Morgunblaðið - 14.03.1940, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 14.03.1940, Qupperneq 8
 Fimtudagur 14. mars I9*40t ÓFBÍÐA STÚLKAIV 10 Fylgist mcð frá byrjun Eftir ANNEMARIE SELINKO Á morgun á jeg að drekka morg unkaffi með hiuum fræga Claudio Pauls. Ætli fólk viti nokkuð af því, að hann er næstum altaf drukkinn? Kannske Claudio Pauls verði allsgáður þegar jeg drekk með honum morgunkaffi í fyrra- málið. Þegar jeg kom heim sagði jeg frá því, að enginn hafi verið við af skólastjórunum í verslunarskól- anum, svo jeg hefði ekki getað fengið neinar upplýsingar um námskeiðin. „Jeg hitti gamla bekkjarsystur mína, sem jeg las með stærðfræði í skólanum. Við ætluð að hittast í fyrramálið kl. 9. Við ætlum að fara saman í búðir ....“, flýtti jeg mjer að segja. Þegar jeg segi ósatt, tala jeg altaf afar hratt; jeg finn að jeg roðna, og það er um að gera fyrir mig að vera eins fljót að «egja lygasöguna og mögulegt er“. „Svona snemma morguns ?“ spurði pabbi eins og úti á þekju. Jeg fór snemma að hátta um kvöldið. Inga settist. á rúmstokk- inn hjá mjer og ljet dæluna ganga. Ætli Plumberger vildi giftast henni — hann hafði ekki hringt í dag. Ætli hún fengi nýjan kjól, reglulega fallegan kjól áður en Plumberger byði henni næst í leikhúsið í „Þú skalt ekki reikna með Plumberger. Hann giftir sig ekki í bráð“, sagði jeg. „Honumi finst rauðir refir fallegir og kann best við kvenfólk, sem eyðir stórfje ..“ muldraði jeg. Og þegar jeg var nærri sofnuð, bætti jeg við: „Heyrðu Inga, þú ættir að láta hann eiga sig, þetta er bannsett fífl“. Svo sofnaði jeg og gat því ekki fylgst með hvernig það, sem jeg sagði, fjekk á Ingu. IV. Næsta morgun þegar jeg vakn- aði fanst mjer sem hinn nýi dagur væri ákaflega þýðing- armikill. Tilfinningarnar voru lík- amlegar að því leyti að jeg fjekk velgju fyrir bringsmalirnar, sem jeg kallaði ,skólavelgjuna‘, vegna þess að jeg fjekk altaf samskon- ar tilfinningu þegar mjer gekk illa í skólanum. Þenna morgun var velgjan ó- venju mikil. Jeg á að drekka morgunkaffi með Claudio Pauls! Claudio Pauls á að ákveða hvort jeg á að fara í verslunarskóla eða ekki. Claudio Pauls .... Tilfinningar mínar gagnvart þessum manni voru undarlegar. Jeg skoðaði hann næstum sem kennara, sem jeg bar mikla virð- ingu fyrir, vegna þess að hann var ekki neitt kennaralegur. Bn um leið fanst mjer Claudio vera einskonar goð, örlögin sjálf. Hver veit nema örlögin hafi sent Claudio Pauls til mín. Þannig hugsaði jeg. Það hvarfl- aði ekki að mjer eitt augnablik, að jeg ætlaði að drekka kaffi með frægum og dáðum manni. Það var svo gersamlega útilokað að hann myndi nokkru sinni hafa á- huga fyrir mjer, sem karlmaður — að mjer datt ekki í hug að hugsa mjer hann sem slíkan. Það er ekki auðvelt að koma orðum að því, sem, jeg á við, en Clau (sem jeg skrifa þessa sögu fyrir) mun skilja hvað jeg á við. Br það ekki Clau? Þá gat ekki verið um neitt slíkt að ræða milli okkar. Jeg var svo ófríð .... Jeg reyndi ekkert til þess að klæða mig neitt sjerstaklega smekklega. Jeg fór aftur í gömlu regnkápuna. Klukkan var ekki orðin 9 er jeg kom í litla v.ejt- ingahúsið hjá Bastei. Claudio Pauls sat úti í horni og fyrir framan hann var stór bunki af dagblöðum, frönskum og enskum. Vasabók lá fyrir framan hann á borðinu, sem> hann hrip- aði eitthvað niður í við og við. Hann var næstum hulinn í sígar- ettureyk. „Góðan daginn, hróið mitt“. „Góðan daginn, herra Pauls“. Jeg settist beint á móti honum. Hann var talsvert breyttur frá deginum áður. Andlit hans var unglegra og það voru ekki neinir kippir um munn þans eins og í gærdag. Mjer virtist hann ung- legri. Hann var miklu rólegri. Hann var hreint ekkert líkur leik- ara eða rithöfundi. Hann var bara eins og ungur maður. „Morgunstundirnar eru besti tími dagsins“, sagði hann. „Jeg skrifa líka altaf á morgnana. Hug- myndirnar fæ jeg á nóttunni þeg- ar jeg drekk koníak og svo vinn jeg úr þeirn snemma á morgnana. Stundum finst mjer að jeg lifi I aðeins milli klukkan 7 og 12 á Jmorgnana. Annars — þjónn, einn Vínarmorgunmat fyrir ungfrúna!