Morgunblaðið - 19.09.1940, Síða 7

Morgunblaðið - 19.09.1940, Síða 7
Fimtudagur 19. sept. 1940. MORGUNBLAÐIÐ 7 NJjar krSíur Japana í Indo-Kína Japanar hafa gert nýjar kröf- ur á hendur Frökkum í Indo-Kína. í fregn frá höfuð- borg Indo-Kína segir, að samn- ingar Frakka og Japana sjeu nú komnir á hættulegt stig. Kröfurnar, sem Japanar hafa gert eru sagðar vera á þá leið, að þeir fái að setja meira herlið, en þeir höfðu farið fram á áður, á land í Indo-Kína og að þeir fái umráð yfir öllum járnbrautarsamgöngum í land- inu. * I Bandaríkjunum — og einn- ig í Englandi — er fylgst af nokkrum ugg með hinu nýja viðhorfi í Austur-Asíu, sem skapast hefir af þessum auknu kröfum Japana. í Yichy var því lýst yfir í gær, að Frakkar myndu ekki ganga að kröfum Japana. Loftárásirnar FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. Loftárásir Þjóðverja á Eng- land í gær voru eins og áður aðallega á borgir í S.A.-Eng- landi. Brutust þýsku flugvjelarnar inn fyrir varnarlínu Breta við ströndina og flugu í áttina til London. Var 8 sinnum gefin hættu- merki í London í gær, en í op-, inberum breskum fregnum seg- ir, að þýsku flugvjelunum hafi elcki tekist að varpa sprengjum á sjálfa borgina í gær, heldur aðeins á borgir við Thamesár- mynni. Allmiklar loftorustur voru háð- ar yfir London í gær, en í svo mikilli hæð, að borgarbúar sáu ekki nje heyrðu í flugvjelunum. Seint í gærkvöldi sögðust Bretar hafa skotið niður 46 þýskar flugvjelar í gær, en mist sjálfir 9, en flugmenn 5 þeirra hefðu bjargast. RÚSSAR UM INNRÁSINA. Allmikla athygli hefir grein í rússneska blaðinu Pravda í gær vakið. Er þar sagt, að Þjóðverj- um hafi enn ekki tekist að sigra breska loftflotann og á meðan þeim tækist það ekki, þýddi þeim ekki að hugsa til innrásar í Eng- land. Að vísu, segir í grein í Pravda, hefir Þjóðverjúm tekist að valda allmiklum skemdum í Englandi. en aðalatriðið fyrir Breta sje, að loftfloti þeirra er ósigraður. Greininni í Pravda lýkur með því, að auk þess eigi Þjóðverjar eftir að ryðja einni mikilli hindr- un úr vegi, áður en þeim takist að sigla skipum sínum yfir Ermar- sund, en það sje hreski flotinn, sem einnig sje ósigraður. f gærkvöldi sáust frá ströndum Englands miklir eldar á strönd- inni binum megin við Ermarsund og sprengjublossar. Yar talið víst, að breski flugherinn væri þar að verki. Einkum sáust miklir eldar í áttinni frá Calais. Egyptaland FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. Italir segjast hafa skotið nið- ur fyrir Bretum 5 flugvjelar af 6, sem þeir gerðu árás með á þessum slóðum og viðurkenna að hafa mist 4 sjálfir. Á það er bent í London að ítalir sjeu enn ekki komnir að aðalvarnarstöðvum Breta í Egyptalandi. Árið 1935 var breska her- stjórnin að hugsa um að setja upp varnarvirki hjá landamær- um Libyu og Egyptalands, en hætti við þá fyrirætlun, þar sem svo miklir örðugleikar voru á flutningum. yfir stóra eyði- mörk frá bygðum og til landa- mæra Libyu. ERFIÐLEIKAR Á INNRÁS I EGYPTALAND. í London er á það bent, að ef Italir gera innrás í Egyptaland frá Libyu, þá muni þeir finna aðeins fá vatnsból — og þá aðeins djúpt nið- ur í jörðu — fyrstu 250 kílómetrana. En vatnsskorturinn er eins og kunn- ugt er eitt