Morgunblaðið - 19.09.1940, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.09.1940, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagnr 19. sept. 1940. 3 hatt á verðlag í Ameríku Þýskum flugvjela- flökum biiy breskar fiugvjelar _______ f Það torveldar sölu- möguleika okkar Samtal við Vilhjál II Þór bankastjóra VILHJÁLMUR ÞÓR bankastjóri er kominn heim með fjölskyldu, konu og þrjú börn, eftir rúm- lega tveggja ára dvöl í Ameríku. Svo sem kunnagt er, var Vilhjálmur Þór ráðinn aðalframkvæmda- stjóri sýningar okkar í New-York. Þegar stríðið braust út, var hann af ríkisstjórninni kvaddur til þess að vera verslunarerindreki íslands í Ameríku og eftir að Island tók utanríkismálin í sínar hendur var hann skipaður aðalræðismaður íslands í Bandaríkjunum. Gegndi hann því starfi þar til Thor Thors alþm. tók við því af honum, hinn 1. september síðastliðinn. Tíðindamaður frá Morgunblað- inu hitti Vilhjálm Þór að máli í gær á Hótel Borg, en þar mun hann dvelja fyrst um sinn, eða þar til að hann hefir komið sjer fyrir. — Hvað getið þjer sagt a! ment um viðskiftin við Ameríku i, spurðum vjer Vilhjálm Þór. — Stríðið hefir til þessa haft ejnkennilegar verkanir í Ameríku og alt aðrar, en víðast hvar anu- arsstaðar. Þannig hefir enn sem komið er lítil sem engin verð- hækkun orðið á vörum alment. í Amehku. Af því leiðir, að Ame ríkumenn eiga erfitt með að átta sig á því t. d., er við komum nú og bjóðum þeim okkar vörur, en segjum þeim jafnffamt að við þurf uta að fá verðhækkun á vörunni, því að stríðið hafi skapað það ástand hjá okkur. . En þegar málið er athugað ofan í kjölinn, eru þessi tvö ólíku við- horf, þeirra vestra og okkar, mjög skiljanleg. Með stríðinu lokuðust fyrir Ameríku margir og stórir markaðir í Evrópu. Og eftir að Þjóðverjar hertóku löndin í Ev- rópu og hafnbann Breta stækkaði að sama skapi, óx markaðstapið fyrir Ameríku. Þetta er eðlileg skýring á því, að stríðið hefir lítil áhrif haft á verðlagið í Ame- ríku. — Eru ekki tollar einnig til hindrunar viðskiftum við Ame- ríku? — Jú; tollar eru tiltölulega há- ir vestra og á sumum vörum, t. d. síldarlýsi, er svo hár tollur, að ekki er viðlit að selja þá vöru í Ameríku. Hefir verið til athugun- ar, að fá leiðrjettingu á þessu og verður unnið að því áfram. — Við höfum ekki getað selt ullina til Ameríku — hver er ástæðan? — Höfuðástæðan er hin sama og jeg áður gat um, að ull hefir ekki hækkað í verði í Ameríku, fremur en aðrar vörur. Verðið er algerlega ófullnægjandi fyrir okk- ur. Tollur er einnig allhár á ull, en aðalhindrunin er hið lága verð. Vilhjálmur Þór. — Hafið þjer von um aukin og varanleg viðskifti okkar við Ame- ríku? — Já, vissulega. Það var eink um upp á síðkastið mjög áber- andi, hve áhugi manna vestra fyr- ir viðskiftum við ísland fór vax- andi. Við urðum þessa greinilega varir á aðalræðismannsskrifstof- unni, því að stöðugt bárust þang- að margvíslegar fyrirspurnir og þær fóru ört vaxandi. Jeg álít, heldur Vilhjálmur Þór áfram, að það sje einkum þrent, sem þessu veldur: í fyrsta lagi, að Island er nú miklu meira umtalað meðal manna en áður, eftir atburðina sem gerð- ust á Alþingi 9. apríl s.l. * í öðru lagi hafa hinar beinu siglingar við Ameríku greitt mjög fyrir viðskiftunum. í þriðja lagi er þátttaka okkar í heimssýningunni í New-York, sem hefir áreiðanlega haft hjer mesta þýðingu. Jeg er ekki í nokkrum vafa um, að sýning okk- ar hefir orðið til þess að opna augu fjölmargra manna vestra fyrir því, að á íslandi býr menn- ingarþjóð, sem verðskuldar fylstu athygli. Um áhrif sýningarinnar get jeg sem dæmi nefnt það, að í júlí í sumar var mjer, sem ísl. konsúl, boðið að halda fyrirlestur í hlúbb í New-York, þar sem í eru ein- göngu framkvæmdastjórar stærstu PRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Flökum af þýskum