Morgunblaðið - 08.10.1940, Side 6

Morgunblaðið - 08.10.1940, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 8. október 194(K 86 fjölskyldyr varrtar húsnæði u H : vt-.- 'lU .0 0 f j í bænum Það eru 346 einstaklingar, þar af 161 barn HÚSALEIGUNEFND gaf í vikunni sem leið út tilkynningu, þar sem hún óskaði eftir, a& allir þeir bæjarbúar, sem vantaði húsnæði, gæfi sig fram hjá nefndinni á föstudag og laugardag. Þessa tvo daga gáfu sig fram 86 fjölskyldur, sem alls eru 346 einstaklingar, þar af 161 bam. Auk þess gáfu sig fram 16 einhleypir, sem vantaði húsnæði. f gær komu enn nokkrar fjölskyldur í viðbót. Valur - Vfklngur jafntefli 1:1 Kappleikurinn á sunnudaginn milli Vals og Víkings var beeði fjörugur og skemtilegur og endaði með jafntefli; einu marki gegn 1. Veður var hið ákjósanlegasta en Völlurinn mjög slæmur. — Voru stórir pollar á vellinum, sem háðu mjög leiknum. Á- horfendur hafa sennilega .verið hátt á annað þúsund. Val var dæmt fýrra markið og mun dómarinn ekki hafa sjeð að Björgúlfur var rang- stæður er markið var sett, eða xjettara sagt skömmu áður en markið var sett. Bakverðir Vík- ings sáu að Björgúlfur var rangstæður og bjuggust auðsjá- anlega við að dómarinn myndi flauta, því ,þeir hættu að elta knöttinn. Sigurpáll náði þá í knöttinn og skoraði. Til frekari skýringar á rang- stæðunni skal á það bent, að þó Björgúlfur hafi ekki komið við knöttinn, hafði hann vitan- lega „áhrif á leikinn“ um leið og knettinum var sparkað og því um leið rangstæður, þar sem aðeins markmaður Víkings var fyrir innan hann. Frá þessu er ekki sagt vegna þess að mjer þyki úrslit leiks- ins órjettmæt, því Valsmenn voru óhepnir að „brenna af“ vítaspyrnu, sem dæmd var á Víking. Víkingar settu sitt mark skömmu seinna og gerði Björg- vin Bjarnason það, sem nú ljek; aftur með Víking, en hann hef- ir ekki dvalið í bænum síðan í vor. Ungur Akureyringur ljek vinstra bakvörð í liði Víkings og ýirðist þar vera efnilegur leikmaður á ferðinni. Vivax. Sundmeistaramótið FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. 200 m. bringusund karla. Fyrst- ur varð methafinn Sigurður Jóns- son (KR) á 3 mín. 2.0 sek. Er það slæmur tími, því met hans er 2:57.3, en hann fór illa af stað. Annar varð Magnús Kristjánsson (Á) á 3:9.5 og þriðji Sigurjón Guðjónsson (Á) á 3:9.6. 4x50 metra boðsund vann sveit Ægis á 1 mín. 57.9 sek. Næst varð A-sveit Ármanns og nr. 3 urðu jafnar B-sveit Ármanns og aveit KR. Húsaléigunefnd hefjr undan- farna daga gert sjer far um að rannsaka hvort nokkursstaðar væri að hafa lausar íbúðir í bæn- um. Var nefndinni lítið ágengt í þeirri eftirgrenslan; fann aðeins örfáar íbúðir lausar. Er það álit nefndarinnar, að mjög lítið sje af lausum íbúðum í bænum og horf- ir því til stórra vandræða með þann mikla fjölda, sem er húsnæð- islaus. Allar líkur eru til þess, að ef breska setulíðið hefði ekki sest að í íbúðarhúsum, þá hefði vand- ræðum veríð afstýrt. Að vísu liggja ekki fyrir skýrslur um það, hve margar íbúðir Bretar hafa, en vitað er, að þeir hafa nokkur heil hús og auk þess nokkrar íbúð ir í húsum. Eru það yfirleitt íbúð- ir, sem voru auðar í sumar, vegna þess að leigjendur sögðu þeim upp. Ekki er ósennilegt, að ríkis- stjórnin gæti náð samkomulagi við breska setuliðið um, að víkja úr íþúðunum, til þess að bæjar- búar geti komist inn. Að sjálf- sögðu verður reynt að ná sam- komulagi um þetta, því að til stór- vandræða horfir, ef ekki tekst að leysa vandræði þess fólks, sem nú er húsnæðislaust. Rjett er að taka það fram, að þetta fólk, sem er húsnæðislaust, hefir yfirleitt ekki mist húsnæði vegna vanskila. 