Morgunblaðið - 29.03.1940, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 29.03.1940, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 29. mars 1940. Blaðamannafjelags Islands veröur annað kvöld að Hótel Borg og Iiefst klukkan 9. §kemtiatriði: 1. Þáttur úr gamanleiknum „Stundum og stundum ekki“, eftir Arnold & Bach, sem bráðlega verður sýndur hjer í bæ. Leikendur: Alfreð Andrjesson og Jón Aðils. — Þá syngur Aifreð gamanvísur úr leikriti, sem er í smíðum. 2. Kristmann Guðmundsson rithöfundur les upp nýja smásögu. 3. Ný skemtiatriði: Lárus Ingólfsson leikari. 4. Nýtt danslag, nýr dans. Sigfús Halldórsson og Bára Sigurjónsdóttir. 5. Brynjólfur Jóhannesson leikari: Gamanvísur. 6. DANS. Danshljómsveit Jack Quinets skemtir (Music- al Show). Kynnir (conferencier) ívar Guðmundsson blaðam. Aðgöngumiðar hjá Morgunblaðinu og Fálkanum í dag kl. 12—7. Vissara að tryggja sjer aðgang í tíma. ENGIN BORÐ TEKIN FRÁ. Ný lög fyrir GarÖyrkju- Aðalfundur Hins íslenska garð- yrkjufjelags var haldinn ný- lega hjer í Reykjavík. Á fundia- um voru samþyktar nokkrar hreyt ingar á lögum fjelagsins og ný stjórn kosin. Formaður fjelagsins, Niels Thyberg garðyrkjustjóri baðst undan endurkosningu og benti á sem eftirmann sinn Unn- stein Ólafsson skólastjóra. I stjórn voru kosnir-. Unnsteinn Ólafsson, Reykjum form., Sigurður Sveidsspn, Reykjum, ritari, Ólafur Gunnlaugsson, Laugabóli gjald- keri, Ingimar Sigurðsson, Fagra- hvammi, Jóhann Schröder, Foss- vogi. Á síðastl. aðalfundi var kosin nefnd, þeir Sigurður Sigurðsson fyrv. búnaðarmálastj. og Herbert Jónsson kennari, Hveragerði, til að endurskoða lög -fjelagsins og jafnframt gera; tiliögur til úrbóta. Voru tiílög'Ur þeirra til all ítar- legrar umræðu á fundinum og voru þær samþyktar með talsverð- um breytingum. Fjelagið, heitir nú „Garðyrkju- fjelag Islands“ og er nú samkv. stefnuskrá sinni fjeiagsskapur allra þeirra, er áhuga hafa fyrir garðrækt, bæði garðyrkjumanna, sem garðeigenda eða annara áhuga manna. Það eru tilmæli stjórnarinnar, að sem fiestir gerist fjelagar og á þann hátt styrki og efli fje- lagsskapinn til þess að hrinda öll- um þeim áhugamálum í fram- kvæmd, er lög fjelagsins mæla fyrir. Hin nýju lög fjelagsins eru svo- hljóðandi: 1. gr. Fjelagið heitir Garðj^rkju- fjelag Islands. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. 2. gr. Markmið fjelagsins er: Að auka og efla garðyrkju og áhuga fyrir kenni hjer á landi. Tilgangi sínum hygst fjelagið að ná með því: 1. Að hafa með höndum fræðslu- starfscmi í garðyrkju, t. d. að ráða menn til leiðbeiningarstarf- semi og fastan ráðunaut, sem jafnframt sje framkvæmda- stjóri fjelagsins, strax og fjár- hagur þess leyfir. 2. Að sjá um og halda garðyrkju- sýningar. 3. Að gefa út mánaðarrit, bækur og ritlinga um garðyrkju, eftir því sem fjárhagur leyfir. 4. Að gangast fyrir fræðandi er- indum á fundum fjelagsins og opinberlega. 5. Að stofna til verðlauna og við- urkenningaveitinga. 6. Að gangast fyrir að gerðar verði tilraunir í garðyrkju og að árangurinn verði birtur fje- lagsmönnum. 7. Að koma á fót fjölbreyttu fag- bókasafni til afnota fyrir fje- lagsmenn. 8. Að sjá um, skipuleggja og styrkja fræðsluferðalög fjelags manna. í). Að stuðla á allan hátt að auk- inni mentun garðyrkjumanna, t. d. með námsstyrkjum, eftir því, sem fjárhagur leyfir á hverj- . um tíma. 10. Að stofnaðar verði deildir úr fjelaginu víðsvegar um landið, er starfi samkvæmt lögum fje- fjelag Islands lagsins og reglugerð, er stjórnr in semur,' er grein þessi kemur til framkvæmda. 11. Stjórn fjelagsins hlutist til um, að Alþingi veiti fjelaginu stuðning til fræðslu og leið- beiningarstarfsemi. 3. gr. Inntöku í fjelagið veitir stjórn þess. Fjelagsmenn greiði 5 kr. í árgjald, er greiðist fyrir 1. aprfl. Nemendur innan 18 ára greiði hálft gjald. Aðeins skuld- lausir fjelagar.hafa atkvæðisrjett á aðalfundi. Hafi fjelagsmaður ekki gert skil við fjelagið í 2 ár, er stjórninni heimilt að nema hann úr tölu fjelagsmanna. Hlunn- indi skuldlausra fjelagsmanna eru öll rit og ritlingar, er fjelagið kann að gefa út. (Bækur undan- skildar). 