Morgunblaðið - 27.04.1940, Side 4

Morgunblaðið - 27.04.1940, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ f Laugardagur 27. apríl 1940. Húsnæði Tveggja og þriggja herbergja íbúðir eru til leigu frá 14. maí. Uppl. í síma 3914 eftir kl. 6. Smáiöluverð á eftirtöldum tegundum af reyktóbaki má eigi vera hærra en hjer segir: Glasgow Mixture Glasgow Mixture Waverley Mixture Waverley Mixture Capstan Mixture mild Capstan Navy Cutmed. Capstan Navy Cut mild Yiking Navy Cut med. 14 lbs. dósum Vs - ~ 14 _ _ 3/s - - % - - % - - i/s _ _ % - ~ kr. 5.15 dós — 2.65 — — 5.15 — — 2.65 — — 5.70 — — 2.95 — — 3.20 — — 2.35 — Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má verðið vera 3% hærra vegna flutningskostnaðar. Tóbakseinbasala riklsins. Smásöluverð á eftirtöldum tegundum af vindlum má eigi vera hærra en hjer segir: Manikin E1 Roi Tan Panetelas E1 Roi Tan Cremo E1 Roi Tan Golfers 50 stk. kassi kr. 24.00 50 — — — 34.80 50 — — — 29.20 50 _ — — 15.00 Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má verðið vera 3% hærra vegna flutningskostnaðar. Tóbakseinkasala rikisins. GEITIN ^telur GRÆNMETI SLÆM OLÍA STELUR BENSÍNI eyðir vjelarafli til ónýtis, og peningnm. Veedol þjett- ir stimpla og ventla örugglega, dregur úr núningi, en það er aðal orsök óþarfa olíueyðslu. Þessvegna spara fleiri og fleiri hugsandi bílstjórar bensín, með því að nota betri smurningsolíu. KAUPIÐ VEEDOL, SPARIÐ BENSÍN THE EXTRA MILEAGE MOTOR OIL...DREGUR ÚR RENSÍNEYÐSLU BEST AÐ AUGLYSA I MORGUNBLAÐINU. Byggingarefni úr ís- lenskum leir FRAMH. AF ÞRIÐJU SfÐU. Ræsapípur. Múrsteinn. Auk þess margar tegundir lita, sem jeg mun síðar víkja nán~ ar að. ★ — Leirnámur eru aðallega tvær. Önnur á Vesturlandi, en hin á Austurlandi, og er hent- ugt að vinna múrstein og meiri hluta þessarar framleiðslu, við námurnar sjálfar. Tilraunir hafa vcrið gerðar um blöndun leirs og vikurs í múrsteinagerð, og bæði er vik- ur gott einangrunarefni og ljett- ir steininn í flutningum, sem verða að fara fram á sjó. Samkvæmt áætlun G. E. væri hægt að selja steininn frá verk- stöð á 7 aura stk. (venjuleg stærð og gerð) en 9 aura ef harðbrendur. Samsvarar það nákvæmlega verði múrsteina í nágrannalönd- um vorum, án tillits til gengis- munar. í hvern kúbikmeter til hús- bygginga fara um 400 steinar, og sjest því, að hjer er um fram leiðslu að ræða, sem yrði ekki eingöngu landsmönnum til hjálpar meðan styrjöld stend- ur, heldur hefði hún einnig framtíðarþýðingu, og þá ekki síst fyrir byggingu í sveitum. Frá fagurfræðilegu sjónar- miði er hjer einnig um þýðing- armikið atriði að ræða, því lit- ur og áferð brendra steina í húsagerð er einkar fögur og tilbreytingarík. Tilraunir hafa verið gerðar um bindingu vikurplatna með leir, í stað steinlíms, og hafa. þær einnig gefist vel. ★ Eftir þessari sömu áætlun. ættu glerjaðar flísar að kosta um 16 au. stk., frá verksmiðju, og þakhellur kr. 7,50—11,00 fermeter. Er það mun lægra verð á samskonar efni erlendu, sem hingað hefir verið flutt. Auk þess, sem hjer að fram- an hefir verið talið, mætti vinna. úr leirnum flest als, sem þarf til rafmagnsiðnaðar, svo sem glerjaða tengla o. s. frv., og til- raunir, sem gerðar hafa verið í þeim efnum standa fyllilega á sporði hinum erl. iðnaði á því sviði. Þó þarf hjer nokkur erl. efni til blöndunar, en sem ekki nemur meiru en 14 framleiðsl- unnar. Er sjálfsagt að þetta atriði sje einnig athugað til hlítar, því sú grein iðnaðarins úr brend- um leir, er hvað einföldust. ★ Minningarorð um Jón L. Hansson T ón Hansson, áður bóndi á Þór- ” eyjarnúpi, dó að heimili sínu hjer í bænum 22. þ. m. Hann dó í svefni, líklega af blæðing í heila. Verður hans minst hjer að nokkru. Ilann var fæddur á Jónsmessu 24. júní 1864 að Hvammi í Langa- dal í Húnavatnssýslu. Bjuggu þar þá foreldrar hans, Hans Natans- son skáld, og kona hans Kristín Þorvarðardóttir, síðast prests á Prestsbakka á Síðu. Fæddist Jón upp með foreldrum sínum, fyrst í Hvammi fá ár, og