1 mörgum tilfell- um stendur þannig á, að fólkið dvaldi í sumarbústöðum sumar- mánuðina og sagði í vor upp íbúð um sínum. Þá er einnig sú ástæð- an, að húseigendur hafa sjálfir tekið íbúðir handa sjer eða sínu venslafólki. Húsaleigunefnd mun nú skrifa ríkisstjórninni og tjá henm hvernig ástandið er. Vesturbærinn vann Austuibæinn í skák Skákkepni fór fram á sunnu- daginn milli Vestur- og Austurbæinga, eins og undan- farin haust. Teflt var á 10 borð- um. Úrslit urðu þau, að Vest- urbæingar unnu með 5V2 gegn 4% v. Úrlist á einstökum borðum urðu þessi. Vesturbæingar tald- ir á undan: I. borð, Baldur Möller vann Eggert Gilfer. II. borð, Brynjólfur Stefánsson og Magnús G. Jónsson, jafntefli. III. borð, Sturla Pjetursson vann Gúðm. Ágústsson. IV. borð, Hafsteinn Gíslason vann Sæ- mund Ólafsson. V. boyð, Áki Pjetursson vann Hermann Jóns- son. VI. borð, Pjetur Guð- mundsson tapaði fyrir Sigurði Gissurarsyni. VII. borð, Magn- ús Jónasson tapaði fyrir Kristj- áni Sylveríussyni. VIII. borð, Guðmundur Jónsson vann Að- alstein Halldórsson. IX. borð, Óli Valdimarsson tapaði fyrir Víglundi Möller og X. borð, Lárus Johnsen tapaði fyrir Marís Guðmundssyni. Um kvöldið var haldið sam- sæti í Oddfello'whúsinu í til- efni af 40 ára afmæli Taflfje- lags Reykjavíkur. Samsætið hófst með borðhaldi. Ræður fluttu m. a. Pjetur Zophonías- son, Elís Ó. Guðmundsson, for- seti Skáksambands íslands, Jak. Möller fjármálaráðherra og Sigurður Thoroddsen verkfræð- ingur. Heiðursfjelagar voru kjörnir þeir Sturla Jónsson kpm. og Sigurður Thoroddsen, sem báðir voru stofnendur fjelags- ins, þriðji stofnandinn, sem enn er á lífi, Pjetur Zophoníasson, var áður kjörinn heiðursfjelagi. Að loknu borðhaldinu og ræðunum skemtu menn sjer vio tafl, spil og dans fram eftir nóttu. Sjúklingar að Vífilsstöðum hafa beðið blaðið að færa knatt- spyrnufjelögunum Val og Víking, blöðum, útvarpinu, Lúðrasveit Reykjavíkur og öllum öðr- um, • sem aðstoðuðu við knatt- spyrnuleikinn 6. þ. m., alúðar þakkir fyrir hjálpina. Funöur j G verður haldinn í húsi fjelagsins, yonarstræti 4, í dag, þriðjudaginn 8. þ. m. kl. 8y2 e. h. FUNDAREFNI: Umræður um Fjelagsheimilið. Önnur fjelagsmál. FJELAGSMENN FJÖLMENNIÐ. STJÓRNIN. Fimtugur Jón Gunnlaugsson. ón Gunnlaugsson Stjórnarráðs- fulltrúi á fimtugsafmæli í dag. Hann er sonur merkisbónd- ans Gunnlaugs Þorsteinssonar á Kiðjabergi. Gekk hann í Menta- skólann þegar hann hafði þroska til, en hvarf frá námi, því að hugur hans hneigðist að búskap, og bjó hann í Biskupstungum um skeið á hinu fornfræga höfuðbóli og menningarsetri, Skálholti. Hvarf hann þó frá búskapnum og gerðist starfsmaður ( Stjórnar- ráðinu og hefir unnið þar mörg ár og er nú skrifstofustjóri í Sjúkramáladeild og örkumla. Jón er maður fáskiftinn og fer síst rasandi. Hefir hann því lítil áfskifti haft af þjóðmálum og ekki hleypt sjer út í styr stjórn- málanna, þótt hann sje svo ágæt- um hæfileikum búinn, að þar myndi hann geta unnið mikið og gott starf og látið að sjer kveða. Hann er hæði stefnufastur og glöggskygn á öll mál, en svo sam- viskusamur, að hann fylgir því einu, sem hann veit að rjett er. Um það geta best borið allir þeir, sem hafa átt því að fagna að taka einhvern þátt í fjelagsstörfum með honum. Og þótt hann virð- ist hæggerður, þá er hann í raun- inni stórhuga, og hefir manna bestan skilning á því, hvers fram- tíðin krefst af nútíðinni. I dómum sínum um það