örðugasta vandamálið, sem herstjórnimar í Norður-Afríku eiga við að glíma. Einnig munu ítölsku herfylking- arnar stöðugt hafa yfir höfði sjer flugvjelar breska flugflotans. En þessi flugfloti á þó við meiri örðugleika að stríða en flugherinn í Evrópu. Þegar sandfok gerir á eyðimörkunum getur það náð upp í alt að því 10 þús. feta hæð og tekið fyrir skygni, svo að flugmennimir, sem era á heiðleið úr leiðangri eru stundum í vafa um hvort þeri komist leiðar sinnar áður en flug- völlur þeirra er hulinn í sandmóðu. En örðugleikar flugvjelaeftirlits- mannnana eru þó enn meiri, því að þeg- ar olfan blandast sandfokinú, myndást skán, sem sest á yfirborð flugvjela- bolanna og hreyflanna. Hjer við bæt- ist hinn gífurlegi hiti, sem gerir það að verkum, að ekki er hægt að snerta á neinum málmhlut í flugvjelum sem staðið hafa úti í sólinni. VEGALENGDIR. Bretar benda á að mikils starfs sje krafist af flugher þeirra í Austur- löndum, ekki síst vegna þess hve allar vegalengdir sjeu miklar. Þannig er vegalengdin frá Kairo í Egyptalandi til Nairobi 2500 enskar mílur, frá Gibralt- ar til Malta 1000 mílur. og aðrar 1000 mflur frá Malta til Kairo. Miðjarðar- hafið er 300 mílna breytt, þvert yfir frá Alexandriu; Rauðahafið er næstum 1500 mlína langt og sumstaðar 200 mílna breitt; frá Alexandriu til landa- mæra, Libyu eru 300 mílur. Það er talið, að ítalir liafi 530 flug- vjelar í Libyu, þ. á m. 190 nýtísku sprengjuflugvjelar og 110 nýtísku or- ustuflugvjelar. 1 Dodocanesevjum hafa þeir um 30 sprengjuflugvjelar og 20 orastuflugvjelar og auk þess nokkrar sjóflugvjelar. f Abyssiniu hafa þeir 170 flugvjelar og er fjórðungur þeiraa orustufhigv j elar Herlið ítala í Abyssiniu er skipað um 200 þús. mönnum að öllu saman- lögðu. Trúlofun sína. opinberuðu í gær ungfrú Guðfinna Eyvindsdóttir, Vestmannaeyjum, og Þorsteinn Þórðarson. Hlutavelta Vals. Þessi númer komu uppi í liappdraétti Valsbelt- unar: 2423 kamíná, 118 2 d'júþ- ir stólar og 3763 málverk. í gær vöru stólarnir sóttir, þá hlaut Margrjet Ólafsdóttir, Laugaveg 134. Hinna munanna sje vitjað til Sveins Zoega c/ö Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis fyrir 25. þ. m. Skipatjón Breta Skipatjónið vikuna sem lauk 8. september, varð (að því er breska flotamálaráðu- neytið tilkynnir) ; 10 bresk skip, samtals 28000 smál. 4 skip Bandamanna —- 18500 — " 2 skip hlutl. þjóða — 7500 — Samtals 54000 smál. Hjer eru ekki talin þau skip, sem fórast í loftárásum dagana 7.-9. sept.. þar sem fullnægjandi skýrslur um tjónið þessa daga ligg.ja ekki fyrir. Tjónið er heldur yfir hinu vikulega meðaltalstjóni ,frá því að stríðið hófst. Loftvarnabelgirnir FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. slev, þar sem drengur nokkur kom við háspennulínu, sem fallið hafði niður eftir að stál- vír úr loftvarnabelg hafði rek- ist á línuna. Víða hefir farið svo, að þeg- ar búið var að gera við skemd- irnar, komu nýir loftvarnabelg- ir og eyðilögðu leiðslurnar á ný. í ÞÝSKALANDI. Fregnir frá Berlín herma, að mörg hundruð loftvarnabelgi hafi rekið inn á meginland Ev- rópu. Segja Þjóðverjar, að orustu- flugvjelar þeirra hafi skotið niður um 120 loftvarnabelgi í gær. Dagbók I. O. O. F.5 = 1229198l/*s