Morgunblaðið - 21.04.1940, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 21.04.1940, Qupperneq 8
ft Sunnudagur 21. apríl 1940,. ÓFKÍÐA STÚLKAN 35 „Þjor sögðuð að jeg væri ljót, eg að allar konur gætu'orðið lag- legar. Bara ef þær vildu hafa fyr- ir því. Svo sögðuð þjer að jeg skyldi koma hingað í litlu vín- stofuna og að. þjer ætluðuð að hjálpa mjer“, sagði jeg hljóðlega. Það komu tár fram í augun á aijer. Öll tilvera mín var bygð á stuttu samtali við ölvaðan mann. „Nú, og svo komstu hingað og daginn þar á eftir hittumst við í litla kaffihúsinu hjá Bastei“, hjelt Claudio áfram. Mjer fanst eins og hann væri alls ekki að tala við mig. Það var frekar eins og hann væri að tala við sjálfan sig og væri að reyna að gera sjef ljóst hvers vegna hann hefði eig- inlega tekið mig upp á arma sjer. „Það er best að jeg segi alveg eins og er. Þetta voru bara dutl- ungar“, sagði hann. Mjer sárnaði þetta mikið. Það var eins og jeg hefði fengið löðr- ung. Örlögin höfðu slegið mig kinnhest. „Voru það dutlungar, herra Pauls?“ spurði jeg undrandi. „Já, þú ert dutlunganna barn. 1 kaffihúsinu um morguninn datt mjer alt í einu í hug hve vinna mín væri í raun og veru skemti- leg. Jeg er vanur að skálda per- sónur. Jeg bý þær til og stilli þeim upp á leiksvið, þar lifa þær sínu lífi og örlög þeirra eru þau örlög sem jeg hefi sjálfur ákveð- ið. Það er ekki svo gott að út- skýra þetta á rjettan hátt. Og sjáðu nú til. Alt í einu datt mjer í hug að hjer væri tækifæri til að búa til persónu, sem væri til í veruleikanum. Jeg gæti innblásið mínurn eigin hugmyndum í lif- andi veru. Jeg gæti látið unga stúlku njóta góðs af þeirri reynslu, sem jeg hefi af konunni, unga stúlku, sem var að byrja lífið —“ Claudio hætti að tala og var hugsi; hann tók í hendina á mjer og hjelt svo áfram að tala án þess að horfa á mig. „Og svo alt í einu hittj jeg stúlku, sem var ekki neitt, neitt. Barn, sem kom tfl mín, vegna þess að það hafði traust á mjer. Vegna þess að það trúði því, að jeg gæti leiðbeint því I rjetta átt. Sjálfur trúði jeg því, að jeg gæti gert eitthvað úr þess- ari veru. Það var um að gera að 5 mínútna krossgáta 19 Eflir ANKEAiAKIE SELIISKO Lárjett. 1. Risi. 6. Kvenheiti. 8. Neitun. 10. UII. 11. Aular. 12. Verkfæri þf. 13. Stormsveit. 14. Skemd. 15. Huggun. Lóðrjett. 2. Þvertrje. 3. ílát. 4. Tónn. 5. Brotlegar. 7. f kirkjum. 9. Örg. 10. Tíndi. 14. Tímabil. 15. Tví- hljóði. skapa stúlkunni möguleika á að verða lagleg. Jeg varð að inn- blása henni trúna á sjálfa sig. Barnsaugun þín horfðu svo biðj- andi á mig og jeg vissi, að jeg myndi geta uppfylt óskir þínar og þú gast orðið falleg og lagt heiminn fyrir fætur þína“. „En samt vilduð þjer ekki bera ábyrgð ' á neinu í fyrstu. Þjer heimtuðuð að jeg tæki sjálf allar ákvarðanir“, skaut jeg inn í. „Oóða mín, jeg vissi sjálfur, hve hugmynd mín var auðvirði- leg og jeg vildi reyna að hætta við tilraunina. Þú hefir ekkert leyfi til þessa, sagði jeg við sjálf- an mig. Það er ekki leyfilegt að leika sjer að veruleikanum. Það er hægt að leiða menn fram til sigurs, en það er ekki hægt að vernda þá fyrir þjáningum og sorg. Það er kannske glæpur að skálda „örlög“, sem ekki eru lát- in gerast á leiksviði, heldur fá sinn endir í lífinu sjálfu. En jeg gat ekki snúið aftur. Jeg varð að halda áfram með tilraunina, hvað ljótt, sem mjer fanst að gera það. Þess vegna vissi jeg, að jeg var ekki án ábyrgðar, þegar jeg ljet þig sjálfa taka ákvörðun um, hvað þú ætlaðir að gera“. . Nú sneri hann sjer að mjer, eins og til þess að lesa úr andliti mínu, hvaða áhrif orð hans hefðu haft á mig. „Jeg vissi fyrirfram, hvaða ákvörðun þú myndir taka. Það varst þú, sem ákvaðst — það sem jeg vildi“. Jeg hafði dropið höfði. Hvert einasta orð særði mig. Jeg var vera, sem Claudio hafði skapað af náð sinni. Jeg var tilraun. „Jeg er þá ekki annað í yðar augum en tilraun, herra Pauls?