Morgunblaðið - 14.09.1940, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 14.09.1940, Blaðsíða 7
Laugardagur 14. sept. 1940. MORGUNBLAÐIÐ 7 Sigrtður Thorarensen nfræð ð morgun A morgun verður níræð ein af sómakonum þessa bæj- -ar, Sigríður Thorarensen í Suð- urgötu 2. Hún hefir aldrei gifst, en hún hefir átt sitt heimili, þar sem hún hefir verið síkvikur og bjartur sólargeisli fram á þenn- an dag. Hún hefir kunnað að lifa lífinu þannig, að sameina fagurlega gleði og alvöru. Hún hefir altaf verið trúkona mikil, en það hefir ekki orðið til þess, að hún hafi fordæmt samtíð sína eins og mörgum öðrum hættir við. Hún hefir kunnað að finna sólskinsbletti í heiði, og hefir iljað hjarta sínu á því að sitja við þá. Fegurð lífsins hef- ir jafnan hrifið huga hennar meira heldur en skuggahliðar þess. Þess vegna hefir hún altaf verið kát eins og fugl á kvisti, óg aldrei efast um, að hið fagra og góða muni sigra meðal mannanna. Það var sú tíðin að flestir bæjarbúar könnuðust við Siggu T, eins og hún er venjulega kölluð meðal vina. Og margir eru þeir sem, hafa lifað glaðar og ánægjulegar stundir á hinu friðsæla heimili í Suðurgötu 2. En með árunum fyrnist vina- hópurinn, og Elli kerling er orðin sambýliskona einhvers, þá bætast fáir nýir vinir við. Þó mun Sigríður enn eiga fjölda vina hjer í bænum, og það mun óhætt að segja að vinátta allra þeirra í hennar garð er fölskva- laus. Þess vegna verða kveðj- urnar sem hún fær á morgun bæði margar og óvenjulega hlýjar. ÖOOOOOOOOOOOO-OOOOO Natitakjöi NÝTT DILKAKJÖT SALTKJÖT ÍKjöt & FískurS Sími 3828 oe 4764. ÓOOOOOOOOOOOOOOOO« Bfll til sfilu. 5 manna „Fordbíll“, model 1935, til sölu með tækifærisverði. Upp- lýsingar hjá Finnboga Kjartans- syni, Austurstræti 12, I. hæð. A U G A Ð hvílist meC gleraugum frá THIELE Loftárásirnar t London FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. ar í kapellunni, en hjeldu síðan út í borgina, til að skoða hverfi, sem illa hafa verið leikin undan- farna daga. Breska stríðsráðuneytið sendi þegar í stað samfagnaðarskeyti til konungshjónanna, þar sem látin er í ljós gleði yfir því, að forsjón- in hafi látið þau sleppa undan hinni villimannslegu árás. f svari sínu til stjómarinnar segir kommgur, að hann hafi nú reynt sjálfur, hvernig hinar villi- mannlegu árásir sjeu, og að árás- ir eins og þessar muni aðeins verða til að sameina bresku þjóð- ina til að heyja stríðið þar til sigur sje unninn. Konungi bárust samfagnaðar- skeyti frá Kanada og víðar. Lundiinabúar hafa ekki fengið mikla hvíld frá því í fyrrakvöld. Loftárásin í fvrrinótt st.óð yfir frá því kl. 9 um kvöldið til kl. 5.45 í gærmorgun, síðan hófst önnur árás kl. 7.30 og stóð til kl. 8.30, þriðja árásin hófst kl. 10 og stóð til kl. 2 og fjórða árásin hófst kl. 3. f gærkvöldi hófst svo hin venju lega næt.urárás á venjulegum tíma, eða um 9-leytið. Síðast þegar frjettist í nótt stóð þessi árás enn yfir. f fregn frá Tjondon var sagt, að loftvarna- byssurnar þrumuðu með sama krafti og undanfarin tvö kvöld. Endurbót sú, sem gerð var fyr- ir tveim dögum á loftvömuiu Lundúna virðist vera fólgin í því, að nýtt miðunartæki (predictor) hefir verið sett á loftvarnabyss- urnar. Það er viðurkent í London, að manntjón hafi orðið allmikið í á- rásinni, sem gerð var í gærdag, um sama leyti og árási.n var gerð á konungshöllina. Flugmálaráðunevtið segir, að sprengjum hafi yerið varpað nið- ur á stórbyggingar víðsvegar í borginni, og að m. a. hafi eld- sprengjum verið varpað í Down- ing Street. Ein fregn hermir ,að sprengja hafi hæft lávarðadeildina í Parla- mentsbyggingunni í Westminster. Nokkurs ótta gætir út af sprengjunni, sem grafið hefir sig nokkur fet í jörð niður hjá St Paulskirkjunni, en hefir ekki sprungið ennþá. Er talið að sprengjan sje 500 pund, og að kirkjan kunni stórlega að lask- ast er hún springur. Þjóðverjar skýra frá því, að síðustu 36 klst. hafi ritskoðunin verið hert mjög í London. Sftrónur j komnar. j 1 VÍ5IH [ Laugaveg 1. Fjölnisveg 2. LOFTÁRÁSIR