er hann hiklaus og ekki síngjarn, og er það einkenni bestu manna. Er honum tamara að hugsa um heill heildarinnar, heldur en stundar hagsmuni sjálfs sín. Jón er með háttþrúðustu mönn- um í allri framgöngu, og nýtur álits og vinfengis allra þeirra, sem kynnast honum best. Af heil- um huga verða því sprottnar all- ar þær árnaðaróskir, sem honum berast í dag. Einn. Knattspyrnumót Hafnarfjarðar. Kepnin hjelt áfram s.l. sunnudag og fóru leikar þannig, að I. fl. P. II. sigraði I. fl. Hauka með 5:1 og III. fl. Hauka vann HI. fl. F. H. með 1:0. Gangleri, 2. hefti 14. árgangs er kominn út. Meðal greina í rit- inu eru: Kossinn, Hvað er guð- spekif, Hvað eigum vjer að kenna? og Silkiþráðurinn, eftir ritstjórann Gretar Fells. Þá er einnig Viðhorf, eftir Kristján Sig. Kristjánsson, Hugsjónir og hygg- indi, eftir Jón Árnason prentara, Vísindi og guðspeki, eftir Þorlák Ófeigsson. Þá flytur ritið kvæði eftir Gretar Fells og Guðmund Geirdal, Samtal mitt við hinn lama mann. Ennfremur eru í rit- inu greinar eftir erlenda höfunda. Fjölment skemtikvöld ,Heimdallar‘ Skemtikvöld Heimdallar síð- astliðinn laugardag var afar fjölsótt og fór prýðilega fram. Sigurður Eggerz bæjarfógeti flutti afburða snjalla ræðu og var henni mjög vel tekið og ræðu- maður hyltur með húrrahrópi. Gunnar Thoroddsen lögfræðing- ur flutti skörulega ræðu um grundvöll sjálfstæðis og fullveld- is þjóðarinnar: íslenskt þjóðerni og þjóðrækni. Gunnar Kristins- son skemti með einsöng við ágæt- ar undirtektir og ungfrú Sif Þór,s sýndi listdans og tókst henni vel upp að vanda. Að því búnn var dansað til kl. 3 Fjölmenni var svo mikið, að dansað var bæði uppi og niðri, en þrátt fyrir það þurfti að vísa mjög mörgum frá vegna þrengsla. Er mjög ilt til þess að vita, að yfir stærra húsnæði skuli ekki vera hægt að ráða. Það er bersýnilegt, að þeir sem ætla sjer í framtíðinni að sækja þessi sjerstaklega vinsælu skemti- kvöld Heimdallar, verða vissulega að tryggja sjer löngu fyrirfram að geta komist að. Minningarorð nm Kristinn J. HinriKsson Þann 15. ágúst s.l. andaðist á heimili sínu Kristinn Jón Hinriksson, Túnprýði við Stokks- eyri, 68 ára, fæddur 6. febrúar 1872 í Ranakoti við Stokkseyri. Foreldrar hans voru Hinrik Jónsson frá Óseyrarnesi og kona hans, Guðríður Adolfsdóttur Pet- ersen hreppstjóra á Stokkseyri. Móðir Guðríðar, en kona Adolfs, var Sigríður Jónsdóttir Þórðar- sonar ríka í Vestri Móhúsum. Kristinn kvæntist 19. maí 1899 Ragnheiði Sigríði Pálsdóttur frá Gröf í Hrunamannahreppi (dáin fyrir mörgum árum) og eignuð- ust þau 3 börn: Guðríði, gifta Guðm. Sigurðssyni trjesmið á Stokkseyri, Jón Óskar og Kristinn Rögnvald, báða sjómenn í Reykja- vík. Kristinn stundaði jöfnum hönd- um sjómensku og landbúnaðar- störf, var lengi formaður á opnu skipi á Stokkseyri og reyndist heppinn formaður og glöggur við að ná landi í þeirri brimveiði- stöð, en að taka lagið þar á rjettri stund, er brimið er, gijdir oft líf bátverja, og þejm, sem óvanir eru að sjá lent þar í brimi, þykir oft djarft stýrt milli skerja og brot- sjóa, svo eigi verði af tjón. Kristinn hugsaði fyrst um að fullnægja þeirri borgaralegu dygð, að verða sjálfum sjer nógur og undi glaður við sitt, án þess að líta með öfund til þeirra nágranna í orði eða verki, sem voru efnaðri menn en hann. Kristinn var áhugamaður við vinnu, gæfur og glaðlyndur, og því eftirsóttur til vinnu og þótti gott að vera í verki með honum. Slíkra manna er minst méð virð- ingu. Þ. J.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.