flug- vjelum, sem skotnar eru niður í Englandi, er haldið til haga. Aluminiumið er not- að í " flugvjelaframleiðslu Breta. Þannig má segja að þýskum flugvjelaflökum sje breytt í breskar hernaðar- flugvjelar. — Á myndinni sjást hlutar úr þýskum flug- vjelum, sem skotnar hafa ver- ið niður í Englandi. Kolin ódýrari I Eyjum en Rnykjavik KOLIN eru nú seld 12 krón- um ódýrara tonnið í Vest- mannaeyjum en hjer í Reykjavík. Þetta kemur mönnum eðlilega nokkuð spanskt fyrir, því að venj- an er sú, að kol sjeu 20 kr. dýr- ari í Eyjum. Það er ilt fyrir Reykvíkiuga, að eiga þess ekki kost að fá ódýr- ari kol, þegar veturinn kemur. Væru kol flutt til landsins nú, þyrftu þau vafalaust ekki að kosta hjer meira en 90—100 krónur, í stað 134 kr., sem verðið er á kol- unum 'nú. En við þettu verður ekki ráð- ið, segja þeir vitru, því að kola- kaupmenn voru hvattir til að kaupa kolin meðan flutningsgjöld- in voru miklu hærri en nú. Kola- kaupmennirnir verða því að selja dýru kolin, því að annars bíða þeir tjón, óverðskuldað. Þetta er alt gott og blessað. En væri ekki unt að þoka kolaverð- inu smám saman niður, með því að fá ódýrari farma og nota þá til verðjöfnunar? Hjónaefni. Nýlega hafa opinber- að trúlofun sína ungfrú Sigurásta Guðnadóttir, Öldugötu 28, og Sig- urður Benediktsson, Öldugötu 32. Skólastjórafundurinn Skemtanir og tómstundir nemenda Skólastjórafundinum var hald- ið áfram í gær í Háskólan- um. Rætt var aðallega um ýmsar reglur, sem skólarnir gætu farið sameiginlega eftir í störfum sín- um í vetur. Ingimar Jónsson hafði framsögu af liálfu nefndar þeirrar, sem kos- in var fyrsta fundardaginn. All- miklar umræður urðu um málin og tóku þátt í þeim, auk ýmsra þeirra ræðumanna, sem töluðu daginn áð- ur, þeir dr. Leifur Ásgeirsson, Sig’. Thorlacius, Hannibal Valdimárs- son, Bjarni Bjarnason, Sig. Guð- mundsson og Þorst. M. Jónsson og ennfremur talaði forsætisráð- herra og fræðslumálastjóri. Nefndin hafði lagt fram ákveðn- ar tillögur, sem sumpart var beint til ríkisstjórnarinnar, en fjalla sumpart um skólareglur, um sam- komur nemenda, tómstundir og skemtanir o. fl. Voru mál þessi rædd fram á kvöld í gærkvöldi. I dag verður fundinum enu haldið áfram og mun þá einkum verða rætt um skólakerfi landsins og samband skólanna í því. VfHshlfd Dana «g Itala Viðbótarsamningur við versl- unarsamninga Itala og Dana, hefir nýlega verið und- irritaður í Róm. Samkvæmt þessum viðbótar- samningi aukast viðskifti Itala og Dana á þessu ári um 21/4 miljón líra. Danir selja Itölum aðallega nýjan fisk en fá í staðinn tóbak og vefnaðarvöru. Radiovitinn á Dyrhólaey tek- ur aftur til starfa Vitamálaskrifstofan tilkynti í gær, að radiovitinn á Dyrhólaey tæki aftur til starfa frá 15. sept. Tilkynningin er svohljóðandi: „1. Radiovitinn á Dyrhólaey tekur aftur til staría að nokkru leyti 15. sept. n. k. Útsending- um verður fyrst um sinn hagað þannig að sent verður aðeins tvisvar á sólarhring kl. 11,00 og kl. 23,00 eftir ísl. sumartíma — 10 mínútur í hvort sinn, venju- leg útsending. 2. Á Klofningsvita við Flatey á Breiðafirði logar nú aftur“; Ffnskur skípstjóri bráðkvaðður ð Húsavfk August Wirkke, skipstjóri á finsku skipi, sem hefir legið á Húsavík og lestað þar ísvarinu fisk, varð bráðkvaddur í svefn- klefa sínum í fyrrinótt. Wirkke var finskur að ætt, fæddur 17. september 1875. Hanu ljest því á sextugasta og fimta afmælisdegi sínum. Líkið var flutt á land í Húsa- vík og verður jarðsett þar. Skemdarverkf Einhverjir skemdarvargar hafa gengið um bæinn í fyrrinótt og leikið sjer að því að snúa hurðarhúna af þremur bílum, sem stóðu á götum í Vesturbænum. Einn bíllinn var við Hring- braut 124, annar á Stýrimanna- stíg og sá þriðji á Öldugötu. Rannsóknarlögreglqn hefir fengið málið til meðferðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.