Morgunblaðið - 15.08.1940, Side 2
2
MORGUNELAÐIÐ
Fimtudagur 15. ágúst 1940.
Hafa fallhlífarhermenn
lejit í Englanði?
Lögregla, herlið og landvarnaliöið
leitar að fallhlffarhermönnum
Nokkað lál á lofl.
bardðgum i gær
ÞAÐ YAR KUNNGERT í Bretlandi í gær, að á
nokkrum stöðum í Mið-Englandi og í Skot-
landi hafi fundist allmargar þýskar fallhlíf-
ar og því sje hugsanlegt, að þýskir fallhlífarhermenn hafi
Ient á þessum stöðum.
Seint í gærkvöldi var ekki búið að hafa upp á nein-
um fallhlífarhermönnum og öryggismálaráðuneytið breska
sagði, að engar sannanir væru fyrir hendi, sem bentu til
þess, að fallhlífarhermenn hefðu lent á enskri grund.
HERBRAGÐ ÞJÓÐVERJA?
1 tilkynningunni er sagt á þá leið, að hugsanlegt sje, að
þessum fallhlífum hafi verið varpað niður í-iþeim tilgangi, að
koma á stað sögum um að þýskir fallhlífarhermenn hafi lent í
Englandi og skapa með því ringulreið og ótta meðal almennings.
Lögreglulið, herlið og menn úr landvarnaliðinu
hafa verið sendir út á þeim stöðum, þar sem fallhlíf-
arnar fundust, til að leita að fallhlífarhermönnum.
Einn þýskur hermaður var handtekinn í gær í skógi einum
á Suður-Englandi, en það var flugmaður, sem hafði bjargast
í fallhlíf, er flugvjel hans var skotin niður daginn áður í loft-
orustu.
Það er nú orðin skoðun margra
manná í Englandi að Þjóðverjar
sjeu þegar byrjaðir á fyrsta
þætti. innrásarinnar í England
og m. a. Ijet Anthony Eden orð
falla í þá átt í ræðu, sem hann
flutti í útvarp til Ameríku í
gærkvöldi.
TROMPIN
Á HENDI
ÞJÓÐVERJA
Þjóðverjar reyna heldur ekki
til að draga neitt úr þessari
skoðun og í gær var svo frá
skýrt í útvarpi frá Berlín, að
Þjóðvérjar hefðu enn ekki spil-
að út’SÍnum bestu spilum í þess-
ari styrjöld.
VEÐUR HAMLAR
LOFTORUSTUM
í fyrsta skifti í gærmorgun
síðan um helgi, komu þýskar
flugvjelar ekki strax í dögun
yfir til Englands. Þær Ijetu bíða
eftir sjer þar til eftir hádegi.
Þetta er skýrt þannig í Ber-
lín að slæm flugskilyrði hafi
hamlað, enda var minna um
loftbardaga yfir Englandi í gær
en fyrri daga vikunnar.
FLUGVJELA-
TJÓNIÐ
Breska flotamálaráðuneytið
tilkynti í gærkvöldi, að í loft-
orustu í gær, hafi alls 20 þýsk-
ar flugvjelar verið skotnar nið-
ur, þar af 3 með loftvarnabyss-
um.
Sjálfir segjast Bretar hafa
mist 4 flugvjelar, en einn flug-
mannáffiia hefði bjargast.
Þjóðverjar segjast hafa skot-
ið niður 22 breskar flugvjelar
irtfti
yfir Englandi í gær og sjálfií
mist fimm.
Þýsku flugvjelarnar gerðu
loftárásir á svipuðum stöðum á
suðurströndirjni, í gær, og hina
fyrri daga vikunnar.
Bretar viðurkenna, að sprengj-
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU
Albaninn sem var
myrtur, var morðingi
og (jjófur (,s2Sr)
¥talir halda áfram árásum sín-
*■ un> á Grikki, en nú hefir
ásökunum ítala verið svarað í
grískum blööum.
Grikkir segja, að ekki sje
neinnJtíÉLU* fyrir því, að Alban-
inn, áém mýrtur var, hafi verii?
drepinn vegna stjórnmála.
Þessi mápur hafi heldur ekki
verið nein albönsk sjálfstæðis-
hetja, heldur mórðiligi og þjóf-
ur, sem tveir Albanir hafi drep-
ið vegna glæpa hans.
Grísku blöðin segja, að maður
þessi hafi tvívegis verið dæmdur
fyrir morð og oft fyrir hesta- og
naugripaþjófnaði. Einu sinni
hafi hann verið dæmdur fyrir
ofbeldi og morðtilraun.
Grisku blöðin vísa á bug öjI-
um ásökun Itala og telja morð-
ið á morðingjanum og þjófnum
ljelegt skálkaskjól til að sprlla
sambúð Grikklands og Ítalíu.
»
Oeirðir
6 Danmörku
og Tjekko-
slóvakiu
8 menn handteknir
í Kaupmannahöín
FRÁ DANMÖRKU bárust fregnir í gær um ó-
eirðir, sem áttu sjer stað í Kaupmannahöfn 3.
ágúst síðastliðinn. 8 ungir Danir hafa verið
handteknir.
Eftir því, sem næst verður komist um óeirðirnar,
urðu þær á milli Dana og þýskra hermanna.
Þeir 8 Danir, sem handteknir hafa verið, hafa allir
verið dæmdir og voru þeir dæmdir í alt að tveggja ára
fangelsi.