“ Pyrir framan mig var rjúkandi kaffi, egg, marmelade og hunang og loks nýtt brauð, sem brakaði í er maður braut það. „Hvernig líður frú Markovsky í dag, herra Pauls?“, spurði jeg kurteislega. „Þakka þjer fyrir, ágætlega. Af hverju spyrð þú að því?“ „Vegna þess — í gær — henni virtist ekki líða sem best — taug- arnar. Jeg held ....“ Claudio hugsaði sig um. „Æ, það er alveg rjett. Þíi varst við- stödd í vínstofunni þegar hún fjekk kastið. Hún fær svona köst næstum á hverjum degi; hún á bágt þessa dagana“. Þá sá Claudio stór undrandi barnsaugu stara á sig. Jeg hlust- aði með athygli áfram: „Á hún bágt?“ „Jeg skal segja þjer eitt, hróið mitt. Konur hafa hræðilegan eig inleika, sem nefndur er hjegóma- girni. Karlmenn hafa þenna eig inleika líka, en á alt annan hátt. Margar konur hafa farið í hund- ana af eintómri lijegómagirni. Um þessar mundir stendur Lilian á barmi hyldýpis, og hún veit af því; þess vegna finst henni að hún leiki aðalhlutverkið í sorgarleik. Bn á meðan jeg leik eitthvert hlutverk í hennar lífi, þá verður sorgarleikurinn aðeins gamanleik- ur — guði sje lof. Jeg hefi ekki mikil sambönd meðal sorgarleik- ara .... “ Jeg gat ekki stilt mig að hlæja. Framh. f £ w* jrimerKiatrieltir . *I* ♦** *I* *♦* *♦* *♦* *•* V *♦* V *♦* *♦* V V V *♦* V 5 ^ • ♦ ♦ ♦ ♦ • • ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ -♦’ J.A/m*m*m*««*m*m**4*m*m*m*h*m*m*m*m% vvv******vv%**»****%*vv%*vv****** Nýlega voru gefin út í Argen- tínu nýstárleg frímerki til notkunar fyrir svonefnda „Tono post“. Hefir verið tekin upp sú nýjung þar í landi, að menn geta keypt litla grammófónplötu, talað á hana og sent síðan með póstin- um. Kostar grammófónplatan með burðargjaldi 1.25 Peso og 1.50 Peso — og voru sjerstök frímerki gefin út til þeirra nota. Hefir alþjóðapóstmálaþingið, sem nýlega yar haldið í Buenos Aires, samþ. að þessi „Tonopost“ skuli leyfður og er Argentína fyrsta landið, sem notað sjer heimildina. ★ Sjerstök frímerki eru nú gefin út fyrir Bæheim og Mæri og er verðgildi þeirra í krónum og hell- erum eins og áður var um frí- merki Tjekkóslóvakíu. Slóvakía hefir og gefið út allmörg frímerki síðan ríkið var stofnað. — Bftir- spurn eftir frímerkjum frá Aust- urríki, Tjekkóslóvakíu, Póllandi, Danzig, Memel hefir farið vax- andi síðastliðna mánuði og verð þeirra yfirleitt hæbkað. Einnig hefir orðið talsverð verðhækkun 4 frímerkjum frá Abessiníu og Albaníu. ★ / Mikill fjöldi allskonar minning arfrímerkja eru gefin út árlega og skulu hjer nokkur nefnd. ★ Holland. í tilefni af að 100 ár voru liðin síðan fyrsta járnbraut- arlestin fór á milli Amsterdam og Haarlem voru gefin út 1. sept. s.l. 2 frímerki, 5 cent grænt með mynd af fyrstu eimlestinni og 12% eent blátt með mynd af nýtísku raf- magnslest. — ★ Júgóslafía. Á afmælisdegi Pjet- urs 11. konungs 6. sept. s.l. voru gefin út 4 frímerki með ýmsum myndum af herskipaflota Júgó- slafíu. ★ Þýskaland hefir á s.l. ári gefið út fjölda frímerkja, til minningar um ýmsa merkisatburði. T. 