Morgunblaðið - 21.07.1940, Síða 6

Morgunblaðið - 21.07.1940, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 21. júlí 1940„ ÚR DAGLEGA LlFINU ooocxxx ocxxxxx i Ingreldur Einarsdóttir á Suðurgötu 2f hefir sent blaSinu greinarkom um hátíðina á Þingvöllum, eins og hún kom henni fyrir sjónir. En margir, sem á Þingvöllum vora þá daga munu minn- ast hátíðarinnar í svipuðu ljósi og hún. Grein hennar er svohljóðandi: ★ Það var hátíð í vændum. Alt bar þess merki; sölubúðir, vinnustaðir, svipur manna og samtal — og ekki síst blöSin. Margir hlökkuSu til, aSrir ljetu sjer fátt um finnast alt þetta „tilstand“ og þann kostnað sem af því mundi leiða. E|h hátíðar væntu þeir samt sem áður. Gat nokkur verið með öllu ósnortinn af þessum hátíðarhug Jeg veit það ekki, en IítiS var jeg hátíSlega sinnuS um þessar mundir. Kvenfólk var yfir- leitt í önnum, og dróst jeg inn í ein- hvem hluta þeirra, en hugði als ekki til ferðar. En þá kom „Hvítabandið" til sögunnar. Pundi var skotið á og sam þykt að hafa veitingar á Þingvöllum meðan hátíðin stæði yfir, og skyldi ár góSanum variS til sjúkrahúss fjelagsins, sem þá var óskahugsjón þess. ★ Við vorum 8, Hvítabandskonur, sem tókum stöðugan þátt í þessari veitinga- starfsemi, undir forustu okkar ágætu framkvæmdakonu, Rigurbjargar Þor- láksdóttur. Pyrsta hátíðardáginn (fimtud.),' þég- ar allur mannfjöldinn þusti upp í Al- mannagjá til að hlýSa á ræðu biskups og ávörp erlendra gesta, þá gengum við frá tjöldum okkar eftir föngum, og fylgdumst allar með straumnum. Sú stund mun flestum viðstöddum minnisstæð, þegar sólin rauf skýin og brosti gegnum regntárin, við börnunum sínum, stórum og smáum. Það var hátíH í orðsins fylstu merkingu. Mannfjöld- inn mikli virtist dásamlega samstiltur yið hjartastað landsins okkar. * Seinna skiftumst við á, eftir því sem störf okkar leyfðu, að draga að okkur ilm skógarins, og sjá okkur um. Jeg leitaði að kunningjum mínum í tjald- borgirmi". Hvarvetna mætti mjer glað- yærð, hjálpsemi, og átthaga tilfinning. Ókunnugt fólk var komið í sanital við mann áður en varði og var umræðu- efnið líðandi stund, og svo oftast átt“ hagar viðkomanda, sem fúslega sagði til sín. Jeg man eftir norðlenskum bónda, þvað hann var gagntekinn af öllú sem þama var að sjá og heyra. Pórust hon- úm orð á þá leið, að sjer virtist alt dautt og lifandi anda til sín orðunum : „Frjál.s í frjálsu landi“. Kona, sem jeg þekti lítið eitt, kom á móti mjer allshugar fagnandi í betra skarti en hún hafði nokkru sinni áður átt, hún hafði lagt á sig sjerstakt erf- iði í viðbót við baruaheimili sitt, til þess að geta fengið s.jer ný föt, og komist á Þingvöll þessa daga. Og henni fanst það sannarlega borga sig. ★ Aðfaranótt laugardags í yndisblíðu veðri reikaði fólk um í smáhópum, var síst að furða, þó ekki vrði öllum svefn- samt í glóbjartri fegurð og dillandi fuglasöng. Nokkrir piltar staðnæmdust nálægt t.jöldum okkar. Við urðum hálf- hræddar um ölflöskur okkar, sem lágu þar í bunka ilja vferðar, og lyftum við npp tjaldskiírinni til að líta eftir þeim. Gekk þá einn drengjanna fram, nefndi nafn sitt, og bætti við: ,,Jeg er frá Ön- pndarfirði. — Önfirðingar stela ekki öli“. Svo gengu drengirnir kurteislega leiðar sinnar. Guð og gæfan fylgi þeim, hvar sem þeir fara. Þannig mætti lengi tel.ja, alt benti til þess, að það besta í mönnum fengi not- ið sín og ánæg.julegt