Morgunblaðið - 14.09.1940, Síða 3

Morgunblaðið - 14.09.1940, Síða 3
Laugardagur Í4. sept. 1940. MORGUNBLAÐIÐ o 'J Buckingham Palace Hallarhliðið á konungshöllinni í London, sem varð fyrir loftárás í gær. Ein sprengja fjell þar sem mannfjöldinn stendur á myndinni. Nýjar umbætur á ríkisverksmið j un- um fvrir næsta ár jiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiuiiiii Dreifing flotans milli verk- smiðjanna nauðsynleg Samtal við Svein Benediktsson SVEINN BENEDIKTSSON framkvæmdastjóri er nýkominn til bæjarins frá Siglufirði, en þar hefir hann lengst af dvalið yfir síldveiðitím- ann, því að hann er sem kunnugt er í stjórn Síldarverk- smiðja ríkisins. Tíðindamaður frá Morgunblaðinu hitti Svein að máli í gær og rabbaði við hann um stund um síldveiðarnar í suipar. Birt- ist hjer það helsta úr því samtali. RugbyMleik- or I Vatnsmýr- inni f dag Breskir liðsforingjar ætla í dag að leika rugby-knattleik á flugvellinum í Vatnsmýrinni. Er þessi knattleikur afar vinsæll í Englandi, en mun aldrei hafa sjest leikinn hjer á landi fyr. Leikurinn hefst kl. 3.30 og er fólki heimilt að horfa á hann endurgjaldslaust. Herdeild sú, sem leikur rugby í dag, er fræg fyrir góða rugby- leikmenn, og þó keppendur sjeu ekki í góðri æfingu, má ætla að hjer gefist tækifæri til. að sjá vel leikinn rugbyleik. í rugbyleik eru 15 leikmenn í hvorri sveit. Knötturinn er egg- lagaður og heimilt er bæði að sparka honum og kasta honum með höndunum; þó má aldrei kasta knettinum fram fyrir sig. Mörk eru, og er þversláin í miðj- um stöngunum. Hjer gefst ekki tækifæri að þessu sinni að lýsa rugby ítarlega, en það skal tekið fram til að fyrirbyggja misskilning, að rug- by, sem Englendingar leika, á ekki neitt skylt við amerískan knattleik, þar sem leikmenn eru í einskonar brynjum og stórslys verða oft og tíðum. Gera má ráðfyrir, að íþrótta- menn og ekki síst knattspyrnu- menn hafi gaman af að kynna sjer þenna leik. Verða góð tæki- færi til þess á næstunni. Vivax. I 220 Isiend- | jingar ð Norð-| i urlðndum | | komahoim I | Tilkynning rík- | { isstjórnarinnar | Tiiiiiiiiiiiiiiiii.. 'iiiiiiiiiiiiiiimniin UM 220 íslendingar, sem dvalið hafa á Norðurlönd- um koma nú heim. „Esja“ verður send til Petsamo um næstu helgi til að sækja þá. RÍKISSTJÓRNIN birti um þetta opinbera tilkynningu í gær. Samningar við Breta, Þjóð- verja og Finna um heimflutn- ing íslendinganna hafa stað- ið yfir nær óslitið frá því í apríl. ESJA fer hjeðan beint til Pet- samo, en á leiðinni heim verð- ur hún að koma við í breskri eftirlitshöfn. DANSKA útvarpið skýrði frá því síðastliðinn miðvikudag, að ákveðið væri að íslend- ingar færu heim um Petsamo og sagði að þeir myndu leggja af stað 23. þ. m. Tilkynningin, sem ríkisstjórn- in birti í gær, er svohljóðandi: TILKYNNING RÍKISSTJÓRN ARIN N AR. Eftir samningsumleitanir milli PRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. SpurningaF, sem lögreglu- þjónaefni þurfa að svara nýjum lögregluþjónum verð ur bæítt við lögregluna sem kunnugt er á næstunni. Stöðum- ar hafa verið auglýstar lausar til umsóknar og frestur er til 25. þ. m. Vegna þess að lögregluþjónar eru menn, sem almenningur hefir mikið saman við að sælda, og lík- legt er að margan fýsi að sækja um stöður þessar og fá „uniform'", eru birtar hjer nokkrar spurning- ar, sem umsækjendur þurfa að svara, er þeir sækja um lögreglu- þjónsstöðu. Eftir að hafa „leyft sjer að sækja um o. s. frv.