Hinum ákærðu var meðal anpftrs gefið að sök, að þeir hefðu
klippt í sundur hersímalínur þýska hersinl; og reynt að koma á
stað óeirðum og trufla þýska Jjermenn í starfi þeirra. iv
Dómsmálaráðherrann danski hefir í ávarpi til dönsku þjóð-
arinnar hvatt almenning til þess að sýna hinum þýsku hermönn-
um ekki neinn mótþróa og fotðást allar erjur y.ið þá,, þar sem
slíkt gæti leitt til alvarlegra atburða.
Til oryggis
sjómönnum: Nýjar
upptinniBgar
Bresk skip og skip í þjón-i
ustu Breta, hafa nú
fengið tvö ný áhöld, sem
auka mjög á öryggi sjó-
manna, sem sigla á skipum
þessum.
Eru þetta nýjar uppfinn-
ingar sem búið er að reyna
og verða nú sett í öll skip.
Annað er dufl, sem á
sjálfvirkan hátt losnar við
skipið, ef það sekkur og flýt-
ur í sjónum.
Lýsir duflið með rauðu og
hvítu ljósi sem sjest all-langa
leið.
Auk þess er komið fyrir á
dufltoppnum merkjaljósum,
er senda út stanslaust langan
tíma alþjóðaneyðarmerkið
S. O. S.
Hitt öryggisáhaldið er
fleki, sem festur er á þilfar
skipa með slíkum útbúnaði,
að hægt er að losa flekann
með því að spyrna fæti á á-
kveðinn stað og rennur þá
flekinn út á sjó.
Flandin
eftirmaður
Petains ?
TT'regnir frá Frakklandi
herma, að búast megi við
stjórnarskiftum í Frakklandi
mjög bráðlega, og er Flandin
fyrverandi ráðherra nefndur
sem eftirmaður Petains.
Á því er ekki nokkur vafi,
að öngþveiti ríkir mikið í
þeim hluta Frakklands, sem
ekki er á valdi Þjóðverja og
takist stjórninni ekki að leysa
úr mestu vandamálimum á
næstunni, er stjómarbreyting
talin óhjákvæmileg.
★
Pierre Etienne Flandin er
51 árs að aldri. Hann hefir
verið formaður vinstri lýð-
veldisflokksins um alllangt
skeið. Hann kom á þing 1914
og varð verslunarmálaráð-
herra 1924, í ráðuneyti Mar-
sals og aftur í ráðuUeyti Tar-
dieu 1929—’30, fjármálaráð-
herra var hann einnig nm
skeið.
Flandin var forsætisráð-
herra 1935 og utanríkismála-
ráðherra frá janúar til júní
1936. Hann hefir gegnt öðr-
um ráðherraembættum stutt-
an tíma.
íDómsmálaráðherrann hvatti
einnig foreldra til að gæta vel
barna sinna.
ÓEIRÐIR f PRAG.
Til nokkurra óeirða kom í
Tjekkóslövakíu í gær. Hópur
tjekkneskra fasista var á göngu
á götu einni í Prag, er gerður
var áÖsúgur að þeim. S. S. og
S. Á. sveitír voru hvattar á
vettvang og l'eriti þá í rysking-
um milli Tjekka og hersveit-
annaa.
Haeha forsetí fekk hin þýsku
yfirvöld til þess að kalla þýsku
stormsveitirnar til baka og
þá fyrst var hægt að koma á ró
og reglu aftur.
Fjölda handtökur hafa farið
fram að því er hermt er í fregn
frá London.
ÆFILANGT FANGELSI
FYRIR SLÚÐUR
Dómsmálaráðherra Þýska-
lands hefir látið svo um mælt,
að vegna ófriðarins hefðu og
myndu gilda ,,járnlög“ i Þýska-
landi. Fyrir alla glæpi, sem
framdir væru, yrði hegnt með
þyngstu refsingum. — Alt að
dauðahegning liggur við að
safna að sjer matvælum.
í»ýskur maður var dæmdur í
æfilangt fangelsi fyrir að hann
hafði borið út slúðursögur.
Síðar ljest þessi maður í fang-
elsinu og gaf Gestapo-lögreglan
þá skýringu að hann hefði verið
skotinn, er hátin var að gera
tilraun til að flýja úr fangels-
inu.
Flogið yflr Sviss
til loftárása á
Norður-ltalfu
Svissneska frjettastofan skýr-
ir frá því, að í fyrrinótt um
miðnætti hafi ókunnar flugvjel-
ar flogið yfir svissneskt land og
haldið í suðurátt. Um klukku-
stund síðar komu flugvjelarn-
ar aftur og flugu þá í norður.
Breska flugmálaráðuneytið
skýrir frá því, að í fyrrinótt
hafi breskar sprengjuflugvjelar
gert loftárásir á ítölsku bíla-
og flugvjelaverksmiðjurnar Ca-
prioni í Milano og Fiat verk-
smiðjurnar í Torino á Norður-
ftalíu og valdið miklu tjóni.
Flugvjelarnar flugu frá
bækistöðvum sínum í Englandi,
segir í tilkynningunni, og flugu
þæ'r yfir Alpafjöll.
Allar komu heim heilu og
höldnu nema ein, sem nauð-
lenti skamt frá ensku strönd-
inni. Áhöfn hennar bjargaðist.
Þetta er í annað sinn, sem
breskar flugvjelar fara í leið-
angur til sömu stöðva í Norður-
Ítalíu. Fyrra skiftið var nóttina
eftir að ítaiir fóru í stríðið, 11.
júní.
Sala á rjóma
bönnuð í Englandi
Ti/T atvælaráðuneytið breska
tilkynti í gær, að sala á
rjóma yrði bönnuð í Englandi
frá 1. október.
Þetta bann gildir ekki aðeins
um fljótandi rjóma, heldur
einnig þeyttan rjóma eða mat-
reiddan á annan hátt.