Morgunblaðið - 21.09.1940, Page 2

Morgunblaðið - 21.09.1940, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Langardagur 21. sept. 1940. Veður fer aftur batnandi við Ermarsund i % J Harðnandi næturárásir Framtíð Evrópu og Afríku rædd á London Dagárásir á flug- stöðvarnar á suðurströndinni VEÐUR VIÐ ERMARSUND fór batnandi í gær, og í fregn frá Þýskalandi í gærkvöldi var skýrt frá því ,að skygni væri svo gott, að þýsku flugmennirnir gætu greinilega sjeð hvar sprengjur þeirra kæmu niður á hemaðarstöðvar í London. Loft- vamamerki í London var gefið um líkt leyti í gærkvöldi og undanfarin kvöld. í fregn frá London á miðnætti í nótt var skýrt frá því, að geislar ljóskastaranna mynduðu boga í úthverfum borgarinnar frá suð-austri til norð-vesturs. Ein orustu- flugvjel var sögð hafa steypt sjer yfir miðhluta borgar- innar og varpað niður þungum sprengjum. 1 suðurhluta borgarinnar hafði verið varpað niður eld- sprengjum og höfðu nokkrir eldar kviknað þar. LOFTBARDAGAR Fyr í gœr eða laust eftir hádegið höfðu um 200 þýskar flugvjelar flogið inn yfir Kent-ströndina. En þær fengu móttökur frá loftvarnabyssum Breta á ströndinni að því er breska flugmálaráðuneytið tilkynnir og síðan frá or- ustuflugvjelunum, sem rjeðust gegn þeim. Þýsku flugvjelarnar höguðu fluginu að þessu sinni þannig, að orustuflugvjelarnar flugu neðar en sprengjuflugvjelarnar. Er talið að orustuflugvjelarnar hafi átt að ráðast á loftvarna- byssustæði Breta. En venjulega er þetta öfugt, að orustuflugvjelarnar fljúga ofar en sprengjuflugvjelarnar, sem þær eiga að vernda. Þjóðverjar tilkyntu í gærkvöldi að 12 breskar flugvjelar hefðu verið skotnar niður í loftbardögum í gær. En nokkru áður hafði breska flugmálaráðuneytið tilkynt að 4 þýskar flugvjelar og 7 breskar hefðu verið skotnar niður. Ribbentrop, Hitler, Giano greifi. von Ribbentrop fer heimleiðis í dag FUNDINUM í Rómaborg er lokið. Það er talið að Joachim von Ribbentrop, utanríkismála- ráðherra Þjóðverja, fari heimleiðis til Berlín í dag, til að gefa Hitler skýrslu. von Ribbentrop ræddi í annað sinn við Mussolini í Feneyjahöllinni í gær. En áður en sá fundur, sem stóð í rúmlega klukkustund, hófst, hafði von Ribbentrop átt langt samtal við Hitler í síma. I gærmorgun hjelt Ciano greifi von Ribbentrop árdegisveislu í Excelsior-veitingasölunum í Rómaborg. Lítið er vitað um erindi þýska utanríkismálaráðherrans til Rómaborgar annað en staðreyndirnar um viðræður hans við Mussolini og veisluhöld Cianos greifa — og það sem þýsk og Þjóðverjar hóta rentum og rentu- rentum Breskar flugvjelar vörpuðu í fyrrinótt sprengjum > /- ir Heidelberg, að því er fregn- ir frá Berlín herma. Hefir þetta vakið mikla gremju í Þýska- landi og opinberlega er látið í veðri vaka, bæði í sambandi við Heidelbergárásina og „barna- morðs“-árásina á Bethel-sjúkra- húsin í Bielefeld, að Bretar muni fá þetta borgað með rent- um og renturentum. Árásin á Bethel-sjúkrahúsin var aðalumræðuefni Berlínar- blaðanna í gærmorgun. Bretar hjeldu áfram í gær- kvöldi loftárásum sínum á hafn- arborgir Þjóðverja við Ermar- sundsströnd. Fólk á suður- strönd Englands gat sjeð glampann frá ljóskösturunum handan við sundið, einkum frá Oalais og Boulogne. I fyrrakvöld gerðu Bretar, Frátt fyrir slæm veðurskilyrði, árás á Dortmund-Ems skipa- skurðinn. Einnig voru gerðar árásir á verksmiðjur og flugstöðvar í vestur-Þýskalandi, að því er breska flugmálaráðuneytið til- kynnir. „Tíöindalanst af vígstöðvunam 1 Egyptalandi“ Tilkynning bresku herstjórnar- innar í Kairo í gær, um á- standið í vestur-eyðimörkinni í Egyptalandi, er einhver sú stysta, sem herstjórnin hefir birt. Tii- kynningin er á þessa leið: Engin breyting hefir orðið hjá Sidi Barani. Tíðindalaust af öðr- um