Morgunblaðið - 15.10.1940, Síða 7
l>riðjudágur 15. okt. 1940.
7
tr
Spellvírkín
á Hitaveíttínní
FRAMH. AF ÞRIDJU SÍÐU.
ur formaður Dagsbrúnar, Sigurður
Halldórsson.
VerkfræSingur vor, Suhr Henrik-
sen, var af tilviljun staddur á vinnu-
staðnum og var viðstaddur viðræður
þær, sem þar fóru fram. Þeir for-
maður Dagsbrúnar, Sigurður Hall-
dórsson, og nefndir trjesmiðir ræddu
um það bvort uppsetning steypumót-
anna ætti að teljast trjesmiðavinna og
til hennar þyrfti að nota trjesmiði, eða
hvort verk þetta gæti talist verka-
mannavinna og mætti þvi framkvæma
af verkamönnum. I viðræðu þessari
viðhöfðu þeir trjesmiðimir, Tómas
Vigfússon og Einar Kristjáasson þau
ummæli að trjesmiðimir myndu rífa
niður steypumót þau, sem verkamenn-
imir væra að setja upp. Urðu um
þetta nokkur orðaskipti, þar sem með-
al annars Suhr Henriksen verkfræð-
ingur ljet í ljós að það myndi varða
við lög ef trjesmiðimir gerðu sig
seka í því ofbeldisverki að rífa niður
steypumótin. Formaður Trjesmiðafje-
lagsins, Tómas Vigfússon, snjeri sjer'
beint til verkamanna, sem voru að
vinna við uppsetningu mótanna, og
skipaði þeim að hætta þar vinnu, en
þeir svöraðu að þeir tækju ekki við
neinum fyrirskipunum af hans hendi,
en færa eftir því, sem formaður Dags-
brúnar, Sigurður Halldórsson, segði
þeim fjrrir í því efni. Sigurður Hall-
dórsson lagði fyrir þá að halda áfram
við að setja upp mótin til loka vinnu-
tímans, og var því verki haldið áfram
til kvölds. Trúnaðarmenn Trjesmiða-
fjelagsins og Sigurður Halldórsson
fórft síðan ,af vinnustaðnum, og hefir
Sigurður síðan sagt Suhr Henriksen
verkfræðingi frá því, að trúnaðar-
inenii Trjésmiðafjelagsins hefðu á leið-
inni heim aftur tekið það fram að
steypumótin mundu vera rifin niður,
og' hafi hann þá svarað því til að
þá yrði vinnan þess meiri fyrir verka-
mennina.
Við lok vinnutímans á laugardaginn
höfðu verkamennirnir komið fyrir
stéypumótum á hjer um bil 80 m.
svæði, með fram pípnarennunni.
ITm hádegi á sunnudag kom Suhr
Henriksen verkfræðingur á vinnustað-
inn ög voru þá tjeð steypumót óhreyfð.
En þegar verkamennimir komu til
vinnu sinnar á tjeðan vinnustað um
kl. 71/2 í morgun var búið að rífa
niður umrædd steypumót á hjer um bil
65 metra svæði. Hafði steypumóta-
flekunum verið fleygt í mýrina þar
hjá og járnkrókum og fleygum verið
kastað burtu og dreyft hingað og
þangað.
Vottar að því að steypumótin voru
óhreyfð við íok vinnutímans á laugar-
daginn, og hvemig þeim hafði verið
tvistrað í morgun era þeir„ Jóhann
Bénediktsson verkstjóri, Njálsgotu 8C,
hjer í bænum og verkamennimir, Ar-
sæll Kjartansson, Jón Þorsteinsson,
Stígur Guðbrandsson, Sverrir Svend-
sefn, Ólafur Th. ÓLafsson og Ragnar
Jónsson.
Vjér leyfum oss að kæra fyrir vð-
ur, herra sýslumaður, ofbeldis- og
skemdarverk það, sem hjer hefir verið
framið og ósknm þess að opinber
rannsókn fari fram um þetta mal, og
að þeir, sem sekir kynnu að reynast í
þessu efni verði látnir sæta fullri
ábyrgð, bæði tjl hegningar og skaða-
bóta.
Virðingarfylst
f. h. Höjgaard & Sehultz A-s.
Kay Langvad.
f hjúskaparfregn, sem birt var
í síðasta bíaði, hafði misprentast
n<ifn brúðarinnar Rósa, en átti
að vera Bára Siguf jónsdóttir.
Dagbók
□ Edda 594010157 — Fjár-
hagsst.
I. O.O.F. = O.b. l.P. = 122101581/*
— XX
Næturlæknir: Pjetur Jakobsson,
Landsspítalanum, sími 1774.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni.
