Morgunblaðið - 27.04.1940, Side 3
Laugardagur 27. apríl 1940.
Ólafor Lárusson
skipaður I dóm-
nefnd við
Osloar-háskóla
Próf. Ólafi Lárussyni hefir
borist beiðni frá háskól-
anum í Oslo um það, að taka
sæti í dómnefnd til þess að
dæma um veitingu prófessors.
embættis í rjettarsögu við Oslo-
arháskóla.
í nefndinni eiga sæti fimm
menn, auk próf. Ólafs; prófes-
sorinn í rjettarsögu við Kaup-|
mannahafnarháskóla og þrír
Norðmenn.
Ekki er kunnugt, að áður
hafi verið leitað til íslenskra
vísindamanna þessara erinda og
er það mikið traust, sem próf.
‘ Ólafi og þar með íslenska há-
skólanum er með þessu sýnt.
Svo sem kunnugt er, þá er rjett-
arsaga ein af kenslugreinum
próf. Ólafs við háskólann, og
er það vitað, að hann er allra
manna best að sjer um fornan
rjett íslenskan og raunar forn.
an germanskan rjett yfirleitt.
MORGUNBLAÐIÐ
Svona hús er
hægt að byggja
úr islensku efni
Byggingurcfni úr
íslenskum leir
Mikilvægar rannsóknir á islenskum leir og
nothæfni hans fyrir byggingariðnaðinn
Hörður B)arnason, arkflteki
segir frá
Einlyft hús úr brendum múrsteini
um
. A þakinu eru plötur úr brend-
leir.
Miklar líkur benda til þess, að hægt sje að
framleiða úr íslenskum leir múrsteina til
húsabygginga, og að hægt sje að byggja úr
þessum innlenda múrsteini traust og falleg íbúðarhús.
Hörður Bjarnason arkitekt hefir kynt sjer þetta mál gaum-
gæfilega og hefir Morgunblaðið snúið sjer til hans og beðið hann að
segja frá þessu merka máli. Per hjer á eftir umsögn Harðar:
Kona hrygg-
brotnar í bíl-
slysi
Pað slys vildi til í gærmorg-
un að kona ein, Guðbjörg
Ólafsdóttir, Mjölnisveg 44, varð
fyrir bíl og hryggbrotnaði.
Slysið vildi til á móts við
verslunina Ásbyrgi, Laugavegi
139. Guðbjörg var á leið yfir
götuna; og ætlaði að fara í fisk-
búð Hafliða fisksala. Ætlaði
hún að víkja fyrir bifreið, sem
kom vestan götuna, en tók ekki
eftir öðrum bíl, sem í sama
mund kom að austan. Varð hún
fyrir þeim bíl.
Guðbjörg var flutt á Lands-
spítalann og var með rænu,
enda mun mænan ekki hafa
skaddast.
Skemtanir
barnadagsins
Skemtanir þær er barnavina-
fjelagið Siunargjöf gekst
fyrir á sumardaginn fyrsta voru
yfirleitt mjög vel sóttar, og
fjárhagslegur árangur fjelags-
ins góður eftir því. Ekki var
komið fult yfirlit yfir tekjur
dagsins í gærkvöldi, er blaðið
átti tal við ísak Jónsson kenn-
ara.
Skrúðgöngur barnanna frá
skólunum, Austurbæjar- og
Miðbæjarskólanum mættust á
Arnarhólstúni. Þar var fjöl-
menni óvenjulega mikið.
SkothrfO úti
fyrir Vest-
fjðrðum
Kl. 10 árdegis á sumardag-
inn fyrsta heyrðu menn á
Flateyri skotbríð úti á hafi.
Sást úr landi til skips, sem
talið er, að verið hafi 12—14
sjómílur undan landi, og varð
þaðan sem skotin heyrðust. 1
Skipið sást ógreinilega sakir^
fjarlægðar, en vel sást að; á
því voru tveir reykháfar.
