Morgunblaðið - 09.05.1940, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
■í-------------í—
Fimtudagur 9. maí 1940»
Minningarorð um
Haildóru Dórarinsdóttur
T71 rú Halldóra Þórarinsdóttir
andaðist í St. Josephssjúkra-
htisinii föstndaginn 5. apríl s.l. o"
yar til grafar borin fimtudaginn
18. s. m.
’ Var hún fædd 9. apríl 1888, að
Flankastöðum á Miðnesi, og kom-
in af merku fólki í báðar ættir.
Voru foreldrar hennar bænda-
íjónin Þórarinn Eiríksson og
Kristín Magnúsdóttir, mjög mæt
óg vel látin hjón. Þórarinn ólst
upp hjá Páli prófasti Pálssyni í
Hörgsdal, og var í föðurætt kom-
inn af búhöldum góðum í Vestur-
Skaftafellssýslu, sonur Eiríks
bónda að Fossi á Síðu, Jónssonar
* '
í Mörtungu, Eiríkssonar að Fossi,
Sigurðssonar hreppstjóra, Eiríks-
sonar að Fossi. Móðir Þórarins,
Halldóra Ásgrímsdóttir, var hins-
▼egar náskyld sjera Ólafi Páls-
syni, og komin af ísleiki klaust-
urhaldara Ólafssyni. Kristín var
dóttir Magnúsar prests Norðdah!
að Sandfelli í Öræfum (Jónssonar
prpsts, Magnússonar sýslumanns,
Ketilssonar) og konu hans, Rann-
veigar Eggertsdóttur prests,
Bjamasonar landlæknis, Pálsson-
ar, en kona Bjarna var Rannveig
dóttir Skúla landfógeta, Magnús-
sonar.
Frá Flankastöðum fluttist Hall-
dóra, þegar hún var tveggja ára,
með foreldrum sínum, að Löndum
í sömu sveit, og var þar til 16 ára
aldurs, er faðir hennar ljetst.
Fluttist hún þá til Reykjavíkur,
með móður sinni og bróður,
Magnúsi formanni hjer í bænum.
Seinna var hún á heimili Jóns
koungsritara Sveinbjörnssonar,
bæði hjer í bænum og Kaupmanna
höfn. Var hún og þar um skeið
á heimili frænda síns, Magnúsar
ráðherra Jónssonar, og lærði
margt nytsamt og gott á báðum
þessum heimilum.
I Kaupmannahöfn stundaði
Halldóra nám á hússtjórnarskóla
og síðan á hannyrðaskóla. Og jafn
an var hún fróðleiksfús kona, sem
las mikið af fræðandi og göfg-
andi ritum.
Vorið 1908 kom hún aftur heim
til fslands, og settist að hjer í
bænum. Naástu árin þar á eftir
kendi hún hannyrðir, og fleiri
störf hafði hún með höndum.
Hinn 7. okt. 1910 giftist hún
eftirlifandi manni sínum, Andrjesi
klæðskerameistara Andrjessyni,
og bjuggu þau hjer í bænum öll
sín hjúskaparár. Eignuðust þau
tvö börn, Þórarinn, sem býr hjá
föður sínum og starfar sem með-
eigandi við hina umfangsmiklu
verslun hans, og Hólmfríði, sem
ooc*ooooooooooooooc
í
6 Lokafundur vetrarins í Guð- ó
X spekihúsinu í kvöld kl. SV2■ A
ó Forseti: Hvers vegna leyna A
X þeir nöfnunum! Erindi. Frú Y
X Gíslína Kvaran og hr. Einar X
Y Loftsson: Frásagnir. 0
0 STJÓRNIN. 0
<><><><><><><><><><><><><><><><><><>
Halldóra Þórarinsdóttir.
gift er Svanbirni aðalfjehirði Frí-
mannssyni.
Halldóra var fríð kona og glæsi-
leg og framkoma hennar svo fág-
uð, sem höfðingskonu sæmdi. Hún
var greind og sannmentuð, leit-
aðist við að læra af lífinu — rök-
hugsa — og notfæra reynsluna
sjer og öðrum til göfgis og
þroska. „Ef menn vanrækja
þetta“, sagði hún, „verður sál vor
aðeins tálblik, án blessunar fyrir
oss sjálfa og aðra og án innihalds
fyrir eilífðina, sem framundau
er“. Hún var mjög tilfinningarík,
en svo styrk í lund, að jafnvægi
var ávalt á geði hennar, jafnt í
gleði sem andstreyuni.