“ sagði jeg. Hann brosti. „Hingað til hefir þú meira að segja verið velhepnuð tilraun. Á ótrúlega stuttum tíma -hefir þjer tekist að verða lagleg. BAZAR heldur Hringurinn í Hafnarfirði 5. maí. Þeir velunnarar, sem vildu styrkja fjelagið með gjöf- um á bazarinn, eru beðnir að koma þeim til Guðbjargar Kristjánsdóttur, sem fyrst. BETANÍA. Almenn samkoma í kvöld kl. 8i/2. Jóhannes Sigurðsson talar. Barnasamkoma kl. 3. ZION. Barnasamkoma í dag kl. 2. Al- menn samkoma kl. 8. Hafnar. firði, Linnetstíg 2: Samkoma kl. 4. Allir velkomnir! En það á hvorugt okkar að látu sjer nægja, þú verður að halda áfram tilraunum þínum. Þú átt að verða meira en snotur stúlka“. „Finst yður þá ekki lengur leið- inlegt að þjer berið ábyrgð á mjerf' spurði jeg. „Jeg hefi vanist þessari ábyrgð. Jeg skal bera það með góðri sam- visku. Jeg óska af heilum hug, að þjer gangi alt í haginn og jeg muu gera það, sem í mínu valdi stendur til þess að þú náir Settu marki“. „Hvað er takmark mitt?“ Jeg horfði með eftirvæntingu á mann, sem hafði skáldað örlög mín. „Jeg hugsa að þú verðir yndis- leg og sigursæl kona. Þú ert ung stúlka, sem hvorki ert sjerlega gáfuð eða auðug; þess vegna áttu aðeins einn kost um að velja, ef þú vilt komast áfram í lífinu. Þú verður að vera lagleg. Sá maður, sem þú verður ástfanginn af, verð ur líka að verða ástfanginn af þjer. Það á að verða þitt tak- mark“. „Já, þjer hljótið að vita það, herra Pauls“, sagði jeg alvarlega. „Jeg skal ná því marki“. Jeg stóð á fætur. „Vonandi hepnast tilraunin“, sagði jeg og jeg tók ekki eftir, að rödd mín skalf; jeg vissi heldur ekki, að Claudio hafði fundið, hve ein- mana og yfirgefin mjer fanst jeg VÍÐAVANGSHLAUP I.R. 1940 fer fram fimtudaginn 2. maí. Þátttakendur gefi sig fram skrif lega við stjórn Í.R. fyrir 25. apríl n. k. I. O. G. T. BARNASTÚKAN ÆSKAN Fundur í dag kl. 3 !/>. Börnin sýni skírteini. Foreldrum barn- anna boðið. Börnin skemta sjálf. Vikivakaflokkurinn mæti kl. 1. HJÁLPRÆÐISHERINN. Samkomur í dag kl. 11, 4 og 8i/j. Kapt. Andresen, Solhaug og fleiri. FILADELFIA, Hverfisgötu 44. Samkoma kl. 4 (ef veður leyfir á Óðinstorgi) og kl. 8i/j. Eric- son og Jakobsson. FYRIRLESTUR í Aðventkirkjunni í kvöld kl. 8.30. Efni: Hvers er að vænta að austan? Allir velkomnir. O. J. Olsen. ALLIR VÍKINGSBRÆÐUR! Mætið kl. 2 í dag í Goodtempl arahúsinu. Áríðandi mál á dag- skrá. — „7 bræður“. ST. FRAMTlÐIN NR. 173. Fundur í kvöld kl. 81/2. Magnús prófessor Jónsson flytur erindi. Innsækjendur mæti í fundar- byrjun. HERBERGI til leigu fyrri reglusaman mann eða konu. Sími 1326, eftir kl. 4. TIL LEIGU. Húsið nr. 134 við Hringbraut er til leigu frá 1. maí n. k. Upplýs- ingar í síma 5204. vera á þessari stundu. Jeg veit bara, að hann lagði hendurnar blíðlega á axlirnar á mjer og sagði: „Það var heppilegt, að jeg skyldi kynnast þjer. Sjáðu til — konur koma og fara í minni til- veru, en þú ferð ekki. Þú, lilla vinkonan mín, þú verður hjá mjer þangað til annar maður, sem verður kærastinn þinn eða eigin- maður, kemur og