Skotin voru talin yfir tuttugu,!
og hjeldu áfram í hálfa klukku- i
stund. — Skipið hringsólaði
þarna meðan á skothríðinni
stóð, en að henni lokirtni hjelt
það í suðurátt.
Eigi sást til neinnara skipa,
og gátu menn því enga grein
gert sjer fyrir því, hvernig á
skothríð þessari stóð.
Sumarfagnaður
stúdenta
Skákþinginu
slitið
30
O kákþingi íslendinga er ný-
^ lega lokið.
Heildarúrslit urðu þessi:
Meistaraflokkur: Nr. 1. Einar
Þorvaldsson 6% vinning, nr. 2.
Ásmundur Ásgeirsson 6 v,, nr. 3.
Eggert Gilfer ð1/^ v., nr. 4. Árni
Snævarr 4% v., nr. 5. Hafsteinn
Gíslason 3 v., nr. 6.—8. Jóhanti
Snorrason, Sturla Pjetursson og
Sæmundur Ólafsson 2y2 v. hver,
og- nr. 9. Áki Pjetursson 2 vinn-
inga.
Fyrsti flokkur; Nr. 1. Jón Þor-
steinsson 6 vinninga, nr. 2.—3.
Ingimundur Guðmundsson og
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
túdentafjelag Reykjavíkur
^ efndi til hins árlega sumar-
fagnaðar síns að Hótel Borg síð-
asta vetrardag.
Ludvig Guðmundsson form.
fjelagsins bauð gesti vel-
komna og flutti stúdent-
um hvatningarorð til dáðríkra
starfa í þágu alþjóðar. Miutist
hann þeirrá geigvænlegu atburða,
sem gerst hefðu meðal frændþjóða
vorra á Norðurlöndum og lýsti
djúpri samúð íslenskra menta-
manna með bræðraþjóðum vornm.
Sigurður Nordal prófessor
mælti fyrir minni Gunnars Gunn-
arssonar skálds og konu hans, en
þau voru heiðursgestir stúdenta.
Bauð hann skáldið velkomið
heim í íslenska bygð og árnaði
þeim hjónum alls farnaðar á höf-
uðbóli sínu. Kvaðst hann og
vænta, að íslenskar hóbmentir
mættu enn auðgast af glæsilegum
ritverkum ,frá Gunnari Gunnars-
’syni.
Skáldið þakkaði boð stúdenta
og flutti ávarp, er hann einkum
ræddi í viðhorfin til Norður-
landa og hvernig nú væri komið
högum þeirra. Yar ræðunni mjög
vel tekið.
Þá ljek Hallgrímur Helgason
einleik á píanó og Pjetur Jónsson
Isöng einsöng. Síðan var stiginn
dans. Fór hófið hið hesta fram.
Úthlutun skömtunar
seðla hefst í dag
Uthlntun matvælaseðla fyrir
maímánuð hefst í dag og
heldur áframi á mánudag og
þriðjudag.
Eins og venjulega fer afhend-
ing fram í Tryggvagötu 28 kl.
10—12 f. h. og- 1—6 e. h. Fólk
ætti að muna að koma, sem fyrst
til þess að sækja seðla sína, og
hest er að koma fyrir hádegi, því
að þá er minst að gera.
— Nú, þegar styrjöld geisar í
aðalviðskiftalöndum okkar, og
aðflutningar teppast, förum við
að líta okkur nær, og athuga
hvað við eigum sjálfir til, og
hvort ekki sje hægt að bjargast
við ýmislegt, sem til er í land-
inu, en ekki var gefinn nægi-
legur gaumur meðan opnar voru
allar leiðir frá erlendum mark-
aði.
★
— Eitt af því, sem hlýtur að
skorta vegna stríðsins, er bygg-
ingarefni, en það kemur öllum
saman um, að stöðvun bygg-
inga sje hið mesta böl, bæði
vegna, þess, að enn vantar víða
í þessu landi ný híbýli, og þeir
sem eiga afkomu sína undir
byggingariðnaði missa nú að
mestu viðurværi sitt.