BRETA. FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. Deutsches Naelirichtenbúro skýrir frá því, að erlendum blaða- mönnum hafi verið boðið að skoða Potzdamer járnbrautarstöðina, og Anhalter járnbrautarstöðina í Berlín og að þeir hafi getað sann- færst um, að engin flugvjela- sprengja hafi nokkru Sinni kom- ið niður á þessar stöðvar. Dagbók Næturlæknir er í nótt Berg- sveinn Olafsson, Ránargötu 20. —- Sími 4985. NætnrvörCur er í Ingólfs Apó- telri og Laugavegs Apóteki. Messur í dómkirkjunni á morg- un kl. 11 síra Bjami Jónsson, kl. 5 síra Jakob Jónsson. Messað í Laugarnesskóla á morgun kl. 2. Sr. Garðar Svav- arsson. Messur í fríkirkjunn á morg- un kl. 5. Síra Ámi Sigurðsson. Messurnar í kaþólsku kirkjunni í Landakoti: Lágmessa kl. 6V2 árd. Hámessa kl. 9 árd. Bæúahald og prjedikun kl. 6 síðd. Messað í fríkirkjunni í Hafnar- firði á morgun kl. 2, síra Jón Auðuns. Hjúskapur. í dag verða gefin saman. í hjónaband ungfrú Dag- björt Björnsdóttir og Tryggvi Stefánsson byggingarmeistari. — Heimili ungu hjónanna verður á Suðurgötu 25, Hafnarfirði. Lokunartími sölubúða. í dag er síðasti laugardagur haustins, sem verslpnum er lokað kl. 1. Nordmanslaget hjer í bænum bauð í gær skipshöfninni af norska herskipinu „Fridtiof Nan- sen“ og skipshöfnum af öðrum norskum skipum, sem hjer liggja, til kaffidrykkju í Oddfellowhús- inu. Harald Faaberg, formaður fjelagsins, bauð gesti velkomna. Henry Bay, charge d’affaires talaði fyrir minni Noregs og var hrópað ferfalt húrra á eftir ræðu hans og sungið „Ja vil elsker“. Ulring skipherra talaði fyrir minni Hákonar konungs og var hrópað nífalt húrra og konungs- söngurinn sunginn. Að lokum var svo stiginn dans. Kappróðramót íslands fer fram í dag og hefst kl. 4 í Skerjafirði. Keppendur eru aðeins úr einu fje- lagi, Ármanni. Útvarpið í dag: 20.30 Upplestur: „Logið í silki-. sokk“, smásaga (Þórunn Magn- úsdóttir). 20.55 Hljómplötur; Valsar eftir Brahms. Allir lagmenn þurfa að ná sambandi við fjöldann. Auðveldasta ráðið til þess er að setja Bmá til- kynningu í Starfskrá Morg- unblaðsins. Hún kostax lítið en gerir ótrúlega mikið gagn. Starfskráin birtist á sunnu- dögum. Tryggið yður rúm í henni tímanlega. — Starfskráin er fyrir alla fagmenn. Land ræktað eða óræktað, í ná grenni Reykjavíkur, óskast <> gegn staðgreiðslu. — Tilboð ú merkt „Land“ sendist Morg A unblaðinu. oooooooooooooooooo HLUTAVELTU * heldur knattspymufjelagið VALUR í Varðarhúsinu og hefst hún í kvöld kl. 8. — Meðal hinna mörgu gagnlegu og góðu muna má nefna: 500 kr. í peningum — kamína — 2 djúpir hægindastólar — málverk — farseðill til Vestmannaeyja með Esju — allskonar fatn- aður — búsáhöld — skófatnaður — matar- forði — kol o. fl. o. fl., sem of langt yrði hjer upp að telja. — LÍTIÐ I GLUGGANA I UTLU BLÓMABÚÐINNI, BANKASTRÆTI 14. VALSVELTAN. Lausar IðgregluþjónastOður fi Hafnarfirffi. Samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar verður lög- regluþjónum í Hafnarfirði fjölgað um 3. Umsóknir um stöður þessar sendist undirrituðum lögreglustjóra fyrir 22. sept. n.k. Lögreglustjórinn í Hafnarfirði, 13. sept. 1940. Bergur Jónsson. Ketvin-Diesel sýning. Kelvin-Diesel sýning verður í Verbúðum 6 í nokkra daga, opin kl. 1—6 eftir hádegi. ÓLAFUR EINARSSON. / Tilkynning ökubann. Hjer með tilkynnist, með tilvísun til 45. greinar lög- reglusamþyktar fyrir Hafnarfjörð, að frá kl. 12 á hád. sunnud. 15. sept. n.k. má ekki aka bifreiðum eða bifhjól- um um Mjósund í Hafnarfirði. Brot gegn fyrirmælum þessum varðar sektum, alt að kr. 1000.00, samkvæmt 91. grein lögreglusamþyktarinnar. Þetta tilkynnist hjer með til eftirbreytni. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði, 13. sept. 1940. Bergur Jónsson. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför mannsins míns, fóður okkar og bróður JÓNASAR RAGNARS JÓNASSONAR. frá Hólmahjáleigu. Jeg bið algóðan guð að launa ykkur, vinir mínir, sem mjer hafið rjett hjálpar- og vinarhönd í veikindum okkar. Fanney Þorvarðardóttir, börn og systkini.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.