tekur þig frá mjer“. Framh. HÚSMÆÐUR. Flytjum þvott í Laugar. Verðið er lágt sje nokkrir pokar í stað. Versl. Bergstaðastræti 10. — Sími 5395. Tek að mjer HREINGERNINGAR Guðm. Hólm. Sími 5133. HREINGERNINGAR Sími 2597. Guðjón Gíslason. Sf HREINGERNING í fullum gangi. Fagmenn að verki. Hinn eini rjetti Guðni G. Jgurdson, málari. Mánagötu 19. Sími 2729. HREINGERNINGAR Pantið í tíma. Guðni og Þrá- inn. Sími 5571. HREINGERNINGAR önnumst allar hreingerningar. Jón og Guðni. Símar 5572 og 4967. OTTO B. ARNAR löggiltur útvarpsvirki, Hafnar- stræti 19. Sími 2799. Uppsetn- ing og viðgerðir á útvarpstækj- um og loftnetum. GERI VIÐ saumavjelar, skrár og allskonai heimilisvjelar. H. Sandholt. Klapparstíg 11. Sími 2635. BÓN I PÖKKUM frá 65 aur. Stálull með sápu. Silfur fægilögur. Hvítt bómull- argarn. Þorsteinsbúð, Hring- braut 61. Sími 2803, Grundar- stíg 12. Sími 3247. ÚTSÆÐISKARTÖFLUR og valdar Matarkartöflur og Gulrófur í heilum pokum og smásölu. Garðáburður. Þor- steinsbúð, Hringbraut 61. Sími 2803., Grundarstíg 12. Sími 3247. VANTAR MARGAR ÍBÚÐIR 1—2 herbergja í Austur- ogi Vesturbænum. Höfum nokkrar 2 herbergja íbúðir utan við bæ- inn og 3—5 herbergja íbúðir í bænum. — Húsnæðismiðlarinn, Grundarstíg 4. Sími 5510. Við- talstími kl. 1—7. VIKTORÍUBAUNIR, Hýðisbaunir, Grænar baunir í dósum, Rabarbar á Vi og 1/2 flöskum, ódýr. Asparges í dós- um, Búðingar, margar teg, Ávaxtahlaup í pökkum, Þor- steinsbúð, Hringbraut 61. Sími 2803, Grundarstíg 12. Sími 3247. ERLENDAR ÚRVALSBÆKUR, m. a. frægustu rithöfundar Norðurlanda fást með sjerstöku tækifærisverði næstu daga. — Bókaskemma Halldórs Jónas- sonar við Klapparstíg. GLUGGATJALDAEFNI Púðar, Veggteppi til sölu kjallaranum Suðurgötu 22. VANTAR KOLAELDAVJEL Upplýsingar í síma 4433. NÝLEGUR BARNAVAGN til sölu á Njarðargötu 27, niðri.. 2 TONNA VÖRUBlLL til sölu. Uppl. í síma 5631 eft- ir kl. 1. STÓR SPEGILL ca. 1,20 m. x 40—50 cm. ósk- ast keyptur. A. v. á. FERMINGARKJÓLL til sölu. Hlíðarhús, Nýlendugötu VEGNA BURTFLUTNINGS er til sölu dekkataus-skápur, Tækifærisverð. Sími 5126. FYRSTA FLOKKS GULRÓFNAFRÆ til sölu á Bakkastíg 1, niðri. KAUPUM FLÖSKUR stórar og smáar, whiskypela„ glös og bóndósir. Nönnugötu 5^ sími 3655. Sækjum. Opið allair daginn. ÁGÆTAR MATARKARTÖFLUR í hálfum og heilum pokum á. 6.50 og 12.50. Tjarnarbúðin, Sími 3570. Versl. Brekka. SímL 1678. DAGLEGA nýhakkað kjöt, nýtt böglasmjörc. tólg, rúllupylsa, kæfa. Kjötbúð- in Herðubreið, Hafnarstræti 4,. Sími 1575. MEÐALAGLÖS OG FLÖSKUR keypt daglega. Sparið millilið- ina og komið til okkar, þar sem& þjer fáið hæst verð. Hringið £ síma 1616. Við sækjum. Lauga- vegs Apótek. DÖMUFRAKKAR ávalt fyrirliggjandi. Guðm^- Guðmundsson, klæðskeri. — Kirkjuhvoli. BESTA FERMINGARGJÖFIN er ryk og vatnsþjettu úriro (dömu og herra) frá Sigurþór,* Hafnarstræti 4. ÞÚSUNDIR VITA að ævilöng gæfa fylgir trúlof*- unarhringunum frá Sigurþór„ Hafnarstræti 4. KAUPI GULL hæsta verði. Sigurþór, Hafnar- stræti 4. HRAÐRITUNARSKÓLINN Get bætt við nemendum. —• Helgi Tryggvason. Sími 3703,. GLÆNÝR RAUÐMAGI daglega. Sendum um allan bæ^ Símar 2761 og 5292. REYKHÚS Harðfisksölunnar Þvergötu, sel- ur reykt hrogn mjög ódýr. — Sími 2978 og 3448. VEGGALMANÖK og mánaðardaga selur Slysa"*- varnafjelag Islands, Hafnar- húsinu. 3ofui$-fwncli£ GULBRÖNDÓTT KISA með hvíta bringu, trýni og lapp- ir, tapaðist. Vinsamlega geri5> aðvart í síma 1479.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.