Það er þessvegna tímabært
að athuga nú þegar gaumgæfi-
lega hvaða efni til bygginga
mætti vinna í landinu sjálfu,
og hefja nú þegar vinslu
þeirra, ef tiltækilegt þykir.
★
— Fyrst og fremst vantar
efni, sem komið gæti í stað
steinlíms, en áætlanir, sem
gerðar hafa verið um fram-
leiðslu þess hjer, hafa verið
á þann veg, að ekki hefir þótt
svara kostnaði vegna takmark-
aðra þarfa, með of miklum
reksturskostnaði.
Hinsvegar hafa verið fram-
kvæmdar rannsóknir á íslensk-
lun leir, sem veitt hafa mikil-
væga reynslu. Er það Guðm.
Einarsson frá Miðdal, sem fram
kvæmt hefir þær rannsóknir,
með aðstoð innlendra og er-
lendra fagmanna, og sýnt í því
sambandi mikinn dugnað og
hagsýni.
Rannsóknir G. E. voru á sín-
um tíma lagðar fyrir skipulags-
nefnd atvinnuveganna, en nið-
urstaða þeirra var sú, að íslensk-
ur leir væri ágætlega nothæfur,
m. a. til múrsteinsgerðar, og til
sönnunar því, voru lagðar fram
erlendar og inníendar skýrslur
um nothæfni leirsins, auk
brendra sýnishorna. •
G.E. sótti sex sinnum á þrem-
ur árum um leyfi til þess að
flytja inn brensluofn til
*brenslu byggingarefna ásamt
nauðsynlegum vjelum, en slík-
ar vjelar eru það stórvirkar, að
þær framleiða á einum degi
nægilegt af múrsteini í meðal-r
stórt einlyft hús. Verð ofnsins
var ekki hátt, og fje fyrir
hendi, enda ætlaði G. E. fyrst
í stað að reyna framleiðslu
þessa á eigin ábyrgð. Innflutn-
ingsnefnd synjaði altaf um
leýfið, þar til loksins s.l. haust,.
er stríðið var skollið á, þá var
V4, hluti upphæðarinnar leyfð-
ur, en þá var ekki unt að fá
ofn nema frá Ameríku, sem var
margfalt dýrari þótt hann gerðí
aðeins sama gagn, og samskon-
ar ofnar og vjelar frá Þýska-
landi. Þýsku tilboðin voru um
37,000 ríkismörk, en núverandi
amerískt verðlag á sama,* er
þrefalt meira,
Hefði brensluofninn og vjel-
arnar komið þegar fyrst var
um beðið, má ætla, aS nú
væri bægt að framleiða þá múr
steina, sem nægðu til að byggja
úr öll einlyft hús í sveitum og
kaupstöðum landsins, þar sem
slíkt kemur til greina, en þess
ber að gæta, að úr múrsteini
þr sennilega aðeins hægt að
byggja einlyft hús hjer hjá okk-
ur vegna jarðskjálfta hættu.
★
— Jeg vil nú koma nokkuð
nánar að rannsóknum þeim, er
gerðar hafa verið í íslenska
leirnum.
Flestir þekkja hina smekk-j
legu og listfengu muni, sem G.'
E. hefir brent úr ísl. leir, sem
nú prýða hjer fjölda heimila
og er jafnvel orðin útflutnings-
vara.
Til slíks iðnaðar þarf bestu
tegund leirs, og þar sem tekist
hefir að framleiða hjer besfu
tegund leiriðnáðar, þá er aug-
ljóst að hverskonar leiriðnaður
annar getur dafnað hjer.
Það er skemst frá að segja
að rannsóknir G. E. sýndu, að
ísl. leirinn er ágætlega fallinn
til vinslu og það helsta sem til
mála kæmi að framleiða úr hon-
um hjer á landi er;
Allskyns flísar í klæðningu.
Þakhellur (tvenskonar gerð).
FRAMH. Á FJÓRHU SÍÐU.