vígstöðvum. Þrír ítalskir frjettaritarar voru handteknir á vígstöðvunum hjá Sidi Barani s.l. sunnudag og eru nú komnir til Kairo. Einn frjetta- ritaranna, Fancelli, hefir skýrt frá því, að þegar vjelahersveitir ítala fóru yfir landamærín s.l. sunnu- dag, hafi framsóknin verið hæg, «vo hæg, að frjettaritararnir fóru á undan, og komu þeir auga á smáflokk, sem hafði vjelknúin hernaðartæki, og hugðu þar vera «inn af framvarðaflokkum ítala. En þetta var þá breskur flokkur, og voru ítalarnir þrír teknir tí.l fanga og fluttir til Mersa Ma- truh. ítalska herstjórnin tilkynti í gær, að könnunarflugbátur hafi sökt enskum kafbáti. • I tilkynningu flugmálaráðu- neytisins er vakin athygli á því, að erfitt hafi verið að finna þýsku flugvjelarnar vegna þess hve lágskýjað var. DAGÁRÁSIRNAR. Loftárásirnar, sem Þjóðverjar gera að degi til virðast aðallega miða að því, að eyða kröftum breska flughersins og eyði- leggja stöðvar hans á suður- og suð-austur-ströndinni. Sprengju- flugvjelar sem sendar eru yfir England að degi til verða að hafa öfluga fylgd orustu-flug- vjela til þess að verja þær ársá- um bresku orustuflugvjelanna, en þetta gerir það að verkum, að dagárásirnar eru bundnar aðallega við suðurströndina. Or- sökin til þessa er sú, að orustu- flugvjelarnar geta ekki flutt með sjer nema takmarkaðan forða af bensíni, eða aðeins til 2—-3 klst. flugs. Það er þess- vegna ekki nema takmörkuð vegalengd, sem þær geta flogið, vegalengd, sem verður þeim mun styttri, þeim mun fleiri or- ustur, sem flugvjelarnarnar verða að heyja. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU 10 þús. smál. herflutninga- skipi sfikt BRESKA flotamálaráðuneyti'ö hefir staðfest þá fregn, að kafbáturinn „Sturgeon" (640 smá- lestir) hafi að kvöldi 2. september sökt 10 þús. smálesta þýsku her- flutningaskipi við norðurströnd Danmerkur. Fregn hafði borist um þetta áð- nr, frá Svíþjóð, en þá var hún borin til baka. í Þýskalandi. Liðs- foringi á breska kafbátnum hefir skýrt svo frá, að í fregn frá Dan- mörku hafi þess verið getið að 3—4 þús. hermenn hafi verið um borð í herflutningaskipinu. Liðsforinginn segir, að tveir tundúrspíllar háfi verið í fylgd með skipinu. Þegar tnndurskeytið hæfði skipið gaus upp 2000 feta há reyksúla og 10 mínútum síðar var skipið alelda. Hálfri annari klst. síðar var skipið sokkið. ítölsk blöð segja. — Churcbill— London í gær —; Þorpið Churchill 1 Somerset (Eng- landi) hefir sent þorpinu Churchill í Nevada (Banda- ríkjunum) skejrti, þar sem látin er í ljós ánægja yfir því að forustuskip tundur- spillanna, sem Bretar fengu frá Bandaríkjunum, skuli hafa verið skírt Churchill. f skeytinu segir, að nafn- gjöf þessi muni verða til að treysta vináttuböndin millí Breta og Bandaríkjamanna. Kr. 50 milj. London —: Samkvæmt fregn- um í rússneskum blöðum nema útgjöld franska ríkisins vegna uppúhalds þýska hersins í Frakklandi sem svarar um 50 miljón krónum á dag. „Deutsches Nachrichtenbúro“ segir, að það sem rætt hafi ver- ið um væri hin nýja skipun Ev- rópumálanna, eftir að England er sigrað. En það var ekki að- eins rætt um skipun Evrópu- málanna, heldur einnig um framtíð Afríku, sem um langan aldur hefir átt við kúgun af hálfu Breta að búa. Einnig er álitið, að rætt hafi verið um Sýrland, Palestínu, Transjórdaniu og Irak, og um Tyrkland og Grikkland, sem sögð eru i Berlín vera enn undir áhrifum frá Bretlandi. En bæði í Berlín og Róma- borg er látin í ljós *ú skoðun að stríðið gegn Eng landi sje komið á það stig, bæði um lofthernað á sjálft England og um hernaðinn í Egyptalandi, að fundur- inn í Rómaborg hafi verið nauðsynlegur. f fylgd með von Ribbentrop í Rómaborg var heill hópur af FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.