Morgunblaðið - 29.03.1940, Síða 8
/
jParðttttbtaíft
Föstudagur 29. mars 1940L.
>_»_______
ÓFRÍÐA
SIVLKAN
EfUr ANNEMAKIE SELINKO
vn.
.... Og svo var lagt handklæði
nm andlit mjer, sem hafði verið
vætt í sjóðandi heitu vatni. Það
lagði gufuna af handklæðinu og
mjer fanst andlitið á mjer vera
að gufa upp; loftið sem jeg and-
aði að mjer var gufa, alt var
gufa ....
Jeg lá í litlu herhergi á snyrti-
stofu Madame Lax. Hún var há,
grannvaxin kona með stórar mjall-
hvítar hendur. Hún var í hvítum
kyrtli eins og læknir og hjelt á
mafnspjaldi frú Theodóru Ray-
mond, sem jeg hafði fengið henni.
Hún horfði á mig rannsakandi um
stund.
„Jeg hefi aldrei komið á snyrti-
stofu fyr“, stamaði jeg.
„Jeg sje það —“ svaraði hún.
Hún sagði ekki við miig að jeg
væri ófríð; henni hefir vafalaust
staðið á sama hvort þær voru fríð-
ar eða ófríðar konurnar, sem sóttu
snyrtistofu henna'r. Hennar at-
▼inna er að kynnast konuandlitum
og reyna að gera þau eins falleg
og mögulegt er.
Hún fór með mig í smáherbergi
og sagði mjer að leggjast á legu-
bekk. Það var ákaflega heitt í
herberginu og jeg fór úr peysunni
minni og það var sétt hvítt línlak
yfir brjóst mitt og herðar.
„Reynið nú að hafa það þægi-
legt“, sagði frú Lax og rjetti mjer
tvo púða. Síðan fór hún hurt.
Jeg var þreytt. Nokkrum mín-
útum fyrir klukkan 6 hafði jeg
komið hlaupandi til snyrtistofunn-
ar. Jeg átti að vinna til klukkan
€. " Jeg hringdi dyrabjöllunni, og
einkennisklæddur þjónn fylgdi
mjer inn í skrautlega biðstofu.
Prú Lax tók vingjarnlega á móti
mjer og nú lá jeg hjer ein. Alein
með ófríðleika minn, sem kvelur
mig þegar jeg er innan um fal-
legar og vel snyrtar konur.
.... Nú verð jeg falleg, hugs-
aði jeg. Jeg lokaði augunum. Jeg
verð falleg.
— Það hlýtur að kosta stórfje.
Hjer er alt svo fínt. Ætli að hún
viti, að jeg er afgreiðslustúlka í
húð? Afsakið, gjaldkeri. Óverðug
staða, segir fólkið heima hjá mjer.
Ætli það sje sárt: Vafalaust. En
jeg skal ekki kvarta. Jeg ætla að
verað falleg. Þau munu öll taka
eftir þessu á morgun á vínstof-
unni þegar jeg kem til að drekka
kaffið. Ætli það sje hægt að sjá
mnn strax eftir fyrsta sinn?
Það var skynsamlega Vgert af
mjer að fara fyrst til frú Lax, áð-
ur en jeg fór á hárgreiðslustofu.
Andlit mitt verður fyrst að verða
„rjett“ áður en snillingurinn
Francois getur gert sitt krafta-
verk.
Það var heitt í herberginu og
það fjell á mig mók. Kannske
myndu karlmenn nú líta mig öðr-
um augum en fyr. Kyssa. Það
hlýtur að vera indælt að kyssa í
alvöru. Maður opnar dálítið munn-
inn. Þannig er það að minsta kosti
í kvikmyndunum. — Svo kemur
karlmaðurinn „Darling“ hvíslar
hann „Oh, my baby ....“
Jeg hafði undanfarið horft á
margar enskar kvikmyndir. — Oh,
my bahy.
Hvað ætli Claudio segi við Lili-
an, þegar hann kyssir hana, Þegar
þau eru alein og hann er góður
við liana — Claudio. —
Claudio. Jeg fór að hugsa um
hann. Nú verð jeg falleg, Claudio.
Það verður vafalaust sárt, en það
gerir ekkert til.
Vonandi hefir frú Raymond ekki
sagt honum hvað það kostar. Jeg
get- vel borgað sjálf. Eiginlega
ætti jeg ekki að borða í sjálfsala-
veitingastöðum,, heldur bara
kaupa mjer brauð sjálf og pylsur.
Það fyllir betur heldur en smjör
og brauð og er ódýrara. Þetta
þarf jeg að athuga.
Claudio. — Kannske fæ jeg að
fara með ykkur eitthvert kvöldið
á dýran og fínan stað, þegar jeg
er orðin fallegri? Jeg skal læra
að tala eins og heimskona. Maður
þegir dálitla stund og vekur „eft-
irvæntingu“ ....