80 ára er í dag Ásbjörn Ólafs-
son, Þingholtsstræti 22.
79 ára verður í dag ekkjan
Guðrún Vigfúsdóttir, ' Lokastíg
28 Á.
Hjónaband. Síðastliðinn sunnn-
dag voru gefin saman í bjóna-
band af sjera Friðrik A. Frið^iks-
syni í Húsavík, ungfrú Guðrún
Kristjánsdóttir, Holti, Húsavík og
Sigurður Baldursson, Lundar-
brekku í Bárðardal.
Hjónaefni. Nýlega hafa opinber
að trúlofun sína, ungfrú Helga
Kristjánsdóttir, Fremstafelli og
Andrjes Kristjánsson, kennari í
Húsavík.
Hjónaefni. Nýlega hafa opinber-
að trúlofun sína, ungfrú Guðrún
Sörensdóttir, Aðaldal, og Jóhann
J. Jóhannesson, Grenjaðarstað, S -
Þingeýj arsýslu.
Hjónaefni. S. 1. laugardag op-
inbehuðu trúlofun sína ungfrú
Sigríður Hannesdóttir, Hofsvalla-
götu 18 og Guðmundur Jónsson
bifvjelavirki, Hringbraut 204.
Knattspyrnukappleik háðu s. 1.
sunnudag úrvalslið úr Fimleika-
fjelagi Hafnarfjarðar og Knatt-
spyrnufjel. Hauka í Hafnarfirði
við hið nýstofnaða Knattspyrnu-
f.jelag prentara (K. P.). Sigraði
K. P. úrvalsliðið með 4:1. '
Leikfjelag Reykjavíkur hefir
nú sýnt leikritið „Loginn helgi“
tvisvar fyrir troðfullu húsi. Næsta
sýning verður annað kvöld.
Námsflokkar Hafnarfjarðar
taka til starfai umi ihæstu mánaða-
mót. Sjera Garðar Þorsteinsson
veitir þeim forstöðu. Auk hans
verða þeir kennarar. Sjera Jón
Auðuns og Guðjón Guðjónsson,
skólast.jóri. Kensla fer fram í
Flensborgarskólanum og verðnr
kent á kvöldin. Nemendur greiða
ekkert skólagjald og verður náms
tilhögun svipuð og hjá Náms-
flokkum Reykjavíkur .
Ungur listamaður, Örlygur Sig-
urðsson frá Akureyri er staddur
hjer í bænum. Á Akureyri er
hann ktmnnr fyrir skopteikningar
sínar, sem þykja afbragð, og eink-
um skopteikningahókina „Car-
mina 1040“, sem Mentaskólanem-
endur á Akureyri gáfu út í fýrra-
vetur.
Um íslenskar þjóðsögur heitit
allmikil bók eftir dr. Einar Ól.
SVéinss'on, ■ sem nýl. er komin úl.
Bók þeSsi er kostúð af sjóði
Margrjetar Lelimann-Filhés, en
gefin út af Bókmenntafjelaginu.
Eins og nafn bókarjnnar ber með
sjer, tekur . dr. Einar Ólafur
Sveinsson sjer . þar fyrir hendur
að skýra uppruna íslenskra þjóð-
sagna. í formálanum segir hann
meðal annars; „Jeg hefi lagt all-
mikla rækt við áð dragá fram í
dagsljósið og halda á lofti gögn-
um um íslenskar þjóðsögur á þeim
öldum, þegar þær eru mest myrkva
huldar, en um þjóðsögur 19. ald-
ar bef jeg hins vegar að jafnaði
látið mjer nægja að benda á dæmi
úr aðalsafninu; öðrum mönnum
er leikur einn að bæta þar við“.
Þetta er stór bók, 320 blaðsíður í
Skírnisbroti, fróðleg og skemti-
leg. Meðal aiuiars eru nokkrar
myndir í bókinni. Þar er mynd
af Jóiii Árnasyni, hinum alþekta
íslenska fræðaþul, Konráð Maurer,
Draugnum í kirkjugarðinum, eft-
MORGUNBLAÐIÐ
ir málverki Ásgríms Jónssonar og
Bakkabræðrum, eftir teikningu
Guðm. heitins Thörsteinsson. Enn-
fremur mynd af rithond Galdra-
Lofts og Jóns lærða. Af bókinni
var prentað dálítið fram yfir fje-
lagatölu Bókmenntafjelagsins, og
verður það selt í bókaverslunum.
Farsóttir og manndauði í Rvík
vikuna 22.—28. sept. (í svigum
tölur næstu viku á undan): Háls-
bólag 41 (35). Kvefsótt 100 (87).
