttu til ísafjarðar. Síðari og eftirlifandi ( kona hans er Sigþrúður Pálsdóttir : prófasts í Vatnsfirði. Oddur unni mjög átthögum | sínum, eins og títt er um þá menn, er vel eru skapi farnir. Vár hann og frændmargur vestra. Lík hans var flutt til ísafjarðar til greftrunar. SigTirður Kristjánsson. •^K^OOOOOOOOOOOOOCr" V C I«I sauðatólge Bö^lasmför / Visin Lauguveg] 1 ( Útbú Fjölnigveg 2 ) Hú§. Sambygging í Norðurmýri til sölu Nánari upplýsingar á skrifstofr, Vvv Morgnnblaðsins. RfkiD kaupir Húsavfkurverk- smiðjuna Síldarverksmiðjur ríkisins hafa nú keypt síldarverksmiðjuna á Húsavík og var kaupverðið kr. 207 þúsund. Verksmiðjan á Húsavík er bygð fyrir 400 mála vinslu á sólarhring. Rekstur hennar hófst árið 1938 og var hún þá þegar leigð Sílder- verksmiðjum ríkisins, er einnig höfðu hana á leigu s.l. sumar. Mjög mikill hagnaður varð á rekstri síldarverksmiðjunnar á Húsavík s.l. sumar. Er talið að hagnaðurinn nemi ca. 80 þúsund krónum, ef fatalýsisverð verk- smiðjunnar er tekið inn í meðal- verð S. R. á tankalýsi, en um 200 þúsund krónum, ef verðið á fata- lýsinu á Húsavík er reiknað eins og það seldist eða eftir meðalverði á fatalýsi Síldarverksmiðja ríkis- ins. Kaup verksmiðjunnar voru mið- uð við áramótin 1938—39 og slepti Húsavíkurverksmiðjan með því tilkalli til helmings af hagn- aði verksmiðjunnar s.l. ár, sem henni ba,r samkvæmt leigusamn- ingnum. Þetta atriði mun hafa ráðið úrslitum um kaupin, sem telja verður mjög hagkvæm fyrir Síldarverksmiðjur ríkisins. Síldarverksmiðjan á Húsavík liggur ágætlega við síldarmiðun- um, mitt á milli Siglufjarðar og Raufarhafnar, og getur oft borið svo undir, að það geti'munað aíld- veiðiskip fullfermi að geta land- að í síldarverksmiðjunni á Húsa- vík. Til Strandarkirkju: M. G. C. 5 kr. H. G. G- 15 kr. Helgi 2 kr. Sigga 5 kr. J. G. 1 kr. Ónefndur 2kr. G. R. 5 kr. Til Hallgrímskirkju í Saurbæ: N. N. 5 kr. Keflvíkingur 50 kr. íslensku tónleikarnir FRAMH. AF FJÓRÐU SÍÐU Svona „skýringar" hljóta að koma hverjum heilbrigðum manni fyrir sem hreinasta „píp“, en öllu verra er þó það, að með þessu er þeim skilningi komið inn hjá fólki, að bak við tónana felist einhverjir ógurleg- ir leyndardómar, sem enginn skilji, nema örfáir, útvaldir sjerfræðingar. Annars er þetta verk Karls Runólfssonar mjög eftirtektar- vert að mörgu leyti. Það er mjög vel ,,instrumenterað“, og gætir á því sviði allmikillar hugkvæmni á köflum. Tónninn í allri svítunni er hánorrænn, stefin eru stutt og tónsvið þeirra takmarkað. Ef til vill má segja, að tónskáldið hugsi full mikið um áferð verksins, og að sumir kaflarnir sjeu nokkuð losara- lega bygðir. Heilsteyptastur er kaflinn „Suður“, en þar virðist þá áttavitinn hafa orðið fyrir segulskekkju, því að þessi kafli bendir eindregið til Finnlands. Enda þótt bæði aðalverk kvöldsins lægju nokkuð fyrir of- an getu hljómsveitarinnar, bæði, eins og fyr er sagt, að því er viðvíkur stærð hennar og svo kunnáttu sumra hljómsveitar- manna, tókst þó stjórnandanum, dr. von Urbantschitsch að halda öllum lausu þráðunum saman í styrkri hendi, og mun það ekki síst honum að þakka, hve út- færsla þessara nýjú íslensku tónverka tókst vel. E. Th. Handknattleikskepni fór fram í Fimleikahúsi