„Sjáið til Ria. — Ilúðin er alt
of þurr. Það verður að nota mikla
feiti“, sagði frú Lax fyrir aftan
mig. Hún hafði komið hljóðlega
inn í herbergið í fylgd með ung-
frú Riu, sem einnig var í hvítum
kirtli. Hún kynti okkur. „Ungfrú
Ria mun sjá um yður“.
Því næst hölluðu þær sjer báð-
ar yfir mig og grannskoðuðu and-
lit mitt: Ungfrú Ria beindi stór-
um lampa með málmskermi yfir
andlit mitt.
Þetta var alveg eins og hjá
tannlækninum.
„Hefir yður einhvern tíma kal-
ið á nefinu?“ spurði frú Lax.
„Nei, það hefir altaf verið svona
ráutt“.
„Ungfrú Ria mun bera á yður
mattkrem og þartilheyrandi púð-
ur“, sagði frú Lax.
„Eigum við ekki að lita augna-
brúnirnar ?“
„Jeg er hrædd iim að jeg hafi
engar augnabrúnir?“
„Jú, en þær eru svo ljósar og
óreglulegar. Ria, þjer verðið að
nota trjákvoðu og lita þær svo
með vafanlegum lit. Dökkbrúnar,
til þess að þær verði í fallegri and-
stöðu við hárlitinn.
„Og augnalokin, frú?“ spurði
Ria.
„Augnalokin ?“ Madame Lax
beygði sig á ný yfir mig. „Það er
best að bursta þau með olíu og lita
þau svört. Þá njóta augun sín
best“.
Hún sneri sjer að mjer áður en
hún fór út úr herberginu. „Prú
Raymond er mitt meistaraverk“,
sagði hiin.
Jeg hneigði höfuðið til sam-
þykkis. „Frú Raymond er yndis-
leg ....“
„Frú Raymond er listaverk“,
árejttaði frú Lax. „Hvernig —
hvernig stendur á því, að þjer
þekkið hana?“
„Við þekkjum báðar mann einn,
sem er kunningi okkar“, sagði jeg,
„Jæja“, sagði frú Lax brosandi,
„en hvað þetta er spennandi!“
„Til hvers er sett trjákvoða á
augnabrúnirnar ?“ spurði jeg.
„Ungfrúin mun komast að raun
um það síðar“, sagði Ria og frú
Lax fór út úr herberginu.
Ria batt hvítum dúk um höfuð
mjer, svo jeg varð útlits eins og
nunna. Jeg gat ekki stilt mig um
að brosa. Nunna meðal fallegra
kvenna. Framh.
NÆSTA SKÍÐANÁMSKEIÐ
Ármanns í Jósefsdal hefst á
mánudag’inn kemur, og mun það
verða síðasta námskeið fjelags-
ins í vetur. Áskriftarlisti liggur
frammi til hádegis á laugardag
hjá Þórarni Björnssyni, sími
1333.
IÞRÓTTAFJELAG RVÍKUR.
Þátttakendur í næsta skíða-
námskeiði í. R., sem hefst að
Kolviðarhóli mánudaginn 1.
apríl, vitji skírteina í Gleraugna
búðina Laugaveg 2, fyrir klukk-
an 12 á laugardag.
1.0. G. T.
FREYJUFUNDUR
oncwS
I barnablaði Þjóðræknisfjelags
íslendinga í Vesturheimi,
Baldursbrá, eru eftirfarandi tvö
dæmi um „vesturheimsku“, eða
daglegt mál Vestur-íslendinga.
Þau eru svohljóðandi:
„— Farðu Görtí og sæktu kopp-
ana inn í dæningrúmið og komdu
með treiið á sædborðinu; en pass-
aðu að bömpa ekki upp á móti
ljósunum, því glóparnir geta
kxakkað. Vertu svo kerfúl þegar
þú klínar diskana svo þú droppir
þeim ekki. Takt.u nú nótis af því
sem jeg segji þjer svo jeg þurfi
ekki að likka þig“.
★
„Hættu nú að pleija og köttaðu
fyrir mig pæið, náðu svo undir-
koppunum á pleitreilinni og
komdu með þá þegar þú ert bú-
in að klína þá, en láttu fyrst á
þig gánið, það hangir á húkkanum
á klosettinu“.
★
Maður nokkur var kallaður fyr-
ir rjett í London á dögunum vegna
smá ósamlyndis milli hans og konu
hans. Er hann var að lýsa sambúð
sinni og konu sinnar, sagði hann
meðal annars:
— Háæruverðugi herra dómari,
konan mín er eins og segulmagn-
að tundurdufl — hún hefir mikið
aðdráttarafl, en er stórhættuleg.
★
Maður nokkur segir svo frá, að
einu sinni hafi hann dvalið á hress-
ingarhæli sjer til heilsubótar. Á
afmælisdegi sonar hans datt hon-
um í hug að hringja í búð, sem
hann var kunnugur,og panta tin-
hermenn handa syninum í afmæl-
isgjöf.
Þegar svarað var í símann sagði
maðurinn: Hafið þið til tinher-
menn og hvað kosta þeir?
— Hvað segið þjer, sagði úrill
rödd í símanum.
— Jeg var að spyrja um hvort
þið hafið tinhermenn.