4. gr. Stjórn fjelagsins skipa 3 menn: formaður, ritari, fjehirðir og 2 meðstjórnendur, er kosnir skulu á aðalfundi til eins árs í senn. Þá skulu og kosnir 3 menn * í varastjórn og 2 endurskoðend- ur. Kosning stjórnar er skyldu- bundin, nema löglegar ástæður sjeu fyrir hendi. Þó geta þeir, sem verið hafa í stjórn 2 ár samfleytt, neitað enurkosningu. 5. gr. Aðalfundur skal haldinn fyrir marsmánaðarlok ár hvert. Aðalfundur er lögmætur ef 15% ársfjelaga mætir. Verði aðalfund- ur ekki lögmætur, skal boðað til hans á ný og er hann þá lögmæt- ur án tillits til þess, hve margir mæta. Afl atkvæða ræður úrslit- um mála. Falli atkvæði jafnt sker atkvæði formanns úr. Til laga- breytinga þarf tvo þriðju atkvæða. Til aðalfundar skal boðað með 2 vikna fyrirvara, og til venjulegs fundar með 1 viku fyrirvara. Á fundinum skal leggja fram end- urskoðaða reikninga fjelagsins til samþyktar. 6. gr. Nánari fyrirmæli um framkvæmd laganna skulu sett í reglugerð, er samþykt skal á að- alfundi. 7. gr. Nú hefir verið samþykt að leggja fjelagið niður, skulu þá allar eignir þess renna í sjóð, er beri nafn aðalhvatamanns að stofn un fjelagsins, landlæknis Georgs Schierbechs, og sje sjóðurinn und- ir umsjá Stjórnarráðs íslands og verði varið til eflingar garðyrkju hjer á landi, með þeim forsend- um, sem samþykt verða á fjelags- fundi, áður en það verður lagt niður. LfkniO þeim, sem liffa Minningar§jóður Landsspífalans Landsspítalinn er, eins og kunnugt er, stærsta sjúkra- hús landsins og þangað leita sjúklingar úr öllum bygðarlög- um, jafnt þeim fjærstu sem hin- um, er nær liggja. Margt af þessu sjúka fólki er sárfátækt og þar á ofan ótrygt fyrir sjúk- dómum, því sjúkrasamlög eru enn ekki orðin almenn hjer á landi. Er þessvegna margur áhyggju fullur um það, hversu fara muni um greiðslu á þeim mikla kostn- aði, sem af sjúkrahússdVölinni leiðir. En þar eiga þeir hauk í horni, sem er Minningarsjóður Landsspítala íslands. Sjóður þessi hefir nú starfað um níu ára bil, eða frá því að Lands- spítalinn tók til starfa, og á þessu tímabili veitt sjúkrastyrki sem nema nokkru yfir eitt hundrað þúsund krónur, en tala styrkveitinganna er á sjötta hundrað. Það má nærri geta að það er fjelitlum eða fjevana sjúkling-. um eigi lítill áhyggjuljettir að vita sig getað leitað til sjóðsins, því margir eru þeir, sem óljúft er að þiggja af sveit, vegna veikinda sinna. Sjóðurinn veitir aldrei minni hjálp en Vá hluta áfallins kostnaðar, en oftast þó meira en lágmarkið og í sumum tilfellum greiðir hann kostnað- inn að fullu. Það segir sig sjálft, að til þessa þarf sjóðurinn að hafa allmikið fje til umráða auk þesa vaxtahluta af höfuðstólnum, er árlega má verja sem styrktar- fje. Þetta fje þarf hann að fá inn með minningargjöfum. Vin- 'sældir sjóðsins hafa alla tíð verið miklar og gjafir til hans almennari, en til nokkurs ann- ' ars hliðstæðs sjóðs, enda er það gefendum mikill hægðarauki, að geta sent samúðarskeyti sjóðsins gegnum allar síma- stöðvar landsins. Sjóðurinn á það undir velvild almennings hve vel hann getur fullnægt þeirri miklu þörf. Alt það fje, sem gefið er til sjóðsins kemur til úthlutnar á næsta ári eftir að það er gefið. Þeir, sem gefa sjóðnum minningagjafir geta því verið vissir um það, að gjöf iþeirra kemur að skjótum notum. Kjörorð Minningarsjóðs Lands- spítala íslands er þetta: Líknið þeim, sem lifa. Þessi orð tákna vel starfssvið sjóðsins, og verða vonandi nú og í allri framtíð til þess að hvetja allan almenning að íeggja honum líð í starfinu. Þeir, sem beina gjöfum sín- um til Minningagjafasjóðs Landsspítala Islands, hjálpa um leið og þeir minnast þess, sem látinn er, hinum, er berjast við sjúkdóma, en þeir eru jafnan margir og allflestir þannig sett- ir, að þeir þurfa fjárhagslega hjálp í þeirri baráttu. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.