'd. má nefna frímerbi, sem gefið var út á 50 ára afmæli foringja þjóðar- innar og kanslara Adolf Hitlers. Frímerki til minningar um end- urreisn Danzigborgar o. fl. Þýsbu frímerkin eru nú talin einhver fallegustu og vönduðustu frímerki sem gefin eru út, og má þar sjer- staklega tilnefna hin árlegu vetr- arhjálparfrímerki. — Nýja Sjáland gefur árlega út frímerki sem nefnd eru „heilsu- verndar frímerkin" og eru þau seld til ágóða og eflingar heilsu- vernd meðal barna^, þar í landi. Síðustu frímerkin af þessari gerð voru gefin út 2. okt. s.l. og eru með mynd af þremur drengjum sem kasta stórum knetti með á- letrun „Health“. ★ Finnland gaf út um áramótin frímerki, sem selt er með yfir- verði til ágóða fyrir landvarnir landsins. Frímerkið er með mynd af finska ljóninu, sem heldur á brugðnu sverði. Nafnverð frímerk- isins er 2 finsk mörk og yfirverð 2 finsk m-örk. — Þykir frímerkið eitthvert hið smekklegftsta, sem lít hefir komið á Norðurlöndum. Teikninguna af því gerði kona, frú Signe Hammersten-Jansson að nafni. ★ Danmörk. 11. nóv. s.l. voru gef- in út frímerki til eflingar starf- semi Rauða Krossins danska. Eru frímerkin með mynd af Alex- andrínu drotningu. Verðgildin eru 10-f-5 aurar. Frímerki þessi eru sjerstaklega smekklega gerð og ágætlega prentuð. *fjelagslíf I. O. G. T. VERÐANDI SYSTUR Saumafundur í dag kl. 3% á Bergstaðastræti 48 A. ST. DRÖFN NR. 55. Fundur í kvöld kl. 8%. Inn- taka. St. Morgunstjarnan heim sækir. Erindi Pjetur G. Guð- mundsson o. fl. Dansað að lokn um fundi. HJÁLPRÆÐISHERINN Söng og hljómleikasamkoma í kvöld kl. 8%. Majór Sannes o. fl. ÁGÆTT SKÓVERKSTÆÐI til leigu í Hafnarfirði. Upplýs ingar í síma 9126. 3 HERBERGJA ÍBÚÐ óskast. 1 herbergið má vera lít ið. Gunnar Ásgeirsson, c./o Jóh. Ólafsson & Co. 5 HERBERGI OG ELDHÚS með öllum þægindum, helst ná- lægt miðbænum, óskast 14. maí Tilboð merkt „5 herbergi" —- sendist Morgunblaðinu fyrir 17, þ. mán. 2—3 HERBERGI og eldhús með öllum þægind- um, helst í Vesturbænum, ósk- ast 14. maí. Tvent í heimili. Tilboð merkt ,,Skipstjóri“, send- ist blaðinu fyrir sunnudag. ÚTLÆRÐ HATTADAMA óskast til Akureyrar nú þegar. Upplýsingar gefur Láretta Hag- an. Sími 4247 og 3890. ffZi&tfmiÍTtgav FISKBÚÐIN BALDURSGÖTU 31, hefir skift um síma og hefir nú nr. 5785. Glænýr fiskur dag- lega. 5905 er símanúmerið í Fiskbúðinnii Ægir, Spítalastíg 10. K. F. U. M. Fundur í A. D. í kvöld kl- 8%. Allir karlmenn velkomnir. FILADELFIA Samkoma í kvöld kl. 8%. —- Jónas Jakobsson ,og Eric Er- ricson talsr. Allir velkomnir. JKinn ‘jfifimic VELOUR hálsklútar — Hattastofu Svönut og Lárettu Hagan, Austurstr. 3- TRILLUBÁTUR ÓSKAST til kaups eða leigu. Má vera áis vjelar. Tilboð sendist blaðinu- fyrir 17. þ. m. merkt „Trillu- bátur“. NÝ ÝSA reykt ýsa, reykt karfaflök, nýar" gellur og ótal margt fleira. --- Sími 1456. SKÍÐAFÖT karlmanns til sölu. Tækifærls- verð. Lífstykkjabúðin Hafnar- stræti 11. BLÓM & KRANSAR Hverfisgötu 37. Sími 5284. Ilm- vandi •birkigreinar. Daglega mik- ið úrval af lifandi og tilbúnum blómum. Hortensíurnar komn- ar. Bæjarins lægsta verð. HÚS ÓSKAST til kaups. Nákvæmar upplýs- ingar merktar ,,Húsakaup“ - sendist Morgunblaðinu. | ÓDÝR BLÓM Afskornar Hortensíur fallegar á kr. 3,00. KAKTUSBÚÐIN | Laugaveg 23. Sími 1295»' KALDHREINSAÐ þorskalýsi sent um allan bæ. — Björn Jónsson, Vesturgötu 28L. Sími 3594. DÖMUFRAKKAR ávalt fyrirliggjandi. Guðns*. Guðmundsson, klæðskeri.----- Kirkjuhvoli. MEÐALAGLÖS og FLÖSKUR keypt daglega. Við sækjum- Hringið í síma 1616. Laugavega Apótek. ÞORSKALÝSI frá Laugavegs Apóteki kostár aðeins kr. 1,35 heilflaskan. ViH sendum. Sími 1616. KAUPUM FLÖSKUR stórar og smáar, whiskypela*,. glös og bóndósir. Flöskubúðiiv Bergstaðastræti 10. Sími 5395».. Sækjum. Opið allan daginn. KOPAR KEYPTUR í Landssmiðjunni. SPARTA-DRENGJAFÖT -augavge 10 — við allra hæfL HARÐFISKSALAN, vergötu, selur saltfisk nr. 1,. 2 og 3. Verð frá 0,40 au. pr.. kg. Sími 3448.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.