Næturlæknir er í nótt Kristján Hannesson, Miðstræti 3. Sími 5876. Næturvörður er í Reykjavíkur Apóteki og Lyfjahúðinni Iðunn. Næturakstur næstu nótt annast Litla bílstöðin. Sími 1380. Spegillinn kemur út á morgun, Hjónaefni., Mánudaginn 16. sept. opinberuðu trúlofun sína imgfrú Helga Júlíusdóttir, Rútsstöðum í Flóa, og Þórir Jónssyn vjelamaður, Vesturveg 13, Seyðisfirði. Jónas Ragnar, yfirlæknir á Kristneshæli hefir legið rúmfastur á Sjúkrahúsi Akureyrar síðan um mánaðamótin ágúst og september, sökum nýrnasjúkdóms. Var gerð- ur á honum holskurður fyrir viku síðan. Virðist aðgerðin hafa geng- ið að óskum og læknirinn nú 4 batavegi. Hallbjörg Bjarnadóttir söng- kona hjelt söngskemtun í Gamla Bíó í gærkvöldi fyrir fúllu húsi. Var söngkonunm vel tekið og Aarð hún að syngja aukalög. — Hljómsveit Jacks Quinets ljek undir. Strandarkirkja. N. N. 1 kr. M. J. 4 kr. Jóhannes Sveinbjörnsson 10 kr. N. N. 5 ki\ N. N. 5 kr. A. B. 5 kr. N. N. 3 kr. N. N- T. 5 kr. Gamalt áheit 1 kr. N. N. 10 kr. Jósep 2 kr. X. 6 kr. IJtvarpið í dag: 19.30 Hljómplötur: Tónverk eftir Bax. 19.45 Lesin dagskrá næstu viku. 20.30 Samleikur á harmoníum (Eggert Gilfer) og píanó (Fritz Weisshappel) : „Huggun“, tón- verk eftir Dussek. 20.50 Frá útlÖndunl. 21.10 Útvarpshljómsveitin: Lög úr óperettunni „Eva“, eftir Lehár. Jóhanna Sígurðsson míðíll flýtur fyrirlestur í Iðnó föstudaginn 20. sept. kl. 9 e. h. Húsið opnað kl. 8%. EFNI: Ljósin yfir eyjuna hvítu. Stríðsspárnar frá 17. ágúst og 15. okt. 1939 lesnar upp. Áframhald: Hvemig fer stríðið? Svar miðlanna til prestanna og trúboðanna. Söngur og músík. Aðgöngumiðar á kr. 2.00, 1.50 og 1.00 (stæði) seldir í Hljóð- færaverslun Sigríðar Helgadóttur, Lækjargötu 2. Aðgöngumiðasalan takmörkuð. Lúðrasveitin Svanur leikur. Hvöt Sjálfstæðiskvennafjelagið fer skemtiför föstudaginn 20. þ. m. að Geysi. Meðal annars verður skoðuð hin nývígða kirkja í Haukadal. Konur taki með sjer nesti og gesti. Kaffi fæst keypt á staðnum. Lagt verður á stað frá Bifreiðastöð Steindórs kl. 10 f. hád. stundvíslega. Aðrar upplýsingar gefur María Maack, Þingholtsstræti 25, sími 4015, og Guðlaug Jónsdóttir, Fjölnisveg 13, sími 2844. FERÐANEFNDIN. BIFREIÐAEIGENDUR — BIFREIÐASTJÓRAR Munið, í tæka tíð, að láta á bifreið yðar Hino Tiðurkenda frostlðg frá VACUUM OIL COMPANY A.S. er fæst á eftirtöldum stöðum: Bensínafgreiðsla H. I. S., Hafnarstræti 23. Bifreiðaverkstæði Sveins & Geira, Hverfisgtöu 76. BifreiðaverkstæSi Páls Stefánssonar, Hverfisgötu 103. Bifreiðaverkstæði Sveins Egilssonar, Laugaveg 105. Heildsölubirgðir: H. BENEDIKTSSON & CO. Sími 1228. Nokkrar tunnur af góðu spaðiölfuðu dilkakföfi frá’.í fyrra til sölu. Jón Sigurðsson, AHlanee. dUHMHUSSUUUUSaSSHSaaMUUMSaUUUUUUUUHUaUSUaHMUUUUUSUHHBBHBÍ Lærið að saunia. 1. námskeiðið í allskonar kven- og barnafatasaum byrjar þriðjudag- inn 1. október. Saumastofa Guðrúnar Arngrímsdóttur, Bíinkíl Ht.rsn+.i 11 ____Smíi OTOR Innilega þökkum við öllum þeim mörgu er sýndu okknr svo mikla hluttekningu og vinarhug við andlát og jarðarför mannsins míns og föður okkar, JÓNS HELGASONAR, úrsmiðs í Borgarnesi. — Guð blessi ykkur öll. Halldóra Ólafsdóttir og börn..

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.