“, kemur þessi klausa: „Það er fullkomlega heim- ilt af minni hendi, að lögreglu- stjórinn í Reykjavík leiti allra upplýsinga um mig, er honum þykir með þurfa“. Spurningarnar eru alls 22. Fyrsta. spurningin er þannig: „Skírnarnafn, föðurheiti og ættar- nafn (því aðeins, að þess sje aflað að lögum og skal þá tilgreina heimildina)“. 6. spurning: „Eruð þjer kvong- aður? Hvenær? Hver er kona yð- ar? Eigið þjer börn? Hvað mörg og hvað eru þau gömul? Standið þjer í óbættum sökum vegna ó- greiddra barnsmeðlaga?“ 12. spurning: „Stundið þjer íþróttir eða hafið þjer gert það? (Sje svo, þá tilgreinið hverjar og með hverjum árangri og hvort PRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU, — Hverju heldur þú að nemi verðmæti síldarafurð- anna í ár? spurði jeg Svein. — Síldarvertíðin, sem nú er að verða lokið, hefir gefið meira í aðra hönd en nokkur önnur síldarvertíð fram til þessa. Eins og sakir standa er ekki unt að gera nákvæma áætlun um verðmæti síldarafurðanna. En gera má ráð fyrir, að það sje nálægt 38—40 milj. króna. — Hvernig var afkoma skipa og sjómanna? — Afkoma síldveiðiskipa var yfirleitt góð og margra ágæt. Þó brást reknetaveiðin og varð mikið tap á þeirri útgerð. Aflahlutur sjómanna var miklu hærri en nokkru sinni áður. Á hæstu mótorskipun- um er aflahluturinn um 4130 krónur; á aflahæsta línuveið- aranum var hann um 5000, og á togara 2350 kr. (lágmarks- hlutur). Algengast var, að sjómenn bæru úr býtum um 2500 kr. eftir sumarið. — Hvað var úthaldið langt? — I vor voru horfur síður en svo glæsilegar. öll helstu markaðslöndin voru lokuð og hinn mikli aflabrestur tveggja síðustu ára í fersku minni. Ríkisstjórnin hafði tekið upp samninga við Englendinga um sölu síldarafurða, en þeim mið- aði svo hægt, að ef beðið hefði verið eftir úrslitunum, gat far- ið svo, að aðalsíldargangan væri farin hjá, er að þeim dróg. En hinn 21. júní ákvað at- vinnumálaráðherra, að verk- smiðjur ríkisins skyldu reknar og taka síld til vinslu. Skyldu þær greiða 12 kr. fyrir síldar- málið við afhendingu. Strax eftir að þetta var kunn- ugt, fóru skipin að búast til síldveiða og í júlíbyrjun Var síldarflotinn kominn á miðin. Fyrsta síldin aflaðist 30. júní og upþ frá því var veiðin óslitin til 6. sept., nema hvað veður hamlaði veiðum nokkrum sinn- um, tvo daga í senn. Má telja síldveiðitímann röska tvo mán- uði. Hinn 4. sept. tilkyntu Síldar- verksm. ríkisins, að eigi yrði tekið á móti síld lengur en til 7. sept. Komu þá nokkrir út- gerðarmenn og fóru þess á leit, að verksmiðjurnar tækju áfram á móti síld, án nokkurrar greiðslu við móttöku. Til þess kom þó ekki, bæði vegna þess, að yeiðiveðrið spiltist og sjó- menn vildu ekki stunda veiðar upp á þessar spýtur. — Flugvjelin hefir ekki haft mikið að gera í sumar? — Nei, að vísu ekki. Nytsemi hennar er mest, þegar lítið er um síld og erfitt að finna hana. Flugvjelin byrjaði síldarleit 11. júlí; sá þá strax margar torfur víða. Hjelt hún uppi leit til 23. júlí, en hætti þá að mestu, þar sem síldveiðin gekk svo greiðlega, að ekki hafðist und- an að afgreiða skipin í landi. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Hljómleikar Áma Kristjánssonar og Bjðrns Ólaísson- ar á Akureyri Arni Kristjánsson píanóleikari og Björn Ólafsson fiðluleik- ari hjeldu hljómleika á Akureyri í fyrrakvöld í Samkomuhúsinu. Húsið var fullskipað áheyrendum. Viðfangsefni voru eftir Vitali, Cesar Frank, Chopin, Saint Saens og auk þess þrjú lög utan hljóm- leikaskrár. Hrifning áheyrenda fór vaxandi með hverju viðfangsefni, er á hljómleikana leið, Símar frjettaritari vor á Akur- eyri, að hljómleikar þessir hafi orðið stórviðburður fyrir Akur- eyrarbúa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.