er að mínnast heildaráhrifa þessara sjerstæðu júní- daga á Þingvöllum 1930. Loftvaroirnar FRAMH. AT ÞRIÐJH afeHJ. af þyí getur stafað sú tregða, sem lýsír sjer í framkvæmdum þeirra varna á lífi og limum al- mennings, sem með öðrum þjóðum hafa verið taldar sjálfsagðar. I erlendum blöðum hefir und- anfarið ár verið rætt um varnar- ráðstafanir, sem lijer hafa naum- ast verið nefndar á nafn. I Finn- landi t. d. flúði fjöldi fólks borg- irnar áður én 'til voþnaviðskifta kom milli Pinna og Rússa. Styrj- öld sú fór fram með alt öðrum hætti en búist vár við, mótstaða Pinna meiri. Brottvist borgarbúa frá heimilum sínum um hávetur var erfið, og margir sneru aftúr til borganna, sem flúðu í fyrst- unui, áðnr en styrjöldinni vai’ lokið. Því þá þótti óvíst, hve lang- an tíma þetta tæki alt saman. , I hinum fyrnefnda leiðbeininga bækl ingi Lof tvarnanef ndarinnar er um það talað í formála, að litl- ar Jíkur verði nð telja til .þess, að ^nokkurntíma komi hjer til loft- árása, að ráðist verði með dráps- éjidniw á íbúa þessarar litlu höf- uðborgar, sem í anda og sann- leika er i«g hefir verið einhver friðsamasta höfuðborg í heimi. En úr því yfirvöldin telja rjett að telja slíkt innan takmarka þess' mögulega, þá ætti su hlið máls- ins Jíka að koma til greina, áð fólk, sem á heimangengt, hugsaði til þess, hvort ekki væri ráð að hverfa úr bænum eitthvert það tímabil, sem að öðru jöfnu yrði talið hættulegast. ★ l, Það heíir verið logn á styrjalcl- arsviðinu nú um skeið, og almenf talið að það sje undanfari óveð- ursins í síðasta þætti þessarar viðureignar stórveldanna. Enginn getur giskað á, • hve langur sá þáttur verður. En allar -líkur ern til þess, að upphafið sje ekki Jangt undan Jandi. Að ekki verði þess langt að bíða þangað" til sjeð er. hvernig sá þáttur byrjar. YaTaTausf líta menn misjafnlega á það, hvort þeir kjósa heldur vera í Reykjavík eða utan Reykja víkur, þegar styrjöldin byrjar í algleymingu að nýju. Má vera, að þeir smn kjósa að vera utanbæj- ar, hugsi sem svoj að nægur tími sje til þess að athuga það, þegar sjeð er, hvernig' upphafið verður. En ef það á einhvern hátt hegg- ur riærri okk'ur, þá er ekki alveg ví.st. að eins verði greiðfært hjer um nágrennið eins og við eigum að venjast. Þær einu stundir, sem herlið hefir tekið upp vopn h.jer á landi, að morgni þess 10. maí, þá var umferð stöðvuð á vegunum til og frá Reykjavik, af hernað- arástæðum. Qg eftir revnslu þá, sem fjekst í'Frakklandi, þar sem flóttafólk. frávita af angíst og hræðslu, fylti vegi og torveldaði alla umferð á þeim, hafa rnenn hugleitt, að stemma mjög eindreg- ið stigu fyrir því, að slíkt komi fyrir aftur. Það væri ekki óéðlilegt, þó þessi ntál yrðu tekin til athugun ■ ar, hvort leiðbeiningum Loftvarna nefndar hefir verið fylgt, og að hve iniklu Jeyti, hvernig fólk hugsar sjer að flytja úr Reykja- vík, ef ^það „ólíklega skeði„ að ó sköpin dyrrdu hjer yfir. Reykjavíkurbrjef FRAMH. AF. FIMTU SÍÐU. Liðni tíminn. | ónas Jónsson vjek að þvííhlaða J grein hjer um daginn,. að honum hefði orðið mikil uppþefð og fremd að því, hve mikið hefir á undanförnum áfum verið um hann talað hjer í blaðinu: Þetta er vafalaust rjett hjá honum. Slík auglýsingastarfsemi hefir vakið mikla eftirtekt á honum, marg- falt meiri effirtekt, en persónu- legir verðleikaf hans standa til. En hann hefir Iíka haft sjerstöðu í