Jóns Þorsteinsson- ar í gærkvöldi milli kvennaflokks úr Ármanni og kvennaflokks „Hauka“ í Hafnarfirði. Ármanns stúlkur unnu með 18 mörkum gegn 10. Einnig keptu II. flokks piltar úr „Valt“ og „Haukum“. Hafnfirðingarnij. unnu með 21:18, B. S. I. Símar 1540 þrjár línur. Góðír bflar. ------ Fljót afgreiðsla. „Eftir erlendri fyrirmyndM FRAMH. AF FIMTU SlÐU. fyrir það verð er úttektarmenn meta, enda fái leiguliði gjaldfrest á 3/4 þess hluta kaupverðs er kann að vera umfram veðskuldir, eigi skemri tíma en þrjú ár“. Þa5 er eins og búist hafi verið við því að „Kulakkarnir“ íslensltu mundu bogna undir skyldunum, enda mun •tilgangurinn reynast markviss. Það er gömul þjóðsaga, að það sjeu 18 þrep niður í vissa íbúð vondra manna, máske er það ekki hrein hending að það skuli vera 18. liður laganna sem gefur „Ku- lökkunum“ íslensku bendinguna um þann leiðarenda, sem þeim kann að vera hugsaður. Sem betur fer, þá hefir ekki ennþá tekist að vekja sundrung innan bændastjettarinnar, en þeir flokkar sem það vildu reyna, eru nú sjálfir lentir í áflogum um bráðina og það er hreint ekki svo- afleitt dægrastytting-að virða fyr- ir sjer hraðann í vinnubrögðum þeirra fjelaganna, þar sem þeir sitja hvorir í sinni flatbytnu, með alla öngla utanborðs á vérkalýðs- skaki sínu, það er eins og gripið hafi um sig almennur taugaóstyrk- ur á báðum fleytunum, samskon- ar og hleypur í suma menn þegar þeir heyra nefnda síld. Þetta er í sjálfu sjer ekki undarlegt, það veltur ekki á litlu fyrir þá vinina hvor skipshöfnin veiðir betur, þetta er nú á vissan hátt þeirra síld, sem um er barist. Mjer hafa stundum, í sambandi við þetta, komið í hug tvéir flæk- ingar, sem uppi voru á Norður- landi fyrir mörgum árum og háðir ferðuðust um sömu sveitir til fanga. Þeir rendu heldur illum augum hvor til annars vegna þess að sá fjekk jafnan minni gjafirn- ar þar sem hinn hafði farið fyrirj þeir reyndu því jafnan að sneiða sem mest hvor hjá öðrum á þess- um ferðalögum. Einhverju sinni heyrði fólk, sem var við útivinnu, hin átakanlegustu vein úr hvarfi þar skamt frá, bg er menn fóru að forvitnast um hverju gegndi, kom í ljós að flækingarnir höfðu mæst þarna, orðið ósáttir um ætið og farið að fljúgást á, kútveltust þeir þarna í forarpolli er að var komið og kölluðu báðir á hjálp, líka sá sem ofan á var. Jeg veit ekki hvort verkalýður- inn vill sinna hjálparhrópum þeirra fjelaganna úr báðum déild- um, nú á þessari neyðarinnar stundu, jeg ætla, eftir því sem ráða má af nýafstöðnum kosning- um í „Dagsbrún“ og í Hafnar- firði, að hann sje farinn að koma auga á kýmnina í þessari viður- eign og hafi gaman af að vera áhorfandi og virða fyrir sjer leik- ritin um stund. En kvað sem því líður, þá vona jeg að bændur vakni við innan skamms hvarvetna á landinu og verði minnugir þess, hvert afhroð þeir hafa þegar gold- ið í rjettindamissi þeirri stefnu, sem þessir flokkar aðhyllast og verja og að þá hendi ekki oftar sú skyssa, að vega klámvíg við kjörborðin, með því að efla þar annan hvorn aðilann til óþurftar bændastjettinni, en hafi heldu^ í huga, „at þeir einir munu vera, at vjer hirðum aldri þó at drep- ist“. Sigurður á Laugabóli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.