síðar á Þóreyjarnúpi til þess er faðir hans ljest á öndverðu ári 1887. Bjó Jón þar nokkurt skeið með móður sinni, og eftir það á ýmsum stöðum, svo sem Vatnshól 2—3 ár, en lengst á Syðri-Þverá í Vesturhópi allmörg ár, en milli þess, er Jón bjó, var hann svo árum skifti lausamaður, og þá einn vetur fjármaður hjá Magnúsi bónda í Hnausum, Steindórssyni, tókst með þeim' góð vinátta og hjelst siðan. Jóni búnaðist ávalt vei. Var áfalt vel birgur að heyjum og hjálpaði náungum sínum um hey, er þeir voru þrotnir. Hann var afburða góður fjármaður, og bar gott skyn á allan fjenað. Jón liafði ávalt gnótt í búi. — Vorið 1906 hóf hann verslun á Hvamms- tanga og mun hafa rekið hana þrjú ár, eitt þeirra ára voru harð- indi mikil, lánaði Jón þá mat- björg nauðstöddnm mönnum', svo að nam stórfje, og fjekk mikinn hluta þess aldrei góldinn, varð það verslun hans að falli og hon- nm sjálfum einnig fjárhagslega. Eftir þetta flutti hann vestur í Strandasýslu og síðan vestur í Þorskafjörð, og bjó þar nokkur ár, þar á meðal eitt ár á Hjöll- um, og var þar aleinn yfir fje sínu allan veturinn. Mun. slík ein- vera ekki heiglum hent, en Jón var hinn mesti kjarkmaður og kunni ekki að hræðast. Eftir 1920 flutti hann til Suð- urlands og ól hjer aldur sinn síð- an, ávalt glaður og reifur, hvern- ig sem bljes. Jón var einkennilegur í sjón, mjög skarpleitur í andliti og hvast tillit hans, nokkrn hærri en með- almaður á velli, holdgrannur og afar kvikiegur í öllum lireyfing- nm, hverjum manni skjótari og öruggari til úrræða. Jón bjó mör ár ókvæntur með Þorbjörgu Sigurðardóttur' frá Klömbrum, áttu þau 5 börn, og eru 4 á lífi: Hannes, kaupmaður hjer í hænum; Ögn, ógift, sauma- kona hjer; Gunnar, bílstjóri við Ltilu bílastöðina ,og Pjetur, lækn- ir nyrðra; en dóttir þeirra Hans- ína Kristín dó unv tvítugt úr óðiú tæringu. Jón var skýr maður að greind, ör í lund, tryggur vinum sínum, og um alt hinn mesti drenglynd- ismaður. Gestrisni hans var við- brugðið, hvar sem hann dvaldi, og hvort sem gnægtir alls voru fyrir liendi, svo sem, lengstum, eða á- valt var, fyrri hluta ævi hans, eða af litlu var að t.aka. Fyr í vetur tróðu helveg tvö stórmenni Húnavatnssýslu: Björn Eysteinsson og Hjörtur Líndal. Nú hefir hinn þriðji höfðingi úr Húna- vatnssýslu veitt þeim brautar- gengi: Jón L. Hansson frá Þór- eyjarnúpi. Ritað síðasta vetrardag 1940. Árni Ámason (frá Höfðahólum). — Þá vil jeg minnast nokkr- um orðum á litina. Rannsóknir þær, sem G. E. hefir gert fyrir H.f. Litir & Lökk, hafa sýnt það, og sannað, að hjer eru til næstum allir þeir jarðlitir, sem nota þarf, og auk þess um 60% af öllu fyllingar- efni í ljósa liti. Til þess að gera framleiðsluna viðráðanlegri og í samræmi við það, sem gerist víða erlendis, mætti hafa þá aðferð, að ákveða tsltekna liti til notkunar í sveit- um og að einhverju leyti í kaup stöðum. T. d. er danski bóndabærinn nær altaf málaður hvítur, með rauðu þaki. fslenskir fagmenn ættu að velja þá samsetningu lita á ísl. bóndabæinn, sem vel fellur í liti íslenskrar náttúru, Og ætti slíkt ekki síður, að geta bless- ast í strjálbýlinu hjer en í þjett- býli nágrannaþjóðanna. Rannsóknir á vinslu málning- arefnis eru mjög eftirtektar- verðar, og er samkvæmt þeim vinnanlegt í landinu mikið af slíku efni. * Það, sem hjer hefir verið drepið á, er sagt til þess að vekja athygli á rannsóknum Guðmundar Einarssonar frá Miðdal, en mjer virðast þær merkilegar, og tímabært að þær verði athugaðar í fylstu aivöru og komið í framkvæmd, að því leyti, sem talið er unt. Jeg sný máli mínu sjerstak- lega til byggingarmanna, sem nú standa með tvær hendur tómar. Stjórnarvöld landsins, sesn þetta mál varðar, eru skyldug til þess að taka nú þegar til at- hugunar að hve miklu leyti til- tækilegt er, að vinna innlent byggingarefni úr íslenskum Ieir. Það er búið að tefja nóg fyrir þessu máli með skammsýni, þótt nú sje loks hafist handa þegar að kreppir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.