Heimilið annaðist hún af mikilli
skyldurækni, prýddi það af smekk
vísi og breiddi umhverfis sig
birtu og yl, enda skorti hana ekki
hæfileika, mentun nje afbragðs
handbragð, til þess að skapa fyr-
irmyndarheimili. Hún var höfð-
ingi heim að sækja, innileg í við-
móti, glaðlynd og ör í útlátum.
Manni sínum var hún hin besta
stoð og stytta, og var sambúð
þeirra hjóna mjög farsæl, og
börnum sínum var hún kærleik3-
rík móðir, enda var hún elskuð og
virt af eiginmanni og börnum.
Hjúum sínum var hún umhyggju-
söm og Ijet sjer ekki einungis ant
um þau, meðan þau dvöldu hjá
henni, heldur fylgdist hún með
þeim löngu eftir að þau voru frá
henni farin. Hún var mild við þá,
er voru minni máttar, og margra
götu greiddi hún og sýndi kær-
leika í verkinu, þótt dult færi.
Hún var mjög ráðholl, og leituðu
margir ráða hennar.
Á síðastliðnu hausti kendi Hall-
dóra þess sjúkdóms, er að lokum
svifti hana lífinu. Dauðastríðið
háði hún ;með sönnu þolgæði og
hetjuró, æðrulaust afbar hún
þrautirnar og þjáningamar og
brosti við þeim, er til hennar
komu, hvetjandi og gleðjandi þá
fram til hins síðasta. Þessa geðró
0g stillingu og hve bjart var yfir
henni, þrátt fyrir þjáningar, mun
ekki hvað síst mega þakka þeim
áhrifum, er hún hafði orðið fyrir
árum saman við störf að sálræn-
um rannsóknum með manni sínum.
Þessi áhrif munu hafa veitt birtu,
friði og sælu inn í sál hennar.
Halldóra Þórarinsdóttir var
mjög vinsæl kona og kom það
Ijósast fram við útför hennar.
Allir þeir, er henni kyntust, munu
jafnan minnast hennar sem einn-
ar hinnar mætustu konu þessa
bæjar. Ludvig C. Magnúss.on.
Samþyktirnar aðfaranótt 10. apríl
FRAMH. AF ÞRIÐJXJ SÍÐU
heyrist enginn framar minnást á
þessa atburði.
Einhverntíma hefði það þó þótt
tíðindum sæta að þjóðin fengi
aftur í sínar hendur æðsta vald í
öllum málefnum ríkisins, eftir
nærfelt 700 ára bið.
En nú er eins og enginn veiti
þessu athygli; öllum standi á
sama. Hvernig stendur á þessu
andvaraleysi, sem nálgast því að
vera hirðuleysi um mikilvægustu
mál þjóðarinnar? Orsökin er án
efa sú, hvernig málið bar að. At-
burðirnir, sem knúðu fram að-
gerðir Alþingis, voru svo alvar-
legs eðlis og örlagaríkir, að þeir
tóku upp alla hugi manna. Inn-
rásin í Danmörku og Noreg minri
óþyrmilega á nærveru hins ægi-
lega hildarleiks. Á hvaða augna-
bliki sem var gat röðin komið að
okkar eigin landi. Þetta viðhorf
varð orsök þess, að þjóðin veitti
ekki sjerstaka athygli hinum
mikilvægu ákvörðunum, sem tekn-
ar voru á Alþingi aðfaranótt 10.
apríl. ★
Alþingi fór í aðgerðum sínum
ekkert út fyrir það, sem var óhjá-
kvæmileg nauðsyn, vegna ástands-
ins, sem skapast hafði. Það gerði
enga breyting á sjálfu stjórn-
skipulaginu. Þingbundin konungs-
stjórn er áfram það stjórnskipu-
lag, sem hjer ríkir. Aðeins hefir
sú breyting á orðið, að valdið,
sem konungi er fengið í stjórn-
arskránni, hefir til bráðabirgða
verið falið ráðuneytinu, vegna!
þess að konungi er ókleift að
framkvæma valdið.