— Nei, var svarað og það mátti
auðveldlega heyra að maðurinn
var reiður.
— Er þetta ekki í leikfanga-
búðinni X....?
— Nei, þetta eru aðalstöðvar
danska lífvarðarins.
★
Lögreglufulltrúinn: Þjer segið
að þjer hafið staðið 2 metra og
30 sentimetra frá slysstaðnum.
Ilvernig vitið þjer þetta svona upp
á hár?
Vitnið: Jeg mældi það sjálfur
með málbandinu mínu.
— Til hvers?
— Mjer datt í hug, að ef til
vill dytti einhverjum í hug að
spyrja mig svona asnalegrar spurn
ingar.
★
Rakarinn: Fyrirgefið herra
minn, en hefi jeg ekki rakað yður
einu sinni áður?
— Nei, svaraði viðskiftavinur-
inn stuttur í spuna. Örið er eftir
skurð, sem jeg hlaut í bílslysi.
★
— Hefðuð þjer nokkuð á móti
því, skipstjóri, að fleygja þessum
minjagripum yðar í sjóinn? Það
er næstum ómögulegt að róa.
í kvöld kl. 81/2. Tekið á móti
innsækjendum. Tilkynningar.
Nefndaskýrslur. Sgi. br. Felix
Guðmundsson: Trúnaðarstörf og
bindindi. Str. Ásta Kjartansdótt-
ir: Upplestur. Fjölmennið stund
víslega. Æt.
EITT HERBERGI
með rafplötu eða eldunarplássi
óskast strax. Tilboð merkt „1
herbergi", sendist blaðinu.
3 HERBERGJA ÍBÚÐ
til leigu frá 14. maí með sjer-
miðstöð. Uppl. í síma 5662.
2—3 HERBERGI
og eldhús óskast. Maður í fastri
atvinnu. Tilboð merkt „18“,
sendist afgr. blaðsins.
NÝTÍSKU
2 herbergja íbúð óskast 14. maí
í Austurbænum. Fyrirfram-
greiðsla. Uppl. í síma 5135 frá
kl. 4—6.
LES MEÐ SKÓLABÖRNUM
undir próf. Kristíana Benedikts,
Bergþórugötu 23. Sími 5001.
jtaups&fijiue
JÖRÐ TIL SÖLU
í nágrenni við Reykjavík. Á
jörðinni er stórt og vandaði
steinhús. Uppl. í síma 9226».
Hafnarfirði.
SKlÐAFÖT
á karlmann eru til sölu. Tæki-*-
færisverð. Lífstykkjabúðin, —»
Hafnarstræti 11.
GULRÓFUR
seljum við í heilum og hálfunEs
pokum á kr. 6,50 og kr. 4,00,-
Sendum. Sími 1619.
KALDHREINSAÐ
þorskalýsi sent um allan bæ. —-■
Bjöm Jónsson, Vesturgötu 28,,
Sími 3594.
ÐÖMUFRAKKAR
ávalt fyrir-liggjandi. Guðns-
Guðmundsson, klæðskeri. —
Kirkjuhvoli.
MEÐALAGLÖS og FLÖSKUR
keypt daglega. Við sækjum.
Hringið í síma 1616. Laugavegu
Apótek.
ÞORSKALÝSl
frá Laugavegs Apóteki kostar
aðeins kr. 1,35 heilflaskan. ViS"
sendum. Sími 1616.
KAUPUM FLÖSKUR
stórar og smáar, whiskypela,
glös og bóndósir. FlöskUbúðiiii,
Bergstaðastræti 10. Símh 5395.
Sækjum. Opið allan daginrí.
ÞAÐ ER ÓDÝRARA
að lita heima. Litina selurr
Hjörtur Hjartarson, Bræðra-
borgarstíg 1. Sími 4256.
REYKHÚS
Harðfisksölunnar Þvergötu„
selur reykt hrogn mjög ódýr.
Sími 2978 og 3448.
E FTIRMIÐD AGSK JÓLAR
og blúsur í úrvali. Saumastofan
Uppsölum, Aðalstræti 18. —-
Sími 2744.
GARÐYRKJA
Tek að mjer lagningu á ný-
um görðum og önnur garðyrkju-
störf. AV. Þeir, sem ætla að
biðja mig um að annast garða
sína, láti mig vita sem fyrst.-
Sigurður Guðmundsson,
garðyrkjumaður. Sími( 5284.
(Blóm & Kransar).
HREINGERNINGAR
önnumst allar hreingerningan
Jón og Guðni. Símar 5572 og[
4967.
HREINGERNINGAR
Pantið í tíma. Guðni og Þrá-
inn. Sími 5571.
OTTO B. ARNAR
löggiltur útvarpsvirki, Hafnar-
stræti 19. Sími 2799. Uppsetn-
ing og viðgerðir á útvarpstækj-*
um og loftnetum.
GUÐSPEKIFJELAGIÐ
iReykjavíkurstúkufundur S
kvöld. Jónas Kristjánsson lækn-
ir flytur erindi um heilbrigðis-
mál.