þjóðfjelaginu, aðstöðu, sem eng- inn Islendingur hefir haft, hvorki fyr nje síðar. Miljónáfýriftæki hefir haldið úti blaði, sem haiui hefir notað nú í tvo áratugi til þess fyrst og fremst að skrifa hóí um sjálfan sig, og draga fram í dagsljósið þau einkenni samtíðar- innar, sem finna mesta samúð hjá honum sjálfum. Og þar er meðal- menskan, hroðvirknin og hunda- vaðshátturinii; Að vita aldrei neitt til hlítar. Að gana áfram, eitt í dag og annað á morgun. Að þykj- ast vinna að viðreisn sveitanna. en þurfa eftir tuttugu ár að berjast fyrir því, að lokað verði með valdboði fyrir flótta fólksins til Reykjavíkur úr þessari tví- tugu viðreisn. Að þykjast vinna fyrir mentun sveitaæsku. En láta staðar numið vlð þá uppbyggingu þegar komin eru upp hlý hús. Laugahiti blæ$ ekki andlegu lífi í störf skóla, ef leiðtogar skólanna eru steingerfingar úr pólitískvi „fabrikku“ Jónasar Jónssonar. Svona mætti lengi telja. Maðurinn er samnefnari áf ó- kostum sa'mtíðarinnar. Þessvégiia ber hann oft á góma. En það er ekki honum til lirósg að svo er. Það er ekki nejna vottur um vanþroska þjóðarinnar hve lengi hún stendur á eða ná- lægt þroskastigi hans. Sjálfur stendur hann í sömu sporum og fyrir 20 árum, þegar þjóðin va" svo kyrstæð, að mönnum fanst það stórstreymi, sem var ekki ann- að en lítilsháttar buslugangur mest um hans eigin persónu. Er nú sýnilegt, að , vel þokast áfram í rjetta átt, síðan samflokks menn þessa vel auglýsta öndveg- ismanns hins hverfandi hunda- vaðsháttar hafa ýtt honnm , úr s.tjórnaraðstöðu, og gert þentiá höfund Pramsóknarflokksins að þólitískum próventukarli. SfldveiDin FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU voru þessi skiþ komiti tii Djúpu- víkur: Rifsnes með 964 mál, Rán 1364, Von 992, Garðar í Hafnar- firði 2865, Sigrún, Akranesi 508: Mörg skip voru væntánleg- tij Djúpuýíkur í nótt. Súm skipauna koma alla leið austau frá Langa- nesi, eu önnur af Grímseyjarsundi. Síldin þaðan, er til Djúpuvíkur kemur, er með um 19% fitu- magni. Leikreglur í. S. í. eru nýkomn- ar út og verða seldar á morgun á íþróttavellinum, áður en Alls- ,herj arinótið byrjar. Ólafur Jónsson lögregluþjónn \ morgun verður jarðaður Ólafur lögregluþjónn Jóns- son, góður og- velmetinn borgari, er nær því hvert mannsbarn hjer í bæ þektu, að fornu og nýju, og allir að góðu einu, þeir, er veru- lega kyntust honum. Ólafur var fæddur 10. júlí 1864, en dó 16. júlí 1940 og avrð því 76 ára að aldri. Foreldrar hans voru Jón bóndi í Neðra Nesi í Stafholtstungum Stefánsson og kona hans Marta, dóttir sr. Stefáns Stephensens prests á Reynivöllum. En faðir Jóns var sr. Stefán Þorvaldsson prófastur í Stafholti. Eru þessar ættir, Þorvaldsættin og Stephen- sensættin, svo landskunnar, að ó- þarft er að skilgreina þær nínar. Báðar kunnar embættismannaætt ir. Bróðir Jóns í Neðra Nesi var sr. Þorvaldur í Jlvammi, fgðir Bene- dikts heit. iGröndal yngsta skálds, Árna , yfirkennara og síra Jóns heitins á Stað á Reykjanesi, Ólafur misti föður sinn er liann var fjögra ára gamall, og- ólst eftir þáð upp hjá afa sínuín síra Stefáni í Stafholti, tók hann að nema búfræði, og tók próf í bú- vísindum, varð svo skólastjóri á Hvanneyri í tvo vetur, en flutti þaðan til Akraness og síðan til Reykjavíkur og- varð hjer lög- regluþjónn 16. mars; 1906 og gegndi því starfi tií 1. sept. 1934, er hann ljet af storfum. Ólafur var