En þótt Alþingi hafi í ákvörð-
unum sínum látið líta svo út sem
hjer væri aðeins um bráðabirgða-
ráðstöfun að ræða, sbr. orðin „að
svo stöddu“ í þingsályktununum, '
getur vitanlega svo farið, að á-1
standið, sem nú ríkir hjá sam- j
bandsþóðinni, vari það lengi, að
þingið verði að gera aðrar og
meiri ráðstafanir. Það er ekki
hægt í þingræðislandi að búa til
lengdar við það ástand, sem hjer
ríkir nú, að æðsta valdið í mál-
efnum ríkisins sje í höndum
pólitískra ráðherra. Slíkt fyrir-
komulag er gagnstætt eðli og
grundvallarreglu þingræðis og
lýðræðis. Að við getum til bráða-
birgða unað þessu, stafar af því,
að svo heppilega vill einmitt til
nú, að hjer ríkir stjórn, sem hefir
stuðning nálega allra flokka þings
ins. Ef hjer ríkti flokksstjórn,
myndum við ekki geta unað þessu
fyrirkomulagi stundinni lengur.
Fari því svo, að ástandið, sem
nú ríkir hjá sambandsþjóðinni,
verði óbreytt þegar Alþingi kem-
ur saman aftur , verður óhjá-
kvæmilegt að gera nýja skipan á
þessi mál.
Alþingi hefir það á valdi sínu,
að gera hvaða þá skipan á þess-
um málum, sem því þóknast. Það
getur ekki að neinu leyti verið
bundið ákvæðum saihbaridslag-
anna, eins og nú er komið. Allur
grundvöllur sambandslaganna er
hruninn. Það er nauðsynlegt að
við gerum okkur þetta ljóst strax,
til þess að forðast óþægindi og á-
rekstra síðar.
★
En hinu megum við ekki gleyma '
íslendingar, að mikil ábyrgð og
vandi fylgir því starfi, sem við
höfum nú. fengið í hendur óvænt
<og óundirbúið. Utanríkismálin
eru vandasöm og flókin, ekki síst
á þessum viðsjárverðu tímum. Þau
krefjast mikillar þekkingar og að-
gæslu.
Því miður höfum við vanrækt
að búa þjóðina undir það, að taka
utanríkismálin í sínar hendur að
öllu leyti. Og því er það mikið
happ fyrir okkur, að eiga nú á-
gætan mann, Svein Björnsson
sendiherra, mann, sem hefir hlot-
ið mikla reynslu og ágæta þekk-
ingu í meðferð utanríkismála.
Sendiherrann mun nú koma heim
til þess að leggja grundvöllinn að
skipan þessara mála, enda ríður á
að þar verði engin mistök á.
Það er okkur mikill styrkur í
því vandasama og ábyrgðarmikla
starfi, sem nú er að hefjast, að
tvö stórveldin, Bretland og Banda
ríkin, hafa þegar viðurkent það
ástand, sem skapast hefir fyrir
rás viðburðanna. Þau hafa tekið
upp bein stjórnmálaskifti við
stjórn landsins. Þau senda hingað
„diplomatiska1 ‘ sendimenn og
veita móttöku sendimönnum frá
okkur. Þessar skjótu og góðu und
irtektir hinna voldugu stórvelda,
er ómetanlegur styrkur fyrir okk-
ur, enda ríður á, að vel verði sjeð
fyrir okkar málum í þessum lönd-
um. J. K.
Esja kom til ísafjarðar kl. 6Vs
í gærkvöldi.
B.S.I.
Símar 1540 þrjár línur.
Góðir bílar.-------Fljót afgreiðsla.
iae>
Tilkynniö flutninga
á skrifsfofu rafmagnsveif*
unnar, Xfarnargöfu, 12,
sími 1222, wegna mæla*
álesfurs.
Rafmagnsveifa Reykjavíkur.
Dagheimili Sumargjafar
Tekið er á móti umsóknum fyrir börn dagleg-a í Grænu-
borg og Vesturborg kl. 5—6, til 16. maí.
Fundur
verður haldinn í Starfsmannafjelagi Reykjavíkurbæjar
í Kaupþingssalnum annað kvöld kl. 8y2. — Fundarefni:
1. Úrslit fulltrúaráðskosningar. 2. Önnur mál.
Stjórnin.
FYRIRLIGGJANDI
AGÚRKUR — SALAT — CÍTRÓNUR
KARTÖFLUR.
Eggert Krisfjánsson & €o. li.f.
-- Sími 1400. -