Blóðsótt 4 (0). Gigtsótt 1 (0).
Iðrakvef 31 (19). Kveflungna-
bólga 5 (2). Taksótt 1 (1). Rauðir
hundar 1 (3). Skarlatssótt 1 (0).
Kossageit 1 (0). Munnangur 4
(0). Hlaupabóla 1 (0). Ristill 4
(0). — Mannslát 8 (7). — Land-
læknisskrifstofan.
Útvarpið í dag:
12.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútavrp. .
18.30 Dönskukensla, 1. flokknr.
19.00 Enskukensla, 2. flokkur.
19,25 Hljómplötur: Lög úr óper-
ettum og tónfilmum.
20.00 Frjettir.
20.30 Tónskáldakvöld, I: Árni
Thorsteinsson sjötugur:
a) Útvarpshljómsveitin leikur.
b) Sönglög af hljómplötum.
e) Erindi (Hallgrímur Helga-
son tónskáld),
d) Einsöngur (Gunnar Pálsson)
21.50 Frjettir.
Æskulýðsfundurinn
FRAMH. AF FJÓRÐU SÍÐU.
Viljum vjer mega vænta fulls
skilnings á því, að þær eru ein-
vörðungö sprottnar af þjóð-
legri hvöt og vita inn á við
að oss sjálfum, en fela að öðru
leýti ekki í sjer neinn dóm á
hernaðaraðgérðum Breta hjer
á landi eða annarsstaðar.
Jens Guðbjömsson,
form. Glímufjel. „Ármann“.
Ragnar Lárusson,
form. Knattspyrnufjel. ,,Fram“.
Jóhann Hafstein,
form, F.U.Si ,,Heimdallur“.
Torfi Þórðarson,
form. íþróttafjel. Reykjavíkur.
Guðrún Stefánsdóttir,
form. Kvenskátafjel. Rvíkur.
Daníel Gíslason,
form. Skátafjel. Rvíkur.
Þorsteinn Bjarnason,
form. U.M.F. „Velvakandi".
Þorsteinn Jósefsson,
form. Farfugladeildar Rvíkur.
Jóhannes G. Helgason,
form. fjel. ungra Framsókn.m.
Unnur Jónsdóttir,
form. Iþróttafjel. kvenna.
Matthías Guðmundsson,
form. fjel. ungra Jafnaðarm.
Erlendur Pjetursson,
form. Knattspýtnufjel. Rvíkur.
Sveinn Zoega,
form. Knattspyrnufjel. „Valur“
Guðjón Einarsson,
form. Knattsp.fjel. „Víkingur“.
Eftir að aðalályktunin var
samþ., var eftirfarandi tillaga
lögð fyrir fundinn og samþ.
einróma:
Æskulýðsfundurinn ályktar,
að með fundi þessum sje hafið
slíkt samstarf æskulýðsfjel?ig-
anna í Reykjavík, er æskilegt
væri, að-gæti haldist áfram.
Beinir fundurinn því til
stjórna fjelaganna, að þær
beiti sjer fyrir áframhaldandi
samstarfi á þeim grunvelli, er
nú hefir verið lagður.
Fundarboð.
•; V V ' ■
Hluthafafundur verður haldinn í Bátafjelagi Hafnar-
fjarðar h.f., þriðjudaginn 22. okt. kl. 8,30 síðd, í húsi
Dagheimilisins á Hörðuvöllum.
Fundarefni: Tillögur fjelagsstjórnar um aukningu
hlutafjár.
STJÓRNIN.
Fasteignagjöld.
I dag licfjast lögtðh fyrir
ógreiddum fasfeignagjöld-
um til bæjarsjóðs Reykja-
víkur er fjellu I gjalddaga
2. jauúar 1940: Húsaskafti,
lóðaskatfi, wafnskatfi og
lóÖarleigu.
Verða lOgfðkin fram-
kvæmd næsfu daga, á n
frekarl aöwörunar.
Borgarritari.
Reykjavík — Pingvellir
Ferðir til Þingvalla í þessum mánuði alla miðvikudaga,
laugardaga ag sunnudaga. Frá Reykjavík kl. I01/2 árd.
Frá Þingvöllum kl. 6 síðd. Athugið breytinguna á burt-
farartímanum. — Valhöll er opin. /
Steindór Sími 1580.
Móðir okkar og tengdamóðir,
ÞORBJÖRG EINARSDÓTTIR,
andaðist að heimili okkar, Barónsstíg 10, mánudaginn 14. þ. m.
Guðmundur Halldórsson. Fríða Aradóttir.