tvígiftur. Pyrri kona hans var Ragnhildur Pinnsdóttir frá Mýðalfeííiiþg fór hún til Ame- ríku. Hin síðari kona hans var Yalgerður dóttir Einars umböðs- manns í Kaldaðarnesi Ingimund- arsonar; þau giftust 11. febr. 1893, en Valgerður dó 22. maí 1914. Varð þeim þriggja barna auðið, Stefáns vatnsveitustjóra á Akur- eyri, er dói frá konu og börnum 7. nóv. 1928, og tók þá Ólafur fjölskyldu hans að sjer. Var Stef- án einn af bestu skákmönnum okkar, og var mikil eftirsjá að honum ■ Marta Ingibjörg, sem alt- af, hefir verið með föður sínum og Jón Árni, er dó eins árs gam- all. Sonur Valgerðar áður en hún giftist er OJafur Sveinsson vjel- setjari og ólst hann upp með móð- ur sinni og stjúpa, Systkin Ólafs voru sr. Stefán prófastur á Staðarhrauni og Guð- rún Elísabet, kona sr. Arnórs á Hesti. Það er euginn vafi á því, að allir, er kyntust Olafi, bera til hans mjög lilýjan hug. Hann var sjerstaklega skapgóður og ljúfur í allri umgengni, en jafnframt smá gamansamur og fjörugur í samræðum. Hann kunni gnægo J gafnansagna og vísna, en' gætti þess mjög að særa aldrei aðra, 'fanst mjer það gilda jafnt fjarstadda sem viðstadda menn. Tel jeg hann efalaust með grand- varari mönnum bæði til orða og verka. , Olafur var vel gefinn. Að vexti var hann hár og þrekinn. Ilann var mjög vel hagmæltur og Ijett um að yrkja, þó Iiaim Ijeti ekki mikið á því bera. En athyglisverl: er í því sambandi, að allir synir sr, Þorvaldar föðurbróður hans, er jeg hefi getið fyr, eru mjög vel hagmæltir menn. Er þó nokk- uð til af kvæðum og vísum eftir Ólaf heitinn. Ólafur heitinu gerðist góðtempl- ar 7. febr. 1897, var hann þá á Akranési, en æðsta stig Góðtempl- arareglunnar tók hann 12. júlí 1909. Vann Ólafnf fýrir stúkn sína, st. Pramtíðin, eftir því er hann gat viðkomið, én það er nægilegt til að sýna álit það og traust, er hann naut meðal templ- ara, að geta þess, að hann var heiðursfjelagi stúkunnar á Akra- nesi. Þeir eru margir, sem hafa sturf að með Ólafi, bæði sem templarar og líka í öðrum störfum háns í þágu þjóðfjelagsins, en allir munu sammála um, að þar hafi góðnr maður verið, sem Ólafur var, og .senda honum þakkir fyr- ir samveruna. Þeir vita, að hinu megin við tjaldið, þar sem- hann nú er, hlýtur að taka við það, sem er betra og æðra en það, sem hjer ríkir. P. Z. írar hafa búist til varnar Reuter-frjettastofan skýrir frá því, að 'skipun hafi nú ver- ið komið á lándvarnamál Eire. Eire hefir verið skift í 8 land- l arnasvæði,'og landvarnaliðið er nú skipað 1.70 þús. nxönnum. I Eitglaiidi er fylgst mjög ná- kvæinlega nxeð landvarnamálum Ira, þar sem það er talið, að örð- ugleikar Breta mvndu vaxa mik- ið, ef þeir yrðu að verja England samtímis úr tveinx áttum, að aust- an og vestan (frá Irlandi). BREYTINGIN Á YFIR- HERSTJÓRN BRETA. Opinberlega er sú skýring gefin í London á því, að Allan Brooke hers- höfðingja hefir verið fal- in yfirstjórn landvaranna í Englandi í stað Sir Edmunds Ironsides, að nauðsynlegt hafi verið að yfirherstjórnin væri í höndum manns, sem aflað hefði sjer reynslu í orustunum í Flan- dern. Allan Brooke stjórnaði 2. hersveit (army corps) Breta í Flandern og átti mikinn þátt í brottflutningi breska herliðsins frá Dunkerque. Hann er m. a. sagður hafa rík an skilning á hreyfingarstyrjöld og á þýðingu vjelknúinna her- gagna í ófriði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.